Dagur - 04.12.1965, Blaðsíða 8
8
SMÁTT OG STÓRT
.*&
Oft er barizt af hörku í handknattleiknum. Frá Haustmóti í handknattleik, sem lýkur nú um
helgina í Rafveituskemmunni á Akureyri. Baldvin Þóroddsson, KA, í dauðafæri, en Samúel og
Baldur, Þór, grípa báðir í handlegg hans. — Á minni myndinni ver markv. KA, Ámi Sverris-
son. I dag, laugardag, fer fram úrslitaleikur í meistarafi. karla milli ÍMA og KA. Ljósm.: H. T.
Talað yfir tómum sætum á Al-
þingi um fjármál þjóðarinnar
ÖNNIJR umræða um fjárlaga-
frumvarpið nýja fór fram á Al-
þingi í fyrradag. Lauk umræðu
á kvöld- og næturfundi og voru
þá flestir þingmenn búnir að
yfirgefa þinghúsið. Sagt er, að
einn ráðherra og fimm aðrir
þingmenn hafi uppi staðið og
rökrætt frumvarpið.
Eins og kunnugt er, er fjár-
lagafrumvarp þetta aðeins ein
varða á þeirri leið verðbólgu,
eyðslu og minnkandi fram-
kvæmda, sem allir óttast og
vita ei hvar lendir eða endar.
GÓÐUR AFLI HÚSA-
VÍKURBÁTA
Húsavík 3. des. Hér er róið dag
hvern sem á sjó gefur og er afli
mjög sæmilegur. Haustaflinn er
meiri að þessu sinni en 2—3
fyrirfarandi haust.
Þungfært er um héraðið
vegna snjóa. Mjólkurbílar hafa
þó komizt leiðar sinnar, þótt
ferðir þeirra hafi stundum tek-
ið langan tíma. Q
UNGUR MAÐUR
HÆTT KOMINN
UNGUR MAÐUR frá Akureyri,
Jón Karlsson, sem var í vinnu
við síldarbræðsluna á Reykar-
firði var fluttur meðvitundar-
laus til Akureyrar í fyrrakvöld.
Þau atvik lágu til, að pilturinn
var sendur til að færa til síld í
þró þar eystra. Strax og hann
kom niður í þróna leið yfir
hann. Tryggvi Helgason flug-
maður sótti sjúklinginn, sem var
kominn til fullrar meðvitundar
í gærmorgun, en mun hafa ver-
ið hætt kominn. □
Framsóknarmenn hafa lýst
því yfir á Alþingi, að þeir gerðu
þá kröfu eina í þessum umræð-
um, að staðið verði við gefin
loforð um þá fjárveitingu ríkis-
sjóðs til veganna, sem um var
samið 1963, og nú á að svíkja,
(Framhald á blaðsíðu 5)
Giff betra í umferð en fráskilið
GIFT FÓLK stendur sig miklu
betur í umferðinni heldur en
fráskilið fólk eða einhleypingar.
Dánartalan af umferðarslysum
er þrisvar sinnum hærri hjá frá
skildu en giftu fólki, samkvæmt
skýrslum sem lagðar voru fyrir
ráðstefnu í Alexandríu á dög-
unum.
Dauðaslys af völdum umferð-
ar lúta sömu líffræðilegu og fé-
lagslegu lögmálum í öllum lönd
um. Mest er það ungt fólk, sem
fer$t í umferðinni. Umferðar-
slys eru algengasta dánarorsök
á aldrinum 15—24 ára í öllum
löndum sem hafa teljandi bíla-
umferð.
Yfir 100.000 manns iáta árlega
lifið í umferðarslysum. Með
bættri hjálp á slysstað og bætt-
um flutningum á sjúkrahús
væri hægt að bjarga lífi 20 af
hundraði þessara manna eða um
20.000 mannslífum, að áliti sér-
fiæðinganna í Alexandríu.
