Dagur - 26.06.1965, Page 5
4
------V
Skrifstofur, Ilafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11G6 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Verðlagsgrundvelli
ssgt upp
Á EUNDI Stéttarsambands bænda
á Eiðum um síðustu helgi var eftir
farandi samþykkt:
„Aðalfundur Stéttarsamb. bænda,
haldinn að Eiðum 20. júní 1965,
telur J>að ástand óviðunandi, að
bændastéttin skuli ár eftir ár vera
langlægst launaoa stétt J)jóðíélags-
ins, eins og opinberar hagskýrslur
sýna. Því telur fundurinn rétt að
segja upp gildandi verðlagsgrund-
velli landbúnaðarafurða, en felur
stjórn Stéttarsambandsins að taka
endanlega ákvörðun um J)að í sam-
ráði við fulltrúa bænda í sexmanna-
nefnd.“
„Aðalfundur Stéttarsamb. bænda
1965 skorar á AlJ)ingi og ríkisstjórn
að gæta fyllstu varúðar við meðferð
stóriðjumálsins, og kanna til hlítar
hver áhrif stóriðja með erlendu fjár-
magni mundi hafa á þróun þeirra
atvinnugreina, sem fyrir eru í land-
inu, áður en ákvörðun er tekin um
framkvæmdir. Fundurinn felur
stjórn Stéttarsambandsins að fylgj-
ast eftir föngum með framvindu máls
ins og vera vel á verði um hagsmuna-
mál landbúnaðarins í J)ví sambandi.“
„Aðalfundur Síéttarsamb. bænda
telur núverandi ástand í framleiðslu
og verzlun með tilbúinn áburð al-
gerlega óviðunandi. Til lagfæringar
á J)ví vill fundurinn leggja áherzlu
á eftirfarandi atriði:
a. Að Áburðarverksmiðjan í Gufu
nesi verði eign ríkisins.
b. Að endurbyggingu verksmiðj-
unnar verði hraðað sem mest, svo
unnt verði að fullnægja óskum
bænda um fjölbreyttari og kalkrík-
ari áburð en nii er völ á.
c. Að tilbúinn áburður sömu teg-
undar verð; seldur á sama verði á
öllum verzlunarstöðum á landinu.“
„Aðalfundur Stéttarsamb. bænda
1965 beinir því til stjórnar Stéttar-
sambandsins að beita sér fyrir því,
að komið verði upp vörubirgða-
stöðvum á Vestfjörðum, Norður- og
Austurlandi fyrir brýnustu nauð-
synjar þessara landshluta, s. s. olíur,
fóðurvörur og tilbúinn áburð, til
J)ess að fyrirbyggja vöruþurrð og J)ar
af leiðandi neyðarástandi, ef hafís
íokar siglingaleiðum cins og verið
hefir s.l. vetur og vor. Leitað verði
fjárhagsaðstoðar ríkisvaldsins til að
gera Jætta framkvæmanlegt.“
(Framhald á blaðsíðu 7).
Um f uglalíi cg veiiiskap
(Framhald af blaðsíðu 8).
hafs með ungann og fylgja hon
um margir geldfuglar og slá um
hann skjaldborg. Sú skjaldborg
er ekki árennileg þegar full-
orðni fuglinn beinir nefjum upp
og eru í hnapp umhverfis ung-
ann. Ef æðarfuglinn gæti á þann
hátt varið unga sína, myndu
færri þeirra fara í maga veiði-
bjöllunnar. Lífvörður hvers
unga er oft 15—20 fuglar.
Er langvían aðalfugl bjargs-
ins?
Já, og af henni eru þrjár teg-
undir: Stuttnefja og langnefja
og þar er liturinn hinn sami en
lengdin á nefinu mismunandi.
Svo er það hringvían með hvíta
sporöskju kring um augun og
taumur liggur aftur frá höfð-
inu og örlítið niður á hálsinn.
Hún er stærst en ekki nema til
töluiega lítið af henni. Gamlir
menn sögðu að hún verpti svo
til eingöngu ofantil í Kerling-
unni. Þá er í bjarginu nokkuð
slangur af álku, sem er allmikið
minni en langvían en verpir á
sömu slóðum og hefur ekki sér
byggðir í bjarginu.
