Dagur - 12.05.1965, Blaðsíða 1
Nýja fiugvélin á sunnudaginn
HIN nýja Friendship-vél Flug-
félags íslands kemur væntan-
lega til landsins n. k. föstudag.
Ráðgert er, að vélin hefji áætl-
unarflug strax á sunnudaginn
og verður þá væntanlega farið
til Akureyrar.
Flugstjóri á heimleiðinni verð
ur Jón Ragnar Steindórsson, og
mun hann einnig þjálfa 10 flug-
menn í sumar til að stjórna
flugvélinni.
Búizt er við að vélin verði
komin í fulla áætlun um næstu
mánaðamót, en auk áætlunar-
flugsins verður hún notuð til
þjálfunarflugsins. Flugfélagið
hefur ákveðið að efna til útsýn-
isflugferða á hverjum sunnu-
degi í sumar og verður hin nýja
vél notuð í það.
Flugvélin er smíðuð í Hol-
landi, hún tekur 48 farþega í
sæti og flughraði hennar er 450
km á klukkustund. □
Mikiil ís á Hrúfafirði og Miðfirði
Rlönduósi 11. maí. Hingað kom
Stapafell með olíu í gær og kom
það næst áður fyrstu dagana í
marz. Skipakoman var okkur
því kær. íshrafl er hér ennþá,
en var ekki til stórra tafa. Hins-
vegar eru Hrútafjörður og Mið-
Góð grásleppuveiði
við Grímsey
Grímsey 11. maí. Enn er jöfn og
góð grásleppuveiði. Nú hefur
sú vertíð staðið tafalaust í hálf-
an mánuð og búið að fá fast að
100 tunnum hinna verðmætu
hrogna. Um þetta leyti hefur
grásleppuveiði venjulega verið
að Ijúka, en nú ætlar hún að
standa eitthvað lengur. Þorsk-
afli er tregur, enaa lítið hugsað
um þann gula. Alltaf er fremur
kalt. Fuglabjörgin eru þétt set-
ín en sennilega byrjar varpið
með seinna móti í ár. Sauðburð
ur er byrjaður. Lítilsháttar hef-
ur verið keypt af heyi. S. S.
fjörður fullir af ís og ennfrem-
ur Strandafirðir.
Mælifell losar vörur sínar á
Skagaströnd og þær svo bíl-
fluttar hingað og í allar áttir.
Kjarnfóður hefur verið flutt um
mánaðartíma landleiðina að
sunnan. Er mál-þeim flutning-
um linni, svo dýrir eru þeir.
í gær var aðalfundur Sölu-
félags Austur-Húnavatnssýslu.
Kom í ljós að afurðasalan hafði
gengið sæmilega vel ag grund-
vallarverð náðst fyrir búvörurn
ar og vel það á sumum vöruteg-
undum. Mjólkursamlagið tók á
móti 3.500 tonnum mjólkur frá
um 200 mjólkurframleiðendum.
Endanlegt verð til bænda varð
7 krónur fyrir hvern innveginn
mjólkurlítra. Og mjólkurupp-
bætur reiknisfærð fyrir áramót
in. Samlagsstjóri er Sveinn Ell
ertsson.
Glannalegur ásetningur er nú
kominn í Ijós á nokkrum stöð-
um en almennt í héraði mun
SAUÐBURÐUR ER HAFINN. Hdr er þrílemba Kr. Sveinssonar í Glerárhverfi. (Ljm.: E. D.)
Skógræktarfélag Eyfirðinga
iekk jorð að gjoi
Uppeldisstöð þess fullnægir plöntuþörfinni
mann Dalmannson skógarvörð-
hey næg.
O.S.
AÐALFUNDUR Skógræktarfé-
lags Eyfirðinga var haldinn á
laugardaginn að Hótel KEA.
Guðmundur Karl Pétursson
formaður félagsins bauð full-
trúa velkomna og stjórnaði
fundi. Fundarritari var Sigurð-
ur Jósepsson í Torfufelli.
Formaður gerði síðan grein
fyrir störfum félagsins á liðnu
ári. En þau eru tvíþætt, annars
vegar plöntuuppeldið en hins
vegar gróðursetningin. Skóg-
ræktarfélag Eyjafjarðar telur
676 félaga auk 60 æfifélaga og
framkvæmdastjóri þess er Ár-
NV LAXÁRVIRKJUN ER UNDIRBÖIN
RÍKISSTJÓRNIN lagði um dag
inn fram frumvarp að tilhlutan
Laxárvirkjunar og bæjarstjóm-
ar Akureyrar, um nýja 12 þús.
kw. Laxáávirkjun. Er von
manna að það mál fái afgreiðslu
á þingi því, sem nú er að ljuka.
Er þetta ánægjuefni.
Frumvarpið gerir ráð fyrir,
að Laxá annist alla raforku-
framleiðslu fyrir Norðurland og
Austurland, ef ekki sýnist hag-
kvæmara, við nánari rannsókn,
að virkja á Austurlandi t. d. við
Lagarfoss.
f frumvarpinu segir m. a.:
„Tilgangur Laxárvirkjunar er
að vinna raforku fyrir núver-
SAMSONGUR
SAMSÖNGUR Karlakórs Ak-
ureyrar verður endurtekinn í
kvöld í Sjálfstæðishúsinu kl. 9.
