Dagur - 07.10.1964, Page 2
r
Nokkrar samþykktir frá Iþróttaþingi
KR vðnn Ákureyringa með 1:0
B-lið KR vann Keflvíkinga með 2:0 og Akur-
r
nesingar unnu Þrótt 1:0 í Bikarkeppni KSI
ÞRÍR leikir fóru fram sl. sunnu
dag í Bikarkeppni K.S.Í. Úr-
slit þeirra urðu:
B-lið KR vann Keflavík 2:0.
Akranes vann Þrótt 1:0.
A-Iið KR vann Akureyri 1:0.
Þriðji leikur Akureyringa í Bik
arkeppninni var við A-lið KR
í Reykjavík á sunnudaginn fór
svo að þeir urðu að láta í minni
pokann, hvað mörk snerti. En
þeim sem sáu leikinn ber yfir-
leitt saman um að Akureyring-
ar hafi átt möguleika á sigri, en
mörkin ráða úrslitum, hvað sem
öðru líður í leiknum. En súrt
er að þola tap, fyrir hæpinn eða
rangan dóm eins og fram kem
um hjá mörgum að átt hafi sér
stað að þessu sinni. Leikar
stóðu jafnir fram á síðustu mín
útu, að dæmd var aukaspyrna
á Akureyringa á vítateigslínu,
fyrir „brot“ sem fæstir urðu var
ir við nema dómarinn kunni,
Einar Hjartarson, Ellert Schr-
am skaut föstu skoti í gegnum
glufu í varnarvegg Akureyr-
inga og í mark, og þar með
voru úrslitin ráðin og Akureyr
arliðið þar með úr sögunni í
Bikarkeppninni á þessu hausti.
Ovæntustu úrslitin urðu í
leik B-liðs KR og nýbakaðra ís
landsmeistara frá Keflavík. B-
liðið stóð sig með prýði og hin-
ir sigurvissu Keílvíkingar voru
slegnir út úr Bikarkeppninni.
í leik Þróttar og Akraness
voru lítil tilþrif.
BLAÐIÐ náði snöggvast tali af
Árna Ingimundarsyni stjórnar-
manns úr Knattspyrnuráði Ak-
ureyrar og Jóni Stefánssyni,
fyrirliða Akureyringa í leikn-
iim.
Hvað segir þú um leik Í.B.A.
og KR. Árni?
Ég er mjög óánægður með
þessi úrslit. Okkar piltar léku
oft vel saman voru yfirleitt
fljótir „á boltan“ og áttu meira
í leiknum þegar á allt er litið.
Ég tel það mikla óheppni að
þeim skyldi ekki takast að
skora .mark, en Heimir varði
líka vel fyrir KR. Aukaspyrn-
an sem mark varð úr þegar um
mínúta var eftir af leik, tel ég
að hafi verið vafasöm.
Þú sást b-lið KR-inga vinna
íslandsmeistarana frá Kefla-
’vík?
Já og það átti fyllilega skilið
að vinna leikinn. Eg held að
þetta b-lið KR gefi A-liðinu lít
ið eftir, enda hef ég heyrt, að
í æfingaleikjum milli liðanna í
sumar hafi b-liðið eins oft sigr
að. Og a-liðið óttast því mjög
um sinn hag ef svo skyldi fara
að bæði liðin mættu til úrslita
leiksins í Bikarkeppninni.
Hvað segir þú um fallleik
ykkar Jón?
Eftir gangi leiksins eru úr-
slitin ekki sanngjörn. KR-ing-
ar höfðu heppnina með sér og
unnu mest vegna hennar. Sókn
in var meir að okkar hálfu og
markskotin mun fleiri, en knött
urinn vildi ekki í netið, enda
átti Heimir góðan leik. í heild
var leikurinn fjörugur og okkar
lið sýndi allt annan og betri
FRÉTTABRÉF
Kennaranámskeið á Húsavík
DAGANA 25. til 28. sept. að
báðum dögum meðtöldum var
haldið kennaranámskeið á Húsa
vík á vegum Kennarafélags
Suður-Þingeyinga.
Námskeiðið sóttu 19 kennar-
ar úr Norður- og Suður-Þingeyj
arsýslu. Aðal leiðbeinandi á
námskeiðinu var Sigurþór Þor
gilsson, kennari úr Reykjavík,
en hann starfar nú sem leið-
beinandi á vegum Fræðsluskrif
stofu Reykjavíkur við barna-
skólana þar. Verkefni nám-
skeiðsins var „starfræn vinnu-
brögð í kennslu lesgreina“.
Á námskeiðinu fluttu erindi
tveir námsstjórar, Óskar Hall-
dórsson cand. mag. og Valgarð
ur Haraldsson, settur námsstjóri
á Norðurlandi.
í sambandi við námskeiðið
var haldinn aðalfundur Kenn-
arafélags Suður-Þingeyinga.
Meðal annars var þar samþykkt
að breyta nafni þess í Kennara-
félag Þingeyinga og gefa kenn
urum í Norður-Þingeyjarsýslu
lcost á að ganga í félagið. For-
maður félagsins er Kári Arnórs
son, skólastjóri, Húsavík.