Hvemig er hreiðurgerðin?
Hreiðurgerð lángvíunnar er
engin. Hún verpir á bergsyllun-
um hlið við hlið svo eggin liggja
þar tugum og hundruðum sam-
an. Lögun eggsins er sú, að þótt
það liggi óvarið á beru berginu
og snarpur vindur blási eða
fuglinn hreyfi sig, veltur það
ekki fram af, því það snýst um
mjóa endann, eins og teiknibóla.
Þó kemur það auðvitað fyrir, að
egg fellur niður. Það var gam-
alla manna mál, að ef egg félli
úr bjargi niður í árabát, bryti
eggið gat á hann, svo snöggt
væri höggið. En ekki veit ég
hvort þetta er rétt.
Langvían, sem yfirleitt er
kallaður svartfugl, á sér svo
hvítfuglinn að nábúa. Er það rita
og fýlungur. Ritan sækist mik-
ið eftir neðstu sillunum eða set-
unum. Þegar ég fyrir nokkrum
dögum kom til Drangeyjar eftir
að 30 ár voru liðin síðan ég var
þar, sá ég að hvítfuglinn var bú
inn að leggja undir sig mikið af
neðstu setunum. Eg sá líka oft-
ar en einu sinni, að um þetta
stóð barátta. Venjulega ráðast
þá tvær ritur að einni langvíu
og voru þær svo harðskeyttar,
toguðu og hjuggu, að langvían
varð að víkja.
Ritan elur ekki unga í hreiðr-
inu, á fjögur egg og er viðkom-
an talsvert mikil hjá henni, en
einnig vanhöld, því hún setur
ungana út úr hreiðrinu þegar
þsir aðeins geta flögrað og stund
um geta þeir þá ekki tekið af
sér fallið og rotast. Fýlunginn
verpir í skriðum, einu, hvítu
eggi, sem er nokkru stærra en
hænuegg en eins í laginu. Fýl-
unginn elur unga sína þar til
þeir eru orðnir stórir, feitir og
fleygir og tekur það langan
tíma. Þá er móðirin orðin mög-
ur og veikburða, því allt, sem
hún aflar, fer til þess að ala ung
ann.
Lundinn, sem hinsvegar verp-
ir í brúnunum, grefur sér göng
inn í jarðveginn, oft vinkillaga,
stundum z-mynduð og verpir
einu eggi innst í holunni. Eggið
er hvítt, heldur minna en hænu,-
egg. Einnig hann elur unga sihn
þar til hann er fleygur orðinn.
Unginn er kallaður kofa. Man
eg, að þegar eg var ungur og
var að lesa landafræðina, skildi
ég ekki þar sem talað var um
kofnatekju í Breiðafjarðareyj-
um og leitaði skýringa foreldra
minna á því fyrirbrigði.
í Drangey hefur ekki, svo eg
viti til, verið stunduð kofnatekja
og lundinn fengið að fara þaðan
með unga sína. Oft kenndum við
í brjósti um lundann þegar hann
kom e. t. v. langt norðan af
Skaga með 5—6 síli í nefinu, því
hann er köfunarfugl góður og
furðulegt hvernig hann nær síl-
inu og raðar því í gogginn.
Hann grípur fyrst eitt og held-
ur um hausinn á því, síðan tek-
ur hann annað og lætur það í
hitt munnvikið. Þegar fuglinn
er með sex síli er hann ekki
ósvipaður kínverskum mandarín
með mikið, niðurbeygt yfir-
skegg. En stundum átti það sér
stað, þegar hann var kominn
upp undir bjargið, að kjóinn
kom og hirti aflann en lundinn
varð að snúa við og fara aðra
veiðiferð, oft langar leiðir.
Eins og í fuglabjargi, er stund-
um sagt.
