Dagur - 22.09.1965, Side 4

Dagur - 22.09.1965, Side 4
4 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-1166 og 1-1167 Bitstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. Ungir menn álykta Á ÞINGI ungra Framsóknarmanna í Norðui'landskjördæmi eystra, sem haldið var á Laugum íyrstu daga septembermánaðar, var m. a. sam- þykkt: Sérstaka áherzlu ber að leggja á iðnað til að fullvinna íslenzk hrá- elni, og gera þau verðmætari, má þar til nefna ull, gærur og síld auk ann- arra landbúnaðar- og sjávarafurða. Að tilraunir í þágu atvinnuveg- anna verði auknar, svo sem jarðvegs- °g gróðurfarsrannsóknir, fiskirann- sóknir og jarðhitarannsóknir. Brýn nauðsyn er að efla atvinnu- öryggi og örfa hagþróun í kaupstöð- um og kauptúnum á Norðurlandi, og verður að leita nýrra atvinnuvega fyrir þann landshluta, t. d. með því að setja á fót stofnun sem hafi með höndum rannsóknir á skilyrðum til atvinnurekstrar og hagnýtingu nátt- úruauðlinda, og sjái um tækniaðstoð við atvinnugreinarnar. Þingið krefst þess, að ef til stór- iðju kæmi hérlendis, verði hún stað- sett á Norðurlandi. Mundi það eiga ríkan þátt í að hamla gegn fólks- flutningum til Faxafióasvæðisins og skapa aukin skilyrði til blómlegs at- vinnulífs víðar á landinu. Gera þarf ráðstafanir til að efla smíði fiskiskipa á Norðurlandi. Auk- in verði með lánum og fjárframlög- um aðstoð til að koma upp fullkomn um dráttarbrautum, og þeim veitt rífleg rekstrarlán svo hægt verði að sjá um viðgerðir og endurnýjun fiski skipaflotans, að sem mestu leyti inn- anlands. Þingið telur að tryggja verði bygg ingalánasjóðum landsmanna það mikið fé, að ætíð sé hægt að lána ungu fólki, verulegan hluta af bygg- ingakostnaði íbúðar, til langs tíma á hóflegum vöxtum. Þingið telur að þakka beri |>að, sem áunnizt hefur vegna hækkaðra lána til íbúðabygginga, J>ó sú hækk- un geri tæpast betur en að mæta auknum byggingarkostnaði. Þingið vítir harðlega þær stór- felldu atlögur, sem gerðar hafa ver- ið á launastéttirnar í landinu, síðan núverandi ríkisstjórn kom til válda, og heitir þingið á alla launþega og bændur að vera vel á verði um hags- munamál sín. Þingið krefst þess, að alþýða lands ins hafi }>au launakjör, að hún geti lifað menningarlífi af 8 stunda vinnu degi, en J>urfi ekki að leggja á sig mikla aukavinnu, til að hafa nægar tekjur til brýnustu lífsnauðsynja. © samvmnii smum félö segir Jakob Frímamisson, fram- kvæmdastjóri í viðtali við blaðið DAGUR hitti Jakob Frímanns- son að máli á mánudaginn og þrátt fyrir annríki þann dag, sem flesta daga aðra og tak- markaðan áhuga fyrir frétta- þjónustunni, svaraði hann skjót lega þeim spurningum, sem fram voru bornar. Hvert er síærsta verkefni KEA á framkvæmdasviðinu um þessar mundir? Nýja mjólkurvinnslustöðin of an við Lund er langsamlega kostnaðarsamasta framkvæmd- in. Um kostnað við fyrri hluta stöðvarinnar, sem nú hefur ver ið að unnið undanfarnar vikur, veit enginn ennþá, en að sjálf- sögðu verður þar um marga milljónatugi að ræða. Staðurinn virðist mjög heppilegur og hef- ur sérfróðum mönnum komið saman um það, og grunnurinn góður. Byrjað verður að steypa undirstöðurnar núna einhvern daginn og svo er hugmyndin að steypa upp kjaHaraveggi fyrir veturinn. í vor verður svo verk inu haldið áfram og þá eiga að vera til strengjasteypubitar og súlur, eftir því sem byggingin þarfnast. Nýja kjötvinnslustöðin er hinsvegar vel á veg komin? Já, segja