Dagur - 19.05.1965, Síða 8
8
Leikvöllurinn við MA var góður og áhorfendur margir að leikjum Þróttar og ÍBA. (Ljósm.: E. D.)
KnaffspyrnuliS I.B.A. fór vel af sfaS
Vann tvo leiki við Þrótt með 6:1 og 3:1
SMÁTT ÖG STÓRT
KNATTSPYRNUÁEIÐ er nú
að hefjast. Fyrstu leikirnir eru
þegar að baki og fyrstu deildar-
keppni framundan. Hér á landi
eru engir knattspyrnuatvinnu-
menn en fjöldi áhugamannafé-
Iaga í þessari íþrótt um land
allt. Aðstaða til þjálfunar er
mjög misjöfn, svo og leiðbein-
endur og leiðandi öfl. Veturinn
er hinn veiki hlekkur knatt-
spyrnunnar, því knattspyrnu-
mennirnir slá þá margir slöku
við æfingar og hirða of lítið um
að viðhalda og auka þol og
snerpu með hollum og regluleg-
um æfingum innanhúss — og
utan, þegar vel viðrar.
Reykjavíkurmótinu er að
ljúka, Reykvíkingar og Skaga-
menn hafa háð bæjakeppni,
fyrstu deildarkeppnin hefst á
morgun, um næstu helgi leika
Akureyringar sinn fyrsta fyrstu
deildarleik sumarsins við Fram
og fer leikurinn fram á Akur-
eyri. Fyrstu erlendu gestirnir
til keppni í knattspyrnu eru
ENN BÍÐUR EFNI
VEGNA þess að margar og
langar greinar hafa verið send-
ar blaðinu til birtingar, verður
enn nokkur bið á því, að rúm
blaðsins leyfi birtingu á sumum
þeirra. — Kærkomið væri, að
menn miðuðu mál sitt við tak-
markað rúm blaðsins.
Sjórinn er kaldur
I símtali við Jakob Jakobs-
son fiskifræðing á mánudag-
inn, þá staddan á 67. gráðu
n.b. norður af Sléttu I rann
sóknarleiðangri á Ægi, sagði
hann m.a.: Sjávarhiti á haf-
svæðinu út af Norðurlandi
er tveim gráðum minni en í
meðallagi.
isröndin liggur skammt
fyrir norðan Kolbeinsey.
Nokkur þörungagróður
hefur fundist á svæðinu. Vart
hefur orðið við Ijósátu en
engin rauðáta hefur enn fund
ist. Síldar hefur ekki orðið
vart. □
enskir og keppa í höfuðborginni
undir mánaðamótin.
Og Akureyringar hófu keppni
sumarsins með tveim leikjum
við Þrótt úr Reykjavík um síð-
ustu helgi og sigruðu með yfir-
burðum báða leikina, hinn fyrri
með 6:1 og hinn síðari með 3:1.
Báðir leikirnir fóru fram á
velli Menntaskólans í björtu og
þurru veðri og að viðstöddum
fjölda manna, sem jafnan sækja
vel alla knattspyrnuleiki á Ak-
ureyri.
Þessir leikir sýndu, að knatt-
spyrnulið okkar kemur að
þessu sinni til keppni „vel fram
gengið,“ sennilega orkumeira
ög snarpara en nokkru sinni
Höfðakaupstað 12. mai. Barna-
og miðskólanum hér var slitið
4. maí s.l. Við barnapróf var
hæstur Kári Lárusson með að-
aleinkun 9,34. Við unglingapróf
var hæst Jóhanna H. Ásmunds-
dóttir með aðaleinkun 8,77,
næstur var Björgvin G. Kemp
með aðaleinkun 8,50.
Lionsklúbbur Höfðakaupstað-
ar og skólinn veittu þessum
nemendum mjög góð bókaverð-
laun. Hæstu einkunn við próf
í miðskólanum tók Bergur J.
Þórðarson 9,55. Hlaut hann
verðlaun, bókagjöf. Þá voru
veitt verðlaun úr Minningar-
sjóði frú Steinunnar Berndsen
í -fyrsta sinn. Þau hlaut Alda
Jónsdóttir úr 2. bekk miðskól-
ans. Verðlaunin voru veitt fyrir
ágæta handavinnu, prúða fram-
komu og góða ástundun í námi.
í báðum skólunum voru 144
nemendur í vetur. Sex kennar-
ar kenna við skólana.
