Dagur - 01.05.1965, Síða 7
7
Garðyrkj'uskóEi á Norðurlandi
(Framhald af blaðsíðu 8).
vera alin upp í Gróðrarstöðinni
á Akureyri og þar á hinn nýi
skóli að rísa og hefja plöntu-
uppeldi fyrir skrúðgarða handa
almenningi eins og í gamla
daga. Mundi grasagarðurinn á
Akureyri geta orðið slíkum
skóla ómetanlegur styrkur, t. d.
um plöntuval og ræktunarað-
ferðir og m. fl.
Hér þarf tæplega neitt millj.
skólabákn, a. m. k. til að byrja
með. Sennilega eru nægilegar
byggingar fyrir hendi fyrst í
stað, og 1 fastur kennari eða
forstöðumaður mundi vera nóg
til að byrja með. Enda auðvelt
að fá tímakennara á sérfögum
á Akureyri. Hinsvegar ætti
skólinn að mínu áliti að leggja
aðaláherzlu á verklegt nám í
garðyrkju, og mætti e. t. v.
koma þar upp stuttum vomám-
skeiðum í sambandi við skól-
ann eins og í gamla daga.
Til mun vera einstaka maður,
sem telur garðyrkju þýðingar-
lítið dútl, nema þá helzt kart-
öflurækt. Skólinn á að kenna
okkur að rækta grænmeti og
berjarunna og alveg sérstaklega
jarðarber. Hæfileg neyzla græn-
metis er talin mjög heilsusam-
leg og raunar ómissandi þáttur
í mataræðinu. Einnig ætti skól-
inn að kenna skrúðgarðagerð,
ræktun garðplantna, og yfir-
leitt reyna að vekja áhuga al-
mennings til sveita og við sjáv-
ar síðuna fyrir bættri umgengni
og snyrtingu við hús og heimili,
enda þótt ekki sé um neinn
skrúðgarð að ræða.
Ég hefi orðið þess var, að
ýmsum þykir furðulegt, hvað
lítið heyrist frá karlmönnum
um þessi mál, en svo má heita
að konur einar hafi látið þessi
málefni til sín taka út um land-
ið, og þá einkum í sveitunum.
En er nokkur furða þótt hús-
mæður hafi meiri skilning á
þessum málum en t. d. bændur
almennt, því nú er svo komið,
að húsmæður munu yfirleitt
miklu menntaðri en bændur,
eins og sést m. a. t. d. á því, að
til munu vera 8 eða 10 hús-
mæðraskólar í landinu en ekki
nema 2 bændaskólar og þeir
misjafnlega sóttir, en húsmæðra
skólarnir alltaf yfirfullir?
Þá er sú rótgróna venja eða
blátt áfram ósiður mennta-
manna og kennara, að forðast
að snerta á reku eða láta sjá sig
með hana í höndunum. Til eru
þó heiðarlegar - undantekningar
frá þessari reglu í stéttum
menntamanna hér á landi, en
þær munu furðu fáar. Þetta við
horf menntamanna, svo og
áhugaleysi bænda fyrir garð-
yrkju, af því, þeir telja þar ekki
neina von um verulegan fjár-
afla, veldur því að garðyrkjan
og garðyrkjumenn yfirleitt
njóta ekki þess álits og viður-
kenningar, sem þeim og faginu
ber. Er þessu á allt annan veg
farið erlendis. Þar er algengt
að kennarar, jafnvel háttsettir
prófessorar og prestar, vinni
við og hirði um sína eigin garða
en með aukinni garðmenningu
og betra uppeldi barna og ung-
linga, með tilliti til gróðurs og
útiumgengni, munu þessi mál
vonandi færast til betri vegar
hér á landi.
Jón Rögnvaldsson.
I
DÖNSKU
Töfflurnar
hvítu
eru komnar enn
þá einu sinni.
DANSKIR GÖTUSKÓR með breiðum liæl
SKÓVERZLUN M. H. LYNGDAL H.F.
GRENIVÍK-AKUREYRI
Sérleyfisferðir Grenivík—Akureyri hefjast mánudag-
inn 3. fnaii Farnar verða tvær ferðir í viku mánudaga
og föstudaga. Farið verður frá Grenivík kl. 8.30 frá
Akureyri kl. 17. Afgreiðsla á Grenivík Magnús Jóns-
son símstj. Afgreiðsla á Akureyri Lönd og Leiðir, sírni
1-29-40. Farþegar eru góðfúslega beðnir að panta far
með nægum fyrirvara.
GUÐMUNDUR TRYGGVASON, sími 1-18-25.
ÍBÚÐ TIL SÖLU
4 herbergi og eldhús.
Uppl. í síma 1-22-82.
HERBERGI
óskast til leigu sem fyrst.
Uppl. í síma 1-19-40.
TIL SÖLU:
3ja herhergja einbýlishús
á góðum stað í Glerár-
hverfi. Getur verið laust
14. maí.
Uppl. í síma 1-25-36.
PLASTMODEL
í úrvali.
LÍM og LÖKK
BAKPOKAR og
FERÐASETT
Tómstundaverzlunin
STRANDGÖTU 17 . POSTHOLF 63
akureyri
GOD AUGLÝSING -
GEFUR GÓÐAN ARÐ
JÓNAS JÓNSSON frá Ilriflu
dvelur í dag í Mitre Hotel
High Street, Oxford.
I. O. G. T. Aðalfundur þing-
stúku Evjafjarðar verður
haldinn að Bjargi sunnudag-
inn 2. maí kl. 8.30 e. h. Venju-
leg aðalfundarstörf. Fulltrú-
ar og aðrir stigfélagar mæti.