má, að innrétting- um sé þar langt komið. Búið er að flísaleggja mest af veggjun- um og verið að leggja gólf. Bú- ið er að leggja leiðslur og rist- ar í gólf, einangraðir hafa ver- ið allir frystiklefar o. s. frv. Þegar búið er að ganga frá gólfum er mestu kostnaðarlið- unum lokið. Hins vegar eru vélakaupin eftir. Enn er eftir að ákveða hvernig rafmagn við fáum til hinnar nýju kjöt- vinnslustöðvar. Hér í bænum er 220 wolta straumur eins og allir vita, en hugmyndin er að fá 380 wolta straum til kjötiðn- aðarstöðvarinnar, sem talið er mun hagkvæmara. Stærð þess- arar byggingar er 15—1600 fer- metrar og á hún að verða mjög vönduð, byggð eftir ströngustu kröfum um slíkar stöðvar, og miðuð við töluvert langa fram- tíð. Núverandi kjötvinnslustöð okkar, eða Pylsugerðin, hefur verið starfrækt í gömlu Smjör- líkisgerðinni síðan 1950 og er fyrir löngu orðin alt of lítil. Þessi kjötvinnslustöð hefur ekki getað annað nema þriðj- ungi eftirspurnarinnar síðustu árin, vegna þrengsla. Það var því ekki um annað að gera en nýbyggingu, enda hefur stöðin búið við bráðabyrgðaaðstöðu í hálfan annan áratug. Vin von- um að nýja kjötvinnslustöðin verði tekin til starfa fyrir næstu síldarvertíð. Þið hafið stækkað aðalskrif- stofumar í Haftiarstræti og endurbætt hraðfrystihúslð í Hrísey? Aðalskrifstofurnar eru á sama stað og áður og hin daglega af- greiðsla, en þær hafa verið stækkaðar norður í Hafnar- stræti 93. Viðskiftamannabók- haldið allt verður á gömlu skrif stofunum og allar afgreiðslur. Vátryggingardeildin verður og á sama stað, en ýmisleg önnur skrifstofuvinna verður í nyrðri hlutanum, sem er samtengdur. í Hrísey hefur frystihús okk- ar verið endurbætt á þann veg, að hægt er að taka á móti 80% meira hráefni til vinnslu í hús- ið en áður. Það kom sér vel, því þessari framkvæmd var lokið þegar dragnótaveiðin var leyfð. En þá barst mjög mikið að af fiski. Verkefni frystihús- anna jókst þá svo mjög, að unnið var á fjórum síðustu mánuðum 60—70% meira en á sama tíma í fyrra. Hvað er hið rétta í lauslegum fregnum um væntanlega vöru- skemmu eina mikla hér á Ak- Það er rátt, að fengizt hefur lóð á Gleráreyrum, sem fyrrum var ætluð undir nýju mjólkur- vinnslustöðina. Sambandið ætl- ar að byggja þar stóra vöru- skemmu. Þetta verður birgða- stöð á Akureyri, hliðstæð birgðastöð Sambandsins í Reykjavík. Þessi stöð verður fyrst um sinn fyrir Norður- og Austurland. Það er auðvitað mjög mikils virði fyrlr kaupfé- lögin á þessu svæði, að geta sótt sínar vörur hingað, í stað þess að þurfa að sækja þær til Reykjavíkur. Og það er mjög mikils virði. fyrir Akureyrar- bæ, að fá hér slíka umhleðslu á miklu magni af margs konar vörum. Þetta mun stórbreyta allri verzlun og samgöngum við Akureyri. Hvernig taka kaupfélagssljór ar þessu? Kaupfélagsstjórarnir, a. m. k. hér í nágrenninu hafa mjög mikinn áhuga á þessu máli. Teikningar eru komnar og hafa þær verið samþykktar í bygg- inganefnd. Ég vona að við get- um hafið framkvæmdir nú í haust. Var kaupfélagsstjórafundur- inn í sumar haldinn um þetta mál? Að sjálfsögðu var rætt um þetta mál á fundi norðlenzkra kaupfélagsstjóra, er hér var haldinn fyrir nokkru. En sá fundur fjallaði þó fyrst og fremst um skipulagsbreytingar hjá kaupfélögunum. í því máli er nefnd, sem að þeim málum vinnur, ekki einasta hér á Norð urlandi, heldur Um allt land og um það haldnir fundir í öðrum landshlutum. Að sams konar