Dagur - 22.09.1965, Side 8

Dagur - 22.09.1965, Side 8
8 SMÁTT ÖG STÓRT Þrjár blómarósir í Skólagörðum bæjarins. (Ljósmynd: E. D.) Skólagarðamir nýju í Akureyr- a rkaupstað ljúka fyrsta starfsári sínu við almenna ánægju FYRIR nokkrum árum var stofnaður vinnuskóli fyrir börn á Akureyri, en hann varð ekki langh'fur. Nú í sumar var þessi skóli endurvakinn í öðru formi og ber nafnið Skólagarðar Ak- ureyrar. Bærinn hafði forgöngu um málið en garðyrkjustjóri bæjarins, Jónas Guðmundsson, annaðist undirbúning og yfir- stjórn. Fréttamaður Dags skrapp í skólagarðana á mánudaginn, þar sem störfum var að ljúka og ræddi um stund við börn og kennara. Skólagarðarnir eru að mestu í Gróðrarstöðinni, þar sem meira en hálfrar aldar gamall trjágróður veitir hið ákjósanlegasta skjól. Sjálf er Gróðrarstöðin opin kennslubók fyrir þá, er þangað koma. Þar var lengi eins konar garðyrkju- skóli, sem eflaust bar mikinn árangur í ræktunarmenning- unni, en lagðist því miður niður. Börnin, sem í sumar voru í Skólagörðunum, eru 10—12 ára og voru 59 að tölu, drengir að tveim þriðju. Kennarar Bald- vin J. Bjarnason og Birgir Helgason. Fyrst var ráðgert að taka aðeins 30 börn. Og þrátt fyrir nálega helmings fjölgun, varð að hafna umsóknum. Skólagarðamir hófu starf 2. júní og nú síðustu aagana er uppskeran hirt. Hvert barn fékk rúmlega 50 fermetra land sérstaklega, er síðar var skift undir ræktun garðávaxta, er börnin sjálf önnuðust. Enn- Nýja Surtsey stækkar FYRIR nokkrum dögum fóru mæiingar fram á iiýju eyjunni við Surísev. Var hun þá orðin 67 meíra há eg austurkaniur hennar 624 meírar. Þar eru sprengigos tíð og ofi mikil, en hraungos ekki. Er því varan- • leiki hennar óviss ennþá. □ fremur unnu þau mikið bæði í Gróðrarstöðinni sjálfri og úti í bæ, t. d. við Eiðsvöll og á fleiri stöðum eftir þörfum. Barnahópnum var skift í tvo flokka og vann annar fyrir há- degi og hinn eftir hádegi. — Asamt hinum ýmsu störfum voru margs konar leikir stund- aðir eftir reglum, sem kennar- ar settu þar um. Skólagarðar bæjarins eru ekki ætlaðir að vera tekjulind fyrir börnin eða heimili þeirra, heldur skóli og dvöl við holl viðfangsefni. — Þá má ekki gleyma herferð barnann gegn njólanum, sem of lengi hefur verið alinn í bænum. Þvi miður kom það fyrir í sumar, að einhverjir lögðust svo lágt að stela úr görðum barnanna, bæði káli o. fl. Er sh'kt næsta ótrúlegt, en satt engu að síður, og þrátt fyrir skugga sem þessa, hefur starf- ið veitt börnunum mikla gleði og eflaust mikinn skilning á gróðurmætti moldarinnar. Forstöðumaður og kennarar Skólagarðanna telja, að hik- laust beri að halda þessu starfi áfram og þakka forsjármönn- um bæjarins góðan skilning á máli þessu. Q GÆSAFÁR í ARNARFELLS- VERI Á síðari árum fjölgaði grágæs- um mjög hér á Iandi og var mjög kvartað um gróður- skemmdir af þeirra völdum í sumum sveitum. Samkvæmt talningu í júlí 1963 voru grá- gæsir hér á landi 19 þúsundir, fullorðnar. En um haustið það ár hafa þær eflaust verið helm- ingi fleiri. Þessar tölur eru þó mjög rengdar af ýmsum þeim, sem telja sig þekkja vel til. Nú hefur náttúran heft fjölgun gæsanna í bráð. í einni mestu gæsabyggð landsins, Arnarfells veri, fundu gangnamenn í haust flekki af dauðum gæsum. Er tal ið, að gæsirnar hafi drepist af ormaveiki, svo sem varð fyrir nokkrum árum. Fjölgun gæs- anna er því sennilega stöðvuð í ár, án aðgerða manna. □ ÚRRÆÐI TIL EFLINGAR VEÐDEILD Á Alþingi síðast liðinn vetur fluttu Framsóknarmenn frum- varp til laga um eflingu veð- deildarinnar. Var þar gert ráð fyrir, að ríkissjóður Iegði veð- deildinni til 20 milljónir króna á ári og að Seðlabankanum yrði gert skylt, að lána henni allt að 100 milljónum króna, ef ríkisstjómin óskaði þess. Jafn- framt var gert ráð fyrir, að veð- deildin gæfi út bankavaxtabréf, og að veita mætti allt að 40% af láni hverju í bankavaxta- bréfum. Lánstími allt að 40 ár- um, án afborgunar fyrstu tvö árin. Vextir allt að 4%. Fmm- varp þetta dagaði uppi, en ef að Vinnum á meðan við gelum slaðið Neskaupstað 21. september. — Hér er mikill síldarbær á ný og hv^í sem. vettlingi veldur, vinn- ur á meðan orkan leyfir. Hér hefur verið látlaus söltun síðan fyrir helgi. Aðkomufólkið er flest farið, og því færri hendur en vera þyrftu. Við fáum Ijómandi síld og er mikils um vert, að geta hagnýtt hana. T. d. er