Dagur - 26.01.1966, Side 2

Dagur - 26.01.1966, Side 2
2 Stórliríðarmótið í Hlíðarf jalli Veður var slæmt til keppni hörkufrost og hríð STÓRHRÍÐARMÓTIÐ svokall aða fór fram í Hlíðarfjalli um helgina. Á laugardaginn var veður stillt og bjart en 17 stiga frost. Á sunnudaginn var aftur á móti grenjandi stórhríð og enn hörkufrost. Mótið fór þó fram eins og áætlað hefði verið og var sann- kallað stórhríðarmót að þessu sinni, og eins og fyrirfarandi ár var hér um svigkeppni að ræða í öllum flokkum. A. -flokkur. Reynir Brynjólfsson vann þetta mót. Tími hans var 132,8 sek„ þá Reynir Pálmason á 157,5 sek. og þriðji Ottó Tul- iníus og var hans tími 165,3 sek. Brautin var Jöng og erfið, en hana lagði Kristinn Benedikts- son frá ísafirði. Beztan brautar- tíma hafði Viðar Garðarsson 66,2 sek., en var dæmdur úr leik vegna þess að hann sleppti einu hliði. B. -flokkur. Þorlákur Sigurðsson varð - fyrstur á 109,5 sek og næstur Stefán Ásgrímsson á 128,7 sek. Fleiri luku ekki keppni. C. -flokkur. Fyrstur varð Ingvar Einars- son á 88,0 sek. Annar Jóhann Tómasson á 91,4 sek. og þriðji Sigurður Jósafatsson á 123 sek. Unglingakeppni. Flokkur 13—15 ára. Jónas Sigurbjörnsson varð fyrstur á 80,5 sek., annar Árni Óðinsson á 82,8 sek. og þriðji Örn Þórsson á 97,9 sek. Flokkur 12 ára og yngri. Gunnlaugur Frímannsson varð fyrstur á 27,0 sek., annar varð' Sigurjón Jakobsson á 36,2 sek. og þriðji Halldór Jóhanns- son á 39,6 sek. Stúlkur. 15 ára og yngri. Fyrst varð Barbara Geirsdótt ;ir-á 37,5 sek., öþnur varð Birna Aspar á 51,5 sek. og aðrar luku ekki keppni. Bridgemöt Ungmenna- sambandsins HIÐ árlega bridge-mót Ung- mennasambands Eyjafjarðar hófst í Árskógi s. 1. sunnudag. Sjö fjögurra manna sveitir taka þátt í mótinu að þessu sinni. Urslit í fyrstu umferð: B-sveit-umf. Svarfdæla — A- sveit umf. Svarfdæla 5:1. B-sveit Umf. Þorst. Svörf. — A-sveit umf. Þorst. Svörf. 5:1. A-sveit umf. Reynis — Sveit umf. Skriðuhrepps 6:0. B-sveit.1‘umf. Reynis sat yfir. Keppnisstjóri er Stefán Jóns- son, Dalvík. □ KÓLERUTEGUNDIN E1 Tor, sem er náskyld hinni sígildu kóleru — breiddist út til vest- urs árið 1965. Upp komu far- aldrar í Afganistan, Nepal, ír- an, Sovétríkjunum og á Filips- eyjum, samkvæmt upplýsing- um frá Alþjóðaheilbrigiðsmála- stofnuninni (WHO). Stofnunin hefur þegar komið upp tilrauna stofum og rannsóknamiðstöðv- um til að berjast við þenna vá- gest. Frá því að WHO hóf skipu- lega baráttu til að vinna bug á bólusótt árið 1959, hefur hún verið fullkomlega upprætt í 12 löndum. Enn er hún samt út- breidd í Asíu, Afríku og — í minna umfangi — í Suður- Ameríku. Samkvæmt útreikn- ingum stofnunarinnar á að vera hægt að útrýma henni með öllu á næstu tíu árum, og myndi það kosta um það bil 30 milljónir dollara (um 1300 millj. ísl. kr.). 