Dagur - 10.04.1965, Qupperneq 8
8
Skíðamó! tslands helsf 14. apríl nk.
SMÁTT OG STÓRT
Er haldið í Hlíðarfjalli við Akureyri og
verður þar f jölmenni. Keppendur eru 118
SKÍÐAMÓT íslands fer fram
í Hlíðarfjalli við Akureyri
um páskana. Það verður sett
af formanni Skíðasambands
íslands Stefáni Kristjánssyni
kl. 2 e. h. miðvikudaginn 14.
þ.m. KI. 3 hefst keppni í 10
km. göngu 17-19 ára og kl. 4
keppa fullorðnir (15 km.).
Flest kvöld vikunnar verða
kvöldvökur í Skíðahótelinu
eða samkomuhúsum bæjar-
ins, en skíðaþing verður á
föstudaginn langa. Keppend
ur eru skráðir 118, víðsvegar
af landinu, þeirra á meðal
flestir beztu skíðamenn lands
ins. í svig og stórsvigskeppn
inni verður notað sjálfvirkt
tímatökutæki, mjög ná-
kvæmt, sem svissneskt fyrir
tæki lánar. Hafa slík tæki
ekki verið notuð áður hér á
landi, við skíðamót. Þá er
einnig í ráði að reyna ný
tímatökutæki sem Kristinn
Kristjánsson símvirki liér í
bæ hefir útbúið. Búizt er við
miklum fjölda áhorfenda á
þetta landsmót, og í gær var
búið að panta upp öll her-
bergi á þeim hótelum sem
opin eru. Sætaferðir verða úr
bænum alla mótsdagana í
Skíðahótelið frá ferðaskrif-
stofuni Lönd og Leiðir. Veit
ingar verða seldar í Skíðahót
elinu og við Strompinn. —
Það er sérstök nefnd Skíða-
ráðs Akureyrar sem sér um
framkvæmd mótsins og móts
dagana verður skrifstofa
hennar í Skíðahótelinu.
Ársþing jþróltabandalags Akureyrar
ÁRSÞING íþróttabandalags Ak
ureyrar, síðari þingdagur var
haldið í íþróttahúsi Akureyrar
miðvikudaginn 31. marz sl.
Þingið sat framkvæmdastjóri
Í.S.Í. Hermann Guðmundsson,
er flutti þingfulltrúum kveðju
sambandsstjórnarinnar og for-
seta Í.S.Í. í snjallri ræðu.
Fyrir þinginu lá álit og tillög
ur nefnda, sem störfuðu á milli
þingdaga. Ennfremur fóru fram
kosningar. Fjárhagsáætlun
bandalagsins var einróma sam-
þykkt eins og hún hafði verið
lögð fyrir fyrri fund ársþings-
ins. Mótanefnd starfar áfram
unz ákveðið er um knattspyrnu
mótin í I. deild og Norðurlands
mótin. Verður þá gefin út móta
skrá.
Þessar tillögur stjórnarinnar
voru samþykktar með öllum
greiddum atkvæðum: Tillaga, er
veiti stjórn Í.B.A. heimild til
þess að efna til hugmyndasam-
keppni um táknrænt merki fyr
ir Í.B.A., gegn hæfilegri þókn-
un. Tillaga um stofnun sjóðs, er
síðan verði varið til aðstöðu fyr
ir Í.B.A. í hinu væntanlega í
þróttahúsi. Stofnfé verður ágóða
hluti ÍBA af Bindindismótinu í
Vaglaskógi. Tillaga, þar sem
tilmælum var beint til íþrótta-
ráðs, að það hlutist til um, að í
hlut Í.B.A. komi 2% af öllum
aðgangseyri allra íþróttamóta,
sem haldin eru hér í bæ. Það er
og til athugunar að nota þenn-
Fært til Austfjarða
ÍSINN er nú að fjarlægjast Aust
firði svo skipaleið er greið á
alla firðina þótt skammt muni
honum undan og ísinn á Seyðis
íirði í gær. En þar var hann á
útleið í dag, sagði fréttaritari
Dags á Eigilsstöðum í gær. —
Jarðgas er víðar en áður var á-
litið og mest undan Hreiðarstöð
um í Fellum, en víða streymir
gasið upp ur botni Lagarfljóts.
Þegar ís er þar á hafa menn
gert sér það til gamans að fylla
tunnur og kúta með gasi og
kveikja í. Gasíð brennur skært
og er loginn blár. Vonandi
dregst ekki mikið lengur að gerð
ar séu á þessu rannsóknir. Gas
«U1
an: skatt beint til þess að efla
-sem mest áðurnefndan sjóð.
