Dagur - 13.11.1965, Side 1
r ....- .....-.
Dagur
SiiVIAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
r, .. .......
Dagur
kemur út tvisvar í viku
og kostar kr. 25,00 á
man. í lausasölu kr. 4,00
Mæðiveiki á Hreimssföðum
í FYRRADAG var fénu á
Hreimsstöðum í Norðurárdal
slátrað vegna gruns um mæði-
-veiki. Reyndust 5 kindur af
fiverjum 100 með veikina, á mis
Iháu stigi.
Guðmundur Gíslason læknir
:segist vongóður um, að takast
megi að koma í veg fyrir út-
breiðslu veikinnar, þar sem
veiki þessi berizt ekki frá einni
kind til annarrar á þessu stigi,
nema við náinn samgang í húsi.
Eftirlit á „hættusvæðunum"
hefði átt að gefa til kynna ef
um útbreiðslu væri að ræða. Og
líffé hefur ekki verið selt frá
bænum síðustu árin. □
Síldarbáfur lengdur á Seyðisfirði
Látlaus bræðsla verksmiðjanna í tvo mánuði
‘Seyðisfirði 12. nóv. Hér er fullt
að gera og meira en það. Mætti
raunar segja, að hér væri allt
brjálað í annríki. Og nú er lönd
unarbið hjá báðum bræðslun-
:um, þótt þær mali dag og nótt.
Þyngsti dilkurinn
"Vopnafirði 12. nóv. Hér hefur
verið látlaus síldarlöndun síð-
ustu 3—4 sólarhringa og 5 skip
bíða. Þó losnuðum við við nokk-
ur skip í nótt og í morgun.
’Bræðslan gengur vel en slídar-
,söltun er lokið að fullu.
Þyngsti dilkurinn á sláturhús
inu í. haust, vóg 29,6 kg. Eing-
andi hans er Haukur Kristins-
;son Eyvindarstöðum. En meðal-
-vigt 14500 dilka var 14,73 kg.
’Lógað var auk þess 1000 fjár
fullorðið.
Okkur vantar hey, helzt mik-
ið af heyi. K. V.
Ofan á þetta bætast svo tíðar
útskipanir á mjöli og lysi, svo
að segja látlausar. Margir síld-
arbátar bíða löndunar. Þrátt
fyrir manneklu hafa síldaverk-
smiðjurnar gengið svo að segja
látlaust síðustu tvo mánuði.
Hér er verið, hjá Vélsmiðju
Seyðisfjarðar, að lengja vélbát-
inn Hoffell frá Fáskrúðsfirði,
sem var 140 tonn en verður
tæp 200 tonn. Þetta er víst
fyrsti stálbáturinn, sem hér á
landi er lengdur, en byrjað er
á að lengja annan fyrir sunnan.
Margir hafa hug á að lengja
báta sína, ef góð reynsla fæst af
þessu, enda krefst t. d. haust-
síldarveiðin stærri báta, svo
sem menn áþreifanlega hafa
orðið varir við síðustu árin.
Hér er snjólaust með öllu
fært um allar byggðir og yfir
heiðar og veðurblíða dag hvern.
í>. J.
ÞAÐ ER niikið um að vera á Glerárgötu meðan malbikun stendur yfir. Stórhýsið á myndinni
er liið nýja húsnæði Byggingarvöru-, Véla- og Raflagnadeildar KEA. (Ljósm.: E. D.)
SSÍ33$$$$$$S3S$$$355333SS5$3$$S53$53$$5^5SÍ33S5$$$333$33$S$$$$»$3$S$35$S$$$3355$$S$$5$$$$$$$*5$3$$$S$3333!
Lokunartínii sölubúða til um
ræðu í bæjarstjórn
REGLUGERÐ um lokunartíma
sölubúða á Akureyri hefur ver-
ið til meðferðar hjá yfirvöldum
bæjarins undanfarnar vikur.
Afstaða bæjarfógeta til breyt-
inga á kvöldsöluleyfum, sem
bæjarstjórn samþykkti í októ-
ber 1962, rekur á eftir því, að
Góð gjöf til Mattliíasarhússins
í FYRRADAG voru 130 ár lið-
in frá fæðingu þjóðskáldsins
Matthíasar Jochumssonar. Þann
■dag afhenti Jóhann Ó. Haralds-
,son tónskáld á Akureyri Matt-
liiasarfélaginu á Akureyri gjöf,
sem listaverk má teljast. Gjöf
þcssi er handskrifað eiginhand-
arafrit af lagi Jóhanns við sálm
Matthíasar „Veikur maður,
hræðstu eigi, hlýddu“.