Árið 1962 lét maður lífið
þrettándu hverja mínútu í
Bandaríkjúnum af völdum um-
ferðarslysa. Samkvæmt brezk-
um og bandarískum skýrslum
má gera ráð fyrir að á móti
hverju dauðaslysi komi 40
meira eða minna slasaðar
manneskjur. Tjón vegna
skemmda á farartækjum og
tekjumissis nam í Bandaríkjun-
um 5300 milljónum dollara (um
228.000 milljónum ísl. króna)
árið 1958.
Gerðar hafa verið alltof fáar
rannsóknir á orsökum umferðar
slysa. Áfengi, eiturlyf, þreyta og
skortur á eftirtekt eru meðal
orsakanna. En hve mikilvægar
eru þessai' orsakir, og hvernig
er bszt að stemma stigu við
þeim?
Eftirlit með ökuskírteinum
verður að vera strangara, og
herða verður á heilbrigðiskröf-
um. Eins og stendur eru yfir
100 milljón bilar í heiminum, og
fjöldi þeirra fer ört vaxandi. í
iðnþróuðum löndum verður
dánartalan af völdum umferðar
slysa hærri með hverju ári. □
- V‘h»-
TVÖ ÞÚS. MILLJÓNA
AUKNING
Útflutningsíölur þær, sem fyrir
liggja og birtar eru á öðrum
síað í blaðinu, bera það með
sér, að úíflutningsverðmætið
hefur aukizt um nálega 2000
miilj. kr. eða 70% á fimm árum.
Þessi gífurlega aukning útflutn-
ingsverðmæta byggist fyrst og
fremst á hinum vaxandi sjávar-
afla, en einnig á því, að verðlag
sjávarvara hefur farið hækk-
andi erlendis á þessu tímabili.
Hin mikla áukning er undir-
staða peningaveltunnar og gjald
eyrisinneignarinnar erlendis, og
stendur ekki í neinu sambandi
við óheillastefnu þá, er hér lief-
ur ríkt í stjómmálum á sama
tíma.
Sá þáttur efnaliagslífsins, sem
viðreisnarstjómin tók að sér að
sjá um, þ. e. að halda stöðugu
verðlagx, hefur mistekizt, svo að
ekki sé meira sagL Það er m. a.
til marks um stjómleysið í land
inu, að útflutningsframleiðsl-
una skortir vinnuafl en dýrmæt
um vinnukrafti er sóað í þágu
ófrjórrar gróðahyggju og prjáls
á ýmsum sviðum.
INNFLUTT SKIP
Inn voru fiutt á árinu 1964 3
vöruflutningaskip og 34 fiski-
skip. Af fiskiskipunum vom að-
eins 3 tréskip en 31 úr stáli.
Minnsta fiskiskipið var 109 br.
rúml. tréskip, en stærð stálskip-
anna var 193—338 br. rúmlestir.
Allt voru þetta nýsmíðuð fiski-
skip og flest flutt frá Noregi,
en þó einnig frá Hollandi, Aust-
ur-Þýzkalandi, Bretlandi, Sví-
þjóð og Danmörku.
Samanlagt innflutnmgsverð
þessara 34 skipa var 379 millj.
kr., að því er talið er. En rúm-
lestatala þeirr er 7928. Stærsta
Skipið, Reykjaborg, er frá Nor-
egi, 338 rúmlestir og kostaði um
17 millj. kr.
Þessi nýju, stóru skip hafa
flest eða öll stundað síldveiðar
í Austurdjúpi nú í ár.
BÆNDUM LANDSINS
FÆKKAR
Búnaðarskýrslur Hagstofunnar
1961—1963 eru nýkomnar út.
Vegirnir voru sæmilegir í gær
TIL REYKJAVÍKUR var í gær
greiðfær leið bifreiðum og snjó-
lítið frá Blönduósi.
Til Húsavíkur er einnig sæmi
lega fært og Vaðlaheiði farin
því illfært er um Dalsmynni.
Dalvíkurvegur var ruddur, svo
og Svaibarðsstrandarvegur og
allt til Grenivíkur.
Tíl Mývatnssveitar er þung-
fært, einkum í Reykjadal fram-
anverðum, svo og á köfium um
Mývatnssveit. Bárðardalur er
þungfær mjög.
