Dagur - 13.11.1965, Page 8
8
EKKI ER RÁÐ NEMA I TÍMA SÉ TEKIÐ. Ilér eru ungir menn að undirbúa áramótabrennu
á Hannesar-klöpp. (Ljósmynd: E. D.)
Sl
sru
Ssbóndi
inn
eftir Björgvin Guðmundsson frumsýndur sl.
fimmtudagskvöld - Leikstjóri Ágúst Kvaran
SMÁTT OG STÓRT
f FYRRAKVÖLD frumsýndi
Leikfélag Akureyrar sjónleik-
inn Skrúðsbóndann eftir Björg-
vin heitinn Guðmundsson tón-
skáld, í tilefni að 75 ára afmæli
hans á þessu leikári. Húsið var
þéttskipað áhorfendum, sem
tóku leiknum mjög vel. í leiks-
lok ávarpaði formaður L. A.,
Jón Kristinsson leikhúsgesti
nokkrum orðum, síðan kallaði
hann ekkju höfundar, frú Hólm
fríði Guðmundsson upp á svið-
ið, og þar var hún hyllt.
Skrúðsbóndinn kom út á Ak-
ureyri árið 1942 en hafði ári
fyrr verið sýndur á leiksviði hjá
L. A. og hlotið hinar beztu við-
tökur. Leikritið er í raun og
veru prédikun um gamla þjóð-
sögu, sem í sjálfu sér er dulúð-
ug og harmþrungin.
Um leikritið segir séra Benja-
mín Kristjánsson í leikskrá:
„Skrúðsbóndinn er hin ís-
í KVÖLD (laugardag) efnir
Ungmennasamband Eyjafjarðar
til skemmtunar í Laugarborg
fyrir unglinga á aldrinum 14 til
21 árs. Hljómsveitin Comet leik
F.U.F. FÉLAGAR
AKUREYRI
F y r s t i kvöldverðarfundur »
vetrarins verður að Hótel »
KEA sunnudaginn 14. nóv. S
og hefst kl. 7 e. h. «
SIGURÐUR ÓLI BRYNJ- |
ÓLFSSON, bæjarfulltrúi, «
ræðir um bæjarmál. ||
Þátttakendur hafi sam- 2?
band við Karl Steingrímsson
eða Þórarinn Magnússon fyr- 4?
ir hádegi í dag (laugardag). >2
Stjóm F.U.F., Akureyri. þ
lenzka þjóðsaga sett á leiksvið
(líkt og Skuggasveinn Matthías
ar og Nýjársnóttin eftir Ind-
riða). Við áhorfandanum blasir
íslenzk náttúrufegurð, og svo
kemur ævintýrið með sínum
óteljandi blæbrigðum, þjóðtrú-
in kynngi mögnuð með forynj-
um og bergþursum, dísum og
hollvættum. En í dýpra skiln-
ingi er þetta leikurinn um
mannssálina.
Marmssálin (Heiður) stendur
andspænis tvíræðum veruleika
lífsins (Skrúðsbóndanum), sem
með alvísri Janusar-ásjónu get-
ur snúizt á ýmsan veg. Goðkynj
aðir kraftar strengja örlagaþræð
ina frá hæðum og lægðum sálar
lífsins, en þeir eru sýndir með
fulltrúum þjóðsögunnar: norn-
inni Grímu, sem er illvætt,
ásamt árum undirdjúpanna, og
hinni mildu heilladís (ókunnu
konunni), sem er tákn þeirrar
ur fyrir dansi og kunnur dans-
kennari frá Reykjavík, Bára
Magnúsdóttir sýnir listdans og
jassballett. Hafa sýningar henn-
ar vakið mikla hrifningu á
skemmtunum fyrir sunnan.
Hver aðgöngumiði gildir sem
happdrættismiði og á miðnætti
verður dregið um tvo góða vinn
inga.
Sú ákveðna regla gildir um
samkomugesti að þeir séu
snyrtilega klæddir og meðferð
áfengis verður algjörlega bönn-
uð. Verður þeim reglum vand-
lega fylgt.
Þess er að vænta að ungt
fólk kunni að meta þá viðleitni
Ungmennasambandsins, að
halda. uppi menningarlegu
skemmtanalífi, og sanni það
með því að fjölmenna á þessa
samkomu og sýna þar prúð-
mennsku og sanna æskugleði.
(Fr éttatilkynning )
guðsraddar, sem hvíslar hug-
hreystingar- og hvatnir.garorð-
um, þegar komið er út á refil-
stigu örvæntingar og sorgar.
Mannssálin er sýnd í gervi
yndislegrar ungmeyjar. Á píla-
grímsgöngu sinni frá þessum
heimi til hins komandi hlýtur
hún að komast í marga raun og
vanda. Hana hendir að vonum
ýmisleg slys og óhöpp, þegar
hún reynslulaus og fávís eltir
hillingar gleðidrauma sinna,
sem oft reynast hégómi og tál.
En lífsþorstinn knýr hana út á
flugstigu freistinga og synda,
fram á glötunarbarm, gegmim
þjáning og örvænting.
Fyrir löngu hefur hún glatað
þeirri viðkvæmu samvizku
(Hjálmar), sem af ótta við glöt-
unaröflin heldur sér dauðahaldi
í altarishornið og lærir því
Framhald á blaðsíðu 2.
