Dagur - 26.06.1965, Blaðsíða 7
7
■ ■
(Framhald af blaðsíðu 1).
ust hér á landi. Er hér um að
ræða strætisvagna, fólksbifreið
ir til farþegaflutnings á fjölförn
um vegum eða langleiðum og
vörubifreiðir, en talsvert af
þeim er nú notað til vöruflutn-
inga langar leiðir. Þessar lang-
leiða- og vöruflutningabifreiðir
munu, þegar þær eru fullhlaðn
ar, sumar hverjar vera meðal
þyngstu bifreiða, sem um þjóð-
vegina fara.
Skýrslan ber það með sér, að
nálega 3 af hverjum 5 bifreiðum
eru skráðar í lögsagnarumdæm
unum við sunnanverðan Faxa-
flóa, en drjúgur hluti af þeim
bifreiðum éru meira og minna
á ferð um land allt, einkum á
sumrin. Álagið á þjóðvegina
hefur aukizt svo mjög á síðasta
áratug, að til stórvandræða horf
ir. Margar brýr hafa verið end-
urbyggðar eða þarf að endur-
fcyggja vegna vaxandi breiddar
ökutækjanna. Ruddir vegir eða
byggðir upp af vanefnum, sem
áður þóttu viðhlítandi, geta með
engu móti þolað þá miklu og
þungu umferð, sem nú hvílir á
þeim. Þess eru ekki ófá dæmi,
- Um dagimi osr vesinn
Ö Ö D
(Framhald af blaðsíðu 2).
sem það vill? Því hafa þeir ekki
viljað svara.
Meinlausum fátæklingum var
hér áður bannað að flakka um
landið. En svo ljóta og sóðalega
„umrenninga“ sá ég hér á Akur
eyrargötum nýlega — af Suður
nesjum — að mér fannst full á-
stæða til að bann þetta gilti enn
um þá o. fl., sem nú renna um
landið, þótt fagurskreyttur sé
farkosturinri!
Og hverjir ráða því, að til
landsins fái ,að koma „skemmti
kraftar", sem æra og afrskræma
ungt fólk og. fallegt, og skilja
við það í hópum, nær dauða en
Jífi?
Þess ætti oftar að gæta, en
nú gerir, að hér á landi býr
sjálfstæð menningarþjóð, sem í
mörgum greinum getur búið að
sínu, og það betur, en að sækja
til annarra þjóða, þótt þar sé
hátt hrósað og fögur gyllingin
á því, sem í boði er.
ísland fyrir sanníslenzka þicð
en ekki alheims gervimennsku,
það ætti okkur að vera heilagt
metnaðarmál.
18. júní, 1985.
Jónas frá Breltknakoti.
að langir kaflar veikbyggðra
vega hafi orðið ófærir á einum
degi af völdum þungra bíla, og
ekki þurft. marga til, jafnvel
þótt vegur væri áður talinn vel
fær.
í nágrannalöndum okkar ís-
lendinga eru flestir alfaravegir,
jafnvel þótt fáfarnir séu, ma’bik
aðir eða steyptir. Til þess hefir,
að sjélfsögðu, verið varið of fjár.
Utlit er fyrir, að slíkt eigi enn
langt í land hér á landi. Hitt
sýnist óhjákvæmilegt; að byggja
upp mikinn hluta af hinum ó-
fullkomnu, gömlu þjóðvegum
og mölbera þá á viðunandi hátt.
Hér er um mikið átak að ræða,
t.d. hér á austanverðu Norður
landi, en þjóð, sem vill eiga
margar bifreiðir og nota þær í
vaxandi mæli til fólks- og vöru
flutninga um land allt, verður
líka að eiga færa vegi um land-
ið.
Þegar á þetta er litið, gegnir
furðu, að ríkisstjórnin skuli
treysta sér til að nota heimild
þá, sem meiri hluti Alþingis
veiti henni í vetur, til þess að
hækka fjárframlög til nýbygg-
ingar þjóðvega á þessu sumri.
Sagt er, að vinna eigi fyrir þetta
fé á næsta sumri, en ekki verð-
ur vegagerð ódýrari þá en nú.
