Dagur - 01.05.1965, Page 2
2
Laugaskóli bar sigur úr bífum í íþrólfakeppni við
Gagnfræðaskóla
SUNNUDAGINN 11 þ.m. fór
fram að Laugum árleg keppni
í frjálsum íþróttum, sundi knatt
spyrnu, og skák milli Lauga-
skóla og Gagnfræðaskóla Akur
eyrar.
Úrslit urðu þau að Lauga-
skóli vann keppnina, hlaut 83%
stig á móti 59% stigi. — Bóka-
forlag Odds Björnssonar Akur-
eyri gaf bækur til verðlauna
og einnig var keppt um bikar
sem Olíudeild Kaupfélags Þing
eyinga gaf. Helstu úrslit í ein-
stökum greinum urðu:
Hástökk stúlkna m. atr m.
Lilja Sigurðardóttir GA 1,41
Sigríður Baldursdóttir L 1.36
Minningarsjóður
Jakobs Jakobssonar
MINNINGARSJÓÐUR Jakobs
Jakobssonar, er lézt af slysför-
um í Þýzkalandi þann 26. janú-
ar 1964, varð nú þann 20. apríl
sl. 1 árs. Sjóðurinn hefir mynd
ast með tekjum af sölu minning
arspjalda, sem seld eru í Bóka-
búð Jóhanns Valdimarssonar
og í Verzluninni Ásbyrgi, ýms-
um framlögum og tekjum af
minningarleik, sem leikinn var
á síðastliðnu sumri við KR.
Tekjur sjóðsins urðu, sem hér
segir:
1. Stofnframlag kr. 45.275,00
2. Minningargj. kr. 10.445,00
3. Ágóði af minn-
ingarleik kr. 38.559,25
4. Vaxtatekjur af
sparisj.bók 9679 kr. 3.517,88
Langst. stúlkna án atr.: m.
Sigríður Baldursdóttid L. 2.45
Díana Arthúrsdóttir L 2.35
Hástökk pilta m. atr. m.
Friðrik Þorsteinsson L. 1.69
Ægir Sigurðsson L 1.69
Hástökk pilta án atr.: m.
Páll' Dagbjartsson L 1.44
Halldór Sigurðsson L 1.44
Langstökk pilta án atr.: m.
Kristján Pétursson GA 2.99
Páll Dagbjartsson L 2.98
Þrístökk pilta án atr.: m.
Páll Bjöi-nsson L 8.62
Halldór Sigurðsson L 8.55
66 m. bringusund stúlkna: sek.
Díana Arthúrsdóttir L 56.6
Björk Sigurjónsdóttir L 59.5
22 m. skriðsund stúlkna: sek.
Hildur Káradóttir GA 14.5
Karen Eiríksdóttir GA 15.0
100 m. bringusund pilta mín.
Ágúst Óskarsson L 1.18,3
Jón Árnason GA 1.18,7
50 m. skriðsund pilta:
Jón Árnason GA
Sverrir Þórisson GA
sek.
25.9
26.3
Boðs. kv. frjáls aðferð mín.
Gagnfræðask. Ak. 2.10,1
Laugaskóli 2.18,1
Boðs. karla, frjáls aðferð: mín.
Gagnfræðask. Ak. 1.38,6
Laugaskóli 1.48,5
Knattspyrna:
Laugaskóli vann Gagnfræða-
skóla Akureyrar með 5 mörk-
um gegn 4.
Skák:
Gagnfrsk. Ak.
Laugaskóli
vmnmgar
5%
3%
IROTTIR
UM IIELGINA
í DAG og á morgun verður mik
ið um íþróttir á Akureyri. í
Rafveituskemmunni fara fram
margir leikir báða dagana og
maí-boðhlaupið verður háð á
íþróttavellinum kl. 11 f. h. á
morgun. □
Handknaftleikur - Kvöldvaka
UM HELGINA verður hand-
knattleiksmót í Rafveituskemm
unni,- eins og,áður hefur verið
skýrt frá í blaðinu. — Á sunnu-
dag fer fram verðlaunaafhend-
ing á kvöldvöku í Skíðahótel-
inu og er handknattleiksfólk
hvatt til að fjölmenna.
