Dagur - 24.04.1965, Blaðsíða 1
Dagur
SÍMAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
f,. ■ -------------?
Dagur
keiimr út tvisvar í viku
og kostár 25,00 á
mán. í lausasölu kf. 4;00
Úilendingar eiga ekki að ráSa staðsein
ingu aivinnuiyriríækja hér á tandi
ÝMSUM ráðum er nú beitt til
þess að fá alþingismenn Norð-
lendinga, Austfirðinga, svo og
aðra sem gæta eiga jafnvægis
milli landshluta, til þess að fall
ast á að hefja stóriðju suður við
Faxaflóa.
Málfærsla Búrfells og Straums
víkurmanna er þessi: Svisslend-
ingarnir vilja endilega byggja
verksmiðjuna fyrir sunnan og
Alþjóðabankinn vill ekki lána
fé nema stóriðjan sé við Straums
vík. En við ætlum að gera það
sem meira er. Við ætlum að
stofna jafnvægissjóðinn, sem
Framsóknarmenn hafa lagt til,
að stofnaður yrði. Við erum jafn
vel reiðubúnir til að láta skatt
ana, sem Straumsvíkurverk
smiðjan greiðir, renna í þann
sjóð. Þetta er þingmönnum
stjórnarflokkanna ætlað að taka
sem góða og gilda vöru. En við
þessa málfærslu er margt að
athuga. Það er eins og Gísli
Guðmundsson alþingismaður
sagði í viðtali við Dag í vetur:
Utlendingar eiga ekki að ráða
staðsetningu atvinnufyrirtækja
eða skipulagi landsbyggðar á ís
landi. Slíkt eru okkar vandamál
en ekki þeirra. Hér viljum við
virkja og hér viijum við koma
upp atvinnulífsmiðstöð. Það er
þá útlendinganna ef til kem-
ur, að segja til um það, hvort
þeir geti starfað við þau skil-
yrði.
Það er út af fyrir sig ekki eft
irsóknarvert að fá hingað út-
lent fyrirtæki. Það átti alls ekki
að koma til álita, nema sem úr-
ræði til að skapa jafnvægi milli
landshluta og þó auðvitað því
aðeins, að þannig væri um hnút
ana búið að öðru leyti, að við-
unandi væri.
Kunnáttumenn fyrri alda tóku
stundum vafasöm öfl í þjónustu
sína til að koma góðu til leiðar
ef því varð ekki til leiðar kom
ið á annan hátt. Það gafst vel,
ef kunnáttan var ekki kukl. En
það er hlálegt, að auka fyrst ó-
jafnvægið með því að stofna til
stóriðju þar sem hennar er eng
in þörf og ætla svo að koma
með jafnvægissjóð á seinni skip
unum. Loforð um þann sjóð frá
núverandi stjórn verða létt á
metunum fyrst um sinn og skatt
arnir af aluminíumverksmiðjú
óþekkt stærð, en ekki mun þar
verða um mikið fé að ræða í
byrjun a.m.k. En staðsetning
stóriðju við Faxaflóa hefur auð
vitað þau áhrif, að miklu meira
fé en ella þyrfti í jafnvægissjóð
inn.
Samkv. frumvarpi Framsókn
armanna um sérstakar ráðstaf- .
anir til að stuðla að jafnvægi í
byggð landsins, átti jafnvægis-
sjóður að fá í árlegar tekjur
1,5% af ríkistekjunum. Það
hefði numið um 60 millj. kr. á
yfirstandandi ári. Auk þess var
sjóðnum ætlað að taka fé að
láni til að auka húsnæðislán á
ýmsum stöðum. Ef enn verður
aukið ójafnvægið með Búrfells
virkjun og stóriðju við Straums
vík þyrfti umráðafé sjóðsins að
vera mun meira en hér er gert
ráð fyrir.
Sökudólffar fundnir
LÓGREGLAN hefur nú upp-
lýst innbrotið á Þórshamri á dög
unum. Ennfremur var brótist
inn á aðalskrifstofu KEA og ein
hverju stolið a.m.k. kaffisjóði
starfsfólksins, ennfremur brotn
ir upp skápar og skúffur.
Sömu aðilar voru að verki á
báðum stöðum, unglingar úr
bænum, en færri á öðrum staðn
um. — Á fjórða tímanum í fyrra
dag varð harður árekstur milli
tveggja Akureyrarbíla, sem
staddir voru á Öxnadalsheiði
fólksbíll á norðurleið og vörubíll
FARFUGLARNIR
ÞÚSUNDIR af stelkum eru
komnir hér á Leirurnar við Ak-
ureyri og sáust þeir fyrstu þar
á laugardaginn. Þá er lóan
komin í stórum hópum, en
nokkru áður og óvenju snemma
kom slangur af þeim. Þá er
rauðhöfðaönd komin, grafönd,
urtönd og jaðrakan. Þá hefur
hér orðið vart við mánaþröst,
sem er sjaldgæfur fugl hér á
landi.