MYRKUR f SMÁBÁTAHÖFN
Fyrir tveim dögum lá lei'ð frétta
manns út að smábátahöfninni
á Oddeyri. TriIIukarlarnir voru
þá að koma að landi með afla
sinn, heldur rýran þann dag-
inn, en kærkominn þó í fisk-
leysinu. En hvers skyldu þessir
menn annars gjalda, að báta-
bryggjan var nálega ljóslaus,
svo vinna þurfti í myrkri?
ÁSGRÍMUR GEKK Á LAND
Ásgrímur sá, er Grímseyingar
gerðu afturreka á dögunum, er
nú kominn þangað á ný og nú
með fógetabréf í vasanum. En
samkvæmt því eiga eyjaskeggj-
ar ekki að fara í manngreining-
arálit þegar nýja innflytjendur
ber að garði. En um það mál
vildu forsvarsmenn Grímseyjar
vera atkvæðisbærir og ráða
málum sjálfir. Stundum brýtur
■nauðsyn lög.
BÚVÖRU-ÁHYGGJUR
Ýmsir ráðamenn hafa áliyggjur
af útflutningi búvara og útflutn
ingsuppbótum, sem greiddar
eru, einkum á mjólkurafurðir,
sem eru í mjög lágu verði er-
lendis. Og auðsætt er, að í sam-
bandi við útflutning, er réttara
að auka sauðfjárrækt en mjólk-
urframleiðslu. Hins er svo að
gæta, að í slæmu ári getur
mjólkurframleiðslan o r ð i ð
minni en hún er nú. Framtíðin
skiptir þó mestu máli. Á undan-
förnum 20 árum hefur íbúum
landsins fjölgað um 49%. Ef
gert er ráð fyrir sömu fjölgun
næstu 20 árin, verða íslending-
ar þá orðnir 90 þús. fleiri en þeir
eru nú. Þetta svarar til þess, að
risin væri í landinu ný Reykja-
vík, nýr Kópavogur og nýr
Hafnarfjörður. Skammt myndi
sú landbúnaðarframleiðsla, sem
nú er, hrökkva til að metta all-
an þann fjölda. Það íekur tíma
að rækía land, koina upp bú-
fénaði og húsum yfir hann,
nauösynlegum vélum o. s. frv.
Kyrrstaða í landbúnaðinum um
árabil getur orðið þjóðinni erf-
iðari en útflutninguppbætur
öðru hverju.
JAFNVEL FISKINN VERÐUR
AÐ VERÐBÆTA
Það er margt í þessu landi, sem
ekki er hægt að selja erlendis á
framleiðslukostnaðarverði í
þeirri sívaxandi dýrtíð, sem
þjóðin býr við. Þó að hér séu
einhver beztu fiskimið í heimi,
eru nú jafnvel greiddar verð-
uppbætur á sjávarafurðir, og
hefur áður verið gert. Margar
iðnaðarvörur, sem framleiddar
eru innanlands, eru dýrari en
erlendar vörur. Húsnæði er dý'rt
hér. Samt verður þjóðin að
byggja yfir sig og nota sínar
vörur. Það er ekki liægt að
flytja allt inn, þótt einhvers-
staðar kunni að fást ódýrari
vara. Dýrtíðarskaítinn verður
að greiða. Margir eru þeir, sem
lítinn eða engan þátt taka í
beinni eða óbeinni sköpun nauð
sjnja eða gjaldeyris. En allir
verða að hafa lífsframfæri sitt
af þjóðarbúinu á einhvern hátt.
Ýmsir mætir menn hafa haft
trú á því, að a. m. k. sauðfjár-
afurðir gætu aftur orðið útflutn
ingsvara, sem um munar í van-
nærðri veröld.
VERÐBÆTUR BÚVARA
Stjórnarblöðin fullyrða, jafnvel
þingmenn stjómarflokkanna
líka, að útflutningsuppbætur
búvara liafi verið teknar upp
„undir viðreisn" og hafi ekki
áður verið. Þetta er rangt, því
árið 1956 var það Iögákveðið, að
bændur fengju útflutningsbæt-
ur hliðstæðar sjávarútvegi. Þá
var einnig heimild í Iögum, að
bæta því við innanlandsverð bú
vara, sem vantaði á útflutnings-
verðið. Þessi heimild var no'tuð.
FuIIyrðingar þessar eru því al-
gerlega úr lausu lofti gripnar.
SKRÍTIN RÖK
í umræðum á Alþingi hefur
mjög verið rætt um verðbólg-
una. Sýnt var fram á, að á 29
mánuðum vinstri stjórnarinnar
hefði framfærslukostnaður auk-
izt um 11 þús. krónur, miðað
við meðalfjölskyldu, en á síð-
ustu 29 mánuðum um 30 þús.
krónur. Þetta var erfiður biti
fyrir stjómarflokkana, sem
(Franihald á blaðsíðu 4.)
I Skyndihappdrætti
I FramsóknarfL
1 NÚ ER AÐEINS VIKA þar
til dregið verður um þrjár
X glæsilegar bifreiðir. Kaupið
x miða á útsölustöðum víðs-
% vegar um bæinn. Þeir sem
fengið hafa heimsenda miða
4 eru vinsamlegast beðnir að
4 gera skil á skrifsíofuna,
f Hafnarsíræti 95, nú þegar.
x Skrifstofan er opin í dag,
f laugardag kl. 10—12 f. h.
X aðra daga kl. 2—6 s. d.
Þórey Aðalsteinsdóttir og Marinó Þorsteinsson í hlutverkum sín-
um í Skrúðsbóndanum. (Ljósm.: Eðvarð Sigurgeirsson.)
Unglingaskemmfun í Laugarborg