Dagur - 05.11.1964, Blaðsíða 8
8
Spilakvöld framsóknarféláganna á Akureýri hefjast annað kvöld
í ÞESSUM mánuði munu
félög Framsóknarmanna á
Akureyri efna til spila-
keppni að Hótel KEA, sem
standa munu í 3 kvöld, þann
6., 13. og 20. nóvember n. k.
Spiluð verður framsóknar
vist, og verðlaun veitt fyrir
beztan árangur hvert kvöld,
og einnig munu veitt verð-
laun fyrir beztan heildarár-
angur eða mestan slaga-
fjölda úr öllum þrem keppn
unum samanlagt.
Að lokinni vistinni verður
dansað öll kvöldm til kl. 1
' e. miðn.
Verðlaun fyrir flesta sam-
anlagða slagi öll kvöldin
verða sem hér segir:
1. verðlaun: R. R. hvíldar-
stóil, eða önnur húsgögn eft
ir eigin vali, að verðmæti
ca. kr. 7.000.00, frá hús-
gagnaverzluninni Eini h. f.
á Akureyri.
2. verðlaun: Ryksuga eða
þvottapottur eða ferðavið-
tæki, að verðmæti ca. kr.
3.500.00.
3. verðlaun: Svefnpoki og
bakpoki eða kaffistell, að
verðmæti ca. kr. 2.000.00.
Þeir sem ná beztum ár-
angri hvert einstakt kvöld,
mega velja um eftirtalda
muni: Hárþurrku, straujárn,
baðvog, straubretti, hrað-
suðuketil eða rafmagns-
skrautlampa.
Aukavinningar verða einn
ig veittir ef fleiri en einn eru
með sama slagafjölda í úr-
slitum, og eru það ýmsar
gerðir af töskum frá verk-
smiðjunni Glitbrá á Akur-
eyri.
Er þess að vænta, að fólk
fjölmenni á spilakvöldin, því
auk þess að eiga þar skemti-
lega kvöldstund, er til mikils
að vinna, þar sem svo mjög
er vandað til verðlauna. Q
v
SMÁTT OG STÓRT
Starfsmeim gerðu verkfali i Úirejsbankanum
vegna ráðningar Braga Sigurjónssonar
SÁ EINSTÆÐI atburður gerð-
ist fyrsta virkan dag nóvember
mánaðar í Útvegsbanka íslands,
að allt starfsfólk bankans, bæði
í aðalbankanum í Reykjavík og
útibúum hans, lagði niður
vinnu og mætti ekki til starfs,
að bankastjórum einum undan-
skildum. Þeir höfðu opið, en
gátu ekki annað hinni nauðsyn-
legu, daglegu afgreiðslu.
Tildrög málsins eru atburð-
ir, sem rót eiga að rekja til úti-
bús bankans á Akureyri. Þar
höfðu mistök orðið í útlánastarf
semi vegna þess að pólitískir
gæðingar tóku fram fyrir hend
ur bankastjórans, Júlíusar Jóns
sonar, og bankaráðs. í kjölfarið
sigldi tólf milljón króna gjald-
þrotamál, hið stærsta á Norð-
urlandi.
Bankastjórinn sagði starfi
sínu lausu og staðan var aug-
lýst til umsóknar. Dómsrann-
sókn hefur ekki farið fram.
Um starfið sóttu sex menn,
fimm bankastarfsmenn og sá
ALLSHERJAR
SAUÐFJÁRBÖÐUN
FYRIRSKIPUÐ hefur verið
allsherjar sauðfjárböðun hér á
landi og á henni að vera lokið
fyrir 1. marz í vetur. Van-
ræksla varðar dagsektum.
Baðstjórar verða skipaðir í
hverri sveit og í bæjum og þorp
um um land allt, og verða þeir
til leiðbeiningar og eftirlits.
Gengið verður ríkt eftir, að
fyrirskipunum um sauðfjárböð-
un verði framfylgt. Q
sjötti, sem aldrei hefur í banka
unnið. Það var Bragi Sigurjóns-
son. Hann hlaut starfið á banka
ráðsfundi 28. október, með
þremur atkvæðum íhalds og
krata og var settur til sex mán-
aða.
