Dagur - 02.02.1966, Page 1
r=....... ..
Dagur
SÍAiAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
r, ■ ■ -------—----------
Ðagur
kemur út tvisvar í viku
og kostar kr. 30.00 á
ir.in. í lausasölu kr. 5.00
ii..... 'j
Tvær Ijölskyldur sluppu
nðumlega úr eldsvoða
á Gleráreyrum 6 - í afspyrnuroki og náttmyrkri
í FÁRVTÐRINU um síðustu
helgi brann íbúðabraggi bæjar-
ins á Gleráreyrum 6 Akureyri.
Þar bjuggu ívær fjölskyldur,
samíals 13 manns.
Eldurinn kom upp um kl. 7 á
sunnudagsmorguninn. Er
slökkviliðið kom á síaðinn, var
syðri'nluti byggingarinnar al-
elda og brann hún öll, ásamt
innbúi fólksins að mestu.
Heimilisfeðurnir, Valdimar
Thorarensen og Árni Bjarman,
komu fólki sínu heilu á húfi í
húsaskjól, en sumt af því hafði
naumlega fengið ráðrúm til að
klæða sig, er eldsins varð vart.
Vegna roksins læsti eldurinn
sig fljótlega um alla bygging-
una og starf slökkviliðsins var
mjög erfitt. Vatn var tekið í
Glerá. □
AUKNAR GJALDEYRISTEKJUR
AF ERLENDUM FERÐAMÖNNUM
F0LALD í SNJÓNUM
í GÆR var lögreglunni tilkynnt
um nýkastaða hryssu í snjón-
um, í landi bæjarins. Kvikfjár-
gæzlumaður fór á vettvang og
kom hryssunni í hús, ásamt
binu snemmkastaða folaldi, er
var sæmilega sprækt þrátt fyr-
ir 10 stiga frost. Folaldshryssan
er frá Mýrarlóni □
FÁNA FÆREYINGA
VANTAÐI
Á 14. FUNDI Norðurlandaráðs
í Kaupmannahöfn, sem hófst sl.
föstudag, vantaði þjóðfána Fær
eyinga og fékk hann ekki að
blakta við hlið hinna Norður-
landaþjóðanna fimm.
Færeyingar mótmæltu, en
fengu ekki leiðréttingu mála
sinna. Færeyski þingmaðurinn
Peter Mohr Dam, fulltrúi lands
síns á fundi Norðurlandaráðs,
gekk þá af íundi. □
í GREINARGERÐ Ferðamála-
ráðs segir m. a. um erlenda
ferðamenn, sem hingað komu
árið 1964, að tala þeirra hafi
verið 22.969. Með skipum komu
3.157, en með flugvélum 19.812.
Af heildarfjöldanum voru 35%
Norðurlandabúar.
Samkvæmt upplýsingum
Seðlabankans námu kaup bank
anna á erlendum gjaldeyri
þessa fólks nálega 82 millj. kr.
og nam hækkunin frá fyrra ári
rúmlega 24 millj. kr. Auk þessa
eru svo farmiðasölur skipa og
flugvéla. Eyðsla hvers ferða-
manns árið 1964 nemur um
3.500 krónum.
Tekjur af erlendum ferða-
mönnum er að sjálfsögðu ekki
afgerandi þáttur í gjaldeyrisöfl-
un þjóðarinnar, enda er íslar.d
einna minnst ferðamannaland,
sem um getur. Margir binda
miklar vonir við aukinn ferða-
mannastraum til landsins. En
dýrtíðarvöxturinn gerir það að
verkum, að margir fara hér hjá
(Framhald á blaðsíðu 7.)
Snjóflóð lók ibúðarhús á
og viðar í Fljótum urðu mikil tjón
Hagancsvík, 1. febrúar. Snjó-
flóð féll á bæinn Reykjarhól í
Austur-Fljótum á laugardaginn.
I>ar býr Alfreð Jónsson og var
hann heima ásamt syni sínum,
16 ára, og tengdamóður.
Á Reykjarhóli er gamalt
F.U.F.-FÉLAGAR!
KVÖLDVIERÐARFUNDUR i
verður að Hótel KEA n. k. i
föstudag, 4 febrúar, kl. 8 e. h. %
ÍNGVAR GfSLASON alþm. 1
mætir á fundinum. "ý
F.U.F. Akureyri.
timburhús á steyptum grunni.
Pilturinn var að gefa fénu í á-
föstu húsi, en hin voru inni er
snjóflóðið féll.
íbúðarhúsið losnaði af grunni
sínum, færðist nokkurn spöl,
lagðist þar saman og ónýttist.
