Dagur - 04.12.1965, Side 1
Dagur
SiivIAR:
11166 (ritstjóri.)
11167 (afgreiðda)
r, - ■ ■
Dagur
kenuir út tvisvar í viku
og kostar kr. 25,00 á
mán. í lausasölu kr. 4,00
FRÁ BÆJARSTJÖRN
Tunnuverksmiðjan.
Bæjarráð samþykkir að
Tunnuverksmiðja ríkisins verði
látin fá lóð undir tunnugeymslu
norðan við verksmiðjuna, enda
er geymslan eins vel staðsett
þar samkvæmt úrskurði verk-
fræðings. Bæjarráð mælir ein-
dregið með því við Atvinnu-
leysissjóð, að Tunnuverksmiðj-
unni verði veitt ián til að byggja
tunnugeymslu, en áætlað er, að
sú framkvæmd kosti um 3 millj.
kr. Bæjarráð skorar á stjórn
Tunnuverksmiðj a ríkisins, að
Tunnuverksmiðjan á Akureyri
verði starfrækt í vetur eins og
undanfarin ár.
.Guðlaugsson og yfirlæknir hand
læknadeildar, Guðmundur Karl
Pétursson, til að gera bæjarráði
grein fyrir undirbúningi viðbót-
arbyggingar við FSA.
Talið er nú, að væntanleg við
bygging þyrfti að vera ca. 14.000
rúmmetrar að stærð.
Bæjarráð leggur til, að stjórn
FSA starfi áfram að undirbún-
ingi máisins. Verði við það mið-
að, að unnt verði að hefja bygg-
ingaframkvæmdir á árinu 1967.
Ennfremur verði þess farið á
leit við fjárveitinganefnd Al-
þingis, að tekið verði upp á fjár
lög 1966 byrjunarframlag til
byggingarinnar ekki lægra en
3 millj. króna.
Fjórðungssjúkrahúsið.
Á fundinum mættu formaður
stjórnar FSA, Eyþór H. Tómas-
son, framkvæmdastjóri, Torfi
FANNST ORENDUR
HARALDUR Hallsson frá Stein
kirkju í Fnjóskadal, vistmaður
á Kristneshæli, fannst örendur
á fiatlendi skammt norðvestan
við Laugaland í Ongulstaða-
hreppi sl. þriðjudagskvöld.
Hann var um fimmtugt, heilsu-
veill um árabil. Hann mun hafa
ætlað að Laugalandi og hafði
fjarvistarleyfi. Q
Námsfíokkar.
Bæjarráð samþykkir að fela
Jóni Sigurgeirssyni, skólastjóra
og Þórarni Guðmundssyni,
kennara að veita forstöðu Náms
flokkum Akureyrar.
Kosið í Laxárvirkjunarstjórn.
Kosnir voru í Laxárvirkjunar
stjórn af bæjarstjórn:
Arnþór Þorsteinsson, Jón G.
Sólnes og Björn Jónsson, en til
vara Stefán Reykjalín, Árni
Jónsson og Þorsteinn Jónatans-
son. Arnþór var kosinn formað-
ur Laxárvirkjunarstjórnar og
Stefán Reykjalín varaformaður.
AUKIN UMFERÐARMENNING
ER NAUÐSYNLEG
Sendirinn er kominn
Á FIMMTUDAGINN hófst
vinna við uppsetningu mjög öfl-
ugs sjónvarpssendis, sem rík-
isútvarpið fékk lánaðan hjá
sænska sjónvarpinu og lætur
setja upp á Vatnsendahæð.
Ollu sjónvarpsefni verður í
framtíðinni útvarpað frá Vatns
endahæð. Á meðan tilraunasjón
varpið fer fram, er aðeins um
„kyrrmyndir“ að ræða. Hins
vegar er búizt við að útsending
ar á dagskrám hins íslenzka
sjónvarps hefjist e. t. v. í vor.
Sjónvarpstæki þau, er nú eru
í notkun í landinu, henta ekki
fyrirhuguðu „kerfi“ íslenzka
sjónvarpsins og þarf því að
breyta þeim mjög mörgum.
Engin ákvörðun mun hafa
Skarðsbók slegin fyrir
G J
fyrir 4,3 milljónir kr.
FYRR í þessari viku var á bóka
uppboði í London, Skarðsbók
seld fyrir 4.3 millj. ísl. króna.
Kaupandi var fornbóksali að
nafni T. Hannas. Líklegt er tal-
ið, að öflugir aðilar standi að
baki bókakaupum þessum,
hvort sem þeir aðilar eru ís-
lenzkir eða ekki. □
verið tekin um það hjá íslenzk-
um stjórnarvöldum, hvort
þrengt verður svið hermanna-
sjónvarpsins, eins og það upp-
haflega var, og þá miðað við
varnarliðsmenn eina, sem not-
endur hins erlenda sjónvarps.
HÉR Á LANDI munu nú vera
35 þús. bifreiðir. Á síðasta ári
lenti þriðja hver bifreið í
árekstri eða öðrum slysum.