56 af hundraðj íbúanna í þeim heimshlutum, sem ógnað er af kóleru, eru nú ónæmir fyrir sjúkdóminum, og WHO heldur áfi'am baráttunni í 29 löndum, þar af 15 Afríkulöndum. Að því er tekur til krabba- vesfurs meins, beindist starfsemi Al- þj óðaheilbrigðismálastofnunar- innar á árinu 1965 fyrst og fremst að læknismeðferð og leiðum til að hafa eftir- lit með og koma í veg fyrir smit. Stpfnunin ákváð á árinu :að; áetja upp . alþjóðamiðstöð kihbbaméinsfannsókna, sem heíur aðalaðsetur í Lyon. .. (Framhald á, blaðsíðu 7.) SL. SÚNNUDAG fór handknatt leiksfólk úr íþróttafélaginu Þór í keppnisferð til Húsavíkur, en það voru 4 flokkar, 5 lið, sem kepptu. Ferðin heppnaðist vel og fóru leikar svo að Þórsarar unnu 1 leik, jafntéfli varð í ein- um, en þrjá unnu Húsvíkingar. Á heimleiðinni fékk handknatt- leikfólkið vonzkuveður og tók ferðin frá Húsavík til Akureyr- ar rúma 6 tíma. .Úrslit urðu þessi: IV. fl. karla, Þór—Völsungur 15:12. Meistarafl. karla, Þór—Völs- ungur 26:26. Verðlaunaafhendingar áttu að fara fram í Skíðahótelinu í gær kveldi. Skíðaráð Akureyrar annaðist framkvæmd mótsins. Jónas Sigurbjörnsson. Gunnlaugur Frimannsson. Barbara Geirsdótir. i á Húsavík III. fl. karla, Völsungur—Þór 37:30. II. fl. kvenna, Völsungur a.— Þór a. 11:10. II. fl. kvenna, Völsungur b.— Þór b. 22:7. Þess má geta, að íþróttasalur Húsvíkinga er talsvert mikið minni en Rafveituskemman á Akureyri og leika ekkj nema 6 í hvoru liði þegar keppt er á Húsavík. í ráði er að Handknattleiks- mót Akureyrar hefjist í byrjun febrúar, og má búast við mikilli þátttöku frá K.A., Þór og Í.M.A. ALMANNATRYGGINGAÞÆTTIR l-íxíxixí>'í^>^xíxí><í>4xí>4xi>^>^xs><í!-i>i>'íxí>^>4><í>^>^xí>^>^x$>^x5><í><íxíxi><í><í^<tx^^><í><s><s) SAGA OG ÞRÓUN HVAR og hvenær voru alþýðu- eða almannaíryggingar fyrst leiddar í Iög? Um þetta er hægt að lesa í brezltu alfræðibókinni, kaflanum um „social security“, og í ritum Jóns Blöndals hag- fræðings, um alþýðutryggingar (Fclagsmál á íslandi og Alþingi og félagsmálin). Samkvæmt þessum heimildum voru fyrstu almannatryggingarlögin sett í Þýzkalandi árið 1883. Það voru því ekki jafnaðarmanna- eða kommúnistastjórnir 20. aldar, sem þarna riðu á vaðið, heldur „jámkanslarinn“ Otto von Bis- mark, sá hinn sami, er samein- aði Þýzkaland í keisaradæmi og gerði það að stórveldi. Trygg- ingarnar voru ein af aðferðuni hans til að gera þýzku þjóðina sem sterkasía. Ahnannatrygg- ingar Bismarks ná að vísu skammt samanborið við nútíma tryggingar, en Jón segir samt, að þær hafi orðið „fyrirmynd al- þýðutrygginga víða um hehn“. Þær þóttu hið atliyglisverðasta nýmæli og fregnir af þeim bár- ust víöa. Fyrir 1890 bárust þær inn í umræður á Alþingi íslend inga. Þar flutti Þorlákur Guð- mundsson bóndi í Hvammkoti (Fífuhvammi) þingmaður Ár- nesinga friunvarp til laga um „styrktarsjóð handa alþýðu- fólki“ árið 1887, og var það af- greitt sem lög árið 1889. Hjú og lausamenn skyldu greiða gjald til sjóðsins, karlar 1 krónu og konur 30 aura á ári. Átti að geyma féð í Söfnunarsjóði ís- lands, en hvert sveitarfélag eiga þar sinn sérsjóð. Útlilutun elli- styrkja skyldi hefjast eftir 10 ár og þá úthluta liálfum vöxtum. Árið 1909 voru svo sett Iög um „ahnennan ellistyrk“. Var þá lögfest almennt ellistyrktar- sjóðsgjald (árgjald) frá lands- mönnum 18—60 ára, kr. 1.50 fyr ir karhncnn og kr. 0.75 fyrir konur, en kr. 0.50 ríkistillag á móti fyrir hvern gjaldanda. — Árið 1933 voru þessi árgjöld orðin kr. 3.00 fyrir karla, kr. 1.50 fyrir konur og kr. 1.50 úr ríkis- sjóði fyrir hvern gjaldanda. Sjúkrasamlag prentara var stofnað árið 1897 með frjálsum