Eftirfarandi tillögur voru einn
ig samþykktar:
„Ársþing Í.B.A. skorar ein-
dregið á íþróttaráð Akureyrar,
að hraðað verði svo sem unnt
er, undirbúningi og byggingu
nýs íþróttahúss og heitir öllum
þeim stuðningi, sem það getur í
té látið, við þetta málefni.“ Enn
fremur: „Ársþing í. B. A. beinir
þeim tilmælum til Ríkisstjórn-
ar íslands, að veruleg lækkun
verði á aðflutningsgjöldum af
íþróttaáhöldum við næstu endur
skoðun tojlskrárinnar".
Til umræðu kom bygging
bráðabirgðahúsnæðis til þess að
bæta aðstöðu íþróttamanna um
sinn. Félögin hafa haft þetta eitt
hvað í athugun, en fram kom í
umræðum vilji þingfulltrúa um
sameinað átak undir forystu
bandalagsins og var þessu vísað
til stjórnar Í.B.A. til frekari at-
hugunar.
í lok fundar var fulltrúum
boðið til kaffidrykkju að Hótel
K.E.A. og kvikmyndasýningar.
Stjórn Í.B.A. skipa nú þessir
menn: Formaður var endurkjör
inn ísak J. Guðmann. Aðrir í
stjórn eru Jónas Jónsson, Hall-
dór Helgason, Leifur Tómasson,
Kristján Ármannsson, Gísli Lór
enzson, Oli G. Jóhannsson og
Hermann Stefánsson.
Frá aðalfundi Ferðafél. Akureyrar
AÐALFUNDUR Ferðafélags
Akureyrar fyrir árið 1964 fór
fram sunnudaginn 21. marz. í
skýrslu stjórnarinnar og ferða
nefndar kom meðal annars þetta
fram:
Félagið gaf út ritið Ferðir, og
fjallaði það að þessu sinni aðal-
lega um leiðir úr Svarfaðardal
til Ólafsfjarðar. Einnig flutti það
ferðaáætlanir F.F.A og Ferða-
félags Svarfdæla, sem stofnað
var árið 1964. Næsta hefti Ferða
er tilbúið undir prentun.
Á síðastliðnu sumri lét Vega
gerð Ríkisins merkja og lagfæra
leið úr Eyjáfirði suður að
Tungnaá. Ferðafélag Akureyrar
lagði fram nokkra sjálfboða-
vinnu við þetta verk.
Félagið hefur nú gengið mjög
vel frá skála sínum við Lauga-
fell, enda má búast við að þang
að verði meira komið en áður,
þar sem leiðin um Hólafjall og
Sprengisand er nú vel fær öll-
um sterkari bílum þegar líða
tekur á sumarið.
Þorsteinssála í Herðubreiðar-
lindum gista hundruð manna á
hverju sumri. Skálanum er
mjög vel við haldið og um-
gengni flestra ferðamanna er
góð.
Fimm öræfaferðir voru farnar
á árinu með samtals 111 þátttak
endum. Engar tekjur voru af
«'«SE
ferðum þessum og eru þó öll
störf ferðanefndar ólaunuð. í
heild voru tekjur félagsins um
fram gjöld 13,127,53 kr. Félags
menn eru nú 536.
Um næstu helgi (10— og 11.
apríl) efnir félagið til skemmti
og fræðslufunda í Alþýðuhús-
inu. Þar mun dr. Sigurður Þór-
arinsson, jarðfræðingur sýna
myndir og flytja erindi um
Surtsey og Japan. Erindin um
Surtsey verða á laugardag kl.
8,30 e.h. og á sunnudag kl. 4, en
erindið um Japan verður á
sunnudagskvöld kl. 8,30.
MYNDIRNAR HÖFÐU
ÁHRIF
Fegrunarfélag Akureyrar, sem
hefur margt vel gert og mun
ekki skorta verkefni i náinni
framtíð, bað í fyrra Ijósmynd-
ara að mynda þá Ijótu staði í
bænum, sem lagfæringar þurfti
en fékk neitun. Blaðamaður
Dags tók þá margar slíkar mynd
ir og birti þær. Þetta var e.t.v.
ekki vinsælt, en það bar þann
árangur að allir þeir „sóðastað
ir“ gjörbreyttust til hins betra.
KENNARI LÉT SNYRTA
NEMENDUR
Sagt er, að kennari einn á Ak-
ureyri, sem staddur var í mið-
bænum ásarnt nemendum sín-
um, fyrr í vetur, hafi látið
klippa nokkra lubbalega stráka
á rakarastofu og snyrta þá. Ætti
Fegrunarfélagið að senda þess
um manni þakkir sínar.
ÁRVISS FARALDUR
Síðan „viðreisn“ komst á lagg-
irnar hefur það verið árviss far
aldur innan herbúða stjórnar-
flokkanna, að auglýsa fávisku
sína í landbúnaðarmálum og
kenna bændum um erfiðleika
efnahagslífsins. Ráð til úrbóta
eru helzt talin þau, að fækka
bændum, jafnvel útrýma þeim!