- NAFNSKÍRTEINI
(Framhald af blaðsíðu 8).
ar, en upphaflegt skírteini hvers
manns er látið í té ókeypis.
Menn eru ekki skyldir til að
bera nafnskírteinið á sér en þeir
sem hafa það ekki tiltækt, njóta
ekki þeirra réttinda og þess
hagræðis, sem skírteininu fylg-
ir, auk óþæginda, sem þeir
kunna að verða fyrir. í lögun-
um um útgáfu nafnskírteinis er
hins vegar heimilað að ákveða
með reglugerð, að menn skuli
sína nafnskírteini í skiptum sín-
um við opinberan aðila, sem
notar nafnnúmer Þjóðskrár í
umsýslu sinni, og í ýmsum öðr-
um lögum og opinberum fyrir-
mælum ei-u •ákvæór; sem 'feía í
sér beina eða óbeina skyldu til
að sýna nafnskírteini í nánar
tilteknum tilvikum.“ □
AUGUÝSÍÐ í DEGl
Eignkona mín, móðir, tengdamóðir og amma okkar,
SIGRÚN JÓNÍNA TRJÁMANNSDÓTTIR,
Þrastarhóli,
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mið-
vikudaginn 23. júní sl. — Jarðarförin fer fram frá
Möðruvallakirkju í Hörgárdal þriðjudaginn 29. júní
kl. 2 e. h. Ferð verður frá ferðaskrifstofunni Lönd &
Leiðir kl. 1.15 e. h. — Blóm og kransar eru afbeðnir,
en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á
Krabbameinsfélagið.
Tryggvi Stefánsson, börn, tengdabörn og barnabörn.
Jarðarför
ÞÓRU SIGFÚSDÓTTUR,
Elliheimilinu Skjaldarvík,
sein andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akurevri 19.
júní, cr ákveðin frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn
30. júní kl. 2 e. h. ...... ...
Vandamenn.
SUMARBÚSTADUR
Viljum leigja eða kaupa
sumarbústað í nágrenni
Akureyrar, þarf að vera í
góðu standi. Tilboð legg-
ist inn á afgr. Dags,
merkt „Sumarbústaður".
LESSTOFA
Íslenzk-ameríska félagsins
verður lokuð yfir sumar-
mánuðina. Þeir, sem eiga
eftir að skila, eru vinsam-
legast beðnir að gera það
mánudaginn 28. þ. m.
kl. 6-8 e. h.
TÆKIFÆRISBELTI,
2 tegundir
BRJÓSTAHÖLD
fyrir konur með böm
á brjósti.
Verzlunin DYNGJA
Hafnarstræti 92
Ódým Ivkkjuföstu
SOKKARiNIR
komnir aftur.
Verzlunin DYNGJA
Óskilamunir
í Akureyrarkirkju er þó
nokkuð af óskilamunum
og eru jreir til sýnis á aug-
lvstunr opnunartímum.
Kirkjuvörður.
SKÁTAR! SKÁTAR!
Fyrir skátamótið í Vagla-
skógi:
BAKPOKAR
SVEFNPOKAR
TJÖLD
Skátaknífarnir
komnir, tvær stærðir.
Tómstundaverzlunin
STRANDGÖTU 17 • PÖSTHOLF 63
A K U R E Y R I
SIÆSAVARNAFÉLAGSKON-
UR AKUREYRI: Farið verð-
ur til Vestfjarða 3. júlí. Nokk
ur sæti laus ermþá. Takið far
seðla í Markaðinum, mánudag
og þriðjudag. Ferðanefnd.
MINNINGARSPJÖLD kvenfé-
lagsins Hlífar. Öllum ágóða
varið til fegrunar við barna-
heimilið Pálmholt. Spjöldin
fást í bókabúð Jóhanns Valde
marssonar og hjá Laufeyju
Sigurðardóttur Hliðargötu 3.
TAPAÐ
Pierpont karlmannsúr,
með brúnu leðurarm-
bandi, tapaðist nýlega. —
vinsamlegast skilist á afgr.
blaðsins.Fundárlaun.
