Dagur - 10.04.1965, Page 7
- DETTIFOSSVIRKJUN
(Framhald af blaðsíðu 5).
aluminíumvinnslu. Hagstæðustu
iðngreinina telur verklræðingur-
inn framleiðslu á svokölluðu
þungu vatni, ef ég man rétt. En
það mun vera eitthvað líkt með
þetta þunga vatn og kísilgúrinn,
að það er nóg framleitt af því í
heiminum eins og stendur.
Hópur manna úti í heimi, sem
kennir sig við Sviss og safnað hef- .
ur auð íjár með því að gera gróða-
vænlega samninga um kaup á
orku til aluminíumvinnslu, hefur
að sögn látið eittlivað liklega við
íslendinga í þessu efni, ef fáanleg
væru n<)gu hagstæð kjör. Sérfræð-
ingar okkar fíjúga nú heimsálía
milli til að reyna að lokka þessa
menn hingað með þeirra gull.
Orðrónuir er um, að þegar sé bú-
ið að semja um eitt og annað hér
að lútandi í sambandi við Búr-
fellsvirkjun og jafnvel líka Detti-
fossvirkjun. Sögurnar eru hinar
furðulegustu, t. d. að búið sé að
semja um orkusölu til aluminíum-
verksmiðja er alkasta ciga 160
þús. tonnum á ári og þurfi sam-
tals um 209 þús. ktv. orku; að ork-
an verði scld á áætluöu kostnáðar-
verði miðað við það verðlag, er
gildir, Jjegar virkjun er hafin; að
svissneskir eigi að fá samning til
minnst 50 ára, sem sennilega
þýddi að þá yrðu íslendingar
komnir í orkuþrot áður en þeir
samningar rynnu út og að skatt-
fríðindi eigi þeir að fá, ef alum-
iní-uniframleiðslan ber sig ekki að
þeirra sögn. Vonandi er ekkert af
þessu að öllu leyti satt, því væri
svo, er sannarlega erfitt að finna
vinning lsléndinga á slikuni samn-
ingum.
Fyrst og síðast virðist þó vanta
í þessa samninga við erlent auð-
vald ákvæði um lilutdeild ríkisins
í iðjuverinu og rétt til þess að yf-
irtaka það eftir hæfilegan tíma.
Með ýmsu móti mætti gera slikan
samning aðgengilegan fvrir báða
aðila. Eitthvað hefur að sögn ver-
ið á það minnst, að íslenzkir skuli
heita meðeigendur í iðjuverinu,
cn það eitt gæti reynst harla lá-
nýtt ákvæði.
Hvert er svo íslenzka gullið og
hversu má jafna því við það sviss-
neska? Hvar er það gull að finna
og hverja hamingju mætti það
veita . okkur? íslenzka gullið er
manndómur þjóðarinnar, vilji
hennar og kjarkur til þess að gera
sjálf það sem verið er að tala um
að fá svissneska til að gera. Hirð-
um sjálf .ágóðann af okkar landi
og okkar starfi. Leggjum fram lé
af eigin erliði og notum lánstraust
okkar innanlands og utan. Byggj-
um iðjuver fyrir okkar eigin fram-
leiðslu. Leiðum svo orku frá Detti-
fossi til slíkra staða á Norðurlandi
og á Austfjörðum. Tileinkum
okkur frámleiðslumenningu. Bæt-
um nieðlfrð fisksins í stað þess að
gera hann að lélegri vöru strax og
veiddur er. Margföldum verðmæti
okkar eiöin vöru með hjálp ís-
lenzkrar örku. Þá höfum við fund-
ið íslenzka gullið. Gerum þetta
fremur éh ’ aö verðá stritþrælar
svissneskra gullkónga.
Búseta og byggðajafnvægi.
Staðsetning stórvirkjunar hefur
7
- BÚR FELLSVIRKJUN
að sjálEsögðu áhrif á byggðahlut-
föll í landinu. Ljóst er, að virkj-
un við Búrfell mundi stórum
auka ójafnvægið í þeim efnum,
þar sem efri virkjun í Jökulsá
hefði bætandi áhrif. Mælir þetta
mjög eindregið með Dettiloss-
virkjun l'rarn ylir Búrlellsvirkjun
og þarf ekki lrekari útlistunar.
Mælt er, að svissneskir, sem sjálf-
sagt eru lítt fróðir um skilyrðin
fyrir norðan, gefi aðeins kost á
því að byggja aluminíumver fyrir
sunnan, aðallega vegna þess að
þar þurfi ekki að byggja yfir
starfslið iðjuversins. Ljóst er, að
þessi riik eru aðeins einn liður í
Búrfellsáróðrinum. Allir geta séð,
að þetta er hrein blekking frá ís-
lenzku sjónarmiði.
