Dagur - 27.02.1965, Blaðsíða 8
X Jón Kristinsson framkv.stj. bindindisvikunnar á Akureyri ræðir við fréttamenn. (Ljm.: E. D.) x
í*$*SxíxSxSxSx$xSx$xe>^<S><Sxex$><íxíx$xSxSxSxí^>3x$x$>«>3><SxS>3>SxSxíxí>3>3xS>3>«><$><®*íxS><$<8xSxSx3xS*$x$><$x$*íxSxSxSxSxí><SxSxS><íxSxS><Sx®«SxSx®
Um 700 gisfirúm i heimavislarskélum
FRÁ BÆJARSTJORN
FYRIR nokkrum árum var far-
ið að vinna að því í nokkrum
heimavistarskólum landsins að
gera þá hæfa til gestamóttöku
yfir sumarmánuðina. Ríkissjóð-
ur hefur lagt fram 3 milljónir á
ári í þessu skyni sl. þrjú ár. Þeir
skólar, sem til þessa hafa verið
valdir eru: Menntaskólarnir á
Akureyri og Laugarvatni; hér-
aðsskólarnir á Reykjanesi, Laug
um, Skógum, Laugarvatni, Eið-
um, húsmæðraskólarnir á
Varmalandi, Blönduósi, Hall-
ormsstað, bamaskólarnir á
Varmalandi og Skútustöðum,
Bændaskólinn á Hólum og Sjó-
mannaskólinn í Reykjavík.
Meginhluta fjárins til endur-
bóta á þessum skólum fór til
húsgagnakaupa og endurbætur
voru gerðar á böðum og snyrt-
ingum. Koma þessar breytingar
skólunum og nemendum þeirra
mjög vel og munu hafa verið
hinar þörfustu vegna skólanna
sjálfra og skólastarfs á vetrum.
En árangur endurbótanna
vegna móttöku ferðamanna
varð sá, að á þessum stöðum er
nú unnt að taka á móti 700
manns til gistingar. Ennfremur
er þar aðstaða til ódýrari gist-
Á AKUREYRI eru 3—4 knatt-
spyrnudómarar og eru þeir a.
m. k. helmingi of fáir, miðað við
fjölda knattspyrnuleikja hin síð-
ustu ár.
Nú hafa áhugamenn í Knatt-
spyrnudómarafélaginu auglýst
dómaranámskeið, sem hefst 1.
marz og auglýst er á öðrum stað
Brjóstmynd af Nonna
í Þjóðmynjasafninu
DR. Herder Dorneich útgef-
andi Nonnabókanna, gaf hing-
að til lands brjóstmynd af skáld
inu, sem sett hefur verið upp í
anddyri Þjóðmynjasafnsins í
Reykjavík. Mynd þessi er úr
eir, gerð af Franz Raab. Mynd-
in stendur á stöpli úr japanskri
eik.
ingar í hlýjum kennslustofum
fyrir 200—250 manns.
Ekki er þessum endurbótum
lokið í skólunum, enda hefur
fullnaðar frágangur setið á hak-
anum. En hér hefur þó verið
bætt úr brýnni þörf.
í FYRRAKVÖLD var brotizt
inn í vörugeymslu Höskuldar
Helgasonar í Túngötu og stolið
sælgæti fyrir nokkur hundruð
krónur.
S.l. sunnudagsnótt var brot-
izt inn í Rakarastofu Jóns Krist
inssonar og stolið allt að 2 þús.
kr. í skiptimynt.
Unglingar á Oddeyri hafa á
nokkrum stöðum kveikt í eld-
fimu efni við útidyr húsa. Er
þetta hættul’egur. hrekkur. Bið-
ur lögreglan bæjarbúa að gera
sér aðvart þegar slíks verður
vart svo og um grunsamlegar
mannaferðir er leitt gætu hið
sanna í ljós um innbrotin.
Fyrir nokkru kastaði maður
einn ólyktarsprengju inn á veit-
ingastað í bænum. Allir flýðu
í blaðinu í dag. Þar verða sýnd-
ar kvikmyndir um knattspyrnu
og dómarastörf, sem þáttur í
kennsíunni.
Almenningur í bænum hefur
sýnt knattspyrnunni meiri
áhuga en nokkurri annarri
íþróttagrein. Knattspyrnumönn-
um á að vera það mikil hvatn-
ing. En það verða einhverjir,
helzt nokkuð margir að læra og
leggja á sig dómarastörfin. Hent
ar það þeim knattspyrnumönn-
um vel, sem ekki taka þátt í
kappleik j unum.
