Dagur - 14.08.1965, Page 2
2
HSÞ vann UMSE í frjálsun? íþróffym
SÍÐASTLIDINN laugardag 7.
ágúst fór fram keppni í frjáls-
um íþróttum á Laugum milli
Héraðssambands Suður-Þingey-
inga og Ungmennasambands
Eyjafjarðar. Var þetta þriðja ár-
ið í röð, sem þessir aðilar efndu
til slíkrar keppni. Keppt var í
sex greinum kvenna og ellefu
greinum karla. Veður var hlýtt
og stillt meðan á keppni stóð. í
heild náðist allgóður árangur á
mótinu og mjög athyglisverður
Höskuldur Þrainsson HSÞ sigr-
aði í þrem greinum á mótinu.
í sumum greinum. HSÞ vann
keppnina með nokkrum yfir-
burðum, hlaut 113 stig gegn 74
og vann til eignar veglegan bik-
ar, sem Kaupfélag Eyfirðinga
hafði gefið. Mótstjóri var Stefán
Kristjánsson. Eyfirðingar hlutu
hinar beztu viðtökur á Laugum,
sátu m. a. veizlu að keppni lok-
inni, þar sem Óskar Ágústsson,
formaður HSÞ, afhenti verð-
laun.
Ú R S L I T :
KONUR:
100 m. hlaup: sek.
1. Lilja Sigurðardóttir Þ 13.4
2. Þorbjörg Aðalsteinsd. Þ 13.6
3. Ragna Pálsdóttir E 13.6
4. Þorg. Guðmundsdóttir E 13.9
4x100 m. boðhlaup: sek.
1. Sveit HSÞ 54.8
(þingeyskt met)
Guðr. Benónýsd., Þorbj. Að-
alsteinsd., Lilja Sigurðard.
2. Sveit UMSE 56.8
Katrín Ragnarsdóttir, Hafdís
Helgad., Þorg. Guðmundsd.,
Ragna Pálsdóttir.
Langstökk: m.
1. Lilja Sigurðardóttir Þ 4.98
2. Þorg. Guðmundsdóttir E 4.64
3. Sigrún Sæmundsdóttir Þ 4.56
4. Haídís Helgadóttir E 4.00
Hástökk: m.
1. Sigrún Sæmundsdóttir Þ 1.40
2. Emilía Gústafsdóttir E 1.30
3. Sigríður Baldursdóttir Þ 1.30
4. Þorg. Guðmundsdóttir E 1.25
Lilja Sigurðardóttir keppti
sem gestur og stökk 135 m.
Kúluvarp: m.
1. Helga Hallgrímsdóttir Þ 8.97
2. Gunnvör Björnsdóttir E 8.36
3. Ragnheiður Snorrad. E 7.91
4. Sigrún Sæmundsdóttir Þ 7.83
Kringlukast: m.
1. Sigrún Sæmundsd. Þ 30.94
2. Bergljót Jónsdóttir E 28.13
(UMSE-met)
33. Lilja Friðriksdóttir E 26.95
4. Lilja Sigurðardóttir Þ 26.03
KARLAR:
100 m. Iilaup: sek.
1. Höskuldur Þráinsson Þ 11.2
2. Jón Benónýsson Þ 11.4
3. Sig. V. Sigmundsson E 11.5
4. Friðrik Friðbjörnsson E 11.6
400 m. lilaup: sek.
1. Höskuldur Þráinsson Þ 53.7
(þingeyskt met)
2. Gunnar Kristinsson Þ 53.9
3. Sig. V. Sigmundsson E 55.0
4. Jóhann Jónsson E 56.8
1500 m. hlaup: mín.
1. Bergur Höskuldsson E 4:32,5
2. Vilhjálmur Björnss. E 4:32,6
3. Ármann Olgeirsson Þ 4:32,8
4. Davíð Herbertsson Þ 4:34,8
4x100 m. boðhlaup: sek.
1. Sveit HSÞ 46,3
(HSÞ-met).
Sig. Fr., Jón Benónýss.,
Haúkúr Ingibergs., Hösk-
uldur Þráinss.
2. Sveit UMSE 46,6
Friðrik Friðbj., Jóh. Jóns-
son, Sig. V. Sigm. Þórodd-
ur Jóhannsson.
Langstökk: m.