í Reykjavík og grennd er ekk-
ert vinnuafl allögu og hefur ekki
verið í áratugi. Hvort sem stofn-
að yrði til stóriðju íyrir sunnan
eða norðan, þyrfti að byggja yfir
það fólk, sem þar kæmi til með
að starfa, eða annað í þess stað.
Hvort erlendur auðhringur, ís-
lenzka ríkið eða fólkið sjálft
byggði íbúðirnar er aðeins fyrir-
komulags- og samningsatriði.
Að veðja á réttan hest.
1 grein formanns rannsóknar-
ráðs í Tímanum 28. febr. sl., sem
er samfelldur lofsöngur um Búr-
fellsvirkjun, eru þó áætlunartölur
um orkuverð, er benda til að það
verði lægra við 133 þús. kw. —
Dettifossvirkjun, stonfverð 1180
millj. kr. og kwst. verð 11.2 aurar
(liefur hækkað frá 1960 um 0.7
aura, hvers vegna?), heldur en þá
105 þús. kw. Búrfellsvirkjun, sem
nú er á döfinni að reisa. Sú virkj-
un er áætluð að kosta, eltir því
sem segir í nefndri grein, 1050
millj. kr., og ætti þá kwst. þar að
kosta 11.4 aura eða a<Teins hærra
en frá Dettifossvirkjun. Hitt er
svo annað mál, að með því að
reikna stöðina við Búrfell lielni-
ingi stærri en á að byggja þar eða
210 þús. kw., þá kemst greinar-
höfundur með verðið á Búrfells-
rafmagni niður í 8.6 aura kwst.
Þetta er gott dæmi upp á áfóður-
in fyrir Búrfellsvirkjun, sem hinir
lærðu menn nú reka.
A því er látlaust kliþið, að. ekki
sé liægt að virkja Dettifoss fyrir
því að sama sem enginn markað-
ur sé fyrir orkuna þar. Þetta er
íráleit viðbára. I lyrsta lagi er
hægt að bvggja aluminíumver
íyrir norðan eins og fyrir sunnan.
Svo er að heyra, að 30 þús. tonna
verið hjá Straumi Jjyki þeim sviss-
nesku of lítið. Eðlilegt væri þeir
biðu hærra verð lyrir Dettifoss-
rafmagnið, ef þeir fengju að
byggja stærra iðjuver. '
Hér hefur verið bent á að
tengja saman allar ríkisveitur og
fullnægja á þann hátt orku])<jrf-
inni á hverjum tíma, einnig að
stofna skuli til stóriðnaðar á inn-
lendu hráefni. Segjum að ófull-
nægð orkuþörf landsmanna sé í
dag 35—40 þús. kw. 10—15 þús.
kw. vcrði ætluð til nýs iðnaðar og
annað eins fyrir vaxandi orkuþörf
næstu ára, þá verða eftir handa
aluminíumverksmiðju um 70 þús.
kw. eða 15 þús. kw. meiri orka en
þei'r fá hjá'Straumi.
Það er ekki vandalaust að veðja
á réttan hest. Ríkisstjórnin hcfur
látið undan peningavaldi' Stór-
Reykjavíkur og veðjað á Búrfells-
virkjun. Stórfé hefur hún varið til
að temja þá hryssu og einskis lát-
ið til sparað að telja fram kosti
hennar, en hún hefur ])agað um
gallana. Hefur ekki ríkisstjórn-
inni orðið það á að veðja á rang-
an hest?
Lokaorð.
Ut frá því, sem að framan hef-
ur verið ritað, verður samanburð-
ur milli Dettifossvirkjunar og
Búrfellsvirkjunar í fáum orðum á
þessa leið:
1. Jarðmyndun við Dettifoss er
svo hagstæð sem verða má, við
Búrfell hins vegar svo <)trygg, að
harla erlitt er að áætla virkjunar-
kostnað þar.
2. ísmyndun ógnar ekki Detti-
fossvirkjun en er hins vegar alvar-
legur annmarki á Búrfellsvirkjun,
sem verður að girða fyrir með
dýrri varaorku.
3. Flutningur orkunnar til út-
flutningshafnar verður til niuna
kostnaðarminni fyrir norðan cn
sunnan.
4. Miðlun orkunnar uni allt
land virðist- álíka liagstæð frá báð-
um verum, hvort sem hún er flutt
með byggðum eða yfir öræfi.
5. Vegna stórum öruggari að-
stöðu fyrir norðan má ætla að
Dettifossvirkjun verði til muna ó-
dýrari en Búrfellsvirk jun.
6. Hvar sem stóriðja kynni að
verða staðsett hér á landi, mundi
þurfa að byggja yfir verkafólkið,
ekki hvað sízt í nágrenni Reykja-
víkur.