Tugþúsundir fugla eru í berg-
inu og er þetta líkast stórborg,
með sínum ákveðnu umferðar-
reglum og þekkir hver sína götu
og sitt heima. F.ávært er þar að
jafnaði, enda stundum til þess
jafnað þejjar um hávaða er að
ræða an uars staðar. Sjaldan dett
ur k’úðurinn niður, nema rétt
um lágnættið. Þá hljóðnar ögn
&n þó aldrei alveg. Kliðurinn
verður manni næsta geðfelldur
og una menn sér vel við hann er
þeir venjast honum.
Enn neðar eða í hrunhaugun-
um verpir teistan, þessi litli,
kviki og skemmtilegi fugl. Hún
kemur ungum sínum auðveld-
lega til sjávar, enda eru hreiðr-
in litlu ofan við sjávarmálið. Svo
voru nokkur æðarhreiður í smá
fjöru í Heiðnavík.
Og fleiri fuglar?
Já, þarna voru óskyldir fugl-
ar eins og gerist þar sem mikil
önn er og margt samankomið.
Þar vilja æfinlega einhverjir
lifa með hægu móti. Þarna voru
lengi ein krummahjón og vals-
hjón. En aldrei virtust þau
koma aftur með unga sína, og
þau ár, sem ég þekkti til, fjölg-
aði ekki hrafni eða val. En val-
urinn notaði sína ályktunargáfu
við fæðuöflunina. Hrynji steinn
úr bjarginu, flýgur fuglinn
fram. Hann veit aldrei, hvort
hér er byrjun á stóru hruni,
eða bara einn steinn. Við tók-
um eftir því stundum, að valur-
inn flaug hátt á loft, lagði þar
að sér vængi og lét sig falla rétt
framan við bjargbrúnina. Við
þetta flugu hundruð fugla fram
og voru þá hæg heimatökin að
ná fugli og bera í hreiðrið.
Valurinn verpti á stað, sem
var ekki hægt að komast að í
vað, undir snös, sem slútti fram
yfir sig, svo að ekki var unnt
að ná til hreiðursins nema með
langri stöng með krók á.
Það er talað um tvö sig?
Fyrra sigið byrjaði kringum
20. maí. Fuglinn verpir misjafn-
lega snemma og því voru eggin
úr fyrra sigi ekki talin eins góð
og síðar. í seinna siginu vissu
menn hve eggin voru gömul á
hverjum stað. Komið gat fyrir,
að veðurfar hamlaði því, að
hægt væri að byrja sig á þeim
tíma, sem ætlað var. Bezt var
að hafa logn og þurrt veður,
því í vætutíð verður fuglabjarg-
ið mjög sleipt vegna fugladrits-
ins, sem liggur eins og lag yfir,
hvarvetna þar sem fuglinn verp-
ir.
Viltu segja frá einni sigferð?
Ég skal stuttlega lýsa einni
„niðurferð", en svo var það kall
að þegar sigmaður fór í bjargið.
Venjulega voru 7 menn undir
festi. Það þótti henta betur að
vera vel mannaður því þreyt-
andi var fyrir fáa að vera við
vaðinn. Sá áttundi var „brúna-
maður“ og níundi maðurinn
sjálfur sigmaðurinn. Sigvaður-
inn var langur og traustur kað-
all. Og á síðustu árum var sig-
maðurinn í belti, sem er ekki
ósvipað glímubelti og traust,
með traustum járnkeng framan
í, þar sem sigvaðurinn var tengd
ur með „vargakjöftum". Þessi
útbúnaður er þægilegur og
traustur.
Til þess að koma eggjunum
U M
V E G I N N
FUGL DAGSINS
Fuglar himins fljúga víða,
á Fróni sveitir allar prýða,
einn á sönginn engilblíða,
annars rödd er stirð og treg,
— þeir eru eins og þú og ég —
út við sæ og inn til hlíða
ómar þeirra söngur
og léttir okkur lífsins þrautagöngur.
Útvarpstækin glymja og gjalla,
gnótt er söngva og fræðispjalla,
nýunga og fregna, er fjalla
um flesta hluti á landi og sjó
um veröld alla, og víðar þó,
en mikla blessun má það kalla,
í masi því og rugli,
hve himneskt er að heyra í dagsins fugli.