samtökum. Árið 1911 voru sett alinenn lög um hin frjálsu sjúkrasamlög og ríkisstyrk til þeirra. En þau náðu ekki veru- legri útbreiðslu í landinu. Upphaf lagasetningar um slysatryggingar má rekja til árs ins 1903. Það ár voru samþykkt lög um lífsábyrgð fyrir sjó- menn, sem stunda fiskiveiðar á fiskiskipum. Sjómenn greiddu % iðgjalds, útgerðarmenn %. Lög um slysatryggingu sjó- manna voru samþykkt árið 1917. Hin almenna sl.ysatrygg- ing verkafólks á landi og sjó var samþykkt á Alþingi árið 1925, og skyldu atvinnurekend- ur þá eins og nú greiða kostnað allan við trygginguna. Þetta var sá þáttur trygginganna, sem lengst var á veg kominn, áður en hin almenna tryggingarlög- gjöf var sett fyrir 30 árum. Til- lögur um atvinnuleysistrygging ar höfðu að vísu komið fram oftar en einu sinni á Alþingi, en engin lagasetning átti sér stað um það efni. Árið 1936 er tímamót í sögu trygginganna, því að þá er sett hin fyrsta allslierjarlöggjöf á þessu sviði, lögin um alþýðu- tryggingar, eins og þau voru þá nefnd. Alþýðntryggingalögin voru, ásamt nýjum framfærslu- lögum, undirbúin af 5 maníia stjórnskipaðri nefnd, en sam- tímis vann þáverandi landlækn- ir, Vihnundúr Jónsson, að und- irbúningi laga um ríkisfram- færslu sjúkra manna og ör- kumla, sem komu í stað gömlu laganna um ríkisstyrk til berkla sjúklinga frá 1921. Var liér um nátengda löggjafarþætti að ræða, scm fjölluðu að meira eða minna leyti um sama viðfangs- efni og lilutu afgreiðslu á árun um 1935-1936. í stjómskipuðu nefndinni áttu sæti: Brynjólfur Stefáns- son, tryggingafræðingur, Jónas Guðmundsson alþm., Páll Her- mannsson alþm., Sigfús Sigur- hjartarson ritstjóri síðar alþm. og Þórður Eyjólfsson prófessor síðar liæstaréttardómari. Al- þyðutryggingalögin frá 1936 fjölluðu um fjóra meginþætti þessara mála. Elli- og örorku- tryggingu, sjúkratryggingu, slysatryggingu og atvinnuleysis tryggingu. Samkvæmt þeim lög um voru elli- og örorkulrygg- ing og slysatrygging almennar skyldutryggingar. Sjúkratrygg- ing var skyldutrygging í kaup- stöðum, en frjáls trygging með lögboðnum fjáröflunarréttind- um annars staðar á landinu og lögð í hendur sjúkrasamlaga. Atvinnuleysistrygging var frjáls trygging á vegum verkalýðsfé- laga og kom ekki til fram- kvæmda. En 1955 voru sett sér- stök lög um atvinnuleysistrygg- ingu, sem er skyldutrygging og hefir verið i gildi síðan. Mcð al- þýðutryggingalögunum 1936 var komið á fót Tryggingastofnun ríkisins, sem stýrir framkvæmd þessara niála. > Tíu árum síðar, á Alþingi 1946, var ný allsherjarlöggjof sett. Var þá breytt heiti laganna og þau nefnd Iög um almanna- tryggingar, og því nafni eru þau enn nefnd. Með þeim mun hafa átt að gefa til kynna, að það væri ekki „alþýðan“ ein, sem trygginganna nyti, heldúr einn- ig þeir, sem betur eru staddir fjárhagslega. Nú er líka svo komið, að allir.greiða sömu ið- gjöld og njóta sömu bóta, án til- lits til efnahags, en þess er þá jafnframt að geta, að mikill meiri hluti af tekjum trygging- anna kemur frá ríkissjóði, sveit arfélögum og atvinnurekend- um, cn miklu minna frá þehn, sem tryggðir eru. Með lögunum (Framhald á blaðsíðu 7.)

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.