Dagur - 02.02.1966, Qupperneq 8
8
SMÁTT OG STÓRT
Fimm brezkir togarar lágu í Akureyrarhöfn í cfvíðrinu um helgina. Sá, er síðast kom, lagðist
þrisvar á hliðina í mynni Eyjafjarðar. Skipstjórinn' hét á Akureyrarkirkju og komst í liöín.
Hann heitir W. Boden og skip hans Northem Eagle. Á öðrum togara, Lord Tedder, brotnuðu
báðir björgunarbátarnir áður en hann náði til hafnar. (Ljósm.: E. D.)
ALLIR VEGIR URÐU ÓFÆRIR
Nú er unnið að því að opna þá, en óvíst hvenær
Öxnadalsheiði verður bílfær
f GÆK og fyrradag var unnið
að því með öllum fáanlegum
tækjum, að ryðja snjó af vegum
í hcraðinu, af götum Akureyrar
og af flugvellinum.
Þegar blaðið spurði Guðmund
Benediktsson vegaverkstjóra
um þessi mál í gær, fékk það
þessar upplýsingar:
Vegurinn Reykjavík—Akur-
eyri er opinn að Silfrastöðum í
Skagafirði. Óvíst er hvenær
Öxnadalsheiði verður fær bif-
reiðum. Þar hefur enginn farið
síðustu daga því tæki vegagerð-
r
Oska eftir að rannsókn
á byggingarkostnaði
fari fram
STJÓRN Meistarafélags bygg-
ingamanna í Reykjavík hefur
sent iðnaðarmálaráðherra álykt
un þess efnis, að fram verði lát-
in fara rannsókn á byggingar-
kostnaði húsa. Ástæðan, segja
byggingamenn, er sú, að marg-
oft hafi það verið fullyrt opin-
berlega, að byggingakostnaður
sé óhóflega mikill hér á landi
og mun hærri en í nágranna-
löndunum.
Byggingameistarar krefjast
þess, að niðurstöður rannsókn-
anna verði birtar opinberlega.
Án efa verður kröfu bygginga-
meistara vel tekið, enda nauð-
syn á að leiða í Ijós hina mörgu
samverkandi þætti mikils hús-
næðiskostnaðar á íslandi. □
AFMÆLISRIT K.E.A.
KEMUR ÚT Á ÁRINU
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA,
sem er 80 ára á þessu ári,
hyggst gefa út vandað afmaelis-
rit af því tilefni. Ámi Kristjáns-
son menntaskólakennari hefur
verið ráðinn til að taka saman
efni í rit þetta. □
arinnar hafa verið alveg föst í
öðrum verkefnum, þ. e. að gera
vegi héraðsins trukkfæra. í
nótt fór ýta til Dalvíkur og á að
hjálpa mjólkurbílum til baka.
Svalbarðseyrarvegur var opnað
ur í gær, út að Garðsvík.
Yta með sleða er á leiðinni
yfir Vaðlaheiði. Vaðlaheiði er
snjólaus að austan en snjódyngj
ur vestan í heiðinni. Öxndæl-
ingar eru á leiðinni með mjólk
á ýtusleða. Unnið er að snjó-
mokstri í Hörgárdal. Arnarnes-
hreppur er nokkuð greiðfær og
um hreppana framan Akureyr-
ar er fært. Allar vegahreinsanir
miðast við öflugustu bíla, svona
í fyrstu lotu. 1 dag verða snjóa-
lög athuguð í framanverðum
Öxnadal, svo og á Öxnadals-
heiði og vegurinn opnaður þeg-
ar hægt er, sagði vegaverkstjór-
inn að lokum. □
Bátur sökk á Skagasfrönd
Fárviðri var á Skagaströnd í
nær þrjá sólarhringa og man
enginn þar eftir svo langstæðu
ofsaveðri. Veðurhæðin var tal-
in hafa komizt upp í 14—15
vindstig.
Skemmdir urðu mjög miklar.
M. b. Stígandi 22. tonna bátur
sökk í höfninni á laugardaginn
og fleiri bátar voru í hættu, en
eigendum þeirra tókst að bjarga
þeim.
