Dagur - 14.08.1965, Qupperneq 1
Dagur
SIMAR:
11167 (afgreiðsla)
11166 (ritstjóri)
DAGU
XLVIII. árg. — Akureyri, laugardaginn 14. ágúst 13S5 — 58. tbl.
Dagur
kemur út tvisvar í viku
og kostar kr. 25,00 á
mán. I lausasölu kr. 4,00
Bílfarmar af smygluðu
áfengi í Langjökli
Varningurinn fannst með aðstoð iðnaðarmanna
ER Langjökull kom síðast til
Reykjavíkur, fyrir rúniri viku,
hófu tollþjónar umfangsmikla
leit að smygluðum vörum í
skipinu. Sú leit bar þó lítinn ár-
angur í fyrstu, en brátt tók að
finnast áfengi í stórum stíl, vel
og víða falið. Tóku tollþjónar
bæði jám- og trésmiði í þjón-
ustu sína til að sprengja upp
hurðir og losa skilrúm.
Á fimmtudaginn höfðu fund-
ist nær fjögur þúsund flöskur
af áfengi, mest hters Genevers-
flöskur. Er hér um að ræða eitt
mesta smyglmál, sem um getur
hér á landi, enda smyglvörurn-
ar, bæði áfengið og einnig sígar
ettur, taldir í bílförmum. Þykir
óhugsandi annað, en að margir
skipverjar hafi um fjallað, en
þeir eru nú allir í 30 daga far-
banni og margir þeirra í gæzlu
lögreglunnar. Fréttir herma, að
búið sé að ráða nýja áhöfn á
skipið, sem enn er kyrrsett.
íslendingur hætfur að koma út
í SÍÐASTA blaði íslendings til mun ástæðan sú, að enginn vill
kynnir blaðstjórn hans, að út- greiða reksturshallann. Starfs-
komu sé frestað vegna sumar- mönnum blaðsins hefur og ver
leyfa og skipulagsbreytinga. — ið sagt upp.
tm
■ - -
Sumarleyfum er nýlokið og
Vantar bara síldina
Ólafsfirði 12. ágúst. Heldur hef
ur verið daufara hjá ufsabát-
unum undanfarna viku. — Þeir
fengu þó góðan afla fyrir helg-
ina.
Þurrkar hafa verið mjög góð
ir og bændur náð inn geysimikl
um heyjum upp á síðkastið. —
Það sem mest skyggir á al-
menna ánægju er síldarleysið. í
júní voru saltaðar innan við
2000 tunnur, en síðan hefur ekki
komið nein síld. Vonum við
samt, að við verðum ekki alveg
afskift. B. S.
DAlfÐASLYS VIÐ
TOGARABRYGGJUNA
ÞAÐ slys varð klukkan 17 í
fyrradag, að Jón Arngrímsson
til heimilis að Norðurgötu 11
Akureyri féll ofan í lest á togar
anum Sléttbak og beið bana. Bú
ið var að skipa upp úr togaran-
um og mun Jón heitinn hafa ver
ið á gangi á dekkinu, skrikað
fótur og fallið niður um lestar-
opið. Jón var ísfirðingur að upp
runa, 55 ára gamall, einhleyp
ur.
Náttfari með 1200 mál
Húsavík 12. ágúst. — Fiskveiði
hefur verið allgóð, aðallega ufsa-
veiðin. Þó hafa handfærabátar
fengið góðan þorskafla og einn-
ig ágæta ýsu á línu.
Lítið hefur komið af síld. í
fyrrakvöld kom Helgi Flóvents-
son með um 300 tunnur og í gær
kom Náttfari með 1,200 mál og
tunnur. Þ. J.
Útgáfa blaða er dýr en
kaupendur fáir hér á landi. —
Nær öll blöð landsins eru í fjár
hagskröggum og er það ekkert
lcyndarmál.
Sá möguleiki kann að vera
nær en æskilegt má telja, að
blaðaútgáfan í landinu komist
í færri hendur en nú er. Með
því gætu of fáir ráðið of miklu
um skoðunarmyndun fólksins.
Með þetta. í huga eru vand-
ræði einstakra blaða, eða alger
uppgjöf, ekkert fagnaðarefni.