Dómaranámskeiðið, sem nú er
auglýst, géfur gott tækifæri til
að bæta úr dómaraskortinum,
sem er svo tilfinnanlegur hér.
Þótt dómarastörfin í knatt-
spyrnu séu vandasöm og erfið,
hafa fáir betri tækifæri til að
vinna knattspyrnunni gagn en
knattspyrnúdömararnir. Q
Reiknað hefur verið með, að
aukning sú á gistirými, sem hér
um getur, geti gefið verulegar
tekjur, þar sem hver ferðamað-
ur, erlendur, eyðir að jafnaði
um 15 þús. ísl. kr. í dvalarkostn-
að og fargjöld landa á milli. Q
út sem fætur toguðu. En þetta
kostaði manninn háar fjársekt-
ir svo hann mun ekki vera sem
ánægðastur með þessa „skemmt
un“ sína.
Bílfært yfir Lágheiði
Ólafsfirði 23. febrúar. Hér hefir
verið blíðskapar veður það sem
af er febrúar og jörð svo að
segja orðin alauð. Allir vegir
færir bilum og farið var meira
að segja á stórum vörubíl yfir
Lágheiði í vikunni sem leið með
aðstóð jarðýtu. Sumii: bændur
hafa beitt sauðfé sínu undan-
farið, en beit mun vera fremur
létt.
Afli línubáta er alltaf jafn rýr,
2 til 4 smálestir í róðri, og horf-
ir til vandræða með atvinnu-
ástandið hér, ef ekki rætist úr
hið bráðasta.
Sæþór, Ólafur bekkur og Stíg-
andi eru allir komnir á Suður-
landsvertíð og líkur til, að Þor-
leifur Rögnvaldsson og Guð-
björg fari einnig, ef afli ekki
glæðist. B. S.
FYRIR og um síðustu helgi var
mjög víða þunnur lagís á Eyja-
firði, enda stafalogn og öldu-
laust svo ekki lóaði á steini
marga daga í röð.
Allmikið af hnísum hefur ver
ið í firðinum. Það bar þó við
seinni partinn á mánudaginn, að
um stund kulaði af norði'i. Rak
ísinn þá að landi, en stór hnísu-
hópur, sennilega 50 hnísur, lök-
uðust inni í Arnarnesvík, aust-
ur við Nafirnar. fsinn króaði
þær þar af og var svo þykkur
og þéttur — og svo langt í auð-
NÝ GÖTUNÖFN
Fyrir nokkru síðan samþykkti
byggingarnefnd bæjarins að
leggja til að nýjar götur norðan
Þingvallastrætis og vestan Mýr
arvegar í íbúðarhverfi, beri
þessi nöfn: Akurgerði næst norð
an Þingvállastrætis, Kotárgerði
vestan Mýrarveg, og Stekkjar-
gerði þar fyrir vestan. Þá vill
nefndin láta götu austan Skarðs
og sunnan Kotár heita Hamra-
gerði.
RÁÐNIR MENN f STÖÐUR
Bætt hefur verið manni í
slökkviliðið. Fjórir sóttu um og
varð Sigurður Gestsson hlut-
skarpastur. Þá hefur Olafur Ás
geirsson sem áður hefur starfað
í lögregluliði bæjarins verið ráð
inn lögregluþjónn, en nokkrir
aðrir sóttu einnig um það starf.
Sigtryggur Stefánsson tækni-
fræðingur hefur fengið lausn frá
störfum og hefur blaðið frétt, ó-
staðfest, að Sigtryggur taki við
starfi Snorra Guðmundssonar
sem byggingafulltrúi í Eyjafjarð
ar- og Þingeyjarsýslum.
Jón Rögnvaldsson hefur sagt
lausu garðyrkjuráðunautsstarfi
en mun helga Listigarði Akur
eyrar starfskrafta sína og er það
ærið verkefni.
ÝMSAR GATNAGERÐA-
FRAMKV ÆMDIR
RÁÐGERÐAR
Samþykkt hefur verið áætlun
um gatnagerðaframkvæmdir í
bænum í sumar og verða þær,
samkvæmt henni, meiri en áð-
ur.. Nýbyggingar: Akurgerði
545 þús. kr., Stekkjargerði 495
þús, Kotárgerði 690 þús. Skarðs
hlíð 440 þús. helmingur af
Lönguhlíð 400 þús, og Hrafna-
gilsstræti milli Skólastígs og
Þórunnarstrætis 175 þús. krón-
ur. Ennfremur holræsi. Malbika
á, Eyrarlandsveg að MA fyrir
335 þús. kr., Hrafnagilsstræti
að Þórunnarstræti 250 þús.