Tjón af völdum bifreiða á því
ári er talið hafa numið um 100
millj. kr. í bifreiðaslysum láta
sumir líf sitt, aðrir verða ör-
kumla. Sorgir vegna slysa og
manntjóna eru hinir dimmu
skuggar umferðarinnar, auk
hins gífurlega eignatjóns. Hér á
Akureyri liggur hættan í leyni
á degi hverjum. Stundum sýn-
ist vart hægt að komast hjá
slysi, atvikin geta hagað því svo.
En þegar maður virðir fyrir sér
umferðina kemur í Ijós, að dá-
lítill hópur ökumanna flýtir sér
að jafnaði of mikið á kostnað
öruggs aksturs, er m. ö. o.
háskalegur í umferð. Sumir í
Innfluftar og úffluffar vörur
VERZLUNARSKÝRSLURNAR fyrir árið 1964 eru nýkomn-
ar á prenti frá Hagstofunni, en þær fjalla um uíanrikisverzl-
un íslendinga á því ári, og er þar um mikinn fróðleik að
ræða. Útflutningur og innflutningur hefur verið sem hér
segir undanfarin sjö ár, tekinn í milíjónum króna á núver-
andi gengi. Innflutningur Útflutningur
Árið 1958 2825 millj. kr.
Árið 1959 .... 3818 milli. kr. 2799 millj. kr.
Árið 1960 .... 3773 millj. kr. 2874 millj. kr.
Árið 1961 .... 3228 millj. kr. 3075 millj. kr.
Árið 1962 .... 3837 millj. kr. 3628 millj. kr.
árið 1963 .... 4717 millj. kr. 4043 millj. kr.
Árið 1964 5636 millj. kr. 4776 millj. kr.
Arið 1964 voru fluttar út sjávarvörur íyrir 4330 milli. kr.
og landbúnaðarvörur fyrir 293 millj. kr. Talið er að verð-
hluífall útfluttra og innfluttra vara hafi breytzí um 6% land-
inu í hag á árinu.
Þyngd innfluttra vara var 764 þús. tonn á árinu og út-
fíuítra vara 437 þús. tonn.
þessum hópi eru ungir, aðrir
eldri. En staðreyndin er a. m. k.
sú, að slysum fjölgar hér í bæn-
um. Um það vitna tölur þessar
frá bæjarfógetaembættinu:
Bifreiðaslys og tjón, sem lög-
reglan á Akureyri hefur fengið
vitneskju um undanfarin ár:
1959
1960
1961
1962
1963
1964
1965
(til 27./11.)
106
181
195
266
397
385
412
Tölur þessar benda til óheilla
þróunax-, sem verður að snúa
við, hvaða fjái-muni, sem það
kann að kosta.
Umferðarvikan er til þess að
vekja athylgi á staðreyndum
þessai-a mála, kynna lög og regl
ur og fá almenning til að hugsa
um umfei-ðarmálin og gera sitt
til að færa þau til betri vegar.
Bifreiðaeftirlitið gerði gang-
skör að því hluta úr degi 1. des.,
að athuga ljósaútbúnað bifreiða.
Sú athugun leiddi í Ijós, að á
fjórða tug ökutækja var ljósa-
búnaði ábótavant. \J
MUNIÐ HÆTTUR
MYRKUR-
UMFERÐARINNAR!
GÓÐUR ökumaður ekur1
alltaf eftir aðstæðum, hægt
| í myrkri og vondu skyggni,
! í hálku, á hættulegum beygj-
| um og blindhæðum, en hratt
I þegar greið er leiðin. Hann
| hlýðir umferðarreglum, einn
: ig þeim óskráðu, stendur
ekki ófrávíkjanlega á sínum
rétti, því að hann veit, að
hinn eini sanni „réttur," —
skylda hvers ökumanns, er
að forða slysum og tjóni.
Slæmir ökumenn aka ekki
eftir aðstæðum. Það eru þeir
sem fyrst og fremst gera um-
i ferðina erfiða og hættulega.
Þar eiga og sökina ólöghlýðn
ir, kærulausir og ögrandi
gangandi vegfai-endur. Akur
eyringar! Verið tillitssamir í
umferðinni. Gætið bróður og
systux-.
Bindindisfélag
ökumanna.
Kjarðdómsúrskurður 7% hækkun
SÍÐDEGIS á þriðjudaginn kvað
Kjaradómur upp úi-skurð um
launakjör ríkisstax-fsmanna,
Meirihluti dómsins dæmdi
starfsmönnunum 7% kauphækk
un og ákveð jafnframt litlar
færslur starfshópa milli launa-
flokka. Fulltrúar ríkisvalds og
BSRB í dómnum skiluðu sér-
atkvæðum.
Megn óánægja ríkir með úr-
skui-ðinn, enda meix-ihluti starfs
manna með lægri laun en Hag-
stofan telur lágmark að lifa af.
Opið til klukkan
f jögur í dag
t ÐAG verða sölubúðir opnar
til kl. 4, til kl. 6 á laugardaginn
kemur og til kl. 10 laugardaag-
inn 18. desember. Á Þorláksdag
verður opið til kl. 12 á miðnætti.