Dagur - 24.04.1965, Blaðsíða 8
8
'
; *♦ »•
%>
... ' '
FJÓLDI Akureyringa hlýddi á Ieik Luðrasveitarinnar, fyrst á Ráðhústorgi, síðan í Fjórðungs-
sjúkraliúsinu, hinn fyrsta sumardag. Þá fóru 70—80 manns hópreið um bæinn á gæðingum sín
um. Margir bæjarbúar lögðu leið sína til fjalla, allt til Vindheimajökuls. Lóan og stelkurinn
létu til sín heyra. Hér á myndinni alca lögreglumenn fyrir hestamönnum. (Ljósmynd: E. D.)
Kröfur gerðar um 20% kauphækkanir a
þingi Alþýðusambands Norðurlands
Formaður Tryggvi Helgason svarar spurning-
um blaðsins um það efni
SMÁTT OG STÓRT
fi*
TVEIR ÁNÆGJULEGIR '
ATBURÐIR
UM miðjan mánuðinn hélt Al-
þýðusamband Norðurlands ráð-
stefnu á Akureyri um kjaramál.
Var hún vel sótt. Þar sem kjara
málin eru mjög á dagskrá þótti
blaðinu viðeigandi að leita
fregna af ráðstefnunni og útliti
og horfum í þeim samningum,
er framundan eru og snéri sér
til forseta Alþýðusambands
Norðurlands, Tryggva, Helga-
sonar, í því efni og svarar
hann hér á eftir nokkrum spurn
ingum blaðsins.
Hvert var tilefni verkalýðs-
ráðstefnunnar?
Að forma í meginatriðum til-
lögur til verkalýðsfélaganna um
endurbætur samninga og hækk
anir á launum verkafólks, sem
við teljum óhjákvæmilegt. Ráð-
stefnuna sátu einnig fulltrúar
frá Alþýðusambandi Austur-
lands.
Hverjar eru meginkröfur ykk
ar nú, Tryggvi?
í Fyrsta lagi 12—15% kaup-
hækkun og í öðru lagi stytting
vinnuvikunnar úr 48 stundum
í 44 stundir. Ennfremur nokkr-
ar minniháttar lagfæringar á
ÁSKORUN
FUNDUR haldinn í Fulltrúa-
ráði verkalýðsfélaganna á Ak-
ureyri 13. apríl 1965 telur, að
mjög skorti á að heilbrigðiseft-
irlit á vinnustöðum í bænum,
sérstaklega í verksmiðjum og
öðrum vinnustöðum, þar sem
innivinna er daglega stunduð.
Leyfir fundurinn sér því að
skora á heilbrigðisnefnd bæjar-
ins, að auka eftirlit á vinnu-
stöðum, og sjá um að heilbrigð-
isreglugerð bæjarins sé að öðru
leyti framfylgt. □
gildandi samningum, samkvæmt
tillögum þeirra trúnaðarmanna
samtakanna, á Norður- og Aust
urlandi, sem sérstaklega yfir-
fóru samningana. Kröfur okk-
ar jafngilda því ekki undir 20%
hækkun.
Á hvaða rökum reisið þið, þess
ar kröfur?
Allir virðast vera sammála
um, að enginn daglaunamaður
,geti lifað sómasamlega af dag-
íaunum sínum. Það er talið full-
sannað, að þjóðartekjurnar hafi
aukizt um 7,5—8% að meðal-
t.ali. á ,ári. Ættu því þeir, sem
við; frgmlöiðSluna starfa, að fá
réttmæta • hlutdeild í þessari
aukningu. En það hafa þeir því
miður pkki fengið. Menn gerðu
sér vonir unr það í fyrra með
júnísamkomulaginu, að gerðar
yrðu ráðstafanir til að draga úr
hinum stöðuga vexti verðbólg-
unnar. En í því efni hefur ekki
örlað á vilja valdhafanna til að
láta þær vonir rætast. Kröfur
okkar nú, eru óhjákvæmilegt
svar við þessari verðbólguþró-
un og launaskerðingu sem af
henni hafa orðið síðan í fyrra.
Verkamenn hafa reynt að bæta
sér þetta upp með hóflausri eft
irvinnu, þar sem hana er að
fá, enda hefur það komið í Ijós,
að í sumum byggðarlögum hef-
ur um helmingur vinnutekn-
anna byggist á yfirvinnu og næt
urvinnu. Norðurland er í þessu
efni í algerðum sérflokki vegna
deyfðarinnar í atvinnulífinu.
Hvað hefur 48 stunda vinnu-
vika verið lengi í gildi hér á
landi?
Hún hefur verið í gildi síðan
1942 eða hart nær í aldarfjórð-
ung, hjá verkamönnum. Hins-
vegar hafa sumar aðrar starfs-
greinar styttri vinnuviku, eða
niður í 39 vinnustundir. í iðn-
greinum eru 42—44 vinnustund
ir í sömu vinnuflokkum og
verkamenn vinna, svo sem í
byggingavinnunni, á slippstöðv-
um og á verkstæðum. Kröfurn
'ar um styttingu vinnuvikunnar
miðast við að samræma þetta.