á suðurleið. Menn sakaði ekki
en önnur hlið fólksbílsins er
beygluð og rifin.
IIÖFRUNGASKYTTURNAR, þeir Hafliði Guðmundsson
(með trefilinn) og Þorsteinn Þorleifsson. (Ljósmynd: E. D.)
Stapafell branzt í gegniun ísiirn
og er fyrsta flutningaskip til Akureyrar
eftir mánaðarlokun skipaleiða
TEKUR SÆTI A AL
ÞINGI
SIGURÐUR JÓHANNESSON,
skrifstofumaður á Akureyri,
mun taka sæti á Alþingi n. k.
mánudag, í stað Gísla Guð-
mundssonar, scm verður erlend
is fáar vikur. Sigurður liefur
ekki setið á Alþingi fyrr og
honum góðar óskir suð-
ur. n
í GÆRMORGUN kom olíuskip
ið Stapafell til Akureyrar með
um 250 tonn af benzíni og rúm
400 tonn af svartolíu. Stapafell
er fyrsta flutningaskipið sem
kemur til Akuréyrar um mánað
artíma, en skipaleiðir hafa ver
ið lokaðar hingað vegna ísa, að
undanförnu.
Blaðið ræddi í gær við skip-
stjórann á Stapafellinu Bern-
harð Pálsson og fékk hjá hon-
um eftirfarandi upplýsingar.
Skipið lagði að stað frá
Reykjavík sl. þriðjudag. Urðu
skipverjar fyrst varir við ísjaka
á stangli norðaustur af Papey.
Þegar lengra kom sáu þeir stóra
HÆGRIHANDAR AKSTUR1968
SAMKV. fréttatilkynningu frá
dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
inu, hefur ríkisstjórnin ákveðið,
að upp verði tekinn hægri hand
ar akstur hér á landi árið 1968,
og hefur lagt fyrir umferða-
laganefnd að annast fyrsta
nauðsynlegan undirbúning. —
Jafnframí hefur ráðuneytið fal-
ið Arinbirni Kolbeinssyni,
lækni, sem er formaður Félags
íslenzkra bifreiðaeigenda, og
Eiriki Ásgeirsyni, forstjóra, að
starfa að undirbúningi með
nefndinni.
Alþingi samþykkti árið 1964
tillögu til þingsályktunar um
þetta efni, og er ákvörðun rík-
isstjórnarinnar, sem að framan
getur, framh. samþykktarinnar.
ísspöng úti fyrir og við Gerpi
skall á blindþoka, og var beðið
þar um tíma, því mjög varasamt
er fyrir skip sem eru með benzíii
farm að þröngva sér í gegnum
ís. Þegar þokunni létti var hald
ið áfram og vfer siglt á auðum
sjó öðru hverju. Við Norðfjarð-
arhorn voru samt stakir jakar á
reki en ekki hættulegir í björtu.
Austan við Langanes var þykk
ísbreiða á alllöngum kafla. Var
þá varðskipið Þór komið á stað
inn, og braust það í gegnum ís
inn en Stapafellið fylgdi á eftir.
Taldi Bernharð skipstjóri útilok
að að Stapafellið hefði haft sig
í gegn ef aðstoðar varðskips
hefði ekki notið við. Þegar kom
ið var fyrir Langanes var sæmi
lega greiðfær siglingaleð vestur
með landinu. Út af Heiðarhöfn
var siglt í gegnum ís. Við Mel-
rakkanes var siglt á hreinum sjó
um mílu frá landi, norður á móts
við Raufarhöfn, en þar var lát-
laus rekís og vestur undir
Rauðunúpa, en ekki hættulegur
í björtu. Á þessum slóðum skildi
varðskipið við Stapafell, sem
hélt áleiðis til Húsavikur, en
varð að fara af venjulegri sigl-
ingaleið vegna ísspanga. Á þeirri
leið sást síðast ís um 5 mílur
norður af Lundey. Á Húsavík
losaði skipið gasolíu og bensíni
en hélt svo áleiðis þaðan í fyrri
nótt og kom til Akureyrar í
gærmorgun. Á þeirri leið var
víða ísrek, m.a. við Flatey. Það
an var ís að sjá, svo langt sem
eygt var. ísspöng var við Gjög-
ur og jakar á stangli inn undir
Hrísey.
Þess má geta að Stapafell var
áður búið að gera tilraun til að
komast til Akureyrar með olíu
farm. Var þá farið vestur fyrir
land en snúið við hjá Iiælavíkur
bjargi vegna íss.
Með hníf gegn konu
ÞAÐ bar við í húsi einu á Ak-
ureyri fyrir páska, að útlendur
maður, sem fengið liafði sér
„hressingu“ og kom seint heim,
þar sem hann leigir, réðist að
húsráðanda, sem er kona, vopn-
aður eldhúshnífnuin. Fráskil-
inn, en þá nærsfaddur eigin-
maður konunnar, skakkaði leik-
inn, en síðan tók lögreglan
árásarmannimi í sína vörzlu. —
Konan skarst á hendi í svifting-
unum. □