Talsmenn stjómarflokkanna
vilja ekki sjá að hér á landi,
sem í öllum öðrum löndum, er
bændastéttin mestur aflgjafi
manndóms og menningar.
HÓLLINN, SEM
FÆRÐIST TIL
Alþýðumaðurinn tók í vetur
kröftuglega undir þá kröfu
Norðlendinga, að aluminíum-
verksmiðju, ef reist yrði, ætti
að byggja norðan fjalla. Þetta
var nú ánægjulegt. En í fyrra-
dag er komið dálítið annað hljóð
í strokkinn, og kallar blaðið
það nú „ósæmilega lireppa-
pólitík“, að lialda liinu norð-
Ienska sjónarmiði um norð-
lenzka verksmiðju til streytu!
Menn eigi, segir blaðið, að „sjá
sól lands vors af einum hól“.
Sjónarhóll Alþýðumannsins
virðist hafa færzt drjúgan spöl
í suðurátt upp á síðkastið.
DÖNSK HÚSGÖGN
Innlendum húsgagnaframleið-
endum til hrellingar hafa stjórn
Ilcr er verið að byggja rafstöð
Snæbjörn Hjálmarsson bóndi
verki með sonum sínum
við Þormóðsstaðaá í Sölvadal.
á Þormóðsstöðum er þar að
(Ljósm.: S. H.)
arvöldin ákveðið að leyfa inn-
flutning húsgagna fyrir nokkr-
ar milljónir. Munu þau koma
á markaðinn innan tíðar og
verða dönsk. Eftir er að sjá verð
og gæði.
MOGGINN SENDIR ÞING-
EYINGUM TÓNINN
Morgunblaðið í gær hneikslast
mjög á samþykkt Búnaðarsam-
bands S-Þingeyinga og virðist
hún hafa komið blaðinu úr jafn
vægi. Umsögn blaðsins endar á
því, að benda þingeyingum á
smæð sína svofelldum orðum:
í Suður-Þingeyjarsýslu eru
2.786 íbúar; í Keflavík 5,100; í
Vestmannaeyjum 5.000 og á
Akranesi 4,133. Hvernig væri,
að fjáreigendafélög á einhverj-
um þessara fjölmennu staða
tæki afstöðu til stóriðjumálsins,
t.d. Fjáreigendafélag Keflavík-
ur?
Þannig tekur aðalmálgagn rík
isstjómarhmar undir óskir
landsbyggðarmanna að norðan.
Raufarhöfn lokuð
Raufarhöfn 9. apríl. — Hér er
þykkur og þéttur ís, höfnin full
og allt út að Rakkanesi að aust
an og Ásmundarstaðaeyju að
vestan, en auður sjór að sjá þar
utan við. Ekki var í dag talið
fært skipum fyrir Langanes.
H.H.
KFR KEPPIR HÉR
í DAG, laugardag, koma meist-
araflokkar og annarflokkur
körfuknattleiksmanna úr Körfu
knattleiksfélagi Reykjavíkur og
leika hér fjóra leiki um helgina,
sem fara allir fram í Rafveitu-
skemmunni. í dag leikur K.A.
við _gestina í báðum flokkum og
hefst keppnin kl. fjögur. Á
morgun, sunnudag, leikur lið
ÍBA við gestina í meistaraflokki
en lið ÍMA II flokki. Hefst
keppnin þann dag kl. 2. Heim-
sókn þessi er á vegum KA.
Frá Félagi íslenzkra
bifreiðaeigenda
HUNDRUÐ manna hafa gengið
í Félag íslenzkra bifreiðaeig-
enda undanfarna daga, og mun
meginorsök þess vera hin
megna óánægja sem ríkir með
yfirlýsta iðgjaldahækkun trygg
ingarfélaganna. Getur svo farið
að F.Í.B. stofni sitt eigið trygg-
ingarfélag til að verja hags-
muni félaga sinna.
Undanfarna daga hefur legið
frammi í skrifstofu félagsins í
Reykjavík bók, þar sem þeir,
er áhuga hafa á stofnun slíks
tryggingarfélags, gefst kostur á
að rita nöfn sín og fyrirheit um
stofnframlag. Hafa nú þegar
nokkuð hundruð manna heitið
stofnframlagi í félagið.
Hér á Akureyri mun slík bók
liggja frammi á Ferðaskrifstof-
uni Lönd og Leiðir, í dag og á
morgun, 10. og 11. apríl kl. 1—7
og síðan á virkum dögum kl. 5
—7 e.h. Geta menn þar gerzt að
ilar að stofnun tryggingarfélags
FÍB og félagsmenn í félaginu.
(Fréttatilkynning)