Þök fuku af húsum í heilu
lagi og járnplötur fuku af húsa-
þökum í stórum stíl. Gluggar
brotnuðu í mörgum húsum,
enda fauk brak á þá. M. a. höfn
uðu þakplötur inni í skrifstofu
hjá hreppstjóranum og víðar og
Síldarverksmiojuhús rikisins lít
ur út eins og eftir loftárás, flest
ar rúður brotnar og hurðir rifn
ar burt. Mikið af heyjum fauk.
Af íbúðarhúsum, sem mest
skemmdust má t. d. nefna Skál-
holt Þar tók allt þakið af, en
fólkið komst í kjallara og hafð-
ist þar við. Á Laékjarbakka
hrundi reykháfur og braut þak-
ið. Gamla íbúðarhúsið Sólheim-
ar skemmdist mikið og fauk
skúr, er stóð norðan við húsið.
Mikið fauk af þakplötum íbúð-
arhússins Þórshamars. Margir
skúrar fuku, símalínur slitnuðu
og rafmagnslaust hefur verið í
miklum hluta kauptúnsins síð-
an á föstudag. Nú í dag, mánu-
dag, er viðgerðarflokkur á leið
frá Blönduósi til Skagastrand-
ar og hafa þeir jarðýtu á und-
an sér, því snjóskaflar eru stór-
ir. Menn, sem voru að fara nið-
ur að höfn á sunnudaginn, fuku.
Lenti einn í fjörunni, annar í
snjóskafli og sakaði hvorugan.
Maður, sem fór á beitarhús,
villtist en fannst fljótlega.
Fátt eitt er hér talið af því,
sem til tjóna telst, enda eru þau
ekki rannsökuð að fullu. H.
HIÐ UNGA ÍSLAND
f framhaldi af því, sem sagt er í
leiðara blaðsins í dag,. .á bls. 4,
má staðhæfa, að æskan vill
duga landi sínu. Hún vill jafn-
rétti og hagsæld. Og liún vill
.Iíka fræðast um landsmál. En
Sjálfstæðisflokkurinn er útgerð
hremmsigróðamanna til að
tryggja þeim sérréttmdi. Hlut-
lausa fræðslu á hann því erfitt
að yeita æskunni — liinu imga
fsiandi.
HUGUR OG DUGUR
Heilbrigða æsku skoríir ekki
hug til þjóðrækni. En Sjálf-
stæðisflokkinn vantaði liug til
að halda á landhelgismálinu
gagnvart Bretum og sanmings-
batt þjóðina um alla framtíð —
en útfærsla er nú aðkallandi
ÞJÓRSÁRVIEKJUN
Sjálfsíæðisflokkurinn hefur
ekki þor til að Iáta ráðast í Búr-
fellsvirkjun, nema undirgang-
así óhugnanlegan samning við
erlendan auðhring. Flokkurinn
hafði ekki einu sinni kjark til
að setja á oddinn, að athafnir
þessa auðhrings yrðu réttu meg
in á landinu, til atvinnujafn-
vægis. .i
HUGLEYSIÐ BIRTIST VÍÐAR
Seinasta opinbera hugleysis-
stefna Sjálfstæðisflokksins var
í því fólgin að koma í veg fyrir,
að ung skáld, sem deilt hafa á
ríkisstjómina, fengju lista-
mannalaun. Slíkur flokkur má
ekki fá aðstöðu til að móta skoð
anir æskunnar og blekkja hana
til fylgis við sig. Ríkið verður
að taka upp hlutlausa þjóðfé-
lagsfræðslu í skólum sínum.
AF VINDI SKEKNIR
Flestir hérlendir bústaðir voru
af vindi skeknir og margir
harkalega um síðustu helgi.
