Dagur - 10.04.1965, Blaðsíða 1
Dagur
SÍMAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
XLVIII. árg. — Akureyri, laugardaginn 10. apríl 1965 — 28. tbl.
Dagur
kemur út tvisvar í viku
og kostar kr. 25,00 á
mán. f lausasölu kr. 4,00
»i
k._
Hagfelld fíð á Hólsfjöllum
SAMKVÆMT fréttum frá Hóls-
fjöllum, hefur verið þar fremur
góð tíð í vetur en þó gjafafrekt
tvo fyrstu mánuði ársins. En
hey eru næg því bændur áttu
fyrningar frá siðasta vetri.
Hvanneyrarveikin hefur stungið
íslendingur 50 ára
VTKUBLAÐIÐ fslendingur
minntist 50 ára afmælis síns
S. apríl sl. með útgáfu afmæl
isblaðs, þar sem rakin er
saga blaðsins, birtar heilla-
■óskir o.fl.
Stofnandi var Sigurður E.
Hlíðar og fyrsti ritstjóri þess
ásamt Ingimar Eydal. Núver
andi ritstjóri Jakob O. Pét-
ursson, hefur ritstýrt blað-
ínu í nær aldarfjórðung. fs-'
lendingur er málgagn Sjálf-
stæðisflokksins og því póli-
tískur andstæðingur. En Dag
ur sendir honum engu að síð
ur árnaðaróskir í tilefni af-
mælisins og vonar, að hann
og önnur liin svokölluðu
minni blöð megi bera gæfu
til að veita mörgum góðum
málum brautargengi.
sér niður og drepið nokkrar
kindur á Grímsstöðum, en henn
ar hefur ekki áður orðið hér
vart. Tuttugu hestar ganga úti
og á hverjum bæ eru einn eða
fleiri hestar á járnum, því þeir
eru notaðir við féð, ásamt bif-
reiðum. En nú þarf ekkert að
hugsa um vegi austur þar, held
ur er ekið „beint af augum“ á
harðfenninu. Öðru hverju hafa
bílar komið austan af Héraði.
Sumt af fénu heimtist seint.
Dilkhrútur heimtist t.d. 16.
febrúar og þrjár ær úr Axar-
firði fundust út af Hólsseli 3.
febrúar. Allar voru kindur þess
ar vel útlítandi.
Póstferðir hafa gengið greið-
lega milli Reynihlíðar og Hóls-
fjalla í vetur og ekki nema þrjár
ferðir þurft að fara á hestum.
í vetur var mikið af rjúpum í
hæstu fjöllum, en rjúpnaveiðar
voru fremur lítið stundaðar.
Rjúpnaskyttur sáu nokkra refi
svo ekki eru þeir útdauðir.
Fremur er fámennt á heimil-
um austur á Fjöllum í vetur.
Unga fólkið, sem ekki er margt,
er í skólum og einnig í atvinnu
leit eftir áramót, en heima er
fullorðið fólk og börn. (Samkv.
viðtali við Ólaf Stefánsson póst).
i
Engin má undan víkjasf
í DAG er merkjasöludagur
Kvenfélagsins Framtíðarinnar á
Akureyri og munu konur þá
ganga í hús og gefa mönnum
host á að kaupa merki. í fyrsta
lagi eiga flestir 25 krónur, sem
þ>eir geta e.t.v. misst, í öðru lagi
verður ekki undan vikist þegar
lsvenfélagskona er komin á
tröppurnar eða inn í forstofuna.
1 þriðja lagi, og það skyldu
menn hafa í huga, fara þeir
peningar sem við látum af hendi
rakna, beint í Elliheimilissjóð.
Hver vill ekki styrkja þann
sjóð?
A S.L. SUMRI var Ufsakirkja rifin, en þessi kapella reist á kirkjugrunninum. (Ljósm.: E. D.)
Frá aððlfundi Framsóknarfél. Akureyrar
Kvenfélagið Framtíðin gaf
Elliheimilinu, sem raunar ætti
að kalla dvalarheimili, eina mill
jón krónur að gjöf á vígsludegi
og vinnur ár hvert að verulegri
fjársöfnun til styrktar þessari
stofnun.
Stjórn kvenfélagsins skipa: —
Ásta Jónsson, Margrét Kröyer
og Áslaug Einarsdóttir.
Ákveðið mun vera, að lyfta
þaki á suðurálmu Elliheimilis-
ins og innrétta þar mörg her-
bergi fyrir vistmenn. Verið er
að gera teikningar af fram-
kvæmdum þessum. □
AÐALFUNDUR Framsóknar-
félags Akureyrar var haldinn
fimmtudaginn 1. þ.m.
Formaður félagsins, Björn
Guðmundsson framíærslufull-
trúi, setti fundinn og stjómaði
honum. Minntist hann í upp-
hafi félaga er látist höfðu á ár-
inu, þeirra Jóhannesar Jónasson
ar verkstjóra og Trausía Reyk-
dal verkamanns. Risu fundar-
menn úr sætum til að votta hin
um látnu virðingu.
Sfðan flutti hann skýrslu
stjórnar og gaf yfirlit yfir starf
semina á liðnu ári. Stærsta verk
efni félagsins var að standa fyr
ir verkalýðsmálaráðstefnu á
Akureyri í samráði við mið-
stjórn Framsóknarflokksins. —
Var ráðstefnan haldin í maí og
tókst með ágætum.
