Dagur - 14.08.1965, Síða 8
8
ÍÍÍÍÍÍÍSÍÍÍÍÍSÍÍÍÍÍÍSÍÍSÍÍÍÍÍÍÍIÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍSÍÍÍSÍÍÍÍÍÍÍSSÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍSÍÍÍSÍÍÍÍÍÍSÍÍÍS^^
SMÁTT OG STÓRT
KÝKNAR eru rólegar í umferðinni, en víkja þó — bæði til hægri og vinstri. (Ljósm.: E. D).
Sunnlendingar kaffibrúnireinsog negrar
en við erum hvítir og glærir af sólarleysinu
Egilsstöðum 12. ágúst. Heyskap-
ur hefur gengið sæmilega vel.
Framan af var þurrklítið en
nú hefur blásið blítt síðan sunn
anáttin kom og með henni þurrk
urinn. Inn hefur náðst töluvert
af heyjum. Það rættist töluvert
úr sprettunni, þótt víða sé kal-
ið mikið og hörkulegt.
Um tíðarfarið í sumar má
segja, að það sé lítil sumartíð
og eiginlega ekkert tíðarfar. Þó
hafa úrkomur ekki verið mikl-
ar, en oftast legið við norðan-
átt og verið svalt. Víða var sáð
höfrum í kalin tún. Óvíst er,
hversu mikill afráksturinn verð
ur, því ekki reyndist unnt að
vinna landið til sáningar nægi-
lega snemma. Kartöflur spretta
lítið.
Minna var sáð af korni en í
fyrra. En kornakrarnir líta
sæmilega vel út, og fer það eft-
ir hausttíðinni, hvernig fer um
þroskun þess og kartaflna.
FÆRRI FERÐAMENN
í sumar eru snöggtum færri
ferðamenn en í fyrra og hafa
gististaðir hér eystra mjög gold
ið þess. Þetta stafar eflaust af
þeirri misskiftingu veðurblíð-
unnar, sem var mikil að þessu
sinni. Sunnlendingar eru kaffi-
brúnir eins og halanegrar, en
hér eru menn hvítir og glærir
eins og nýrakaðir Gyðingar.
Hér á Egilsstöðum eru yfir 20
íbúðarhús í smíðum, ennfremur
fyrsti áfangi af stórri verzlun-
arbyggingu Kaupfélags Héraðs-
búa.
Á Eiðum á að taka niður
gömfu endurvarpsstöðina og
setja upp aðra, með fjórum
sinnum sterkari vélum og 75
metra mastur.
Mikil mannaskifti verða við
Eiðaskóla í haust. Þórarinn Þór-
arinsson Iætur af störfum eftir
aldarfjórðungs skólastjórn. Um-
sækjendur eru nokkrir. En yf-
irstjórn fræðslumálanna virðist
í vanda stödd og treystir e. t. v.
engum umsækjandanum 'fyrir
þessu ábyrgðarmikla . starfi. —
Hins vegar er aðsókn að skól-
anum langt fram yfir það, sem
húsrúm og aðrar aðstæður
leyfa. Menntun unglinga er erf-
ið hér og er það ískyggilegt að
ungt fólk þarf hópum saman að
fara á mis við skólavist. Bæði
vantar skóla og það vantar líka
tilfinnanlega góða kennara. V.S.
Úfsvörin á Sauðárkróki
NÝLOKIÐ er niðurjöfnun út-
svaxaf Sauðárkrókskaupstað og
skortir- því ekki umræðuefni
manna á meðal þar, þessa dag-
ana. Eru sumir- tiltölulega á-
nægðir með útsvarið sitt, aðrir
ekki, eins og gengur. Enginn
dregur í efa, að rétt sé lagt á
samkvæmt þeim tölum sem fyr
ir liggja, eh óneitanlega virðast
þær upphæðir, sem ýmsum ein
staklingum er gert að greiða,
skjóta nokkuð skökku við þær
hugmyndir, sem kunnugir hafa
um gjaldgetu þeirra, — og sýn
ist þar ýmist of eða van.
