Dagur - 11.12.1965, Qupperneq 1
r'" .... - 1 ■?
Dagur
SÍMAR:
_11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
r, ..... —....... ?
Dagur
kemtir út tvisvar í viku ,
og kostar kr. 25,00 á ,
nián. í lausasölu kr. 4,00 j
^------ ‘j
Ráðherra geri lireint
fyrir sínum dyrum
EF ÞAÐ er fastur ásetningur
ríkisstjómarinnar, eða ráðherra
hennar, seni nú fara með æðstu
völd, að streitast við að sitja
Landleiðir eru erfiðar
vegna snjóa
SAMKVÆMT upplýsingum
Guðmundar Benediktssonar
vegaverkstjóra í gær, eru marg
ir vegir þungfærir vegna snjóa.
í>ó er enn haldið opinni leið til
Reykjavíkur. Öxnadalsheiði er
snjólétt en færi þyngist óðum
í Skagafjarðar- og Húnavatns-
sýslum. Vegir fx-aman Akureyr-
ar eru greiðfærir, eftir að snjó
var rutt af veginum í Önguls-
staðahreppi í fyrradag. Verið
var að skafa Dalvíkurveg í gær.
Um Svalbarðsströnd og Grýtu-
bakkahrepp er mjög illt að kom
ast, enda rennir stöðugt af heið-
ánni. Til Húsavíkur er illfært.
Tjömesvegur er lokaður, einn-
jg lokaðist Mývatnsheiði. Trukk
ar einir komast leiðar sinnar í
Bárðardal. □
fram á árið 1967, sýnist bezt á
því fara, að þeir reyni að gæta
hófs um nýja skattheimtu en
taki þess í stað til alvarlegrar
athugunar að konia fram spam
aðarstefnuskrá sinni frá 1960—
1961.
Gunnar Thoroddsen birti
tvær slíkar spamaðarstefnu-
skrár í fjárlagaræðu, hina fyrri
í 12 liðum árið 1960 og hina
síðari í 24 liðum árið 1961. Sama
ár birti meirihluti fjárveitingar
nefndar enn eina spamaðar-
stefnskrá í 23 liðum. En núver-
andi fjármálaráðherra, Magnús
Jónsson, var þá fonnaður og
framsögumaður nefndarinnar.
Hafi hér ekki verið um lýð-
skrum eitt að ræða af hálfu fyrr
verandi og núverandi fjármála-
ráðherra, hlýtur þama að hafa
verið um allmikla spamaðar-
möguleika að ræða. Ekki má
minna vera en að fjármálaráð-
herra, sem starfað hefur að
slíkri sparnaðarstefnuskrá, en
krefst nú skatta á skatta ofan,
án þess að spamaðarstefnuskrá
in komi til framkvæmda, geri
lireint fyrir sínum dymm. □
Áttunda Heklan í brezka flotanum
Kom til Akureyrar síðastliðinn mánudag
ÞEGAR blaðamenn ræddu við
G. P. D. Hall skipherra á brezka
hafrannsóknarskipinu Heklu,
sem hér var á dögunum, sagði
hann, að Hekla væri áttunda
skip flotans með þessu nafni.
Aðspurður hvað hann nafnið
hafa verið rangt stafsett, þ. e.
Hecla á fyrsta skipi brezka
flotans með þessu nafni fyrir
um það bil 190 árum. En síðan
hefði þessi skekkja haldizt. Á
Heklu hefði fyrir 90 árum verið
siglt kring um hnöttinn með
einn vísindamann um borð, er
rannsakaði hafið. Síðan hefðu
hafrannsóknir alltaf verið á dag
skrá. Á skipi því, er nú væri í
fyrsta sinn utan heimahafnar
(skipið er aðeins þriggja mán-
aða gamallt) væri aðstaða fyrir
ÞORSTEINN
ÞORSKABÍTUR
MAÐUR að nafni Sigurður
Finnsson loftskeytamaður, sem
telur sér heimili í Grímsey, hef-
ur keypt Þorstein þorskabít,
sem er nálega 500 lesta skip,
upphaflega smíðað fyrir Guð-
mund Jörundsson útgerðar-
mann. Skipið á að gera út á
síldveiðar næsta sumar. □
Akureyrarkirkja.
(Ljosm.: E. D.)