Skólar Iiefja vetrarstörfin:
Barnaskóli Húsavíkur var sett
ur 1. þ.m. og verða nemendur
þar í vetur 220 í 10 bekkjardeild
um Kennarar eru 8. Gagnfræða
skóli Húsavíkur var settur 2.
þ.m., en í honum verða í vetur
111 nemendur í sex bekkjadeild
um Þá er Tónlistaskólinn að
hefja starfsemi sína en í hon-
um verða um 30 nemendur í
vetur. Aðalkennari skólans er
Reynir Jónasson. í Iðnskólan-
um verða um 40 nemendur, en
hann byrjar um miðjan október.
Borinn kominn í Bjamarflag
Borun eftir heitu vatni er nú
hætt á Húsavík að sinni. í
fyrra var boruð ein djúp hola
með Norðurlandsbornum og í
sumar hafa verið boraðar þrjár
holur með minni bor. Ekki eru
menn vonlausir um, að heitt
vatn kunni að vera í holunum
og liggur næst fyrir að rann-
saka það nánar.
leik en áður í Bikarkeppninni.
Síðasta mínútan í leiknum varð
afdrifarík fyrir okkur og auka
spyrnan var kannske hæpinn
dómur, annars er ekki alltaf
gott fyrir leikmenn að hveða á
um slíkt.
En hvað um leik Keflvíkinga
og b-liðs KR?
Það var gaman að sjá þann
leik. B-liðið átti hiklaust að
vinna og sigurinn gat orðið
stærri, því vítaspyrna hjá þeim
nýttist ekki. Leikmennirnir eru
flestir ungir, frískir og baráttu
glaðir 'og ég tel þetta lið síst
lakara en aðallið KR. Vonbrigði
íslandsmeistaranna hafa áreið-
anlega verið mikil, ekki síst eft
ir það sem á undan var gengið.
FRA HUSAVIK
Borinn, sem hér var í sumar
er nú kominn upp í Bjamarflag
við Mývatn og verður notaður
þar, til að fóðra holu, sem Norð
urlandsborinn var áður búinn
að bora. Reynt verður að fá þá
holu til að gjósa með því að
fóðra hana niður fyrir kalda
æð, sem í henni er.
ísjaki á siglingu.
Glæstur ísjaki er á siglingu um
Skjáifandaflóa þessa dagana. Á
laugardag virtist hann hafa
lagst við stjóra inni á Eyvík við
Tjörnes og brugðu margir Hús-
víkingar sér þangað úteftir til
að-skoða hann. í Eyvík brotnaði
af jakanum og situr brotið eft
ir, en meginjakinn hefur færst
norður með Tjörnesi og er nú,
á mánudag, um .2000 m undan
Hallbjarnarstaðakömbum.
Sjúkrahúsbyggingin.
Bygging sjúkraliúss á Húsavík
gengur mjög vel. Verið er að
slá upp fyrir steypu á annarri
hæð hússins fyrir ofan kjaliara
en það er einni hæð meira, en
gert var ráð fyrir að steypt yrði
upp á þessu ári.
Félag rjúpnaveiðimanna.
Hafin er á Húsavík undirbún-
ingur að stofnun félags manna,
er áhuga hafa ó rjúpnaveiðum
og e.t.v. ýmiskonar öðrum sport
veiðum. Undirbúningsfundur
var haldinn sl. föstudag og þá
kosin nefnd manna, til að gera
drög að samþykkt fyrir félagið.
Ný þvottastöð.
Olíufélagið hf. hefur í sumar lát
ið byggja á Húsavík mjög mynd
arlega þvottastöð fyrir bifreiðar
Stöðin sem stendur við Ketils-
braut, rétt austan við Olíusölu
K.Þ. var í fyrsta skipti tekin
í notkun á síðastliðinn laug-
ardag. Fyrsta bifreiðin, sem
þangað rann til laugar var bif
reiðin, Þ-l, en eigandi hennar
er hinn kunni bifreiðarstjóri,
Jónas J. Hagan, Húsavík.
Þess er vænst, að notendur
stöðvarinnar og aðrir gangi um
hana með snyrtibrag, syo að
hún verði fremur til prýði, en
lýta í bænum. Þ.J.
Eftirfarandi tillögur voru
samþykktar á þingi íþrótta
sambands fslands í Reykja-
vík í sl. mánuði.
Frá framkvæmdastjóm ÍSÍ
íþróttaþing ÍSÍ 1964, heimilar
framkvæmdastjórn að hefja und
irbúning að því að koma upp
æfinga- og námskeiðabúðum fyr
ir íþróttasamtökin.
íþróttaþing 1964 telur að sú
þróun sé eðlileg, að séfsamband
verði myndað fyrir íslenzka
glímu. Fyrir því felur þingið
framkvæmdastj. ÍSÍ að vinna
að undirbúningi og stofnun sér-
sambands í glímu, á þessu
hausti.
