Dagur - 05.11.1964, Page 1

Dagur - 05.11.1964, Page 1
Dagur Símar: 1166 (ritstjóri) 1167 afgreiðsla) r~~ ............... ^ Dagur kemur út tvisvar í viku og kostar 20 krónur á mánuði ■l ......-JJ FORSETAKOSNINGARNAR sem fram fóru í Bandaríkjun- um í gær, vöktu lieimsathyggli. Þótt ltosningaspár væru Lyn- don B. Johnson hliðhollar, og því hliðholiari, sem nær dró kosningunum, varð sigur hans enn meiri. Lyndon B. Johnson. Um hádegi í dag bárust þær fréttir, að hann hefði sigrað í 44 ríkjum af 50 og hann hefði hlotið 490 kjörmenn móti 25 kjörmönnum, sem andsfæðing urhans, Barry Goldvvater, for- setaefni Republikana, fékk, sam kvæmt sömu fregnum. En þá voru úrslit ekki kunn í öllum kjördæmum. Kosningabaráttunni var sjón- varpað bæði austan hafs og vestan, kosningadaginn, með aðstoð þriggja gerfihnatta, raf- reikna o. fk tæknitækja. Demokratar hafa, er þetta er ritað, tryggt sér traustari meiri hlutá bæði í öldungadeild og fulltrúadeild Bandaríkjaþings, en þcir höfðu áður — undir for- ustu Lyndons B. Johnson for- seta. Sigur L. B. Johnson í þessum kosningum er einnig mikill sig- ur fyrir hina gifturíku stefnu J. Kennedy, því að í stærstu dráttum er stefna þeirra hin sama. Hinir rúmlega 70 milljón kjósendur Bandaríkjanna hafa því valið stefnu friðarins, jafn- réttis hvítra manna og svartra, stuðnings við alþjóðlega sam- vinnu, afnáms atvinnuleysis, aukinna trygginga og afvopn- unar. Kosningasigri þessarar stefnu er því víðast fagnað í frjálsum löndum. . □ Hér iiggur kennsiufiugvéhn eiiir siysið. (Ljosm. E. D.). Lítil flugvél fórst á Akureyri SUNNUDAGINN 25. okt. sl. fórst lítil eins hreyfils kennsluflugvél í Glerár- hverfi á Akureyri. Tveir menn voru í vélinni og sluppu lítið meiddir, en flug vélin er nær ónýt. Flugmaðurinn, ungur mað ur héðan úr bænum, sem hefur einkaflugspróf, hafði flugvélina leigða og bauð kunningja sinum með í flug ferðina. Þeir fóru hringflug yfir bæinn. Áður en slysið varð, hafði flugvélin lækkað flug- ið mikið, og þegar flugmað- urinn var að taka beygju til vinstri, rakst annar vængur- inn niður og við höggið kast aðist vélin til jarðar. Slys- staðurinn er nokkra metra frá íbúðarhúsinu Kollugerði II í Glerárhverfi. Þegar slysið varð, var flugveður gott, logn og gott skyggni. Ekki munu stjórntæki vél- arinnar hafa bilað. Flugvél- in var frá Flugskóla Tr. H. Þeir óku fram í JökuldaS Stórutungu í Bárðardal 22. okt. Hinn 20. þ. m. fóru 5 menn á tveimur Landroverbílum fram í Jökuldal í Tungnafellsjökli. En þar þóttust ferðamenn í sum ar hafa orðið kinda varir og þar fundust leifar tveggja kinda, er báru beinin þar í dalnum síð- asta vetur. Eftir 5 klst. akstur úr byggð, var komið í mynni Jökuldals. Akfæri var gott, lítill snjór á leiðinni og enginn snjór frammi í Jökuldal. Þar var fullt af rjúp um en engin kind. Þegár leitarmenn höfðu geng ið úr skugga um, að fé var ekki (Framhald á blaðsíðu 2). Egilsstöðum 22. október. Hér er grátt í rót eftir lítilsháttar snjó- komu í nótt, en hvítt er orðið til fjalla. Menn hafast vel við og eru meira að segja byrjaðir að ganga til rjúpna, fáir að vísu, því nóg er ar.nað að starfa og rjúpurnar enn tæpast viðmæl- andi, nema uppi á háfjöllum. Menn starfa við húsbygging- ar, sumir eru enn í síldinni og aðrir við sláturstörf. Féð er tal ið með vænna móti. Búið var að segja okkur, að í