Þeir ðfhentu héraðslækninum sjúkrabíl
7 vísindamenn. Skipið væri í
eigu flotans, sem nú hefði nógan
tíma til rannsóknarstarfa og
nægan mannafla. Sjóherinn
gæti lagt allt til, til haírann-
sóknarstarfa, nema vísinda-
mennina.
Um borð í Heklu eru 116
manns. Rannsakað verður haf-
svæðið milli íslands og Sett-
landseyja, sem er liður í alþjóð-
legri fiskirannsókn.
Hekla kom til Akureyrar á
mánudagsmorgun en fór síð-
degis á miðvikudag. □
Laugum 9. des. Hinn 4. desem-
ber sl. afhenti Lionsklúbburinn
Náttfari í S.-Þing. Þóroddi Jón-
assyni héraðslækni á Breiðu-
mýri f. h. Breiðumýrarlæknis-
héraðs, nýjan snjóbíl til sjúkra
flutninga og læknisvitjana að
vetrarlagi í læknishéraðinu, en
klúbburinn hafði aflað fjár til
bílkaupanna og séð um þau að
öllu leyti, svo og útbúnað bíls-
ins.
Náttfari var stofnaður í febr-
úar sl. vetur og bar þetta á
góma á síðustu fundum klúbbs-
ins í vor og hafizt var þá þegar
handa. M. a. var hreppsnefnd-
um læknishéraðsins og fl. gefin
kostur á að veita fjárstyrk er
næmi 100 kr. fyrir hvern íbúa,
til snjóbílskaupanna. Hlaut það
mál yfirleitt góðar undirtektir.
Klúbbfélagar unnu svo að
fjáröflun í sumar með ýmsu
móti, svo sem t. d. með kvik-
myndasýningum og rann ágóði
til snjóbílskaupanna. Tveir fé-
Þeir aflientu héraðslækni Þ
lagar unnu að jarðvinnslu í frí-
tímum og gáfu svo vinnulaun
sín til sömu kaupa. Öll kvenfé-
lög læknishéraðsins lögðu enn-
fremur fram fé, sum mjög
rausnarlega. Þá lagði Lauga-
skóli fram fé og aðstöðu til fjár-
öflunar og ræktunarsambandið
Smári gaf að miklu leyti efnið
í hús á bílinn og aðstöðu á verk
stæði sínu.
Félagar í klúbbnum unnu síð
an að yfirbyggingunni og lögðu
bæði fram vinnu og efni.
Bíllinn kom til landsins í
septemberlok og er innflytjandi
Glóbus í Reykjavík, en snjó-
bíllinn er sænskur og virðist að
ýmsu leyti tæknilega fullkom-
inn. Ber þar einkum að nefna
vandaðan stýrisútbúnað. Aflvél
er Fólksvagnshreyfill og bíll-
inn er léttur. Auk bílstjóra rúm
ar hann 5 farþega eða 2 farþega
og sjúkrakörfu. Reynsla bílsins
við misjafnar aðstæður lofar
góðu. G. G.
ISLENDINGAR
HREPPTU
SKARÐSBÓK
A ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ
var það tilkynnt, að fombók-
salinn Hannaas, sem keypti
Skarðsbók hina fornu á bóka
uppboði í London á dögun-1
um, hefði gert það fyrir hönd
íslenzkra banka, sem um það
höfðu samið við fornbóksal-
ann. Kaupverðið var 4,3
millj. ísl. króna.
Undirbúningur þessa máls
hafði ekki farið hátt og ekki
flikað opinberlega. Fór vel á
! því, að þjóðin sjálf þ. e. opin
| berir bankar hennar, keyptu
hina merku bók. □
L'r Innbænum.
(Ljosm.: E. D.)
Komnar á markaðinn
2S0 nýjar bækur
DAGLEGA eru auglýstar ný út
komnar bækur og eru sagðar
280 bækur nýjar á bókamarkað-
inum, sem jafnframt er jóla-
markaður. Þetta bókaflóð er
svipað að magni og í fyrra.
Að þessu sinni eru þýddar
sögur fyrirferðamestar eða 65,
mest ástarsögur, en barnabæk-
ur og unglinga eru yfir 70 og
21 innlend skáldsaga er komin
í búðargluggana. Ljóðabækur
eru jafn margar, þar af nær
helmingur endurprentun ljóða.
Þá eru 24 fræði- og kennslubæk
ur, 6 um dulræn efni og 7 bæk-
ur um guðfræðileg efni. □