Norðurgötu að Eyrarvegi
365 þúsund, Gránufélagsgötu
milli Glerárgötu og Norðurgötu
120 þús, Lundargötu 95 þús,
Grænugötu 170 þús, Eyrarveg
un. Laxárvirkjunarstjórn þakk-
bakkann 300 þús, gangstétt aust
an Glerárgötu 250 þús og und-
irbúningur undir malbik, full
breidd 1,1 millj. malbikun aust
ur akrein 1,4 millj. kr. Alls til
gatnagerða 11,220 millj. kr.
an sjó utan við, að þessi hópur
var dauðadæmdur.
Þarna bar að Friðrik bónda í
Bragholti. Hnísurnar stukku og
létu mikinn á örlitlum auðum
bletti. Tók hann eina með hönd-
unum við fjöruna og skaut
tvær, sem sukku. Hann telur,
að allar hnísurnar muni hafa
drepist og hafa nokkrar fund-
ist í fjörunni síðar. Þær eru
skornar af ísnum.
Menn gengu á hvalfjörur eft-
ir atburð þennan og hafa fund-
ið margar hnísur og hirt þær.
SAMÞYKKT UM NÝJA
LAXÁRVIRKJUN
„Rætt um framtíðar Laxárvirkj
un. Knútur Otterstedt gerði
grein fyrir starfi sínu við út-
reikninga á samanburði á virkj-
unum Laxár og línu frá Búrfelli
skv. greinargerð er hann hafði
afhent Laxárvirkjunarstjórn.
Einnig sýndi hann útreikninga
um tekjuöflun Laxárvirkjunar
samkvæmt umræddum áætlun-
um Laxárvirkjunarstjórn þekk-
ar Knúti Otterstedt vel unnið
starf og væntir aðstoðar hans í
framtíðinni.
Að fengnum þessum upplýs-
ingum lýsir Laxárvirkjunarstj.
þeim eindregnum vilja sínum,
að raforkumál Laxárvirkjunar-
svæðisins verði leyst með nýrri
virkjun Laxár og varmaaflstöðv
um með þeim hætti, sem hag-
kvæmast reynist.
Jafnframt að gerð verði ítar
leg rannsókn á, hvort ekki reyn
ist hagkvæmt að Austurland
verði tengt við Laxárvirkjun
samtímis aukinni orkufram-
leiðslu í Laxá.“
í tilefni ofanritaðrar bókunar
samþykkti fundurinn eftirfar-
andi:
„Sameiginlegur fundur stjórn
ar Laxárvirkjunar og bæjarráðs
Akureyrar haldinn 15. febrúar
1965 lýsir fyllsta samþykki sínu
við ályktun stjórnar Laxárvirkj
unar frá 10. febrúar síðastliðinn
um nývirkjun Laxár. Skorar
fundurinn á hæstvirta ríkistjórn
áð beita sér fyrir því við hið
háa Alþingi, að nauðsynlegar
lagaheimildir í þessu sambandi
séu veittar á yfirstandandi
þingi.“ .
NÝ HVERFI
í fundargerð skipulagsnefndar
segir svo:
„Nefndin ræddi mikið frum
tillögu að skipulagi á þessu
svæði. Nefndin varð sammála
um tillögu varðandi gatnaskipu
lag og nýtingu svæðisins, þar
sem gert verði ráð fyrir fjölbýl
ishúsum norðast sunnan Þing-
vallastrætis og suður á móts við
Vanabyggð. Vestan Mýrarvegar
frá Vanabyggð að Þrastarlundi
verði gert ráð fyrir rað- og /
eða keðjuhúsum. Einnig 'verði
gert ráð fyrir rað og keðjuhús-
um vestast á svæðinu meðfram
væntanlegum gegnumaksturs-
vegi. Annarsstaðar á svæðinu
verði gert ráð fyrir einbýlishúsa
lóðum.
Gert verði ráð fyrir staðsetn
ingu leikvalla, dagheimilis, verzl
ana (2ja), íþróttavallar og skóla
á svæðinu.
(Framhald á blaðsíðu 2).
Lét myrða 8 þúsund
NÝLEGA komu 14 hjúkrunar-
konur fyrir rétt í Miinchen,
ákærðar fyrir morð á 8 þús. geð-
sjúklingum á hæli einu á stríðs-
árunum, að fyrirskipun Hitlers.
Þær hafa, a. m. k. sumar játað
þátttöku, en aðeins samkvæmt
fyrirskipunum, sem ekki var
auðvelt að hafa að vettugi. Q
Vanfar knatfspyrnudomara á Ak.
Innbrot og óknyttir
Hnísur króaðar á Amarnesvík