sumar æti að rannsaka jarð- AMERÍSKUR jarðeigandi, John Teal að nafni, sem fyrst- ur manna mun hafa gert til- raun með sauðnautarækt, segir í amerísku tímariti skemmti- lega sögu af þessum búpeningi sínum, og er hún endursögð hér nokkuð stytt: Sauðnautin eru landdýr heim skautalandanna, nú aðeins á Austur-Grænlandi og á heim- skautaslóðum Kanada. Hefur þeim verið útrýmt miskunnar- laust af veiðimönnum og heim- skautaförum, svo áð lá við ger- eyðingu. Sauðnautum hefur verið lýst sem ljótum skepnum og illvíg- um, mannýgum og mannskæð- um. Og ýmsir landkönnuðir hafa lýst þeim sem „hættuleg- ustu villidýrum í heimi“. En á bænum mínum í Vermont, sem er eitt n. au. fylkja Bandaríkj- anna, rétt sunnan við landam. Kanada, höfum við haft hóp sauðnauta síðan 1954, og reynsla okkar er sú, að dýrin eru bæði góðlynd og vel skyn- söm. Og ull þeirra er meðal fín- gerðustu ullarhára í heimi. — Það var stofnun Bandarikj- anna til rannsókna á búnaðar- skilyrðum á heimskautaslóðum, sem fyrst hóf tilraunir með tamnirigu sauðnauta árið 1954, eftir að íslenzk-ameríski heim- skautakönnuðurinn Vilhjá.lmur Stefónsson hafði rekið látlaus- an áróður um framkvæmdir á þessum vettvangi síðan 1920. Og loks fékk hann mig til að gera þessa tilraun. Ríkisstjórn Kanada hafði friðað sauðnautahjarðirnar þar nyrðra, en hafði nú veitt leyfi til að handsama nokkra kálfa með því skilyrði, að það ylli ekki fullorðnu dýrunum neinu tjóni. Handtaka kálfanna fór þann- ‘ * ' * , hitann hér í nágrenninu. Ekk- ert bólar á þeirri rannsókn enn þá. Búið var áður að bora tvær holur í Urriðavatni, og fékkst 56 stiga heitt vatn úr annarri borholunni. En svo mikilsvert, sem heita vatnið er, eru menn ennþá spenntari fyrir gasinu í Lagar- fljóti. Um gasið eru tvær tilgát ur. í fyrsta lagi getur það staf- að af rotnandi jurta- og dýra- leifum á milli nýlegra jarðlaga eða undir leirlögum. En gasið gæti líka átt uppruna sinn í Sauðnautin talin skemmtilegur búpeniugur ig fram, að við rákum kýrnar með kálfana út í grunnt vatn og hlupum síðan sjálfir út í og drógum kálfana til lands. Síðan (Framhald á blaðsíðu 2). 'MÍll&ý;,: Sauðnautin eru vitur og mannelsk dýr. eldri jarðsögutímabilum, og ef svo væri, kynnu þarna að vera mikil verðmæti. Búið var að segja okkur, að þetta yrði einn- ig rannsakað í sumar, en ekki hef ég orðið var nokkurra manna við þær rannsóknir. Og til þess að ganga úr skugga um þetta, þurfa jarðboranir að fara fram. Skólar eru nú teknir til starfa eða eru í þann veginn. Alþýðu- skólinn á Eiðum verður settur á morgun, en framhaldsdeild- irnar hafa þegar starfað um tíma. Rúmlega 100 manns verða í Eiðaskóla í vetur. Þórarinn Þórarinsson er í veikindafríi í vetur, en Halldór Sigurðsson annast skólastjórastörfin í fjar- veru hans . (Framhald á blaðsíðu 4). Ný rafstöð í Grímsey Gríinsey 4. nóv. Nú hafa Raf- veitur ríkisins sett hér upp 70 kw dísilrafstöð og keypt rafstöð þá, er hér var áður, af KEA og Grímseyj arhreppi. Er nú rafmagn komið í hvert hús, bæði til ljósa og suðu, og er því mjög fagnað. S. S. Bændaklíibbsfundur verður haldinn að Hótel K. E. A. mánudaginn 9. nóvember kl. 9 e. h. Að þessu sinni verður fund- urinn tileinkaður Ármanni Dal- mannssyni, formanni B. S. E. í tiiefni sjötugsafmælis hans 12. september síðastliðinn.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.