Starfsmenn bankans mót-
mæltu kröftuglega ráðningu
manns, sem ekki er bankamað-
ur og hótuðu að leggja niður
vinnu í mótmælaskyni. Áttu
starfsmenn fyrst tal við banka-
stjórana, en síðan við formann
og varaformann bankaráðs, þá
Guðmund í. Guðmundsson og
Björn Ólafsson. Var starfsmönn
um bent á fjárhagslega ábyrgð
þess, að leggja fyrirvaralaust
niður vinnu, en það bar engan
árangur, svo sem sýnt var á
mánudaginn og áður greinir.
Hér á Akureyri mætti starfs-
fólkið ekki í bankaútibúinu,
nema hinn nýinnsetti banka-
stjóri. Endurskoðendur bankans
komu frá Reykjavík á mánudag
inn, til að vera viðstaddir er
fyrrverandi bankastjóri skilaði
af sér.
Norðlendingar hafa nú um
skeið orðið vitni að undarlegu
fjármála- og bankaævintýri, þar
sem milljónir króna af sparifé
almennings runnu út í sandinn,
vinsæll bankastjóri var troðinn
undir í átökum pólitískra brask
ara og menn fengu Braga í stað
Júlíusar í sæti bankastjcra.
Mánudagurinn 2. nóvember
verður lengi sorgardagur í Út-
vegsbanka íslands. Þann dag
tóku hjálparvana bankastjórar
á móti fólki, með vandræða-
bros á vör, og höfðu ekki ann-
að að bjóða. Og þann dag fædd-
ist Bragi Sigurjónsson inn í
bankann, einn ávöxturinn af
hinu nána samstarfi íhalds og
krata. Q
Sjö kindur fundust á
Timburvalladal
NÝLEGA fóru þrír bræður frá
Fjósatungu í Fnjóskadal í fjár-
leit fram á Timburvalladal og
Hjaltadal. Fundu þeir 7 kindur
í svonefndum Slakka. Kindur
þessar voru frá þrem bæjum í
Bárðardal, tvær tvílembdar ær
og stakt lamb.
Mýrai-nar á Timburvalladal
voru fagurgrænar og víðir í
Snæbjarnarstaðafjalli var að
springa út.
í fyrrinótt fóru leitarmenn úr
Fnjóskadal út á Flateyjardals-
heiði. Q
ER VERIÐ AÐ SMÍÐA NÝJA
RÁDHERRASTÓLA?
ímyndunarafl liöfuðborgar-
húa cg margra fleiri, sem heyra
sögur þaðan, lætur ekki á sér
standa. Einn daginn var sú
saga sögð þar á götum úti, að
tveir ráðherrastólar væru í
smíðum á húsgagnaverkstæði í
borginni. Enga staðfestingu hef
ur sú fregn fengið, eða að til
stæði að fjölga ráðherrum úr 7
í 9. En almenningi mun þykja
athyglisverð blíðuatlot forsæt-
isráðherra við Alþýðubandalags
menn, þar sem hann bar fram
fram frumvarp um það í þing-
byrjun, að fjölga mönnum í
þingnefndum, til þess að þeir
gætu fengið þar sæti. Hógværð
Alþýðubandalagsmanna á þing
fundum þykir líka .tíðindum
sæta. Eðvarð Sigurðsson var
eins og smjör, þegar hann
ræddi um vísitöluna á dögun-
um, og Hannibal Valdimarsson
sagði, að atvinnuvegirnir þyldu
ekki að verkamenn fengju nú
þegar þurftarlaun fyrir 8
stunda vinnu. Slíkt yrði að ger
ast í áföngum. Má vera, að satt
sé, en „öðruvísi mér áður brá“!
ÞÁ HLÓ ÞINGHEIMUR.
Svo kom að því, að þingheim
ur hló. Það var þegar Skúli
Guðmundsson las úr ræðustól
grein, sem Gylfi Þ. Gíslason
ráðherra skrifaði í Alþýðublað-
ið í fyrra um kosningaúrslitin.
í þessari grein taldi Gylfi það
markverðast við kosningarnar,
að kommúnistar hefðu misst að
stöðu til að eiga fulltrúa í 5
manna nefndum á Alþingi! Nú
er annað uppi á teningnum hjá
stjórninni, en Gylfi sat fölur og
fár undir lestrinum.