Þingtemplar.
ÞAKKiR. Kvenfélagið Hlíf flyt
ur bæjarbúum innilegar þakk
ir fyrir ágætan stuðning við
barnaheimilið Pálmholt á
sumardaginn fyrsta. Sérstak-
ar þakkir flytur það þó öllum
þeim, sem lögðu fram vinnu
eða gjafir í þessu markmiði.
Með ósk um gott og gleðilegt
sumar. Stjórnin.
GAMANLEIKURINN Orrust-
an á Ilálogalandi verður sýnd
í Sólgarði laugardaginn 1.
maí nk. og að Grund í Svarf-
aðardal sunnudaginn 2. maí.
Báðar sýningarnar hefjast kl.
9 e. h. Ungmennafélag Möðru
vallasóknar.
ST. GEORG GILDIÐ:
Fundurinn er í Varð-
borg á mánudaginn kl.
9 e. h.
HJÁLPRÆÐISHERINN: —
Sunnudaginn 2. maí kl. 8.30
e. h. er samkoma í sal Hjálp-
ræðishersins. Þá bjóðum við
Margareti Melgárd vel-
komna. Sunnudagaskóli er kl.
2 e. h. — Allir velkomnir.
DÝRALÆKNAVAKT næstu
helgi, kvöld og næturvakt
næstu viku hefur Ágúst Þor-
leifsson, sími 11563.
STRIGASKÓR
UPPREIMAÐIR
allar
stærðir
GÚMMÍSKÓR - BARNASTÍGVEL
GÖTUSKÓR, kven, mikið úrval
TELPUSKÓR
SANDALAR og VINNUSKÓR karlmanna
SKÓBÚÐ K.E.A.
f . . . . ?
í\c- Hugheilar pakkir til allra, ruer og fjœr, sem heiðr- ^
% uðu mig á S0 ára afmceli minu 23. april sl. með hlýj- %
'k um kveðjum, gjöfum og margháttaðri vinsemd.
Guð blessi ykkur öll. — Með sumar kveðju. $
I EINAR G. JÓNASSON. I
Á
Vanlai* karfauenn
til starfa til lengri tíma.
FISKVERKUNARSTÖD
ÚTGERÐARFÉLAGS AKUREYRINGA H.F.
IIJÚSKAPUR. Laugardaginn
17. apríl s.l. voru gefin saman
í hjónaband af sóknarprest-
inum í Laugalandsprestakalli,
ungfrú Kristbjörg Gunnars-
dóttir frá Bringu og Jón
Matthíasson byggingariðnaðar
maður Akureyri. Framtíðar-
heimili ungu hjónanna verð-
ur á Akureyri.
HJÚSKAPUR. Þann 16. apríl
s.l. voru gefin saman í hjóna-
band í Akureyrarkirkju brúð
hjónin ungfrú Gerður Árna-
dóttir og Stefán Kristinn Ól-
afsson húsgagnasmiður frá
Ólafsfirði. Heimili þeirra er
að Munkaþverárstræti 1. —
Og þann 17. apríl brúðhjónin
ungfrú Regína Vigfúsdóttir
og Jóhannes Þorgeir Arason
Fossdal bakari. — Heimili
þeirra er að Glerárgötu 8, Ak
ureyri.
BRÚÐKAUP: Laugardaginn 17.
apríl voru gefin saman í hjóna
band í Akureyrarkirkju brúð
hjónin Svana Aðalbjörnsdótt-
ir og Páll Pálsson trésmíða-
nemi. Heimili þeirra verður
að Munkaþverárstræti 22 Ak-
ureyri. — Páskadag voru gef
in saman í hjónaband í Akur-
eyrarkirkju brúðhjónin Ás-
laug Kristinsdóttir hjúkrunar
kona og Bragi Jóhannsson
skrifstofumaður. Heimili
þeirra verður að Grænumýri
8 Akureyri. — Sama dag voru
gefin saman í hjónaband í Ak
ureyrarkirkju brúðhjónin Jó-
fríður Þóra Traustadóttir for
stöðukona leikskólans Iða-
valla og Þórður Gunnarsson
símvirkjanemi. Heimili þeirra
verður að Helga-magrastræti
12 Akureyri. — 22. apríl voru
gefin saman í hjónaband í Ak
ureyrarkirkju brúðhjónin
Guðrún Jóhannsdóttir og Guð
mundur Búason verzlunárm.
Heimili þeirra verður að
Byggðavegi 149.
Fært kringum landið
SAMKVÆMT upplýsingum
Landhelgisgæzlunnar í gær, var
sæmilega fært skipum bæði fyr-
ir Horn og Langanes. ísinn ligg
ur þó að Hraunhafnartanga og
Langanesi en er gisinn. Fyrir
mið-Norðurlandi eru aðeins jak
ar á stangli, út af Skagafirði er
töluverður ís en fært fyrir
Skaga. Fyrir Horn er sæmilegt
og mestur ís út af Gjögri en þó
fær. ísinn er víðast á töluverðri
ferð og rekur ýmist að eða frá
landi.
SUMAR-
IÍJÓLAR
í mjög fallegu úrvali.
NYLONEFNI
Innilegar Jjakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát NÝTT! - NÝTT’! <-• :: í kjóla og sloppa,
og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, KÁPUR - HATTAR - TERYLENEPILS 8 litir.
JÓNÍNU ÞÓREYJAR JÓNSDÖTTÚR SPORTBUXUR (Stretch) og TÖSKUR- .. . .
frá Syðra-Hóli. MARKÁÐURÍNN
Börn, tengdahörn og barnahörn. VERZLUN BERNHARDS LAXDAL Sírni 11261