Annars var starfsemin með
líkum hætti og síðastliðið ár
Klúbbfundir félagsins áttu vax
andi vinsældum að fagna og
skemmtisamkomur allar prýði-
lega sóttar. Margir gengu í fé-
lagið á árinu. Að lokinni skýrslu
formanns lagði gjaldkeri félags
ins, Jón Samúelsson fram reikn
inga félagsins.
Á fundinum voru samþ. breyt
ingar á lögum félagsins er miða
að því að fjölga í Fulitrúaráði
Framsóknarfélaganna og enn-
fremur að aðalfundi skuli halda
að hausti eða í vetrarbyrjun.
Stjórnin var öll endurkjörin
en hana skipa: Bjöm Guðmunds
son formaður, Sigurður Óli
Brynjólfsson ritari, Jón Samú-
(Framhald á blaðsíðu 2).
Fegrunarvika á Ákureyri í vor
Undirbúningur að stofnun nýs írygginpféiags
á vegum Félags íslenzkra bifreiðaeigenda
TRY G GIN G AFÉLOGIN boð-
uðu nýlega hækkun iðgjalda af
skyldutryggingum bifreiða, sem
er rökstudd með mikilli fjölgun
tjóna, sem orðið hafa, hækkun
á viðgerðarkostnaði, hækkun á
tryggingarupphæð úr 500 þús.
í 2 millj. kr. og vegna þessara
atriða tapreksturs á bifreiða-
tryggingum síðasta ár, sem
koma þurfi í veg fyrir.
Félag íslenzkra bifreiðaeig-
enda hefur mótmælt hinni stór-
felldu fyrirhuguðu hækkun ið-
gjalda af bifreiðum og hyggst
nú sjálft stofna tryggingafélag
til að létta gjöldum af bifreiða-
eigendum. Ekki er nema gott
eitt um það að segja, að nýtt
tryggingafélag bætist í hópinn,
ef það getur veitt hagkvæmari
þjónustu en hin eldri trygginga-
félög. En á það ber einnig að
líta, að tæpast hafa tryggingafé-
lögin ákveðið hina miklu hækk
un að þarflausu. En hvort svo
er eða ekki, hafa þau legið und-
ir ámæli fyrir þetta og þau ekki
talin hafa fært nægileg rök að
svo mikilli hækkun. Svo telur
a. m. k. Félag íslenzkra bifreiða
eigenda.
Tryggingafélögin hafa jafnhá
iðgjöld. En eitt félagið, Sam-
vinnutryggingar, sem er ungt
tryggingafélag og rekið á sam-
vinnugrundvelli, hefur algjöra
sárstöðu. Samvinnutryggingar
tóku upp „bónuskerfið“, sem
þýðir nú nálega þriðjungs af-
slátt af iðgjöldum þeirra manna
sem engum tjónum valda. Önn
ur tryggingafélög neyddust til
(Framhald á blaðsíðu 2).
AÐALFUNDUR Fegrunarfélags
Akureyrar var haldinn sl.
þriðjudagskvöld. Eftirfarandi er
tekið úi' fundargjörð:
Svofeld tillaga var samþykkt:
„Aðalíundur F.A. 1965, sam
þykkir að félagið beyti sér
fyrir góðri umgengni í bæn
um, m.a. með fegrunarviku
á þessu vori, með líku sniði
og undanfarin ár. Ennfrem
ur verði því beint til lóðar-
hafa að þrífa til á lóðum
sínum hvar sem er í bæn-
um og verði hafist handa nú
strax fyrir páska“.
Miklar umræður urðu um
hvaða leiðir væru líklegastar til
að auka þrifnað og bæta um-
gengni í bænum.
í þessu sambandi var m.aó rætt
um að flytja fræðsluerindi i skól
um bæjarins, hvetja kennara til
þess að fræða börn og ungmenni
um menningargildi góðrar um-
gengni. Þá var rætt um hvort
ekki mundi ástæða til að breyta
heilbrigðisreglugerð bæjarins í
þá átt að heimila meiri afskipti
af hálfu bæjaryfirvalda varð-
andi umgengni. Gætu þá komið
til viðurlög eða sektir t.d. fyrir
að kasta rusli á götur.
Rætt var um hvort ekki
mundi vera ástæða til að beina
því til leigubílstjóra að hafa
ruslakörfur eða ruslpoka í bíl-
um sínum og fylgjast með því
að farþegar þeirra geri ekki
leik að því að fleygja bréfum
flöskum eða öðru út úr bílum.
Miklar umræður urðu einnig
um opin og óbyggð svæði í bæn
um ,skipulag þeifra og hirðingu.
Rætt var um hugsanlegan
garðyrkjuskóla hér á Akureyri
þar sem höfuðáhersla yrði lögð
á praktiska útiræktun en ekki
gróðurhúsaræktun. Var minnst
á gömlu Gróðrarstöðina sem
hugsanlega stoð.“
Þá má geta þess að Fegrunar
félagið hafði forgöngu um eins
konar fræðsluviku í fyrravetur
um garðyrkju. Þar fluttu fróð
leg erindi: Hafliði Jónson, Jón
Rögnvaldsson, Árni Jónsson og
Ólafur Jónsson.
Sigluf jarðarskarð opið
HINN 6. apríl var Siglufjarðar-
skarð opnað og hófst þá bifreiða
straumur þar um. Skarðið hefur
aldrei fyrr verið opnað svo
snemma og gekk það fljótar en
oftast áður. En vegurinn, sem
búinn er að hvíla sig síðan í
október er holóttur mjög og
illur yfirferðar, einkum þó í
Fljótum.