Við skólaslit afhenti skóla-
stjórinn, Páll Jónsson, skólan-
um að gjöf 80 uppstoppaða
fuglá og nokkuð af eggjum o. fl.
náttúrufræðigripum (steinum,
jurtum og sjávargróðri).
Áður hefur Lionsklúbbur
Höfðakaupstaðar gefið skólan-
um ýmis tæki til kennslu, t. d.
segulbandstæki og brúðu til
kennslu á lífgun úr dauðadái
og sjónprófunartæki.
fyrr, en með of mikla einleiks-
hneigð.
Sunnanmennirnir eru þrek-
legri menn að sjá og hafa mörg-
um góðum einstaklingum á að
skipa, en Akureyringar voru
þeim snjallari í knattmeðferð.
Síðar á sumrinu munu þeir
þurfa meira til ef þeir ætla að
halda sínum hlut.
Þessir fyrstu leikir í knatt-
spyrnu á nýbyrjuðu sumri lofa
góðu um lið ÍBA og hér mun
ekki vanta áhorfendur, ef ráða
má af áhorfendafjöldanum á
þessum æfingaleikjum.
Dómarar voru Páll Magnús-
son og Sveinn Kristjánsson.
Væntanlega verður íþrótta-
völlurinn, hinn góði grasvöllur,
leikhæfur um helgina. □
Sjávarafli er nú ágætur í net.
Einn bátur fiskar og hefur
fengið mest 13 tonn í róðri.
Grásleppuveiði er hér og í
(Framhald á blaðsíðu 2).
ureyrar er 15 ára á þessu ári,
það er frjáls félagsskapur á-
hugamanna um uppeldis- og
mannúðarmál, eitt af 11 slíkum
félögum þeirra elzt utan höfuð
borgarinnar og hefur unnið
merkilegt starf í bænum. Leik
skólinn Iðavöllur, þar sem 50
börn hafa góða aðstöðu til
dvalar, er fjölda heimila mikil
stoð. Þar una börnin sér vel
vegna þess að þar vinnur gott
fólk. Félagið á nú þetta bama-
heimili skuldlítið og hefur hug
leitt að eftirláta bænum rekst-
urinn en undirbúa byggingu
annars leikskóla eða upptöku-
heimilis, sem mjög skortir.
Fyrstu stjórn Barnaverndarfé-
lagsins skipuðu Eiríkur Sigurðs
son, sem formaður var síðan
flest árin, Hannes J. Magnússon
sem lengst var gjaldkeri, séra
GUÐMUNDUR f. NÆSTUR?
Ríkisstjómin reynir að þvo af
sér skattaóvinsældimar með því
að láta Gunnar Thoroddsen
hverfa úr landi. Óstaðfestar
fregnir hemia, að næst verði
Guðmundur í. að víkja og
látinn taka við sendiherrastörf-
um í London. Með því vill
stjómin m. a. þvo hendur sínar
í sjónvarpsmálinu.
TVEGGJA MANNA TAL
Ritstjóri Alþýðumannsins birti
í síðasta blaði sínu tveggja
manna tal, sem hann segist
hafa hlustað á i veitingahúsi,
án þess þó að Iiggja á hleri.
Þeir voru að ræða um stjóm-
mál, voru báðir stjórnarsinnar,
annar hallmælti stjóminni og
taldi hana hafa hopað frá ýmsu
sem hún hafði lofað að kvika
ekki frá, og ýfirleitt ekki „hug-
leitt nógu vel afleiðingar verka
sinna.“ Hinn varði stjómina og
viðurkenndi, að „margt liefur
gengið úrskeiðis, það er satt,“
en yfirleitt voru mistökin þjóð-
inni að kenna en ekki stjóminni
o. s. frv.
HVAÐA MENN VORU
ÞETTA?
Það er ekki vandi að geta sér
þess til, hverjir það voru, sem
átíu tal saman á veitingahúsinu
og töluðu svo hátt að Steindór
ritstjóri heyrði. Þessir menn
voru hugarsmíð ritstjórans, og
orð þeirra hans eigin hugleið-
ingar, því raunverulegt tveggja
manna tal, sem honum var ekki
ætlað að heyra, hefði hann
aldrei birt. En hann hefur kunn
að betur við það, að setja fram
nokkra gagnrýni á stjórn Iands-
ins í þessum búningi. Líklegt
er að honum, eins og svo mörg-
um Alþýðuflokksmönnum, sé
orðin óhæg vinnumennskan hjá
ihaldinu, þóít hann gengi þar
etm til verka. □
Pétur Sigurgeirsson, Elísabet
Eiríksdóttir og Jón Júl. Þor-
steinsson.