1. Sigurður Friðriksson Þ 6,75
2. Sig. V. Sigmundsson E 6,42
3. Friðrik Friðbjörnsson E 6,40
4. Ingvar Þorvaldsson Þ 6,38
Þrístökk: m.
1. Sigurður Friðriksson Þ 13,73
2. Ingvar Þorvaldsson Þ 13,39
3. Sig. V. Sigmundsson E 12,56
4. Friðrik Friðbjörnsson E 12,21
Haukur Ingibergsson keppti
sem gestur og stökk 13,24 m.
Hástökk: m.
1. Jóhann Jónsson E 1,77
2. Haukur Ingibei-gsson Þ 1,75
3. Sig. V. Sigmundsson E 1,70
4. Páll Dagbjartsson Þ 1,65
Stangarstökk: m.
1. Sigurður Friðriksson Þ 3,15
2. Ásgeir Daníelsson Þ 3,00
3. Þóroddur Jóhannsson E
4. Sigurður V. Sigmundsson E
Kúluvarp: m.
1. Þóroddur Jóhannss. E 14,05
2. Guðm. Hallgrímsson Þ 13,30
3. Þór M. Valtýsson Þ 13,06
4. Brynjólfur Eiríksson E 11,49
Páll Dagbjartsson varpaði
drengjakúlu 14,39 m. og er
það þingeyskt drengjamet.
Kringlukast: m.
1. Guðm. Hallgrímsson Þ 41,00
2. Þóroddur Jóhannss. E 36,82
3. Þór M. Valtýsson Þ 36,41
4. Brynjólfur Eiríksson E 28,71
Spjótkast: m.
1. Jón Á. Sigfússon Þ 45,10
2. Guðm. Hallgrímsson Þ 43,50
3. Brynjólfur Eiríksson E 38,39
4. Þóroddur Jóhannss. E 36,85
Magnús enn Ákureyrarmeisfari
Sigtryggur Júlíusson varð öldungameistari
GOLFMEISTARAMÓT Akur-
eyrar hefur nýlega fram farið
með yfirburðasigri íslandsmeist
arans, Magnúsar Guðmundsson
ar, en úrslit í meistarakeppni
urðu þessi: .
högg.
Magnús Guðmundsson 305
Sigtryggur Júlíusson 315
Bragi Hjartarson 327
Hermann Ingimarsson 330
Hafliði Guðmundsson 336
Úrslit í 1. flokki:
Hörður Steinbergsson 351
Jóhann Guðmundsson 358
í þessari keppni náði Her-
mann Ingimarsson holu í einu
höggi, sem er mjög sjaldgæfur
viðburður, og lék hann þann
hring í 34 höggum, sem eru 3
högg undir „pari“, sem kallað
er.
Sérstaka athygli vakti á mót
inu afrek Sigtryggs Júlíussonar
sem náði 2. sæti í meistara-
keppni. Hann hefur lítið æft
undanfarin 5 ár, unz hann í
sumar tók að leggja nýja rækt
við íþróttina og þá með þeim
árangri að verða Öldungameist
ari íslands í Landsmótinu og 2.
maður í meistaramóti Akureyr
ar, — næstur hinum óvinnandi
golfmeistara, Magnúsi Guð-
mundssyni, og er þó Sigtrygg-
ur með rúmlega hálfa öld að
baki.
SIGTRYGGURJ*VARD
ÖLDUN GAMEIST ARI
Öldungakeppni í GA fór fram
í fyrrakvöld. Er það 18 holu
keppni með forgjöf. Sigurvegari
varð Sigtryggur Júlíusson með
68 högg nettó, annar Jón G.
Sólnes méð 74 högg og þriðji
Jóhann Þorkelsson með 77
högg.
Var keppnin lengi hörð milli
2ja efstu manna og munaði að-
eins 2 höggum á þeim eftir fyrri
hring.
Þær settu þingeyskt met í 4x100 metra boð-
hlaupi. — Bergur Höskuldsson UMSE (til >
liægri) sigraði í 1500 metra hlaupinu. —
(Ljósmyndir: Ilaukur Ingibergsson).
