Dagur - 19.05.1965, Side 1
axminster
gólfieppi
annað ekki I W i
EINIR H.F
HATNARSTHÆTI 81 . SlMI 115 36
L'
HAFNAHSTRÆTI 81 . SÍMl 115 36
BEZTU HÚSGÖGNiH
á markaðinum
Cumby lilaut fjögra
mán. fangelsisdóm
Var sýknaður af ákærunni um landhelgisbrot
í GÆR var kveðinn upp í Nes-
kaupstað dómur yfir skipstjór-
anuni Cumby hinum brezka,
sem tekinn var innan fiskveiði-
lögsögu á dögunum, fyrir meint
brot. Var taka togarans, er
heitir Aldershot frá Grimsby,
cg Þór framkvæmdi, allsöguleg.
Um kl. 5 á mánudag lauk yf-
irheyrslum og var málið þá
tekið til dóms. Dómurinn sýkn-
aði skipstjórann af kæru fyrir
veiðar innan fiskveiðimarka, en
dæmdi Cumby í fjögurra mán-
aða fangelsi fyrir mótþróa við
hina íslenzku landhelgisgæzlu
og greiðslu máiskostnaðar, sem
vart mun undir 100 þúsund kr.
Skipstjórinn áfrýjaði. □
Ný byggingarefni ógna
stáliramleiðslunni
ALUMINÍUM, plast, stein-
steypa, járnbent steinsteypa,
asbezt-sement, gler og pappa-
og trefjaplötur keppa við stál-
ið í vaxandi mæli. Þessi efni
hafa tekið miklum framförum
síðustu árin og taldar líkur til
þess, að ef ekki er unnt að
mæta samkeppninni með betri
stálvörum, muni stálframleiðsl-
an dragast verulega saman
vegna minnkandi eftirspurnar.
Stál heldur þó áfram að vera
meginefnið í burðarþolsfrekum
byggingum, en í ýmsum grein-
um, svo sem í bilaiðnaðinum,
er plast og ýmis önnur efni not-
MERKJA HVALINA
JÓN JÓNSSON fiskifræðingur
stjórnar leiðangri, sem leitar
uppi hvali og merkir þá. En
þetta í fyrsta sinn, sem slíkur
leiðangur er gerður út héðan.
Merkjum er skotið á hvalina og
ganga þau inn í spikið. Þau
endurheimtast ef viðtakandi fell
ur fyrir „alvöruskoti“ hval-
veiðimanna. En ferðalög hval-
anna eru enn mjög á huldu. □
uð í æ ríkara mæli, og þykir
það hentugra, einkum vegna
þess hve létt það er. í bygging-
ariðnaðinum er talið, að stein-
steypan komi í stað stáls í
íslenzkum byggingum undir 10
hæðum. □
Öm O. Johnson framkvæmda-
stjóri Fí ávarpar Akureyringa.
Að ofan: Blikfaxi renndi sér niður á Akureyrarflugvöll í fyrstu ferð sinni. Að neðan: Áhöfn Blik-
faxa. Talið frá vinstri: Henning Bjarnason aðstoðarfíugsíjóri, Rúna Birna Sigíryggsdóttir flugfreyja,
íulltrúi flugvélaverksmiðjunnar, Unnur Gunnarsílóttir flugfreyja og Jón Ragnar Stcindói-sson flug-
stjóri frá Akureyri. (Ljósm.: E. D.)
Mannfjöldi fagnaði Blikfaxa á
Akureyrarflugvelli
Þar fiutti Örn 0. Johnson tæpitungulausa ræðu
Á TÍUNDA tímanum á sunnu-
dagsmorguninn streymdu bílar
bæjarmanna á flugvöllinn. Ak-
ureyringar voru að fagna hinni
nýju flugvél Flugfélags íslands,
Blikfaxa, við fyrstu komu henn
ar á norðlenzkr grund. Hefur
sjaldan sézt meiri umferð og
bílamergð við flugvöllinn, 'þeg-
ar frá eru taldar heimsóknir
hertoga og forseta. Veður var
hið fegursta, sólfar mikið en
svalt eins og flesta aðra morgna
þessa vors.
Flugfélag íslands er raunar
upp runnið hér á Akureyri, og
margir starfsmenn flugsins,
flugmenn og aðrir, einnig hér
upp fæddir. Fí á hér því marga
vini og velunnara, sem hafa
fagnað hverjum nýjum áfanga
í sögu þessa flugfélags, enda
einnig notið þeirra.
Og brátt sást Blikfaxi, fyrst
í mikilli hæð og lenti hann
mjúklega að lítilli stundu lið-
inni og hafði innanborðs stjórn
og framkvæmdastjóra Fí, fjár-
málaráðherra og ýmsa aðra
gesti í boði Fí, auk farþega.
Við komu Blikfaxa ávarpaði
bæjarstjórinn, Magnús E. Guð-
jónsson, og framkvæmdastjóri
Flugfélags íslands Örn O. John-
son, viðstadda. Litlu síðar hóf
Blikfaxi sig til flugs á ný með
boðsgesti frá Akureyri o. fl.
norður yfir Eyjafjörð og síðan
allt vestur að Húnaflóa í glamp
andi sól og lenti á Akureyrar-
flugvelli á ný laust fyrir hádegi.
En þá hófst hið eiginlega áætl-
unarflug hinnar nýju vélar.
Fylgi henni gæfa og gengi.
Blikfaxi er af Fokker Friend-
ship gerð, tekur 48 farþega í
sæti, flýgur 435 km á klst. og
hefur 2200 km flugþol. Vélin
kostaði, ásamt varahlutum, 45
millj. kr. Flugfélagið hefur þeg
ar samið um kaup á annárri
sams konar vél, sem væntanleg
er að árj liðnu.
Það fer vel um farþega í Blik-
faxa og allur er farkostur þessi
hinn snyrtilegasti á að líta. Hon
um er ætlað að annast reglu-
bundið flug milli þessara staða:
Reykjavíkur, Akureyrar, Egils-
staða, ísafjarðar og Vestmanna-
eyja. Blikfaxi styttir flugtím-
ann í innanlandsfluginu, en við
það vinnst það tvennt að nýting
hans verður betri og flugþjónust
an einnig.
Bæjarstjórinn bauð gesti vel-
komna og mælti m.a.:
FYRIR hönd bæjarstjómar Ak
ureyrar og Akureyringa leyfi
ég mér að bjóða þennan glæsi-
lega farkost, Blikfaxa velkom-
Við flugstöðina á Akureyrarflugvelli bíða hundruð manna komu Blikfaxa.
(Ljósm.: E. D.) og flaug í 15 þús. feta hæð (Framhald á blaðsíðu 4).