Auk eignatjóns, sem raunar
varð minna en búast mátti við,
varð hið mikla fárviðri mörgum
manninum andleg áraun, og ótt
inn við slíkar náttúruhamfarir
Hjálparbeiðni
FÁTT er jafn hörmulegt og þegar fólk missir heimili sitt og
aleigu með sviplegum hæíti. — Svo sem kunnugt er, brann
íbúðarhús á Gleráreyrum s.I. sunnudagsmorgun. Þar áttu
tvær fjöiskyldur heima, eða 14 manns. Annar heimilisfað-
irinn hefir verið sjúklingur að undanfömu. Ilér þarf ekki
að lýsa því tjóni, seni fólkið hefir orðið fyrir. Viljum við
hvetja bæjarbúa að koma til hjálpar. Með góðum vilja og
samtökum getum við liðsinnt þessum fjölskyldum til að
eignast afíur heimili sín. Gjöfum í hjálparsjóðinn munum
við, ásamt blöðunum, fúslega veita viðtöku.
BIRGIR SNÆBJÖRNSSON,
sóknarprestur.
BJÖRN GUÐMUNDSSON,
framfærslu og heilbrigðisfulltrúi.
JÓN INGIMARSSON,
formaður Iðju.
PÉTUR SIGURGEIRSSON,
sóknarprestur.
SIGURÐUR M. HELGASON,
bæjarfógetafulltrúl
mun Iengi leynast í hugum
manna.
MYRKUR í GLERÁRHVERFI
íbúar Glerárhverfis þurfa oftar
að sitja í myrkri og kulda en
aðrir bæjarbúar. Stafar þetta af
truflunum á loftlínu rafmagns
þangað, og eru hverfisbuar ekki
sem ánægðastir með þetta, og
benda á siðasía dæmið nú um
helgina. „Rafmagnstruílanir eru
einnig í Glerárhverfi í minnstu
veðrum“, segja þeir.
ÞAKJÁRNIÐ
Mörgum er það áhyggjuefni hve
oft það kemur fyrir, að þakjárn
fýkur af liúsum — jafnvel ný-
byggðum húsum. Hvemig má
slíkt verða? i fyrra fauk jám af
þaki nýs fjölbýlishúss, nú um
helgina af nýbyggðum hluta
Gagnfræðaskólans. Eru smið-
imir ekki verki sínu vaxnir að
festa þakplöíur? Svo virðist
naumast vera.
Talað er um það manna í
milli, að nggla þá„ er þakjámið
sé fest með, megi ekki hnykkja,
af því þá sé brunaliðið Iengur
að rjúfa þak ef til kemur. Þetta
er vitleysa og engin afsökun
fvrir sh'kan frágang á þökum,
að þau þoli ekki hörð veður.
KURTEISI KOSTAR EKKERT
Kvartað hefur verið um, að
stundum sé svarað ónotum hjá
Rafveitu Akureyrar, þegar
spurt er um rafmagnstruflanir.
Ekki hefur blaðið þá reynslu,
en vill minna á, áð þótt ergilegt
sé að gefa endurtekið svar í
síma Rafveiíunnar eiga neyt-
endur að fá hið saniig að vita
hverju sinni — að sjálfsögðu í
stuttu máli.
LISTAMANNALAUN
Uthluíun listamannalauna er
jafnan umtalsefni. Nú hafa
tölufróðir menn frá því sagt, að
þeir lánsömu listamenn, sem
hljóía hin sérstöku heiðurslaun
ríkisins, og eru hærri en önnur
lisfamannalaun, séu þó ekki
mikils metnir. Það kemur sem
sé í ljós, að 14 ára drengir á
skellinöðru hafi hærri sendils-
laun.
KJÓLFALDAR HÆKKA
Kjólar eru allfaf að styttast,
seg a tízkudömury og munu kjól
faldar senn 15 cm fyrir ofan
liné. Jafnhliða Iyftist brúnin á
karlmönnum. Sálíræðingar hafa
(Framhald á blaðsíðu 7.)
LEIKFÖNG EÐA
FARARTÆKI
Á SUNNUDAGINN, þegar veð-
ur var enn hið versta á Akur-
eyri, brunaði snjóbíll um bæ-
inn og kom í góðar þarfir, einn-
ig komust jeppar sumar leiðir,
þótt aðrar væru alveg lokaðar
öllum bílum. Sparibílar borgar-
anna stóðu upp úr snjónum,
ósköp umkomulausir, eins og
leikföng, sem ekki er lengur
gaman að. En þeirra tími kem-
ur síðar. Q