Aðgöngumiðar seldir í Sjálf-
andi orkuveitusvæði virkjunar-
innar með eigin aflstöðvum eða
afla hennar á annan hátt og
selja raforkuna í heildsölu til
rafmagnsveitna ríkisins og hér-
aðsrafmagnsveitna frá aðalorku
veitu eða aflstöð.
Sýni áætlanir stjórnar Laxár
virkjuna og eigenda hennar, að
fjárhagslega sé hagkvæmt að
leggja aðalorkuveitur frá Laxár
virkjun til Norðvesturlands,
Skeiðfossvirkjunar og Austur-
lands, skal það vera í verka-
hring Laxárvirkjunar að leggja
og eiga slíkar aðalorkuveitur og
selja raforkuna í heildsölu til
rafmagnsveitna ríkisins og hér-
aðsrafmagnsveitna í þessum
landshlufum. Áður en til fram-
kvæmda kemur skal hafa náðst
samkomulag milli hlutaðeig-
andi aðila um raforkuverð og
sölusamningar verið gerðir. “ □
Urgur vegna minni framkvæntda
stæðishúsinu frá kl. 7.
□
Egilsstöðum 11. maí. Hér eru
kuldar, næturfrost og snjóar
öðru hverju. Það vorar því hægt
á Héraði. Og nú bregður svo við
að kaldara er við sjóinn en inn
til landsins. Snjólaust er að
heita má en klaki í jörð. Bygg-
ingaframkvæmdir eru ekki hafn
ar, enda orðið erfitt um þunga
flutninga vegna aurbleytu á veg
um. Flestir vegir eru gamlir og
lélegir. En á nýju vegaspottun-
um sést, að ekki þarf auibleyta
á vorin að valda sh'kum erfið-
leikum í samgöngum, svo sem
nú er og oftast á hverju vori.
Vegurinn um Fagradal hefur
alltaf verið opinn, en Fjarða-
heiði er erfið og hefst ekki und-
Framhald á blaðsíðu 2.
Síðasta ár var fremur lélegt
skógræktarár, vöxtur minni en
venjulega og nokkrar skemmd-
ir af vorkuldum, einkum á
lerki. Fræfall var lítið og
minna safnað af þeim sökum en
oft áður.
Skógræktarfélagið lét reisa
allmiklar girðingar við Garðs-
árgil, auk venjulegs viðhalds
girðinga hinna ýmsu skógar-
reita félagsins.
í uppeldisstöð féla’gsins í
Kjarnalandi var starfsemin enn
vaxandi. Er nú svo komið, að
stöðin fullnægir plöntuþörfinni
og getur mætt mjög aukinni
gróðursetningu. Þaðan voiu
seldar yfir 100 þús. plöntur á sl.
vori. Og Kjarnaland er að
verða skógi klætt, víða mjög
fagurl Sjálf er gróðrarstöðin
mjög snyrtileg og allur gróður
virðist þrífast þar hið bezta.
Þangað ættu Akureyringar og
fleiri að leggja leið sína, því þar
er enn eitt ævintýri gróðursins
að gerast, á 80 hektara landi.
Og þar er vinnuaðstaðan orðin
betri en hún áður var.
Hinar ýmsu deildir Skóg-
ræktarfélags Eyjafjarðar fá ár-
lega allmikið af plöntum til
gróðursetningar, sumar smá-
tækar að vísu, en aðrar stærri
í sniðum. Sjálft á félagið hina
ýmsu skógarreiti, sem það ann-
ast sérstaklega og einstaklingar
á félagssvæðinu eiga sina reiti.
Enn urðu á árinu skipti á
skógræktarfólki, norsku og ís-
lenzku og er slík kynning hin
mikilvægasta. Gefið var út syðra
Æskan og skógurinn og er það
vel heppnað rit, nær uppselt og
verður án efa endurprentað og
selt til ágóða fyrir skógrækt-
ina og til mikils fróðleiks og
uppörfunar skógræktarfólkinu.
Þá hefur það fengizt fram, að
gjafir til skógræktarinnar eru
skattfrjálsar.
Skógarvörðurinn, Ármann
Dalmannsson, las og skýrði
(Framhald á blaðsíðu 7).
NÝTT 70 MILLJ. KR.
SKULDABRÉFALÁN
FYRIR helgina var opinberlega
tilkynnt, að fjármálaráðherra
hefði ákveðið að nota heimild
frá ríkisstjórninni til að taka 40
millj. kr. innlent lán. Verða
skuldabréf lánsins í formi spari-
skírteina, með líku sniði og
sparimerkjaskírteini ríkissjóðs í
fyrra. Sala spariskírteinanna
hefst á morgun. Seðlabankinn
hefur umsjón með sölunni. All-
ar upplýsingar liggja frammi í
bönkum og stærri sparisjóðum
landsins. □
Sirniir knappir með hey
Haganesvík 11. maí. Hér er
þokuslæðingur en annars gott
veður. Nokkrir stunda grá-
sleppuveiði með sæmilegum ár-
angri. Sauðburður er hafinn.
Hey vantar á nokkrum stöðum
en keypt hefur verið frá Olafs-
firði og á Mannskaðahóli á
Höfðaströnd. Unnið er í Siglu-
fjarðarvegi og var honum lok-
að jafnskjótt og snjó var rutt í
Skarðinu. Áburðurinn kemur
hingað um 20. maí og þykir
mörgum það seint, Fóðurbæti
höfum við ekið frá Sauðárkróki
eins og venjulega og ekki orðið
þurrð á. Vegurinn hingað frá
Hofsósi er góður. G. V.