Samtals kr. 97.797,13
í skipulagsskrá sjóðsins segir
m.a. að hann skuli vera til styrkt
ar efnilegum íþróttamönnum á
Akureyri, svo sem með því að
styrkja þá til náms í íþrótt sinni
eða útvega þeim kennslu- eða
námsaðstöðu.
Stjórn sjóðsins er heimilt að
veita úr sjóðnum allt að vöxtum
hans árlega, þar til höfuðstóll
hans hefir náð kr. 100.000.00. Þeg
ar sjóðurinn hefir náð þeirri upp
hæð má veita úr honum, auk
vaxtanna, helmingi tekna hans
ársins á undan.
Vonir standa til þess að sjóð
urinn vaxi verulega á þessu ári
þannig að hægt muni vera að
veita úr honum töluverða fjár-
hæð í byrjun næsta árs og von-
andi á hann eftir að gegna þýð-
ingarmiklu hlutverki í þágu
íþróttahreyfingarinnar á Akurr
eyri. Stjórn sjóðsins skipa nú: nf
Knútur Otterstedt, Björn Bald-
ursson og Haukur Jakobsson.
— Endurskoðendur Valgarður
Baldvinsson og Finnbogi Jón-
asson.
ÞETTA eru verðlaunagripir
þeir, sem keppt er um í Norð-
urlandsmóti í handknattleik
(innanhúss). Stærstu styttuna,
fyrir meistaraflokk karla, gaf
.Kaupfélag Eyfjrðinga Akureyri,
ök sfórtí "stýttUna fyrir' meist-
araflokk kvenna gaf Kaupfélag
Þingeyinga, Húsavík. Minni
stytturnar fyrir yngri flokkana
gaf H. R. A.
Gripir þessir eru farandgrip-
ir, sem vinnast til eignar ef
sama félag vinnur þá þrjú ár í
röð eða fimm sinnum alls. —
Gripirnir eru mjög fallegir og
ættu að verða til eflingar hand-
knattleiksíþróttinni á Norður-
landi og verður eflaust hand-
knattleiksfólki kappsmál - að
vinna þessa gripi til eignar fyr-
ir félag sitt og búa sig sem bezt
undir þátttöku í Norðurlands-
mótinu á hverju ári. ----- q.
FIMMTUDAGINN 8. apríl var
frumsýndur að Breiðumýri í
Reykjad. sjónleikurinn Tengda-
pabbi eftir Gustav af Geijer-
stam. Leikstjóri var Kristján
Jónsson frá Reykjavík.
Leikendur eru flestir í Umf.
Efling, sem vinna að sýningun-
um að öllu leyti í sjálfboða-
vinnu, og hafa lagt á sig ómælt
erfiði við æfingar og undirbún-
ing sýninganna.
Jón A. Jónson leikur aðalhlut
verk leiksins Theodór Klint pró
fessor, hinn verðandi „tengda-
pabba“. Á frumsýningunni háði
honum, að á stundum brast
kunnáttuna í hlutverkinu og til-
breytni skorti í raddbeitingu.
Bezt tilþrif sýndi hann í andúð
sinni á lautinantinum og sem
hinn sakfelldi og útskúfaði eig-
inmaður í síðara hluta leiksins.
Cecelíu, eiginkonu hans, leik-
ur Rannveig H. Ólafsdóttir. Hún
er sannfærandi sem virðuleg,
ströng og siðavönd eiginkona og
húsmóðir. Dætur þeirra eru
Elísabet 18 ára, leikin af Val-
gerði Jónsdóttur, Karin 14 ára
og Elsa 12 ára, leiknar af Guð-
finnu H. Stefánsdóttur og Helgu
Amgrímsdóttur.
Valgerði tekst vel í hlutverki
sínu sem ung, óreynd og einlæg
stúlka, er kynnist refilstigum
ástarinnar bæði af eigin raun
og í samlífi foreldranna. Korn-
ungar leikkonur gerðu hinum
hlutverkunum, sem lítil eru,
góð skil.