Að þessu sinni var útsvörum
jafnað niður á 359 gjaldendur,
alls að upphæð kr. 5.054.800,00.
Aðslöðugjöld bera 76 félög og
einstaklingar og nema þau kr.
1.498:800,00.
Lagt var á samkvæmt gild-
andi útssvarsstiga að viðbættu
4% %, til þess að ná tilskilinni
útsvarsupphæð samkv.æmt fjár-
hagsáætlun bæjarins fyrir árið
1956.
Eftirtaldir aðilar bera yfir 40
þús. kr. útsvar:
krónur
Kaupfélag Skagfirðinga 250.900
Ólafur Sveinsson læknir 76.000
Sveinn Guðmundss. kf.stj. 62.900
Fr. J. Friðriksson læknir 60.300
Haukur Stefánss. málari 60.100
Jón Björnsson verkstjóri 57.100
Elías Halldórsson iðnm. 55.100
Ole Bang Iyfsali 47.900
Pétur R. Sighvats 43.800
(Framhald á bls. 7).
MESTA SMYGLIÐ
Nær fjögur þúsund flöskur af
áfengi fundust nýlega í Lang-
jökli, er hann kom frá útlönd-
um til Reykjavíkur. Mál þetta
er nú í rannsókn. Sagt er, að
sekt fyrir hverja flösku áfengis,
miðað við pottflösku, sé um 400
krónur. En margir álíta, að
vegna þess live mikið magn
smyglaðs áfengis kemst árlega
inn í landið, fram hjá toll- og
löggæzlu, sé djarft teflt á þessu
sviði og gróðinn af slíkum við-
skiftum því mjög mikill þegar
„vel gengur“.
Margt bendir til þess, að of
mjúkum höndum sé tekið á
smyglmálum yfirleitt, einkum
hvað áfengið snertir, en aðgerð-
ir ríkisvaldsins hafa dregið úr
smygli sumra annarra vöruteg-
unda.
ALDREI 3HNNI ÚRKOMA
Samkvæmt fréttum frá Veður-
stofunni hefur verið minni úr-
koma fyrstu 7 mánuði þessa árs
en dæmi eru til um áður. Veld-
ur þetta víða vatnsskorti og
erfiðleikum í sambandi við
neyzluvatn. Heyskapur hefur
hins vegar gengið vel vegna
þurrkanna. Göngufiskur gekk
seint og lítið í flestar ár og er
það kennt vatnsleysi. Alvarleg-
asta afleiðing hinnar litlu úr-
komu er þó ótalin, þ. e. upp-
blástur Iandsins.
MARGIR MÖGULEIKAR
Fréttir berast öðru hverju um
það, að framtakssamir einstak-
lingar noti tjamir og smávötn,
með eða án afrennsli í sjó, til
fiskiræktar. Hefur þetta á mörg
um stöðum gefið góða raun og
miklar vísbendingar urn ónot-
aða möguleika. Sú aðstaða er
mikilsverðust, þar sem fiskveg-
ur er til hafs. En án hans geta
vötnin sjálf fóstrað verð-
mætan vatnafisk og einnig skap
að aðstöðu til stangveiði, sem
er mikils virði um þessar mund-
ir. í þessu efni eru óteljandi
möguleikar, svo að segja í
hverri sveit.
AÐSTOÐ VIÐ 460 BÍLA
Félag íslenzkra bifreiðaeigenda,
sem hélt úti nær tveim tugum
Verið er að breyfa siglingaljósum
s ©
i I
1............"...........................■....
I
©
t
Daivík 12. ágúst. Bátarnir okk-
ar eru nú flestir að koma að
landi. Aðalerindið er að láta
breyta siglingaljósum í sam-
rærr-.i við nyju siglingalögin, en
margir peirra komu einnig með
slatta af síld, sem nú er verið
að salta k winu plani. Búið er
að salta í 150—200 tunnur.