KFUM og K auglýsa, í blaðinu
í dag innritun í sumarbúðirn-
ar við Hólavatn. — Ennþá er
hægt að koma nokkrum krökk
um að.
DÝRALÆKNAVAKT næstu
helgi, kvöld og næturvakt
næstu viku hefur Ágúst Þor-
leifsson, sími 11563.
FRA FERÐAFÉLAGI AKUR-
EYRAR: Vestfjarðarferð 3.—
11 júlí: Vestfirðir, Breiðafjarð
areyjar. Þátttaka tilkynnist í
síðasta lagi n. k. þriðjudags-
kvöld. Ferðanefnd.
SÖFN - HÚS
AMTSBÓKASAFNIÐ. — Opið
alla virka daga nema laugar-
daga kl. 4—7 e.h.
MINJASAFNIÐ er opið alla
daga kl. 1.30—4 e. h. Sími
safnsins 1-11-62, en safnvarð-
ar 1-12-72.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ er
opið alla daga frá kl. 2—3 e. h.
Sími safnvarðar er 1-29-83 á
kvöldin.
NONNAHÚS er opið alla daga
kl. 2—4 e. h. Sími safnvarðar
er 1-27-77.
MATTHÍASARHÚS opið alla
daga, nema laugardaga, kl.
2—4 e. h.
Veíðiíeyíi í Skjálfandafljóii
fyrir landi Þingeyjar eru seld í Einarsstaðaskála og hjá
Jóni Samúelssyni, Engimýri 8, Akureyri.
- VERÐLAGSGRUNDVELLI SAGT UPP
(Framhald af blaðsíðu 4).
„Aðalfundur Stéttarsamb. bænda 1965 átelur harð-
lega þá stefnu, sem stjórn Stofnlánadeildar landbún-
aðarins hefur tekið upp í lánamálum, og verkar sem
hemill á alla uppbyggingu og tækniþróun atvinnu-
vegarins.
Nú er bændum neitað um lán á sanra ári, nema til
þess, sem Stofnlánadeildin kallar eina framkvæmd, þ.
e. til dærnis annaðhvort fjóss eða hlöðu, jjótt sam-
stæðar byggingétr séu, og áskilji sér rétt til að Iána
síðan aðeins tvo jjriðju af því, sem áður hefur verið
venja. ÁðaJfundúrinn telur þessar takmarkanir á lán-
veitingum algeilega ójiolandi og skorar á stjórn Stofn-
lánadeildarinnar og landbúnaðarráðherra að jjessum
nýju hömlum verði aflétt. Þá telur fundurinn að þær
tafir, spi orðið hafa á Jjví að lánsbeiðnum bænda hafi
verið sVarað, séú 'algérlega óviðunandi."
„Fundurinn vísar til ályktana þeirra, sem samþykkt-
ar voru á aðalfundi Stéttarsambandsins 1964 um lána-
mál, og felur stjórn sambandsins að vinna áfram að
framgangi þeirra. Fúndurinn leggur ríka áherzlu á
Irna tyrýnu nauðsyn, að Veðdeild Búnaðarbankans
verði efld svo að henni sé gert mögulegt að veita lán
til jarðakaupa sem nemi að minnsta kosti helmingi
af eðlilegu kaupverði jarða. Lánstími verði 40—50 ár
með 4% vöxtum.“
„Aðalfundur Stéttarsamb. bænda 1965 skorar á stjórn
sambandsins að vinna að því við lánastofnanir að þeim
fcændum, sem erfiðast eiga með að standa í skilum
með vexti og afborganir af áhvílandi lánum, sé veilt-
ur frestur með þessar greiðslur meðan þeir skapa sér
bctri búskaparaðstöðu.
Ennfremur felur fundurinn stjóm sambandsins að
vinna að því við lánastofnanir landbúnaðarins, að
menn, sem eru að hefja búskap, hafa of lítil bú eða
skortir fé til annarra nauðsynja búsins, eigi kost á
lánum, sem séu afborgunarlaus fyrstu árin.“ □