verkefnum hafa samvinnufélög- in á Norðurlöndum og í Bret- landi unnið undanfarið. Þar er unnið að því að sameina kaup- félög og stækka kaupfélags- heildirnar. Það verður e. t. v. ekki mikið um sameiningu kaupfélaga hér á landi, en við höfum hugsað okkur að kaup- félög, sem hafa svipaða starfs- aðstöðu, gætu unnið mun meira saman innbyrðis en nú er gert. Þar koma til greina vörupant- anir, vöruskifti og upplýsinga- og fræðslustarfsemi. Þar geta smærri kaupfélög notað sér starfskrafta og reynslu eldri og stærri félaga o. s. frv. Hvar finnst þér skórinn kreppa mest að samvinnuhreyf- ingunni um þessar mundir? Ég held að engum blandist hugur um það, að rekstrarfjár- vandræðin eru mesti hemillinn á starfsemi samvinnufélaganna, sérstaklega hjá þeim félögum, sem hafa verulega útgerð og JAKOB FRÍMANNSSON, framkvæmda- stjóri Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri og stjórnarformaður Sambands íslenzkra sam- vinnufélaga, er oft talinn fleiri ábyrgðar- störfum hlaðinn en aðrir menn í höfuðstað Norðurlands. Hvort svo er eða ekki, er hitt víst, að hver starfsdagur hans er lang- ur, maðurinn árrisull, gæddur óvenjulegri starfsorku, og verkefnin eru óþrjótandi. — Hann hóf ungur starf hjá samvinnumönn- um, eða 1918, og á því langan starfsdag að baki, og er nú óumdeildur foringi sam- vinnuhreyfingarinnar á íslandi. — Kaup- félag Eyfirðinga annast margs konar starf- semi, sem hér verður ekki upp talin, enda hefur það starfsaðstöðu á 60—70 stöðum á Akureyri og víðar, hefur á sjötta hundrað fastráðið starfsfólk, greiðir nær 90 millj. króna í vinnulaun á ári, greiðir árlega milljónaarð til félagsmanna sinna, sem eru um 5500 talsins í 24 félagsdeildum og veltir árlega yfir 700 millj. kr. Af hinum háu tölum átta menn sig á stærð þessa norðlenzka samvinnufélags. En meiri styrk- ur felst þó í félagshyggju fólksins sjálfs, innan þessara fjöldasamtaka. Kann það t. d. að vera rannsóknarefni, að meðal þessa fólks í bæ og sveit hefur engin togstreita eða klofningsstarfsemi þrifist. Enda mun með réttu talið, að Kaupfélagi Eyfirðinga hafi jafnan verið mjög vel stjórnað og hjá því starfað nægilega margir afbragðsmenn, til að leiða flesta starfsþætti þess til vel- farnaðar. — En allir þræðir þessa risafyr- irtækis liggja um hendur Jakobs Frímanns- sonar, og hefur svo verið í aldarfjórðung. hjá smærri félögum. Að vísu er þetta vandamál ekkert sérstakt fyrir samvinnufélögin. Mér skilst að flestir þeir, sem reka verzlun og slíka starfsemi, séu í fjárþröng. Og sama er að segja hjá þeim, sem útgerð reka. Þetta er sameiginlegt vandamál allra þeirra, sem við viðskifti fást hér á landi. Telur þú hlut samvinnu- manna í verzlun minnkandi síð ustu árin? Það mun vera rétt, þegar á heildina er litið. En þær orsak- ir liggja til þess, fyrst og fremst, hvernig búsetuhlutfall þjóðarinnar hefur þróast. Meiri hluti þjóðarinnar er kominn á suðvesturhluta landsins, þar sem fá og fremur lítil kaupfé- lög starfa. Þar hefur verið stutt við bakið á allri einstak- lingsverzlun eins og mögulegt er á síðustu árum, er óhætt að segja. Smvinnufélögin fyrir sunnan hafa ekki notið slíks stuðnings. Þegar svo ofsalega fjölgar fólki á einum lands- hluta, þar sem minnstur er áhuginn fyrir samvinnustarf- inu, má telja þetta eðlilegt. Hins vegar halda samvinnufélögin hér fyrir norðan og víða um landi fyllilega sínum hlut og auka verzlun sína eðlilega, og svo er