Tónlistarskólinn, sem stofn-
aður var í fyrra, ræður tvo
kennara til sín í vetur, þá Gest
Hjörleifsson og Ingimar Eydal,
sem er Akureyringum að mörgu
góðu kunnur. Einnig er gert ráð
fyrir, að Ingimar Eydal taki að
sér að stofna lúðrasveit og eru
hljóðfæri fyrir hendi. Lions-
klúbbur Dalvíkur keypti á sín-
um tíma, í félagi við ríkissjóð,
lúðrasveitarsett og gaf Barna-
skóla Dalvíkur.
Ef ekki fer bráðum að rigna,
sjóum við fram á vatnsskort hér
á Dalvík. Nú er daglega vatns-
laust um mesta vatnsnotkunar-
tímann. Frystihúsið hefur samt
alltaf vatn, því það er tekið
beint úr ánni. Jóh. Har.
t
í
•fr
©
t
■ViC
s
I
©
t
i
I-
t
t.................................B............Bt” —7 t
FALLEGIR tvílembingar við gamlan vegg. (Ljósm: E. D.)
viðgerðarbíla á flestum fjöl-
förnustu landleiðum um verzl-
unarmannahelgina, og Iengur
þó, aðstoðaði 460 bíla um þessa
eiiiu helgi, og var þá ekki tal-
in aðstoð sú, er veitt var norð-
anlands og austan. En af þessu
má marka þörfina fyrir slíka
þjónustu á vegum úti, og að
þessi þjónusta hafi að mörgum
verið vel metin.
MIKIL HATÍÐ f EYJUM
Þjóðhátíð Vestmannaeyinga
hófst í Herjólfsdal 6. ágúst, og
samkv. fréttum var þar mikið
fjölmenni samankomið, tjald-
borg reist og mikið um dýrðir.
Talað var um loftbrú milli
lands og Eyja, og þær þúsundir
manna, er þangað fóru til þátt-
töku í hátíðahöldunum. — Þá
sögðu sunnanblöðin frá því í
glaðhlakkalegum tón, sem dæmi
um aðdrætti, að Flugfélag fs-
lands hefði flutt 6 tonn af
áfengi til Vestmannaeyja, fyrir
hátíð þessa.
MARGS ER AD GÆTA
Berrassað fólk eða sfriplingar
er á sumum stöðum áhyggju-
efni, sem yfirvöld og siðgæðis-
verðir eiga í höggi við. Kuíd-
inn harnlar ekki klæðleysinu á
þeim stöðum, og líklegt að ís-
lenzk veðrátta útiloki þau
vandamál hér. f Frakklandi
hafa jarðýtur verið notaðar í
hernaði við striplingana. Með
þeim voru nýlega mishæðir
jafnaðar á baðströnd einni, og
ennfremur smáhýsi. Stripl er
aðeins leyft á takmörkuðum
stöðum í Frakklandi og er þá
um nektarklúbba að ræða, er
iðka stripl á afviknum stöðum.
HEYSKAPUR GENG-
UR MJÖG VEL
Blönduósi 12. ágúst. Heyskapur
hefur gengið mjög vel og eru
margir bændur að verða búnir
með fyrri slátt. Heyfengur er
góður þótt seint hafi sprottið.
Við búumst við mörgu fé til
slátrunar og feitum dilkum.
Hér eru nokkur íbúðarhús í
smíðum en þó er það með minna
móti. Ekki vil ég samt kenna
ísnum um það, vart mun hann
hafa slæft framkvæmdaáhuga
manna, þótt vondur væri. Ó.S.
ALLT OF MIKIÐ AF
MEINDÝRUM
Stórutungu Bárðardal 12. ágúst.
Töluvert mikil umferð er hér
í sumar á hálendið, fram og
aftur. Flestir bændur munu
langt komnir með fyrri slátt-
inn. Meindýr eru fleiri hér um
slóðir en við verður unað þótt
18 minkar hafi verið drepnir og
töluvert af refum. Fundist hafa
tófubitin lömb, dauð og háif-
dauð, en dýrbítirnir eru ófundn
ir.
Grasspretta á túnum varð
sæmileg að lokum en úthagi
er miður sprottinn. Þ. J.