íþróttaþing ÍSÍ 1964, lýsir yfir
eindregnum stuðningi við tillög
ur þær um uppbyggingu íþrótta
mannvirkja, er nefnd sú hefur
samið, er menntamálaráðherra
skipaði á sl. ári, til þess að at-
huga fjármál og framkvæmdir
íþróttasjóðs.
Frá íþróttanefnd.
íþróttaþing ÍSÍ 1964, fagnar
þeim framkvæmdum, sem í
sumar hefur verið unnið að við
íþróttakennaraskóla íslands að
Laugavatni.
Jafnframt beinir þingið þeim
tilmælum til menntamálaráð-
herra, að hann hlutist til um
að gerð verði fimm ára áætlun
um uppbyggingu íþróttakenn-
araskóla íslands.
FRó íþróttamerkjanefnd.
íþróttaþing haldið í Reykjavík
dagana 19. og 20. september
1964, samþykkir:
1. Hafin skuli keppni um
íþróttamerki ÍSÍ fyrir kon
ur.
2. Aldurstakmark verði
lækkað úr 16 árum í 14
ár.
Frá Þorsteini Einarssyni.
íþróttaþing ÍSÍ haldið 19. og
20. september 1964, samþykkir
að beina þeim tilmælum til hátt
virts menntamálaráðuneytis, að
húsakynni til íþróttaiðkana séu
reist við hvern nýjan skóla jafn
Olympíuleikarnir verða háðir í
Tokíó í Japan að þessu sinni og
hefjast n.k. laugardag. Mikill
fjöldi sækir þessa leika og með
al keppenda eru fjórir íslend-
ingar, Valbjörn Þorláksson og
Jón Þ. Olafsson, sem keppa í
frjálsum íþróttum og Hrafnhild
ur Guðmundsdóttir og Guð-
mundur Gíslason sem keppa í
sundi. Fararstjóri er Ingi Þor-
steinsson, formaður F.R.Í. —
Ekki er líklegt að ísl. keppend-
urnir verði framarlega í keppni
á þessum leikum, þó segja megi
að árangur þeirra sé full boðleg
ur hvar sem er. ,
Setningarathöfn Olympíuleik
anna verður 10. október og
snemma og fyrsti áfangi við-
komandi skóla.
Frá framkvæmdastjórn ÍSÍ
íþróttaþing ÍSÍ, heimilar fram-
kvæmdastjórn ÍSÍ að koma á
landshappdrætti einu sinni á ári
til styrktar hinu félagslega
starfi íþrótta- og ungmennafé-
laga í landinu.
íþróttaþing ÍSÍ 1964, telur að
sú reynsla er fékkst að for-
mannafundinum í Haukadal
1963, sé það jákvæð, að rétt sé
að framkvæmdastjórn ÍSÍ boði
til formanna fundar, á því ári,
sem íþróttaþing er eigi haldið.
íþróttaþing ÍSÍ 1964, samþ.
þá breytingu á lögum íþrótta-
sambandsins, að inn í sambands’-
ráð ÍSÍ komi fulltrúi frá hverju
núverandi kjördæmi, í stað full
trúa landsfjórðunganna.
í
Frá Þorsteini Einarssyni.
íþróttaþing ÍSÍ haldið 19. og 20.
september 1964, samþykkir að'-
fela öllum sambandsaðilum sín
um að vera vel á verði um:
1. að þau svæði eða lóðir,.
sem á gildandi skipulagí.
kaupstaða eða kauptúna,.
eru ætluð undir íþrótta-
mannvirki, séu eigi skert.
eða feld niður sem slík og:
tekin undir annað.
2. að koma tillögum um
nauðsynleg svæði eða lóð
ir undir íþróttamannvirki
nógu snemma á framfæri
til viðkomandi yfirvalda,
er unnið er að skipuiagi
nýrra byggðahverfa éða
er gera skal breytingar á.
gömlum hverfum.
Ennfremur skorar þingið á ný-
skipað skipulagsráð að gæta
þess að vel sé séð fyrir þörfum
almennings og íþróttamanna
hvað snertir stærð og legu opi
inna svæða, þar sem iðka má.
íþróttir og að slík svæði séu
skipulögð sem varanleg mann-
virkí en ekki til bráðabirgða.
f sambandi við skipulagningu
skólalóða beinir þingið þeim til-
mælum til menntamálaráðu-
neytis, að fvrst og fremst sé um
ræddar lóðir skipulagðar og
unnar í tilliti til hreyfingar- og
leikjaþarfar skólanemenda.
strax næsta dag hefst sund-
keppnin. — Guðmundur verður
fyrstur íslendinganna í eldlín-
unni, keppir þann dag í 100 m.
skriðsundi — en daginn eftir í
400 m. fjórsundinu, sem er hans
aðalgrein. Hrafnhildur keppir
þá einnig í 100 m. skriðsundi,
en 15. októ'oer í 100 m. flug-
sundi.
Keppni í frjálsum íþróttum
hefst 14. október og næsta dag
mun Valbjörn keppa í stangar-
stökki. Aðalgrein hans verður
hins vegar tugþrautin, sem fer
fram 19. og 20. októbér og Jón
Ólafsson keppir í hástökki þann
20. október.
Fjórir keppendur Islands á Olynipiiileikununi