Dagur - 19.05.1965, Síða 2
FRÆNDUR VESTAN UM HAF
Fram og Akureyri leika hér á sunnu
KNATTSPYRNUMÓT íslands,
fyrsta deild, hefst n. k. fimmtu- .
dag með keppni milli Vals og
KR. — Akureyringar hefja þátt
töku sína í mótinu næsta sunnu
dag 23. þ. m. Mæta þeir Fram
hér á íþróttavellj bæjarins og
hefst Ieikurinn kl. 4 e. h.
Erfitt er að spá nokkru um
leikinn, en Fram hlaut aðeins 3
stig í Reykjavíkurmótinu, næst
fyrir ofan Þrótt, sem tapaði hér
tvisvar fyrir Akureyringum um
::r$£í£É*»Í$í:
BÍLASALA HÖSKULDAR
Ford Cortina 1964
Taunus 12 M 1964
Volkswagen 1952—1964
Trabant 1964
o. m. m. fl.
HRAÐBÁTAR -
TRILLUR 51/2 tonns og
minni.
BÍLASALA HÖSKULDAR
Túngötu 2, sími 11909
BARNAGÆZLA
11 ára telpa óskar eftir
barnagæzlu í sumar.
Uppl. í síma 1-15-41.
ATVINNA!
Viljum ráða ungan mann,
til að þvo bíla með
þvottavélum. Uppl. hjá
verkstjóranum.
B.S.A.-verkstæðið.
TIL SÖLU:
Pedegree banravagn
með nýju skýli og svuntu.
Uppl. í síma 1-12-63.
CA. 100 HESTAR AF
HEYI til sölu.
Uppl. í síma 1-29-61,
Akureyri.
BARNAVAGN
TIL SÖLU.
Selst ódýrt.
Uppl. í síma 1-15-97.
TIL SÖLU:
2V2 tonna trillubátur,
með 8 hestafla Sabb-vél.
Upplýsingar gefnar í
EÍmum 1-29-96 og 1-20-20.
TIL SÖLU:
Nýleg
RAFHA-ELDAVÉL.
Uppl. í síma 1-17-20.
síðustu helgi. — Vafalaust
koma margir til að horfa á
fyrsta stórleik sumarsins á Ak-
ureyri. .
Niðurröðun leikja Akureyr-
inga í fyrstu deild er þannig:
23. maí leika Akureyri og
Fram á Akureyri.
27. maí leika Akureyri og
Valur á Laugardalsvelli.
7. júní leika Akureyri og
Akranes á Akureyri.
13. júní leika Akureyri og
Keflavík í Njarðvík.
20. júní leika Akureyri og KR
á Akureyri.
18. júlí leika Akureyri og KR
á Laugardalsvelli.
25. júlí leika Akureyri og Val-
ur á Akureyri.
15. ágúst leika Akureyri og
Fram á Laugardalsvelli.
22. ágúst leika Akureyri og
Keflavík á Akureyri.
VORMÓT
í HANDKNATTLEIK
N.K. laugardag, 22. maí, fer
fram á íþróttavellinum á Akur-
eyri (moldarvellinum) Vormót
í handknattleik. Keppt verður í
karla- og kvennafl. og hefst
keppni kí. 1,30. — Aðgangur kr.
- 25,00 fyrir fullorðna og kr. 10,00
fyrir börn. □
Fjölmennur fundur
hjá Ísl.-ameríska fél.
DR. Max C. Brewer, yfirmaður
heimskautarannsóknardeildar
Alaska-háskóla, fluttj fyrirlest-
ur um Alaska, Norðurskauts-
svæðið og íseyjuna ARLIS II.
á fjölmennum fundi í íslenzk-
ameríska félaginu á Akureyri
s.l. föstudagskvöld. í för með
dr. Brewer var aðstoðarmaður
hans, Mr. John Schindler, sem
hefir haft yfirumsjón með
birgðaflutningum til íseyjarinn-
ar ARLIS II, og hefir hann
dvalist hér á landi undanfarna
tvo mánuði í því skyni.
Formaður íslenzk-ameríska
félagsins á Akureyri, Geir S.
Björnsson, kynnti gestina og
stjórnaði fundinum, sem hald-
inn var í Lesstofu íslenzk-amer-
íska félagsins, og var lesstofan
fullsetin áheyrendum.
Sýndar voru tvær litkvik-
myndir, sem fjölluðu um Alaska
háskóla og ARLIS II, en að
fyrirlestrinum loknum svaraði
Dr. Brewer fyrirspumum áheyr
enda. Taldi hann ósennilegt að
íseyjuna myndi reka upp að
ströndum íslands, en líkur
hentu til að ARLIS II myndi
reka. suður fyrir Grænland og
norður með vesturströnd Græn
lands, þar sem hann myndi
loks leysast sundur.