komin hér úrvalssíld í dag. — Sjóveð- ur hefur því miður ekki verið gótt og hefur veiðarfæratjón orðið nokkurt. Söltun hér mun nú orðin hátt Raímap á 12 bæií Fnjóskadat Nesí, Fnjóskadal 20. sept. Ver- ið er að leggja rafmagn heim á 12 bæi í Fnjóskadal norðan- verðum, frá Hrísgerði að Böð- varsnesi. Búið er að leggja stauralínuna og strengja vír- ana, en eftir er að setja upp spennubreyta. Vonast er til að jaessari framkvæmd Ijúki nú í haust. í þessari viku verður lokið við að setja slitlag á nýbyggðan veg milli Einbúalækjar hjá Dæli og Draílastaða. Þrjátíu Iirútar á sýnÍBgu. Hinn 16. sept. sl. var hrúta- sýning haldin í Nesi. Þar dæmdu ráounautarnir Árni Pétursson og Skafti Benedikts- son. Þrjátíu hrútar voru á sýn- ingunni og fengu 22 fyrstu verð laun. í dag lýkur öðrum göngum. V. K. í 40 þúsund tunnur. Þessi síld- arhrota núna bjargar fjárhag söltunarstöðva og margra hér á staðnum líka. Undanfarna daga hefur verið saltað á öll- um stöðvum frá Langanesi og suður úr. Það veitir ekki af að salta upp í samningana. — Hér lifa allir og hrærast í síld. Hér úti er meiri síld á stóru svæði, en áður í sumar á síld- armiðunum og það síldarleg- asta, sem verið hefur í sumar hér fyrir austan, allt upp að 35 sjómílum. Þetta er mikill mun- ur, en þegar síldin var einhvers staðar úti í „ballarhafi“. H. Ó. Saltað á Dalvík í gær Dalvík 21. september. Hár var söltuð síld í gær og hingað kom tvisvar síld til söltunar í síðustu viku. Það var Björgvin, sem í gær kom með 1000 tunn- ur og voru saltaðar 600 tunnur af farminum og síldin talin góð. Hár eru tvær söltunarstöðv- ar, Höfn og Múli voru samein- aðar i Norðurver, og hin stöð- in heitir Söltunarfélag Dalvík- ur. Báðar stöðvarnar hafa feng- ið síld, og síldarstúlkur hafa verið sóttar fram í Svaríaðar- dal og inn á Árskógsströnd, svo og menn til staría. Síldin var fljót að setja ann- an svip á staðinn. Við búumst við meiri síld og eru tunnur fluttar frá Akureyri. Sauðfjárslátrun hefst á morg- un og verður lógað hér tæplega 9 þúsund fjár. J. H. lögum yrði, væri með því, á við- unandi hátt, bætt úr brýnni þörf. f rökstuðningi sínum með frumvarpinu segja flutnings- menn m. a.: „Það er varhuga- verð þróun, að fésterkir aðilar, sem liafa ekki atvinnu af bú- skap, kaupi hlunnindajarðir einungis vegna hlunnindanna, en nýti jarðirnar Iítt eða ekki. Hins vegar sé fólki, sem hefur hug á að hefja búskap, örðugt eða jafnvel ókleift að komast yfir jarðnæði. — — Lán eru veitt til íbúðarhúsa — — og stefnt að því, að þau nenú allt að % hlutum byggingarkostnað ar, lán til verkamannabústaða eru þó mun hærri, stofnlán til fiskiskipa, sem keypt eru til landsins, nema % kaupverðs, og til skipa, sem smíðuð eru innan lands, allt að 75% kostnaðar- verðs. En sökum fjárskorts hef- ir Veðdeild Búnaðarbankans til þessa ekki veitt hærri jarðar- kaupalán en 100 þúsuúd krón- ur, og þó hefir veðfleidin ekki getað fullnægt eftirspurn lána.“ Frainsókharmenn fluttu á síðasta Alþingi tillögu til þings- ályktunar um markaðsrann- sóknir og sölustarfsemi í þágu atvinnuveganna, þess efnis, að athugað yrði milli þinga á hvem hátt efla mætti slíka starf semi og leggja niðurstöður fyr- ir næsta þing. Skyldi athugun þessi fara fram í samráði við fulltrúa atvinnuveganna. AIIs- herjamefnd sameinaðs þings mælti einrón'ia með meginefni tillögunnar, en því miður dag- aði hana uppi eins og fleiri góð mál við þinglokin í vor. f grein- argerð tillögunnar segir m. a.: „Við sendiráð flestra ríkja starfa verzlunarfulltrúar, sér- menntaðir um markaðsmál, er vinna að öflun og útbreiðslu alls konar upplýsinga.“ f ís- lenzku utanríkisþjónustunni mun lííið vera um slíkt. ÚTIGÖNGUFÉ Á VARPSTÖÐVUM SNÆUCLUNNAR Stórutungu 18. september. Nú í fyrstu göngum fundust sjö úti- gönguær á afréttum austan Fljóts. Þær voru á Laufrönd, varpstað snæuglunnar og voru bæði úr Bárðardal, Mývatns- sveit og Reykjadal. Sumar hafa gengið úti s.l. tvo vetur og skil- uðu þrem reifum, eða hluta af þeim. Ærnar voru mjög feitar og af þeim sökum bágrækar. Á Marteinsflæðum fundust 2 lömb. Þau urðu ferðamenn var- ir við í sumar. Menn búast við sæmilega vænu fé í haust og kemur það brátt í ljós. Tvær ær, mæðgur, fund- ust á Vesturafrétt og voru þær frá Litluvöllum í Búrðar- dal. Þ. J.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.