það hér hjá okkur. Sennilega höfum við þó tæp- ast haldið okkar hlut í vefnað- ar- og búsáhaldaverzlun. Hins vegar hefur aukning okkar í matvöruverzlun orðið eðlileg og naumast hægt að ætlast til þess að hún sé meiri. Við vor- um á eftir með endurbætur á vefnaðarvöruverzlun okkar og búsáhaldadeild jafnvel líka, því við lögðum áherzlu á að bæta fýrst þjónustuna í matvöru- verzluninni. En hvernig hafa hinar gagn- gerðu breytingar, sem nú eru orðnar í hinum ýmsu deildum, gefizt? Mjög vel. Viðskiftavinirnir eru ánægðir, starfsfólkið líka. Deildirnar njóta vaxandi við- skifta og verzlunin hefur auk- izt fyllilega eins mikið og við gerðum ráð fyrir. Er búið að ráða fulltrúa fram- kvæmdastjóra hjá KEA? Já, búið. er að ráða Val Arn- þórsson tryggingastjóra hjá Samvinnutryggingum, sem full- trúa og staðgengil kaupfélags- stjóra, og tekur hann við störf- um 1. desember n. k. Hann er Arnfirðingur að ætt, 35 ára gamall og hefur unnið hjá sam- vinnumönnum síðan hann kom úr skóla. Hann er utanlands um þessar mundir í erindum sam- vinnumanna, segir Jakob Frí- mannsson að lokum og þakkar blaðið hin greinargóðu svör hans. E. D. HANNES J. MAGNÚSSON HEIÐRAÐUR Á MÁNUDAGINN heiðraði bæjarráð og fræðsluráð Akur- eyrarkaupstaðar Hannes J. Magnússon skólastjóra með hófi að Hótel KEA. Þar voru og viðstaddir skólastjórar bæjar- ins. Magnús E. Gúðjónsson bæj- arstjóri flutti hinum aldna skólamanni ávarp, og Brynjólf- ur Sveinsson formaður fræðslu ráðs ræðu, þar sem þökkuð voru kennara- og skólastjóra- störf Hannesar og minnst giftu- ríkra starfa þeirra hjóna hér á Akureyri, — og tilkynnt um smekklega gjöf. — Hannes þakkaði með ræðu. Þau Hannes J. Magnússon og Sólveig Einarsdóttir, kona hans eru nú á förum til Reykjavík- ur. KENNARAMÓT OG NÁMSKEIÐ Á AKUREYRI ÁKVEÐIÐ ER, að Samband norðlenzkra barnakennara efni til kennaramóts og námskeiðs á Akureyri, dagana 29. sept. til 2. - GÓÐ SÍLD VEIÐIST (Framhald af blaðslðu 1). þús. mál og tunnur og meira, s.l. laugardag, voru: Jón Kjartansson SU 33.450 Sigurður Bjamason EA 29.064 Ólafur Magnússon EA 28.087 Bjarmi II EA 26.752 Dagfari ÞH 26.663 Hannes Hafstein EA 25.892 Helga Guðmundsd. BA 25.356 Heimir SU 24.892 Gullver NS 24.222 Krossanes SU 23.225 Barði NK 22.405 Keflvíkingur GK 22.153 Súlan EA 22.050 Þorsetinn RE 21.943 Jörundur III RE 21.868 Bjartur NK ’ 21.807 Reykjaborg RE 21.612 Þórður Jónasson EA t 20.831 .Jörundur II RE 20.029 okt. n. k. Verður það haldið í Barnaskóla Akureyrar og hefst miðvikudaginn 29 sept. kl. 10 f. h. Aðalviðfangsefni námskeiðs- ins verður móðurmálskennslan á barnafræðslustiginu. Leið- beinendur þeir Óskar Halldórs- son námsstjóri, Jón. Júl. Þor- steinsson kennari og Ingibjörg Stephensen talkennari. Þá munu eftirtaldir m'enn flytja erindi: Valgarður Har- aldsson námsstjóri, Stefán Ól- afur Jónsson námsstjóri, Aðal- steinn Eiríksson fjármálaeftir- litsmaður skóla, Þorsteinn Ein- arsson íþrótta'fulltrúi og Skúli Þorsteinsson námsstjóri. í sambandi við námskeiðið mun Magnús Jóhannsson sjá kynningu á nýjum kennslu- tækjum, sem Radío- og raf- tækjastofan Óðinsgötu 2 í Reykjavík, hefur til sölu. Sýnd- ar verða vörur frá skólavöru- búðinni. Þá verða haldnir aðalfundir SNB og Kennarafélags Eyja- fjarðar. Fræðslumálastjóri hef- ur heimilað að fella niður kennslu þá, daga, sem mótið stendur, □ Svanlaugur B. Þorsteinsson frá Rauðuvík MINNINGARORÐ HINN 18. þ. m. var til grafar