í lök fundárins þökkuðu fund
armenn Dr. Brewer fyrirlestur-
inn með dynjandi lófataki, Q
29. ágúst leika Akureyri og
Akranes á Akranesi. □
- Fiskur í Húnaflóa
(Framhald af blaðsíðu 8).
Kálfshamarsvík sérlega góð og
eru margir bátar, sem stunda
þann veiðiskap.
Sunnudaginn 9. þ. m. var hér
stofnað hlutafélag til reksturs
hraðfrystihúss hér og annarar
fiskverkunar. Stofnendur eru:
Kaupfélag Skagstrendinga,
Höfðahreppur, útgerðarmenn
og verkamenn hér á staðnum.
Gerður hefur verið samningur
við Kaupfélagið um leigu á
hraðfrystihúsi þess um eins árs
skeið til starfseminnar.
Sjómenn eru nú að koma
heim og ennfremur aðrir þeir,
sem hafa farið suður á Reykja-
nes til vinnu.
M.b. Helga Björg, eign Út-
gerðarfélags Höfðakaupstaðar,
sem gerður var út til fiskveiða
frá Grindavík í vetur er kom-
inn heim.
Hann var með aflahæstu bát-
unum, sem þar stunduðu sjó-
róðra.
Veðráttan er frekar köld en
þó stillt og gott vinnuveður.
Hafísinn er hér enn. Hann er
nú stöðugt að verða gisnari og
hamlar ekki siglingum hér að
austanverðu við Húnaflóa leng-
ur.
Sauðburður er byrjaður hér
í kauptúninu og margt tvílembt
eins og að venju. P. J.
FERMINGARBÖRN
í Dalvíkurkirkju sunnudaginn
23. maí 1965
PILTAR:
Grétar Kristinsson,
Karlsbraut 10.
Loftur Gunnar Sigvaldason,
Bjarkarbr. 7.
Kristinn Sigurbjörn Magnússon,
Dalsm.
Sigurpáll Gestsson,
Bjarkarbr. 21.
Sigurpáll Kristinsson,
Hólavegi 3.
Stefán Arngrímsson,
Karlsbraut 9.
Willard Helgason,
Stórhólsv. 5.
Zóphónías Jónmundsson,
Hrafnsstöðum.
STÚLKUR:
Anna María Halldórsdóttir,
Melum.
Anna Margrét Halldórsdóttir,
Smáravegi 10.
E'sa Björg Friðjónsdóttir
Svarfaðarbr. 6.
Lovísa Guðrún Jóhannsdóttir,
Bessastöðum.
Ósk Friðrika Finnsdóttir,
Goðabraut 8.
Regína Jóhannsdóttir,
Bessastöðum.
Rósa Þorgilsdóttir,
Símstöðinni.
Sigurjóna Steinunn Jóhannesd.,
Smáravegi 12.
Sólveig Una Hjálmarsdóttir,
Baldurshaga.
Sigrún Svava Aradóttir,
Karlsbraut 28.
Anna Sigurbjörg Jóhannesd.,
Hrísey.
(Framhald af blaðsíðu 4).
landi, Bjarnasonar á Stokkahlöð
um Sæmundssonar.
Mrs. K. Sæmundsson. Seinni
kona séra Kolbeins. Hún heitir
Sara Regína Scott, er þýzk og
ensk að ætt, talar ekki mörg orð
í íslenzku en býr til ágætt skyr“
segir maður hennar.
Valgerður Edvaldsdóttir Nus-
berger, systir Láru Edvaldsdótt
ur, Ólafsson.
Jón Árnason, Winnipeg. Sonur
Árna Jónssonar læknis í Vopna
firði. For. Árna voru: Jón Jóns
son (bróðir Davíðs á Litla-
Hamri) og Björg Þórðardóttir
frá Kjarna. Á marga frændur
við Eyjafjörð og víða um land.
Sigríður Ólafsdóttir Ámason,
Winnipeg.
Sóra Pliilip Markús Ólafsson
Pétursson, um langt skeið prest
ur Sambandssafnaðar í Winni-
peg. Bróðursonur séra Rögn-
valds Péturssonar.
Thorey Sigurgrímsdóttir Péturs
son, kona séra Philips. Hún er
ættuð úr Árnessýslu.
Elísabeth Jónsdóttir Gillis
Zhnmerman, Winnipeg. Hún er
dóttir Jóns Gíslasonar, sem var
bróðir Kristjáns Gíslasonar
kaupmanns á Sauðárkrók, föð
ur Axels og Eiríks og fleiri syst
kina. Frú Zimmerman á marga
ættingja á Akureyri og í Reykja
vík.
Björn Ólafsson Johnson, Winni
peg, ættaður úr Hróarstungu.
Karl Hanson, Winnipeg. Seyð-
firðingur.