VIÐ sundlaugina á Akureyri eru tjaldstæði góð, enda tjalda þar hundruð ferðamanna á
sumri liverju. Nú liefur bærinn sýnt þann myndarskap, að byggja á sundlaugartúninu snyrt-
ingar fyrir tjaldbúa og aðstöðu fyrir „tjaldvörð“. Mun slíkt óvenjulegt. (Ljósmynd: E. D.)
Kjarnorkan er enn ekki samkeppnisfær
. JAKOB BJÖRNSSON verk-
fræðingur hefur nýlega ritað
grein í Morgunblaðið um kjarn
orku til raforkuframleiðslu. —
Hann segir, að verð á rafmagni
frá kjamorkustöðvum í Evrópu
sé nú um 50% hærra en frá sam
bærilegum ■ dielsstöðvum, en
fara lækkandi. Muni það um
1970 verða álíka og verð frá
£
£
I
I
I
I
£
£
I
£
£
I
£
£
£
£
£
7h'
-t
&
£
£
£
£
*
S
•>•
t
J
<■
t
-k
<■
dieselstöðvum. Hann segir enn-
fremur, að jafnvel frá stórum
kjarnorkustöðvum byggðum
1968—1970 muni ekki fást ódýr
ari raforka en frá „tiltölulega
litlum" vatnsaflsstöðvum hér á
landi.
Ráðgert er að taka í notkun
á þessum árum eina eða fleiri
500 þús. kv kjarnorkustöðvar og
er verðið frá þeim áætlað 22—30
aurar pr. kvst, en verðið frá
vatnsaflsstöðvum þeim, sem nú
er helzt rætt um hér, segir Jak
ob Björnsson vera áætlað 9—18
aura pr kvst. Eftir þessu að
dæma er ekki líklegt að kjarn-
orkan verði erfiður keppinautur
við fallvötnin íslenzku fyrst um
YFIR VALLAFJALL
JON Sigurgeirsson frá Hellu-
vaði og Sigurgeir Þórðarson
fóru sl. sunnudag á tveim Rússa
jeppum gamla, vörðumerkta
reiðveginn yfir Vallafjall. —
Fóru þeic úr Bárðadal hjá Hlíð
arenda og komu niður að Sörlu
stöðum í Fnjóskadal. — Stutt er
þarna milli sveita og greiðfært
nokkuð, nema í bröttum brekk
um ofan við Sörlastaði.
Héraðsmóf Framsóknarmanna
HÉRAÐSMÓT þau, seni Frainsóknarfclögin í Eyjafirði og Akur-
eyri hafa auglýst, hefiast að Laugarborg kl. 9 í kvöld, laugardag,
og á Dalvík á morgun á sama tíma. Ræðumaður á báðum stöðum
er Halldór E. Sigurðsson alþingismaður, ennfremur flylur Ingvar
Gíslason alþingismaður ræðu á Laugarborg og Hjörtur E. Þórar-
insson bóndi á Tjörn flytur ræðu á Dalvík. Á héraðsmótunum eru
mörg skemmtiairiði. Og allir eru velkonmir meðan húsrúm leyfir.
UR GLERÁRGILI.
(Ljósm.: E. D.)
fcs- (£'•'>- vN'z' S)'v-Q
ÍSLENZKUR fuglafræðingur,
Agnar Ingólfsson, vinnur uni
þessar mundir að rannsóknum
á því sjalagæía fyrirbrigði, að
fuglategundir blanda blóði. Er
hér um að ræða hvítmáf og
silfurmáf.
Hvítmáfur er norrænn fugl,
sem hér hefur lengi verið. Silf-
urmáfurinn er hins vegar suð-
lægur fugl, sem nam hér land
eftir síðustu aldamót og fór að
verpa hér um 1925, á Austfjörð-
um. Hans heimkynni eru nú
Austurland og að Eyjafirði og
á Suðurlandi, allt að Hafnar-
bergi.
Nú hafa þessar máfategundir
blandast og hafa afkomendurn-
ir einkenni beggja forejdra. —
Getur svo farið, að áliti fugla-
fræðingsins, að úr verði 3 teg-
undir fugla. En blöndun fugla-
tegunda er nær dæmalaus,
einr.ig annarra dýrategunda, ef
frá eru talin þau tilvik, þar sem
afkvæmi slíkrar blöndunar eru
ófrjó. □
V
I