Núverandi stjórn skipa: séra
Birgir Snæbjörnsson, formaður
Kristbjörg Pétursdóttir ritari,
Páll Gunnarsson gjaldkeri, Indr
iði Ulfsson og Pétur Sigurgeirs-
son. Framkvæmdastjóri en Páll
Gunnarsson. Jófríður Trausta-
dóttir annast fox-stöðu Iðavallax-.
Bær og ríki styrktu byggingu
HINIR árlegu nemendatónleik-
ar Tónlistai-skólans á Akureyri
vei-ða laugardaginn 22. og
sunnudaginn 23. maí n. k.
Tónleikarnir á laugardaginn
verða í Lóni og hefjast kl. 2 e.h.
Þar koma fram yngri nemend-
ur skólans og leika á píanó,
fiðlu og orgel. Aðgangur að
þessum tónleikum er ókeypis.
Tónleikarnir á sunnudaginn
VEEÐIGLEÐI Á VILLI-
GÖTUM
Bændur kvarta yfir ágangi
flækinga, sem fara yfir Iönd
þeirra með skotvopn og skjóta
fugla, og fara auk þess sumir
mjög ógætilega með vopn sín.
Bændur eiga auðvitað að kæra
yfir slíkum ófögnuði til réttra
yfirvalda því veiðigleði manna
verður að lialdast innan skyn-
samlegra takmarka.
RÁÐSTEFNA S.U.F.
SAMBAND UNGRA FRAM-
SÓKNARMANNA heldur ráð-
stefnu á Húsavík um atvinnu-
mál og byggðaþróun dagana 26.
og 27. maí.
Frummælendur verða Hjört-
ur E. Þórarinsson og talar um
efnahagsmál, Halldór Pálsson
um landbúnað og Ingólfur
Kristjánsson um byggðaþróun-
ina í landinu.
Til ráðstefnunnar eru allir
Framsóknarmenn velkomnir. □
Umferðarslys í Evrópu
í yfirliti um umferðaslys í Evr-
ópu, sem ECE hefur birt, segir,
að á Norðui-löndum einum lát-
ist þrjú þúsund manns á ári
í umferðaslysum, flestir á Finn
landi og Danmörku miðað við
fólksfjölda og tölu ökutækja.
í Svíþjóð virðast bílstjórai-nir
í mestri hættu, hjóli-eiðamenn í
Danmörku en gangandi fólk í
Noregi. Fyrir utan nefnda dán-
artölu er svo fjöldi slasaðra á
ári hverju.
í yfirliti ECE er talið, að 80
þús. manns hafi látið lífið í um
ferðaslysum í Evrópu árið 1963.
í þessu efni eru Bandaríkin
mun betur á vegi stödd. Ein á-
stæða þess er talin sú, að tví-
hjóla fai-atæki, svo sem reiðhjól
og motorhjól ei*u ekki í banda-
rísku umferðinni. Þar er ákveð
inn hámarkshraði og góðir veg-
ir.
Iðavalla og hafa lagt honum
lið síðan. Stofnkostnaður húss-
ins, sem stendur við Gránufé-
lagsgötu var 600 þús kr. Leik-
skólinn hefur starfað þairna nær
6 ár en 2 ár áður í öðrum húsa
kynnum. Hann starfar í þrem
deildum og nýtur vinsælda.
Stjórn Barnavei'ndarfélags-
ins hafði í gær boð inni fyrir
fréttamenn bæjarins til að
kynna málefni félagsins og var
Iðavöllur þá um leið heimsótt
ur, þar sem fjöldi barna var að
leik.
vei'ða í Borgai'bíó og hefjast
þeir kl. 3 e. h. Þar koma fram
eldri nemendur skólans og leika
á píanó. Aðgöngumiðar að þeim
tónleikum vei'ða seldir við inn-
ganginn.
Þess er að vænta, að tónleik-
amir verði vel sóttir og bæjar-
búar sýni hinu unga fólki, að
þeir vilji fylgjast með starfi
þeirra og námsárangi'i. □
Fiskur genginn í Húnaflóa
Menningarfélag á Akureyri 15 ára
Starfrækir leikskólann Iðavöll og hyggst
nú færa út starfssvið sitt á næstunni
BARNAVERNDARFÉLAG Ak
NEMEND4TÓNLEIKAR UM HELGINA