Eru Eeiri ííðindi af ráðstefn-
unni?
Atvinnu ástandið á Norður-
landi var auðvitað mikið rætt
og leiðir til úrbóta. Atvinnuá-
standið er óviðunandi. Síldin
hefur brugðist og þorskurinn
einnig, enda er nú svo komið,
að 40 fiskiskip úr þessum lands-
(Framhald á blaðsíðu 4).
Um páskana urðu þeir ánægju
legu atburðir, liér á Akureyri,
að skíðamenn kynntust betri
stjórn á skíðalandsmóti en þeir
höfðu áður reynt, og í Ieikhúsi
bæjarins var óperetta frumsýnd
og á þann veg flutt, að miklu at
hygli vekur.
Skíðamenn utan af landi og
frá höfuðborginni hafa borið
mikið lof á landsmótið bæði
stjórn þess, framkomu skíða-
fólks og almennings og hina
góðu aðstöðu í Hlíðarfjalli.
Hvergi á landinu er aðstaða slík
til skíðamóta og skíðaiðkana en
í Hlíðarfjalli, og er nú loksins
öllum að verða það ljóst. En
framundan eru þó stór verkefni
óleyst þar efra og vonandi held
ur bæjarstjórn áfram að bæta
enn aðstöðuna, jafnvel með
meira í huga en aðstöðu fyrir
fslandsmót.
SÖNGLEIKURINN í
SAMKOiMUHÚSINU
Operettan Nitouche, sem nú er
sýnd í samkomuhúsinu á Akur-
eyri kostaði ír.eiri fjármuni í
uppsetningu en nokkurt annað
leikrit hefur gert hjá LA. Leik
félagið tefldi djarft er það ákvað
þetta verkefni. Árangurinn er
sá, að leikhúsgestir úr bæ og
héraði geta fagnað sýningunni
heils hugar, enda gæti óperett-
an vel sómt sér á fjölum þjóð-
leikhússins , svo vel hefur nú
til tekist. Væntanlega sýnir það
sig einnig í mikilli aðsókn, að
ekki sé unnið fyrir gýg hjá Leik
félaginu og að hið djarfa val sé
að verðleikum metið.
HVER ER STEFNA HANS?
Stjórnarandsíæðingar eru svo
ónærgæínir, stundum, að Ieggia
þá spurningu fyrir Sjálfstæðis
flokkinn, hver sé stefna lians í
stærstu þjóðmálunum, svo sem
í einkaframíaki og þjóðnýtingu.
í loðnum svörum vefst forsvars
mönnum tunga um tönn. Það
nægir ekki sem svar, að segjast
vilja gera allt fyrir alla og vera
flokkur allra stétta. Hin ófyrir-
leitna hentistefna á mörgum
undanfömum árum hefur svar-
að að nokkru hver ,stefnan“ er.
Sjálfstæðisflakkurinn birtir
öðru hverju yfirlýsingar, telur
sig t.d. einan flokka styðja eink
reksturinn. En í framkvæmd
bæði í ríkisbúskapnum og ekki
síður í stjórn sinni á Reykjavík-
urborg, blasir allt annað við.
Þar eru þjóðnýtingaraðferðir í
heiðri hafðar.
TIL HAMINGJU MEÐ
GÓÐAN ÁSETNING
I vetur skaut athyglisverðu fél-
ag upp kollinum. Það er félag
ungra hestamanna, sem liafa al-
gert bindindi innan félagsins. Ef
þessir unglingar verða svo gæfu
samir að stunda hina íögru og
hollu íþrótt sína, án áfengis, er
það vissulega athyglis- og eftir-
breytnisvert, og kynni að verða
upphaf nauðsynlegrar breyting
ar á hestamennskunni. Ættu
góðir menn að styðja við bakið
á þessum ungu mönnum og
meta hina góðu viðleitni þeirra.
Frú Sigríður Thorla-
cius flytur hér erindi
FRÚ Sigríður Thorlacius, sem
margir kannast við af blöðum
og útvarpi, flytur erindi og
sýnir skugamyndir að Hótel
KEA á sunnudaginn kl. 3 e. h.
Allar Framsóknarkonur vel-
komnar á fundinn og aðrar
meðan húsrúm leyfir. □
Kvöldverðarfundur
hjá Félagi ungra Framsóknar-
manna á Akureyri verður að
Hótel KEA sunnudaginn 2.
maí kl. 19.
Gestur fundarins verður
Steingrímur Hermannsson. —
Nánar auglýst síðar. Q
DRENGJAHLAUP K.A.
A MORGUN
HLAUPIÐ fer fram á morgun,
sunnudag, kl. 2 e.h. á íþrótta-
vellinum. Keppt verður í tveim
aldursflokkum, 15—16 ára og 14
ára og yngri. Valprent og Bóka-
forlag Odds Björnssonar hafa
gefið bikara sem keppt er um.
Um 20 keppendur eru skráðir
til leiks. n