Röddin breytist dag frá degi,
dylst þó tilheyrendum eigi
að þessi útvarpsþulur fleygi
þekktri mælsku beita kann,
og segir aðeins sannleikann,
hygg ég því að margur megi
í meðferð deilna og raka
fuglinn sér til fyrirmyndar taka.
Þessum hætti halda mætti
og hafa ávallt fuglaþætti,
hitt er víst að aldrei ætti
á því sviði að gefa rúm
vælukjóa og kjaftaskúm,
aldrei man ég að það bætti
er þeir tóku lagið,
— en hlýða ég vildi á háðfugl, annað slagið.
DVERGUR.
9
upp, hafði sigmaðurinn. „sig-
mannsskyrtu", er var vanalegur
strigapoki, þar sem á botninn
var skorið gat fyrir höfuðið og
svo göt fyrir handleggina. Nokk
urt op var neðan við handveg-
inn, þar sem þægilegt var að
stinga eggjunum inn. Sigbelt-
ið lokaði „sigskyrtunni“ að neð-
anverðu og var þannig kominn
allstór poki, sem sigmaðurinn
stakk eggjunum í, á bak sér.
Hann gat haft upp með sér 200
til 300 egg.
Sigmaðurinn þurfti að vera
fimleikamaður og með trausta
fætur, því að þegar sigið var,
einkum þar sem loftsig var,
þurfti hann að róla sér frá svo
fleiri metrum skipti. Þá var nú
betra að vera bæði sterkur og
mjúkur, og helzt ekki mjög loft
hræddur! Sigmaðurinn varð
einnig að hugsa um eggin á bak
inu, því þau þoldu ekki mikið
hnjask. Og ekki mátti sigmaður
snúast í vaðnum í loftsigi, því
ef hann byrjaði að snúast réð
hann ekki við neitt. Aðeins
völdust í þetta starf liðlegir
menn, knáir og lagnir. Brotnu
eggin hétu „leskingar“ og borð
uðum við mikið af þeim á meðan
dvalið var í eyjunni. Þau voru
aðalfæðan, því lítill tími var til
matseldunar. Og fyrir kom það,
þegar gott var veður, að sigið
var sólarhringinn út án þess
brugðið væri upp eldi. Supu
menn þá úr hráum eggjum og
þótti flestum gott. Mennirnir á
bjargbrúninni röðuðu sér á kað
alinn og var efsti maðurinn kall
aður festarmaður. Þar var hæll
rekinn niður, þar sem það var
hægt, og var þáð léttir að bregða
vaðnum þar um, þegar hlé varð
á drætti og aðeins þurfti að
halda við. Á brúninni var „bjarg
stokkui'inn11, sver trékubbur, er
reis upp að framan og þar undir
honum fætur. Á endanum var
blakkarhjól fyrir vaðinn. „Bjarg
stokksmaður“ sat fremst á brún
inni og lagði fótinn yfir stokkinn
til að halda honum stöðugum.
Til að líta enn frekar eftir sig-
manni, var „brúnamaður“ stað
settur á einhverjum þeim nálæg
um stað, er vel sást frá, til sig-
mannsins. Ef um misheyrn var
. að ræða á því, er sigmaður kall
j aði, gat hann leiðrétt það, ef þeir
I sem undir vaðnum sátu, heyrðu
j ekki rétt.
j Hvernig voru kallmerki sig-
i manna?
Sigmaður notaði fjögur köll
um það, hvað gera skyldi hverju
sinni. Hið fyrsta var „gefa“. Það
þýddi að láta vaðinn renna út
svo hann kæmist neðar í bjarg
ið. Kæmi hann á stað, sem hon-
um þótti fýsilegur til fanga,
kallaði hann „halda“. Góður
sigmaður getur oft náð yfir 30—
40 metra breitt belti, neðarlega í
berginu, með „hliðarrólun". í
hliðarsveiflunum grípur hann
eggin á sillunum um leið og
hann fer hjá. Þannig getur mað
urinn hreinsað allbreitt svæði
hverju sinni.
Þegar sigmaðurinn hefur feng
ið nægilega mikið af eggjum,
kallar hann, „hala“, „langahal"
kallaði hann þegar hann alls
ekki gat tekið meira af eggj-
um. Þá skyldi hala í einum
hvelli, alla leið upp á brún.