Jónína Þorsteinsdóttir Johnson,
Moosehorn, Man.
Steina Soffía Leader, Leslie
Sask.
Ragnhildur Gísladóttir Gutt-
ormsson, Islington, dóttir Gísla
Jónssonar frá Byggðarholti í
Úóni, Var gift Stephani Gutt-
ormssyni bróður séra Guttorms
Guttormssonar, en þeir bræður
voru frá Krossavík í Vopna-
firði.
Kristín Ólafsdóttir Depoe,
Winnipeg. Systir Björns Ólafs-
sonar Johnson.
Rósa Friðriksdóttir Lewis, Bald
ur, Man.
Petrína Regína Ólafsdóttir Pét
ursson, Oak Point. Hún er syst
ir séra Sveinbjarnar Ólafssonar
St. Paul, og ættuð af Akranesi.
Hún er gift Kristni Péturssyni,
rithöfundi, sem kalláði sig Örn.
Móðir hennar var systir Jó-
hanns á Botni.
Kristlaug Davíðsdóttir Finn-
bogason, Lanruth, Man., syst-
ir Valdimars Davíðssonar Valdi
marssonar,
Magnús Jónsson, Wynyard,
Sask. Sonur Jónasar Hallgríms
sonar í Fremri Kotum Skag. og
Þóreyjar Magnússonar frá
Bólu Jónssonar.
Guðrún Magnúsdóttir Finnsson,
Wynyard, dóttir Magnúsar Jóns
sonar, gift Gordon Finnsson jám
brautarmanni, Wynyard.
Hanna Aradóttir Fjeldsted Sam
son, Ft. Coquitlam.
Jakob Friðriksson Iíristjánsson,
fararstjórinn, ættaður af Akur-
eyri.
Ólafur J. Magnússon Freeman,
Winnipeg.
Albert Stígsson Antonius, Bald
ur. Man.
Ámi Jónsson Sveinsson, Baldur
Man. Músikkennari, ættaður af
Austurlandi.
Katrín Bi-ynjólfsdóttir, systir
séra Eiríks Brynjólfssonar, fyrr
um á Útskálum.
Vera má að fleiri íslandsfarar
bætist við á síðustu stundu. En
ég hef lítillega sagt deili á því
fólki, sem ég í fljótu bragði kann
aðist við, í því skyni að þeir,
sem þetta læsu, mættu þá held
ur þekkja sína frændur, langi
þá til að kynnast þeim. Það er
ætlun Þjóðræknisfélagsdeildar-
innar á Akureyri að gangast
fyrir Vestmannadegi á Akur-
eyri miðvikudaginn 9. júní n.k.
sem lýkur með kynningarmóti
í Freyvangi að kvöldinu, en að
því geta allir fengið aðgang cins
lengi og húsrúm leyfir. Verð-
ur seinna auglýst um móttökurn
ar. Vegna undirbúnings er þó
æskilegt að þeir sem hug hefðu
á því að koma þangað gerðu
einhverjum úr stjórn Þjóðrækni
félagsins viðvart, en hana skipa
ásamt undirrituðum: Jónas
Thordarson, Akureyri. Árni
Bjarnason, bóksali, Akureyri
Gísli Ólafsson, yfirlögreglu-
þjónn, séra Pétur Sigurgeirs-
son, Jón Rögnvaldsson garð-
yrkjum. og Bjarni Jónsson úr-
smiður.
Benjamín Kristjánsson.
Garðyrkjuverkfæri:
Stunguspaðar, 2 teg.
Kvíslar, margar teg.
Skóflur, margar teg.
Grasklippur, margar teg.
Greinaklippur
Limskæri
Garðhnífar
Arfasköfur
Arfaklórur
Vatnsdreifar
Uðadælur
Garðkönnur, 3 stærðir
Garðsláttuvélar, 3 gerðir
Járn- og glervörudeild
GOÐ AUGLÝSING -
GEFUR GÓÐAN ARÐ
TIL SÖLU:
FORD JUNIOR í góðu
lagi. Uppl. á verkstæði
Jóhannesar Kristjánss.
TIL SÖLU:
Bifreiðin A—1902
Opel Caravan, árg. 1955.
Uppl. í Hafnarstræti 29
eða í sínra 1-26-77.
TIL SÖLU:
Moskviths fólksbifreið,
árgerð 1960.
Uppl. í síma 1-16-83.
TRABANT station bif-
reið, árgerð 1964, til sölu.
Ekin 6000 km. — Skipti
koma til greina. Upplýs-
ingar á kvöldin í síma
6-11-21, Dalvík.
TIL SÖLU:
Bifreiðin A—517, sem er
Volkswagen, árg. 1963,
er til sölu.
Upplýsingar gefur
Valur Harðarson, Dalvík.
Sími 6-11-72.