Formaður Matthíasarfélags-
ins, Marteinn Sigurðsson veitti
gjöfinni viðtöku. Við þetta tæki
færi fórust Jóhanni Ó. Haralds-
syni m. a. svo orð:
—-------„Hér á Sigurhæðum
eyddi skáldjöfurinn, Matthías
Jochumsson, allmörgum síðustu
Fimm bátar með línu
Skagaströnd 12. nóv. Húni fór
sinn fyrsta róður í dag, en ann-
ars eru hér gerðir út 2 minni
þilfarsbátar og 3 trillur. Aflinn
er lítill, ofurlítill reitingur þeg-
ar bezt lætur.
Hér er vorblíða og léttir hún
mönnum lífið. H.
æviárum, svo að staðurinn
hlaut af landsfrægð. — Héðan
horfði hann — sem úr Hlið-
skjálf — hátt ofar glaumi og
dægurþrasi samtíðarinnar — og
gaf þjóð sinni einstæð, ódauð-
leg trúarljóð.
Megi þetta hús vera, ásamt
Matthíasarkirkju, helgastur
staður þessa bæjar við vorn
blessaða Eyjafjörð. — Ég bið,
að sá drottinn, er gaf þjóð vorri
á neyðartímum trúar-skáldsnill-
inginn, Matthías Jochumssoh,
verndi og blessi þenna stað um
ár og aldir.“ □
endurskoðun reglugerðarinnar
fari fram.
í haust kaus bæjarstjórn
neínd manna til að semja nýja
reg’ugerð, sem síðar yrði iögð
fyrir stjórn bæjarins og ráð-
herra til staðfestingar. Nefnd-
ina skipa, auk . bæjarstjóra,
Magnúsar E. Guðjónssonar, Sig
urður Óli Brynjólfsson, Gísli
Jónsson, Ingólfur Árnason og
Sigurður M. Helgason, settur
bæjarfógeti. Nefndin hefur skil-
að áliíi, sem bæjarstjórn tók til
fyrri umræðu á fundi sínum sl.
þriðjudag. Samþykkt var að
leita álits Félags skrifstofu- og
verzlunarfólks, kaupmannasam-
takanna og kaupfélaganna.
í hinr.i nýju reglugerð, sem
tekur til hverskonar smásölu-
verz’ana á Akureyrl, að undan-
skyldum lyfjabúðum, benzín-
sölu að því er sneríir sölu á
benzíni og olíum og blaðsölu á
götum, kveður m. a. á um, að
sölustaði megi opna kl. 8 að
morgni og þeim sé lokað eigi
Framhald á blaðsíðu 7.
Fjörutíu [lúsund mál
til Raufarbafnar
Raufarhöfn 12. nóv. Frá því í
fyrrakvöld og þangað til nú í
kvöld komu hingað nálega 40
þús. mál síldar og fleiri skip eru
á leiðinni. Þau eru 13—15 klst.
á leiðinni af miðunum.
Síldarverksmiðjunni var start
að í fyrradag og þrátt fyrir of
lítinn mannskap, vinnur verk-
smiðjan með fullum afköstum.
í allan dag hefur verið landað
með öllum löndunarkrönunum.
í gær og nótt var lokið við að
steypa þak hins nýja félagsheim
ilið okkar. H. H.
Jóhann Ó. Haraldsson með hin fögru nótnablöð. (Ljósm.: B. B.)
TVEIR Akureyrartogaramir,
Svalbakur og Kaldbakur liggja
nú bundnir við hafnarbakkann
og losna ekki þaðan fyrr en
verkfalli yfirmanna togaraflot-
ans lýkur.
Sléttbakur, sem seldi í Grims
by 96,6 tonn fyrir 10315 punj
og Harðbakur, sem var í sölu-
ferð, eru báðir á heimleið. Um
helgina er togaraútgerð Akur-
eyringa alveg stöðvuð, ef ekki
hafa tekizt sættir í kjaradeil-
unni.
Hraðfrystihús Ú. A. hefur
fryst nálega 170 tonn af síld í
haust, siðast úr Snæfelli, Súl-
unni og Sigurði Bjarnasyni, sem
lögðu afla sinn að öðru leyti
upp í Krossanesverksmiðjunni.
FORST I BILSLYSI
A MANUDAGINN varð það
slys að bíll með tveimur mönn-
um fór út af veginum við Alftá
á Mýrum og lenti á livolfí í ána.
Þar urðu þau Iiörmulegu tíð-
indi, að nítján ára piltur frá Ak-
ureyri, Pétur Þórsson, sem var
farþegi, lét lífið. Hann verður
jarðsunginn frá Altureyrar-
kirkju í dag. □