Þegai' sigmaður kom upp á
brúnina, þurfti að fara varlega
til að brjóta ekki eggin. Hann
gekk nokkur skref, þar til hann
á mjúku grasi lagðist á grúfu,
en tveir „yfirsetumenn“ tæmdu
eggin út um handvegina og voru
eggin látin í skrínur eða kyrn-
ur, en sina sett á milli, 2—300
egg í hverja og merkt hvar í
berginu þau höfðu verið tekin
Þai' mátti sjá nöfn eins og Feita
kinn, Hæringshlaup, Gafl og s.
frv.
Þegar sigmaður fór fram á
brún í byrjun sigs, sagði hann
ávalt: Verið þið blessaðir. En
hinir svöruðu: Guð veri méð
þér. • -
En hvað segirðu um flekaveið
ina?
Hve gömul flekaveiðin er,
verður ekki sagt með neinni
vissu. Vitað er þó, samkvæmt
annálum, að í Drangeyjarbjörg
um var stunduð veiði, sem er
sennilega undanfari flekaveið-
anna og byggðist á því sama. Þá
voru hrosshárssnörur festar á
kaðalsstreng, er festur var á
sillur í bjarginu. Þannig var
bjargfuglinn veiddur. Mörg þau
slys, sem á fyrri öldum urðu í
Drangey stöfuðu af því að
menn höfðu ekki nægilega
traustan útbúnað og slitnuðu
vaðirnir. En flekaveiðin mun þó
vera allt að því 300 ára gömul.
En hún fer þannig fram, að
þunnar fjalir eru negldar á
nokkuð svera oka. Stærð hvers
fleka í gamla daga var ein og
hálf alin á lengd og ein alin á
breidd. Á hverjum fleka voru
um eitt hundrað hrosshárssnör
ur. Þrír flekar voru festir sam
an með böndum og hétu einu
nafni niðurstaða. Þetta var fest
við langan kaðal, „trássu" og
fest við stóran stein, „stjóra“.
Frá flekanum að stjóra voru
nokkur trékefli til þess að halda
kaðlinum fljótandi.
Oft voru flekarnir lagðir ná-
lægt eyjunni, stundum dýpra.
Samkvæmt því var talað um
„djúpbönd“ og „grunnbönd".
Æskilegast til góðrar veiði var
ofurlítil gola, „fuglagráð".
í logni hvíldi fuglinn sig á sjón
um og kærði sig ekki um fleka.
Var þá sagt að hann myndi
verða „logndaufur í kvöld“.
Fastar reglur v-oru um það
hversu oft skyldi vitja um. Var
vitjað um kl. 9 að morgni og
aftur að kveldi. Þótti sæmilega
gott að fá 6—8 fugla á hverja
niðurstöðu í umvitjun. Þegar
sæmilega aflaðist, sem var kall
að, „fuglaðist“, fékk maðurinn
oft um 40 fugla á dag. Viku eft
irtekjan var 2—300 fuglar. Og
safnast þegar saman kemur.
Þegar ég var við Drangey, og
þá var þar allt upp í 60 manns,
man ég ekki betur en „eyjakóng
urinn“, Bjarni Jónsson, sem sá
um að safna skýrslum um afla
magnið, segði mér að sum vorin
hefðu aflast upp undir 200 þús
fuglar, en það þýðir sem næst
200 tonn af kjöti, því langvían
er nálægt einu kg að þyngd.
Miklu minna aflaðist af álku og
ettlKHKHSÍHKHKHSlKBKBKHKHKHlíKHSttlWHKHSÍHKHSÍHaíBKHSÍHKHS
RONALD FANGEN
EIRÍKUR HAMAR
Skáldsaga
SSÍHSíHSÍHSÍHSÍHSÍHStK
50
8
tttShíHSÍHSSBSíHStSSHSÍt-
viðvíkjandi, að hann virtist svo hnugginn? Eiríkur fann
sárt til Jress, að hér ryddist hann inn, — kæmi óvænt að
fólki, sem helzt æskti Jress að fá að vera í friði. Hann sat J)ví
vandræðalegur og dapur í stól sínum, er Storm kom aftur
með þrjú glös og kryddvínsflösku. Hann leit ekki undir eins
á Eirík, setti aðeins glösin frá sér á borðið og sagði:
— Eg tók líka glas handa konunni minni. Hún er ekki vel
frísk og hefir legið í dag, en hún sagðist ætla á fætur, Jregar
ég sagði henni að kominn væri einn landi okkar.