borinn í Stærra-Árskógi Svan- laugur Björgvin Þorsteinsson frá Rauðuvík. Þann dag var margmennt í hinni fögru sókn- arkirkju þeirra Ströndunga, en fjölmennt frændlið hins látna, og stór hópurinn vina hans og venzlamanna. Svanlaugur heitinn var fædd- ur að Hellu, en átti lengstan hluta ævi sinnar heima á Litlu- Hámundarstöðum og var við þann bæ kenndur. Foreldrar hans voru hjónin Valgerður Sigfúsdóttir og Þoi-steinn Þor- steinsson, bæði Árskógströnd- ungar, hún dótturdóttir Jó- hanns sterka á Selá, en hann var sonur Þorsteins bátasmiðs, er síðar var kenndur við Rauðu vík, Vigfússonar á Hellu, Gunn laugssonar af ætt Þorvalds Hríseyings. Faðir Valgerðar var son Kristjáns og Geirlaugar á Hrafnagili í Þorvaldsdal, og því hálfbróðir Konráðs í Bragholti, Konráðssonar. Jóhann sterki á Selá var sonur Sigurðar Gott- skálkssonar, Sigfússonar, en móðir Jóhanns var Þórunn, kölluð Ingimundardóttir, en af mörgum talin laundóttir þjóð- skáldsins á Bægisá, Jóns Þor- lákssonar. Vigfús, faðir Þor- steins á Rauðuvík var dóttur- sonur þeirra Krossahjóna, Jóns ríka, Jónssonar og Guðlaugar Vigfúsdóttur frá Stóru-Há- mundarstöðum, Sigurðssonar, Bjarnasonar. Móðir Þorsteins á Litlu-Hámundarstöðum, Anna Soffía Jóhannsdóttir Jónssonar, og móðir Þorsteins á Rauðuvík, Anna Rósa Þorsteinsdóttir — voru báðar svarfdælskar (sú síðarnefnda dótturdóttir Jóns skálds Hallgrímssonar á Karls- á). Stóð því að Svanlaugi Þor- steinssyni í báðar ættir dugn- aðar- og hæfileikafólk um marga hluti, sumt blóðheitt nokkuð, en harðgert margt og lítið fyrir það að láta hlut sinn eftir liggja. Svanlaugur ólst upp með for- eldrum sínum í gjörfulegum systkinahópi, en þau urðu tíu að tölu og var Svanlaugur næst elztur. Svanlaugur var mikið „ömmubarn“, eins og það er kallað, en Svanhildur móður- amma hans var mikil stoð og stytta heimilis þeirra Þorsteins og Valgerðar fram á elliár, mikil dugnaðar- og sómakona. Mun henni hafa þótt Svanlaugi bregða í ýmsu ákjósanlega til Selárættarinnar, ekki sízt um ósérhlífni og skyldurækni í störfum. Svanlaugur varð snemma for ystumaður um búskap foreldra sinna, enda faðir hans oft að heiman. Þar í sveit var sjórinn mikill bjargræðisvegur og stund aði Þorsteinn hann af kappi, en lét konu sína, og börnin strax þau gátu eitthvað, annast bú- störfin. Reyndist Svanlaugur snemma liðtækur, sem og þau fleiri, en húsfreyjan og amman voru hvor annarri hagsýnni og hirðusamari um heimilishaldið. • K Síðar varð Svanlaugur ráðsmað ur móður sinnar, þvk aA Þ>or- steinn varð ekki gamall maður (lézt 1932). Naut Svanlau^ur sín vel í því Starfi, hamhlaýpa til vinnu, reglumaður 'Og ráð- deildarsamur mjög, áreiðanleg- ur í öllum viðskiptúm, örlátur, þegar því var að skipta og rppp- góður ákaflega, eins og báðir foreldrar hans. Lítillar skólamenntunar naut Bvanlaugur umfram barna- fræðsluna, en hann varð vel að sér um margt, flugnæmur að eðlisfari og minnugur, las mik- ið og notfærði sér vel ýmsar bækur. Hann tók snemma virk- an þátt í félagsmálum og. reynd- ist þar sem annars staðar'hinn liðtækasti. Svanlaugur var bar- áttumaður að eðlisfari og hafði nautn af að láta til sín taka. Á ungmennafélagið Reynir hon- um mikið að þakka, en þar var hann í fremstu víglínu um langt skeið. Hann var snjall ræðu- maður, stundum harðskeyttur nokkuð og ádeilinn, en skjótur til sátta og samkomulags, gat vel skipt um skoðun, þegar honum þótti málefni standa til, en