Yfirleitt hafa samgöngutrufl-
animar orðið minni en vænta
máíti í svo löngum hríðar-
kafla.
Snjór er mjög laus og geta
leiðir teppst á skammri stund
ef hvessir. (Samkv. uppl. vega-
verkstjórans á Akureyri). □
BREZKA HEKLA TIL
AKUREYRAR
N Ý T T hafrannsóknarskip,
Hekla, hið áttunda skip með því
nafni í brezka flotanum, kemur
til Akureyrar á mánudaginn og
verður almenningi til sýnis. Enn
fremur mun verða boð inni fyr-
ir ýmsa borgara.
Hekla er 2800 tonn að stærð,
aðeins þriggja mánaða gamalt
skip, og á að stunda rannsóknar
störf í þágu fiskveiða og flotans,
enda útbúið aðstöðu fyrir 7 vís-
indamenn. Skipherra er G. P. D.
Hall. Skipið kom til Reykjavík-
Þar er m. a. samanburður á
bændatölu í sýslum landsins
1957, 1960 og 1963 og er talan.
fundin efíir sömu reglum öll ár
in, segir Hagstofan. Bændatal-
an er þessi:
Árið 1957 voru bændur 6249
— 1960 — — 5929
— 1963 — — 5560
Á félagsbúi er öll árin talinn
einn bóndi í skýrslu þessari. —
Það leynir sér ekki á þessum
tölum, að bændum fækkar í
landinu.
Fyrir einu eða tveimur árum
mótmælti núverandi landbún-
aðarráðherra því harðlega á AI
þingi, að bændum hefði fækkað
í sinni ráðherratíð! Þrætti hann
um þetta atriði við formann
Stéttarsambands bænda, sem
þá sat á þingi sem varamaður.
Þá, sem þræta fyrir aukningu
verðbólgunnar, munar vissu-
lega ekki um að neita því, að
bændum fækki.
VONIRNAR BREGDAST
Von ýmissa manna um, að nýja
fjármálaráðherranum myndi
takast að jafna greiðsluhalla
fjárlaga án nýrra skatta er því
miður að engu orðin, enda von
sú alltaf veik, þrátt fyrir skrum
Morgunblaðsins í sambandi við
ráðherraskiptin.
Hinir nýju skattar eru nú að
koma til meðferðar í þinginu,
hver af öðrum. Farmiðagjalda-
frumvarpið er þó enn ekki kom-
ið fram, en um það hafa orðið
niiklar umræður bæði manna í
milli og í blöðum.
ALLIR — NEMA SKÓLA-
STJÓRINN
Um það Ieyti er kennsla hefst í
Iðnskólanum, fjölgar bílum úti
fyrir Húsmæðraskólanum, þar
sem bókleg fræði Iðnskólans
eru kennd. Þangað koma allir í
bíl, og liðin sú tíð, sem áður
var, þegar iðnemar komu hlaup
andi, móðir og másandi í tíma
— já, allir nema skólastjórinn,
sem ýmist er gangandi eða á
hjóli, enda flestum léttari í
spori.
HLUTDRÆGNI EÐA HVAÐ?
Það er venja þegar út eru gefn-
ar fréttatilkynningar, sem birt-
ast eiga í bæjarblöðunum, að
þær séu sendar blöðunum sam-
tímis. „Umferðarvikan“ hefur
brugðið út af þessari sjálfsögðu
venju — sendi Degi í gær
greinarkom, sem hún hafði
tveim dögum áður sent öðra
bæjarblaði. Slík vinnubrögð
fara umferðamefnd ekki betur
en öðrum.
EMBÆTTISMANNASKIPTI
IIÉR?
Lausafregnir herma, að innan
skamms verði bæjarfógeta-
skipti á Akureyri. Friðjón
Skarphéðinsson sýslumaður Ey-
firðinga og bæjarfógeti á Akur
eyri muni hverfa að hæstarétt-
ardómaraembætti, en við emb-
ætti hans hér taka Jónas G.
Rafnar alþingismaður — og
muni þetta fyrir löngu ákveðið
á bak við tjöldin.