Hann hellti í glösin og settist niður:
— Skál, herra Hamar! — Það var gaman að hitta yður.
— Skál, sagði Eiríkur, — ég sit hér og er smeykur unr að
ég komi hingað og trufli yður.
• Stornr sat og leit á glas sitt og sagði:
— O, — afkastalausan málara er varla hægt að trufla.
Það var eins og hann sæi eftir svarinu, hann sagði Jrví
hratt og í harðari málróm:
— Hafið þér verið lengi í París?
— Nei, aðeins Jrrjá daga.
— Og þetta er kannski í fyrsta sinn?
— Já, Jrví nriður.
— Þá er Jrað sennilega líka nrikill viðburður. Hafið Jrér
farið víða unr -borgina?
— Já, sei-sei, já, sagði Eiríkur. Eg hafi labbað víðs vegar
unr borgina. Þetta er indæl borg, Jrað er ])ó satt og víst.
Storm sat þögull og lrorfði aftur á glas sitt. Eiríkur sá allt í
einu, að hann minnti um föður sinn, en hann gat ekki séð
minnstu svipmót með Jreim Astríði. — Hann herti nú upp
hugann:
— Hvernig líður Ástríði?
Storm leit snöggt á hann. Svo sagði hann, dapur í bragði:
— Ekki reglulega vel. Hún hefir slitið sér út, barnið. Hún
hefir ekki krafta til Jressháttar.
lunda, en það var kallað „smá-
fugl“. Tveir lundar eða tvær
álkur voru metnar móti einni
langvíu. Mest af þessum afurð-
um fór um Skagafjarðarsýslu
og dreifðust um alla sýsluna.
Stærstu skipshafnir voru 10—11
menn og voru þrír formenn með
þær skipshafnir, þeir Bjarni
Jónsson eyjakóngur, Baldvin
Jóhannsson frá „austurlandinu"
og Símon Jónsson frá Sauðár-
króki. Aðrar skipshafnir voru
svo smærri, frá tveim upp í
fimm manna. Drykkjarvatn var
ekki hægt að fá í fjörunni og
ekki nema á einum stað uppi á
eynni, sem var erfiðleikum
bundið að ná. Drykkjarvatnið
var flutt úr landi á kútum. Ekki
var notað vatn til snyrtingar,
að óþörfu! Þó þvoðu menn
sér á sunnudagsmorgnum.
En „bandingjamir“?
Fuglar voru settir, sem agn á
flekana, lifandi fuglar, sem
hændu að, kallaðir „bandingj-
ar“. Yngri menn létu sama fugl
inn ekki vera nema eina vakt,
sem „bandingja". Ef útlit var
fyrir óveður og ekki var hægt að
taka flekana með sér í land, var
það algild regla, að snúa 'þéim
við eða snörurnar ekki engdar.
Hver snara var um 20 sm að
lengd úr hrosshári, sem snúið
var saman í höndunum. Fuglinn
festir fætur sína í snörunum.
Hver maður þurfti að hafa nokk
ur þúsund snörur með sér og
allar voru þær úr taglhári. Má
því nærri geta að margur hest-
urinn hefur misst nokkuð af
taglprýði sinni í þágu þessa at
vinnuvegar.
Bændur létu hrosshár en
fengu fugl í staðinn og sömu
mennirnir verzluðu saman svo
árum skipti. Drangey var, vegna
afurða sinna, oft kölluð „mjólk
urkýr“ Skagfirðinga.. Fiskur
kom ekki á Skagafjörð fyrr en
í júní og júlímánuði og oft var
þröngt í búi og hörgull á ný-
meti áður en hann gekk á miðin.