Fjárhúsið fór einnig niður á
tún. Fólkið sakaði ekki, en
tvær kindur köfnuðu í fönn.
Innanstokksmunir í íbúðarhús-
inu brotnuðu, fuku og eyðilögð-
ust. Elkki er vitað til þess, að
þarna hafi snjóflóð áður fallið.
Um svipað leyti fauk þak af
íbúðarhúsi stöðvarstjórans við
Skeiðsfossvirkjun, Indriða Guð-
Við P. O. B. á Akureyri, er þaldð var fokið. Tveir bílar eru í brakinu. (Ljósm.: G. P. K.)
FÁRVIÐRI UM ALLT NORÐURLAND
Skemmdir á mamnirkjum en ekki manntjón
UM SÍÐUSTU heígi geisaði
fárvsðri af norðri u:n allt land.
Á Nórðurlandi var stórhr.’ð,
veðurofsi svo mLkill að mönn-
um var naumlega síæít, fann-
koma mikil og haugasjór.
Skemmdir urðu á mannvirkjum
en manníjón varð ekki.
AKUREYRI.
A sunnudagsmorguninn náði
rokið hámarki. Þá fauk hluti af
þaki Prentverks Qdds Björns-
sonar h.f. og þeyttist þrak úr
því upp á Hafnarstræti, braut
rúður og skemmdi þrjá bíla. Á
sama tíma fuku 70—80 þakplöt-
ur af nýbyggingu Gagnfræða-
skólans og einnig fauk nokkuð
jónssonar. En þar þjuggu tvær
fjölskyldur. í Stórholti í ná-
grenni Reykjarhóls lagðist ný-
býggð hlaða saman að miklu
leyti (bogaskemma). Steingrím
ur Þorsteinsson heitir bóndi
þar. í Hvammi, nálægt Stýflu,
fauk þak af hlöðu og fjósi, hjá
He'.ga bónda Pálssyni. Á Berg-
landi í sömu sveit býr Sveinn
Þorsteinsson, og missti hann
hey, er var úti á túni og af íbúð
arhúsinu fauk eitthvað af járni
og á Stóru-Reykjum í Flókadal
fauk járn af hluta nýs íbúðar-
húss. Þar býr Eiríkur Ásmunds
son.
Eins og sjá má af þessu, urðu
tilfinnanleg tjón í Fljótum. □
af þakplötum af húsum, hér og
hvar í bænum. Einn bíll varð
fyrir skemmdum við G. A. Á
nokkrum stöðum brotnuðu rúð-
ur undan fjúkandi braki.
Snjóbí'um einum var fært um
bæinn á meðan færðin var verst.
Við höfnina var sjógangur og
austan rok. Urðu þar þó ekki
BYGGINGAFULLTRÚINN á
Akureyri, Jón Geir Ágústsson,
hcfur gert yfirlit um byggingar
á Akureyri á síðasía ári. Fer
skýrsla hans um það efni Iiér á
efur:
íbúðarhús:
Hafin var á árinu bygging 89
íbúðarhúsa með 142 íbúðum.
Um sl. áramót voru samtals 139
íbúðarhús með 251 íbúð í bygg-
ingu á Akureyri.
SkráS eru fullgerð 38 hús með
85 íbúðum. Fokheld voru 63 hús
með 90 íbúðum og 38 hús með
76 íbúðuin voru skemmra á veg
komin.
Ýmsar byggingar:
Af ýmsum húsum,.sem skráð
voru fullgerð á árinu má hefna
vöruskemmu og verkstæði Raf-
veitu Akureyrar, afgreiðsluhús
Olíufélagsins h.f., verkstæðis-
byggingu Búnaðarsambands
Eyjafjarðar.
Fokheldar voru t.d. Amtsbóka
safnið við Brekkugötu, Kjöt-
vinnslustöð KEA, Logreglustöð
in við Þórunnarstræti og bygg-
skemmdir, er heitið gætu.
Fimm erlendir togarar lágu þar
af sér óveðrið.
DALVÍK.
Á Dalvík var hörkuveður
síðan á föstudag til mánudags.
Verst var veðrið á sunnudag-
inn og svo mikið hafrót, að ótt-
ast var um bátana. Voru menn
(Framhald á blaðsíðu 7.)
ingavörudeild KEA við Glerár-
götu. (Framh. á bls. 7)
Ólafur Thorarensen
látinn
Ó L A F U R THORARENSEN
fyrrum bankastjóri á Akureyri
er Iátinn. Hann hafði vcrið van-
heill um skeið, var nýlega flutt-
ur til Reykjavíkur og lézt þar
sl. sunnudagskvöld. Hans verð-
ur minnzt síðar hér í blaðinu.
Um byggingar á Ákureyri 1965