Frægur handknaif!eiksf)já!fari
eiðheinir þjáffurum á Akureyri
HINN frægi, sænski liandknattleiksþjálfari, ROLAND
MATTSSON, keniur til Akureyrar laugardaginn 21. ágúst
á vegum HSÍ og HRA og verður lialdið námskeið fyrir hand-
knattleiksþjálfara þann dag í íþróttahúsinu. — Þetta er kær-
komið tækifæri fyrir handknattleiksþjálfara á Norður- og
Austurlandi og einnig fyrir íþróttakennara, og væntir HRA
þess, að þcir fjölmenni. — Rolland keniur hingað til lands á
vegum HSf, og heldur námskeið í Reykjavík að Iokinn dvöl
sinni á Ákureyri. — Allar upplýsingar veitir Svavar Oítescn,
sími 1-20-77, Akureyri.
Kappreiðar Létfis á Ákureyri
HINAR árlegu kappreiðar og
góðhestakeppni hestamannafé-
lagsins Léttis fóru fram á skeið-
velli félagsins við Eyjafjarðará
sunnudaginn 4. júlí og hófust
með hópreið og góðhestasýn-
ingu kl. 2 e. h. Jóhannes Elías-
son bankastjóri í Reykjavík gaf
félaginu við þetta tækifæri mjög
glæsilegan verðlaunabikar, sem
hljóta skal hverju sinni bezti
alhliða góðhesturinn. Bikarinn
er gefinn til minningar um afa
gefanda, Tómas Tómasson, fyrr-
um bónda í Öxnadal, er nýlega
andaðist á Akureyri, þá rnanna
elztur.
Nú hlaut bezta alhliða góð-
hryssan í fyrsta ákipti farand-
bikar í verðlaun. Hafði bikar sá
verið gefinn af Albert Sigurðs-
syni.
Tómasarbikarinn hlaut nú í
þetta fyrsta skipti Stormur,
brúnskjóttur, 7 vetra gamall,
eigandi Sigurður Ólafsson, Ár-
bakka, Saurbæjarhr. Önnur í
góðhestakeppni var Bára, brún,
8 vetra, eigandi Una Sörensdótt-
ir, Akureyri, og þriðji Laufi,
brúnstjörnóttur, 6 vetra, eig-
andi Arnljótur Ottesen, Akur-
eyri.
Bára hlaut bikar Alberts Sig-
urðssonar, sem bezta góðhryss-
an. í keppni klárhesta með
tölti varð fyrst Freyja, brún
hryssa, 11 vetra, eigandi Þor-
steinn Jónsson, Akureyri, og
annar Stormur, brúnskjóttur,
7 vetra, eigendur Helgi Hálfdán
arson og Páll Alfreðsson, Akur-
eyri.
Reynt var nú í fyrsta skipti
að keppa í 300 m brokki en án
árangurs.
Dómnefnd góðhesta skipuðu:
Friðgeir Jóhannsson, Tungu-
felli, Steingrimur Níelsson, Æsu
stöðum, og Magni Kjartansson,
Árgarði.
ÚRSLIT í KAPPREIÐUM:
250 m stökk (folahlaup):
1. Vinur, rauður, 5 v. 20.5 sek.
Eig.: Stefán Þorvaldss., Ak.
2. Iða, bleik, 6 vetra 21.2 sek.
Eig.: Magnús Aðalsteinsson,
Akureyri
300 m stökk:
1. Gola, jörp, 5 vetra 24.5 sek.
Eig.: Pétur Steindórsson,
Krossastöðum.
2. Stjarni, rauðstj., 7 v. 25.6 sek.
Eig.: Þráinn Karlsson, Ak.
3. Nótt, brún, 7 vetra 26.3 sek.
Eig.: Tómas Jónsson, Ak.
350 m stökk:
1. Óðinn, brúnn 17 v. 29.1 sek.
Eig.: Jón Friðriksson, Ak.
2. Tvistur, brúnstjörn., 9 vetra,
29.9 sek.
Eig.: Björn Jónsson, bifreið-
► arstjóri, Akureyri.
3. Léttir, bleikskjóttur, 8 vetra,
30.0 sek.
Eig.: Víglundur Arnljótsson,
Akureýri.
Bezti tími í 300 m var í und-
anrás, Gola 24.3 sek. og bezti
tími í 350 m var í undanrás,
Cðinn 28.5 sek.
Stinnings hafgola var á móti
meðan á kappreiðunum stóð og
náðist því ekki bezti tími, sem
annars er mögulegur.
(Fréttatilkynning.)