Nú munu flekaveiðar að
leggjast niður?
Það sem hér hefur verið sagt
um flekaveiði, gildir fram um
1930, þegar allt var í föstum
skorðum, samkvæmt reglugerð
um Skagafjarðarsýslu, sem á
eyjuna. En á síðari árum er
þetta allt lausara í reipunum.
En eftir því sem ég bezt veit
hefur sýslunefnd bannað að
búa til nýja fleka, en leyft að
nota þá gömlu. Og síðustu árin
hafa ekki nema ein eða tvær
skipshafnir stundað þessar veið
ar, og aðeins stuttan tíma í einu.
Er þetta því aðeins svipur hjá
sjón, miðað við það sem áður
var. Nú eru aðrir tímar og nauð
syn fyrir þessa björg hefur þorr
ið. Auðséð er að flekaveiðum
við Drangey verður hætt mjög
bráðlega. Og með því er lokið
merkum þætti í athafnalífi og
einnig sérkennilegum orðum er
þar voru notuð og tilheyra sög-
unni, segir Albert Sölvason að
lokum og þakkar blaðið skemmt
lega og greinargóða frásögn frá
hinni söguríku og gjöfulu eyju
Skagafjarðar. E.D.
Til J)ess háttar? hngsaði Eiríkur með eftirvæntingu. En er
Jretta })á ekki bara á karlavísu: — að sitja svona tautandi.
Hann spurði samt gætilega:
— Er Ástríður þá t einhverri vinnu?
Storm leit á hann, óþolinmóður á svip:
— Vitið J)ér það ekki? Já, hún er hjúkrunarkona. Hún
hefir lialdið því áfram frá upphafi styrjaldarinnar. Nú vinn-
ur hún á hermanna-sjúkrahúsi hér í París.
Eiríkur varð fyrir megnum vonbrigðum, undrandi og
spenntur:
— Er hún hjúkrunarkona? Býr hún })á ef til vill líka á
sjúkrahúsinu?
— Víst gerir hún Jrað. Við sjáum hana aðeins á hverjum
laugardegi. Þá gistir hún hér heima um nóttina.
Og nú var miðvikudagur! Og hvernig gæti hann J)á feng-
ið að tala við hana, fyrst hún ætti heima í sjúkrahúsinu, og
væri aðeins frjáls einn dag í viku? — Þetta virtist honum
algerlega vonlaust fyrirtæki.
Hann hafði hugsað sér hana leika lausurn hala frí og
frjáls, og dreyrnt að J)au skyldu fara í langar gönguferðir út
um sveitir og skóga, borða saman, drekka saman og spjalla
og ræða út um sín mál! Hann hafði ætlað sjálfum sér mjög
ótakmarkaðan tíma. Þegar honum hafði verið mjög þungt í
skapi, hafði hann hugsað sér hana daglega í fjölmenni, hópi
franskra og norskra listamanna, Jrar sem hún væri höfð í
hávegum, — ef til vill ástfangin, og ófært að nálgast hana.
Allt Jretta og margt fleira hafði hann hugsað sér. — En Jretta,
sem honum hefði alls ekki getað komið til hugar, var öllu
verra. Nú var hann raunverulega útilokaður. Og með greini
legum vonbrigðablæ í rödd sinni sagði hann:
— En hún ætlar J)ó vonandi ekki að halda áfrarn hjúkrun
arstarfinu tii eilífs nóns, eða um aldur og ævi?
Storm tautaði:
— Gætuð þér fengið hana til að hætta })ví, væruð J)ér dug
legri heldur en við foreldrar hennar. Við höfum reynt allt
sem hugsast getur, Jrví við sjáum að hún })olir Jretta ekki.
Eiríkur varð að tala um Jretta, jafnvel J)ótt hann ef til vill
yrði ónærgætinn um of.
— Finnur hún þetta þá ekki sjálf?
— Hún gerir það kannski. En hún telur Jretta skyldu sína.
Skyndilega breytti Storm umtalsefni, — eins og hefði hann
sagt helzt til of mikið. Hann spurði:
— Hve lengi ætlið J)ér að vera í París?
(Framhald).