Sigríður Jónsdóttir leikur frú
Lovísu Engström móður Cecel-
íu. Hún skapar sannfærandi og
skemmtilega persónu í hlut-
verki gömlu konunnar, sem
„sér vel, þótt hún heyri illa.“
Hlutverk Fahnströms lautin-
ants gefur helzt efni til tilþrifa
í leik, þegar lautinantinn kveð-
ur Klint prófessor, fyrrum til-
vonandi „tengdapabba". Sigur-
geir Hólmgeirsson kemur reiði
og fyrirlitningu lautinantsins
við það tækifæri allvel til skila.
Þorsteinn Glúmsson hefur viða-
meira hlutverk sem Norstedt
listmálari, einkavinur Klints og
var leikur hans samfelldur og
snurðulaus.
Annað veigamikið hlutverk
er Agaþon Pumpendahl, yfir-
NÝR NÁTTFARI
LAUGARDAGINN 10. apríl sl.
hélt stofnskrárhátíð sína að
Breiðumýri nýstofnaður Lions-
klúbbur „Náttfari". Félagssvæði
klúbbsins er Aðaldalur og
Reykjadalur, hinn forni Helga-
staðahreppur eða Aðalreykja-
dalur, og ber klúbburinn nafn
hins fyrsta landnámsmanns á
þessum slóðum.
Félagar eru 16 og formaður
sr. Sigurður Guðmundsson, prcf
astur Grenjaðarstað. Félagar úr
Lionsklúbbnum „Huginn“ á Ak
ureyri stuðluðu að stofnun
klúbbsins, sem er hinn fyrsti
Lionklúbbur í sveit hér á
landi, en fyrir voru um 30 slíkir
klúbbar, allir í kaupstöðum og
þorpum. * G. G.
dómari. Hinn forherti pipar-
sveinn og kyndugi heimspeking
ur, sem þar er á ferðinni, gefur
leikstjóra gott tækifæri um eft-
irminnilegt gerfi og leikara færi
á að mynda sérstæða „týpu“,
og leysti Eyvindur Áskelsson
það mætavel af hendi.
Tvö minni hlutverk, sem svip
að er ástatt um, eru ókunni inn
heimtumaðurinn, sem er á glóð-
um um endalok sinna mála hjá
prófessor Klint og fyrirsætan
Amanda, er hefur fullvissu
þess, að „svo vill til, að hún er
laglega vaxin“. Þar sýndu Jón
Aðalsteinsson og Elín Friðriks-
dóttir bæði ágæta frammistöðu.
Að lokum er að telja Guðnýju
Kristjánsdóttur í hlutverki Em-
ilíu, þernu Klint hjónanna. Vel
kann stúlkan sú að sigla milli
skers og báru í úfnum sjó heim
ilislífsins hjá heldra fólkinu, og
leysir Guðný hlutverk sitt trú-
verðuglega af hendi.
Þótt sýning þessi sé ekki í öll
um atriðum sambærileg við list
æfðra leikara, enda ekki með
sanngirni hægt að vænta þess,
þá eiga bæði leikendur, leik-
stjóri og aðrir starfsmenn við
sýninguna heiður og þökk skil-
ið fyrir ágætt framlag sitt í fé-
lags- og skemmtanalífi sveitar
og héraðs.
G. G.
TIL SÖLU:
Land Rover, árg. 1952,
í mjög góðu standi með
nýrri vél, góðu húsi o. m.
II. Mjög lágt verð. Allar
nánari upplýsingar veitt-
ar í síma 1-24-24, Ak.
TIL SÖLU:
WiIIy’s Station, árg. 1946.
Skipti á jeppa koma til
greina, má vera ógangfær.
Steingrímur Ragnarsson,
Stekkjarflötum.
A-194
Tilboð óskast í sendi-
ferðabifreiðina A— 194,
sem er Dodge, model ’52.
Uppl. í Pylsugerð KEA.
TIL SÖLU:
6 manna fólksbíll,
Chevrolet, árg. 1955.
Selst í þ\ í ástandi, sem
‘ hann er nú.
Allar uppl.ýsihgár gefur
Svanlaugur Ólafsson,
B.S.A.-verkstæðinu.
''l'- l-i'ú'';***>*''
iTilkiuii
hlaðsölli
4T'-