7. Dettifossvirkjun stuðlar að
byggðajafnvægi í verulegum mæli,
en Búrfeljsvirkjun verkar öfugt
og eykur á þjóðarvoða.
Af þessum sökum á að hefja
stórvirkjun á fossunum þremur í
Jökulsá með fullnýtingu íslenzkra
hráefna að aðalmarkmiði.
2. apríl 1965.
Til fermingargjafa:
BAKPOKAR
VINDS/ENGUR
ÁTTAVITAR
FERÐASETT
Tómsfundaverzlunin
STRANDGÖTU 17 • PÖSTHÖLF 63
AKUREYRI
GÓÐ AUGLÝSING -
GEFUR GÓÐAN ARÐ
RIFFLAÐ FLAUEL
KKAKI og fleiri efni
fyrir vorið.
Verzlun Ragnheiðar
0. Björnsson
SAMANBURÐUR Á KRISTI
OG KONUNGUM er ræðu-
efni mitt á samkomunni að
Sjónarhæð á morgun, (pálma
sunnudag) kl. 5 s.d. Allir vel
komnir. Sæmundur G. Jó-
hannesson.
FfLADELFÍA LUNDARG. 12.
Almenn samkoma á pálma-
sunnudag kl. 8,30 s.d. Sunnu
dagaskóli kl. 1,30.
Fíladelíía.
AKUREYRINGAR! Munið baz
arinn og kaffisöluna á Hjálp
ræðishernum í dag (laugar-
dag) kl. 3—7 e.h.
• Hjálpræðisherinn.
GJÖF TIL Hjariá- og æðasjúk-
dómavamafélags Akureyrar
frá konu í Öngulsstaðahreppi
kr. 5.000. — Með þakklæti mót-
tekið. Jóhann í?oikelsson. • >
BRAGVERJAR! —. .Fundur
fimmtudaginn 15. (skírdag)
að Byggðarvegi 147 kl: - 8/30
e.h.
KARLAKÓR AKUREYRAR —
flytur afmælissamsöng nú á
vorinu í bænum. — Þess er
vinsamlega óskað að eldri
kórfélagar (þ.e. nú ekki starf
andi í kórnum) syngi þar
með ein tvö til þrjú gamal-
kunnug lög og mæti á æfingu
í Laxagötu 5 n.k. þriðjudags-
kvöld kl. 9.30.
Stjórn Karlakórs Ak.
BRÚÐKAUP: — Þann 8. apríl
voru gefin saman í hjónaband
brúðhjónin ungfrú Ragnheið
ur Olga Loftsdóttir, Hafnar-
str. 49 og Hólmsteinn Snædal
Rósbergsson húsasmíðanemi
Byggðavegi 147. Akureyri.
KA-FÉLAGAR! Munið aðal-
fund félagsins n.k. mánudag
kl. 8,30 e.h. í Sjálfstæðishús-
inu, litla sal.. Venjuleg aðal-
fundarstörf. — Áríðandi mál á
dagskrá. — Sýnd verður skíða
kvikmynd. —- Félagar fjöl-
mennið. Stjómin.
HJÚKRUNARKONUR, munið
fundinn að Hótel KEA á mánu
daginn 12. apríl kl. 21.
DÚNUNGINN verður sýndur í
Freyvangi laugardags- og
sunnudagskvöld, sjá augl. á
öðrum stað í blaðinu.
GAMANLEIKURINN
„AST OG MISSKILN-
INGUR verður sýnd-
ur í Samkomusúsinu
á Dalvík á morgun (sunnudag)
kl. 4 og 9 e.h.
Sparisalaf
um helgina.
KJÖTBÚÐ K.E.A.
FERÐAVIÐTÆKI
SEGULBÖND
GASTÆKI
SKRAUTVASAR
HÁRÞURRKUR
VINDSÆNGUR
; SJÓNÆUKAR
MYNÐÁVÉÍLAR
SVEFNPOKAR
BAKPOKÁR
TJÖLD • .»*-
JÁRN- 0G GLERVÖRUDEILD
Ó f
i
t
%
%
%
4
Öllurp viiium minum, systkinum, frœndfólki og fé- ^
lugum, sem glöddu mig og heiðruðu, með heillaósk-
um, hlffn' fiandtaki og gjöfum d 60 ára afmceli minu f
2. aprii’sh,< þakka ég af alhug. Guð blessi ykkur öll. *
ÓLAFUR DANÍELSSON, klceðskeri. 1
ci
MAGNÚS HÓLM ÁRNASON,
Krónustöðum,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þ. 6. þ.
m. Jarðarförin ákveðin að Saurbæ mánudaginn 12.
þ. m. kl. 1.30 e. h.
Aðstandendur.