Greinin, sem Skúli Guð-
mundsson las úr á Alþingi ný-
lega og vakti hlátur við-
staddra þingmanna, .birtist í
Alþýðublaðinu 29. júní 1963
undir fyrirsögninni: „Aldan er
hnigin.“ Þarna . var átt við
„öldu“ kommúnismans á ís-
landi. í greininni segir m. a.:
„Þetta (þ. e. að kommúnistar
hafa misst fulltrúa í nefndum)
eru tvímælalaust ein örlagarík-
ustu áhrif kosninganiðurstöð-
unnar. Sú alda kommúnismans
á íslandi, sem stormur Héðins
Valtýr Kristjánsson odd-
viti í Nesi í Fnjóskadal
hefur tekið að sér erind-
rekastarf fyrir Framsókn
armenn hér í kjördæm-
inu með aðsetri á Akur-
eyri.
Skriísíofa flokksins
Iiafnarstræti 95 verður
nú opin kl. 9—5 fiesía
daga. Sími 1443.
Blaðið býður Valtý
Kristjánsson velkominn
til starfs. Q
Valdimarssonar vakti á árunum
1938—1942, er hnigin“ ....
LÆKKUN ÚTLÁNSVAXTA.
Framsóknarmenn flytja frum
varp um almenna lækkun út-
lánsvaxta og afnám sparisjóðs-
frystingar, og er formaður
flokksins, Eysteinn Jónsson,
framsögumaður þessa máls. Þá
er af flokksins líálfu flutt frum-
varp um lækkun á sköttum og
útsvörum einstaklinga á árinu
1964 og er Einar Ágústsson
framsögumaður þess máls. Gert
er ráð fyrir, að tekjuskattur sá,
sem lagður var á í ár, verði
lækkaður um sjö þúsund krón-
ur á hvern gjaldanda, eða lægri
skattur felldur niður, en tekju-
útsvör lækkuð um 20%.
Er ætlazt til að jöfnunarsjó'ð-
ur endurgreiði sveitarfélögum
tekjumissinn og fái til þess sér-
stakt framlag úr ríkissjóði. Þess
má geta, að tekjuskattar eru á
ármu 1965 áætlaðir 480—500
milljónir króna, að óbreyttum
lögum, í stað 255 millj. kr. í
gildandi fjárlögum, samanber
greinargerð fjárlagafrumvarps-
ins.
RfKISSTJÓRNIN HAFNAÐI
SAMSTARFI.
Hinn 6. ágúst sl. samþykkti
framkvæmdastjórn Framsókn-
arflokksins svohljóðandi álykt-
un og sendi ríkisstjórninni:
„Vegna þess alvarlega á-
stands, sem nú hefur skapazt,
eftir síðustu álagningu skatta
og útsvara, leggur stjórn Fram-
sóknarflokksins til eftirfarandi:
1. Að ríkisstjórnin gangist án
tafar fyrir skipun nefndar með
þátttöku allra þingflokka til að
gera nú þegar tillögur um end-
urskoðun þeirra opinberu
gjalda, sem nú liafa verið á
lögð og réttmæta skipan skatta-
og útsvarsmála til frambúðar.
2. Að ríkisstjórnin geri þær
ráðstafanir til bráðabirgða að
fresta innheimtu á verulegum
hluta af álögunum á meðan
endurskoðun fer fram.“
Ekki vildi ríkisstjómin sam-
starf þingflokka um þetta mál,
og hafa Framsóknarmenn því
flutt frumvarp það, sem skýrt
var frá hér að framan.
EITT STÆRSTA ÞJÓÐMÁLIÐ
Þriðja lagafrumvarpið, sem
Framsóknarmenn flytja, er urn
sérstakar ráðstafanir til að
stuðla að jafnvægi í byggð
landsins. Hér er um að ræða
eitt af höfuðviðfangsefnum þjóð
félagsins á komandi árum. Ýms
ir gerast nú til þess að tala fag-
urlega um jafnvægi í byggð
landsins. En þegar stungið er
upp á raunhæfum aðgerðum,
kemur stundum annað hljóð í
strokkinn.
Samkvæmt þessu frumvarpi
yrði um skipulagða starfsemi
að ræða í því skyni að tryggja
©g etla landsbyggðina og til
liermar veittur ákveðinn hundr-
aðshluti af árlegum ríkistekj-
um.
Þetta stórmál Jandsbyggðar-
(Framhald á bls. 2.)