lét annars ógjarnan hlut sinn. Hann var opinskár og hreinskilinn, en í öllu hinn bezti drengur. Samstarfsmönn- um hans og félagsbræðrum þótti hann stundum helzti af- skiptasamur, og sumum hættir til að sjást yfir það, að öll af- skiptasemi slíkra manna stafar venjulega af eldheitum áhuga fyrir því að eitthvað gerist, og gerist strax. Svanlaugur var dæmigerður fulltrúi þeirra manna (sem nú fer ört fækk- andi), er vilja allt til vinna að störfin skili arði og að eitthvað sjáist eftir menn liggja, reiðu- búnir til þess að taka á sjálfa sig allt hið erfiðasta. Líklega hefur þessi látni atorkumaður orðið mörgum árum skammhf- ari sökum þeirrar hörku og kapps, sem hann lagði í mörg erfið störf, jafnt til lands og sjávar. En hann gat ekíci ann- að, og allt til hinztu stuftdar mun dugnaður hans hafa- verið óbreyttur, enda gerði hanh slík- ar kröfur til annarra, að sum- um þótti nóg um. Ég, sem þess- ar línur rita, stóð oft í starfi með Svanlaugi heitnum og minnist margra slíkra stunda, er við deildum glöðu geði yfir unnum sigrum. Þá var gaman að lifa. Ég minnist þess líka, að við deildum hart og vorum ósammála í veigamiklum mál- um, en komumst þó að lokum báðir að heppilegri niðurstöðu og erfðum aldrei slík átök, því að málefnið var okkur allt og um hreinskilni Svanlaugs þurfti aldrei að efast. Svanlaugur kvæntist ekki og eignaðist ekki afkomendur. Hann bjó allmörg seinni árin fplagsbúi með bróður slnum og mágkonu á Rauðuvík og sýndi I þeim félagsskap, svo að ekki verður um villzt, hollustu sína og frábæran vilja fyrir sameig- inlegum átökum til fram- kvæmda og hagsbóta heimilinu, rétt eins og hann ætti það allt saman sjálfur. Við fráfall slíkra manna er skarð fyrir skyldi. Með kærri þökk og kveðju — yfir hafið. Jóhannes Óli Sæmundsson. t t t SVANLAUGUR Þorsteinsson frá Litlu-Hámundarstöðum á Árskógsströnd var jarðsunginu frá Stærra-Árskógskirkju laug- ardaginn 18. september. Þar var margt fólk saman komið til að kveðja, og fleiri vildu, en áttu þess kost, og fylgja honum til grafar. Svanlaugur andaðist eftir stutta legu á Seyðisfirði hinn 8. september, 64 ára gamall, fædd- ur 1. september árið 1901. Sveitin skartaði sínum feg- urstu haustlitum við heimkomu og hinztu för Svanlaugs Þor- steinssonai-, enda hún átt fáa syni trygglyndari. Við Svanlaugur ólumst upp I sama túni, þar sem enginn garður skildi granna. Þátt hann væri allmiklu eldri, vorum við oft saman I leik og starfi. Hann var kappsfullur strax á unga aldri, ekki aðeins I leik, heldur einnig I starfi og þar nánast hamhleypa. Skapið var of mik- ið og óstýrlátt, verkefnin of mörg og stór, hvort heldur var við búskap eða sjósókn, til nosturssemi eða föndurs. Það stóð hressilegur gustur af Svan laugi, hvar sem hann fór og í hvaða starfi sem hann stóð. Áhugi hans á málum samfélags- ins var einnig mikill og stund- um var hann eins og eldhnött- ur á málaþingum. Hirti hann hvorki um mannvirðingar eða frændsemi ef skoðanir félla ekki saman og var þá bæSi flóðmælskur og harðfylginn. En hann gekk alltaf beint fram- an að mönnum og fyrirleit und- irhyggju. Þannig var hann x leik og þannig var hann I starfi alla æfi, erfði ekki deilur, en gleymdi aldrei hlýju handtaki, var hreinn og beinn, djarfur og frjálshuga, batt sína hnúta að sínum eigin geðþótta. Hann lagði sig allan fram I hverju því (Framhald á blaðsíðu 7),

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.