Dagur - 26.03.1966, Síða 8
SMÁTT OG STÓRT
8
1> Úr íþróltasal skólanna á Húsavík. Hluti af salnum og áhorfendastúkan. fþróttafélagið Völs-
$ ungur nýtur ókeypis aðstöðu í salnum.
ÝMSAR FRÉTTIR FRÁ BÚNAÐARÞINGI
E'iR.INDI Gísla Magnússonar
varðandi ■ Rannsóknarstofnun
landbúnaðarins.
ÁLYKTUN:
Búnaðarþing skorar hér með
ó stjórn Bún. ísl. að vinna að
því eftir mætti við ríkisstjóm
og Alþingi að framlög úr ríkis-
sjóði til rannsókna í þágu ís-
lenzks landbúnaðar verði það
rífleg að í náinni framtíð, verði
unnt fyrir bændur landsins að
byggja á haldgóðum niðurstöð-
um rannsókna til hagræðingar
í búskap sínum.
Tillaga til þingsályktunar um
hækkun á ævifélagagjaldi. Frá
fjárhagsnefnd.
Búnaðarþing ályktar, að ævi-
félagagjald Búnaðarfél. ísl.
skuli hækka úr kr. 200.00 eins
og það nú er, í kr. 500.00.
Erindi stjórnar Bún. fsl. um
ábúð prestsetursjarða í sveitum:
ÁLYKTUN:
Búnaðarþing ályktar að beina
því til ríkisstjórnar og Aiþingis
að láta fara fram rækilega at-
hugun á ráðstöfun prestseturs-
jarða í því augnamiði að nýting
landgæða þeirra og að búskap-
ur á þeim geti haldizt í hendur
við ríkjandi umbóta- og fram-
faraþróun í landbúnaði vorum.
Er það hvort tveggja í senn
fjárhags- og menningaratriði að
komið sé í veg fyrir að úrelt og
óraunsætt skipulag sé látið
standa í vegi fyrir eðlilegri og
hagkvæmri þróun á þessu sviði.
Nú leiðir athugun þessi það
í ljós, eins og hér er að vikið,
að breytinga sé þörf, mundi í
xnörgum tilfellum sú leiðin
ravmsæust til úrbóta að selja
bændum prestsetursjarðirnar,
nema þar sem jarðir þyrfti að
nota í almenningsþarfir, t. d.
sem skólasetur. Þá yrði jafn-
Enn snjóar á Skaga
SAMKVÆMT fréttum af Skaga
strönd í gær, er þar komið mik-
ið stórfenni og meira en oftast
áður Til marks um það mætti
riefna, að símalínur hefur fennt
í kaf á tveim stöðum úti á Skaga
vestanverðum. Bílvegi milli
Skagastrandar og Blönduóss er
reynt að halda opnum og tekst
oftast. □
framt búið í haginn fyrir búsetu
presta, þar sem þeir, miðað við
nútíma hætti, hefðu sem bezt
starfsskilyrði, t. d. við skóla
eða í þéttbýliskjörnum sveit-
anna.
Erindi Gísla Magnússonar
varðandi raforkumál:
ÁLYKTUN:
Búnaðarþing ítrekar enn á
ný fyrri ályktanir sínar um
nauðsyn þess að lokið verði raf-
væðingu alls landsins. Búnaðar-
þing skorar á raforkuráð að
Ijúka áætlunargerð um fram-
kvæmdir, sem miði að því að
þessu marki verði náð árið 1970.
Jafnframt skorar þingið á
raforkumálaráðherra að beita
sér fyrir hækkuðum fjárveit-
ingum til þessa verks, svo fram
angreindu marki verði náð.
Egilsstöðum 24. marz. Hér kom
enn hörkuveður á mánudags-
kvöldið og stóð á þriðjudag.
Allir vegir urðu þá ófærir, en
sökum hvassviðrisins festi snjó-
inn lítið á harðfenni því, sem
fyrir var. Álitið er þó, að ekki
sé mjög mikið verk að opna
slóðir á ný, því snjógöngin
liggja flest með vindátt og því
fyllti þau ekki.
Lítill timburskúr á Eiðum,
3x3 m., svonefnt loftnetshús
brann til ösku. Varð því að
grípa til þess ráðs að senda út
á stuttbylgjum með varasend-
- inum.
Búið er að ganga frá hluta-
félagi um stofnun og rekstur
niðurlagningarverksmiðju, þar
sem síld og sjólax verður aðal
hráefnið. Niðurlagningarverk-
smiðja þessi verður á Egilsstöð-
um. Þegar hafa safnazt um
tveggja millj. kr. hlutafjárloforð
og heldur sú söfnun áfram.
Stofnendur hlutafélagsins eru
97 talsins og eru það bæði ein-
staklingar, félög og opinberir
aðilar. Stjómarformaður er Jón
Helgason rafveitustjóri á Egils-
Þá undirstrikar þingið rétt-
mæti þess að raforkuverð verði
það sama um allt land.
Erindi Búnaðarsambands S,-
Þing. um hjálparfólk í sveitum:
ÁLYKTUN:
Búnaðarþing telur nauðsyn á
að skipulega sé unnið að því að
tryggja aðstoð við heimili í
sveitum, þar sem húsbúendur
eða starfslið forfallast vegna
veikinda eða slysa. Æskilegt er
að slíkri starfsemi sé sett fast
form með löggjöf.
Þingið felur því stjórn Bún.
fsl. að taka til athugunar hvort
ekki sé hægt að fella þetta inn
í lög nr. 10 frá 25. jan. 1952 um
heimilishjálp í viðlögum og
semja frumvarp til breytinga á
þeim lögum, er feli í sér, ef fært
(Framhald á blaðsíðu 2.)
stöðum og með honum í stjórn
eru: Sveinn Jónsson Egilsstöð-
um, Gísli Helgason Helgafelli,
Gunnar Gunnarsson Egilsstöð-
um og Vilhjálmur Sigurbjörns-
son Egilsstöðum. Þegar er farið
að undirbúa framkvæmdir. V.S.
ÍSLENDINGAR áttu um síð-
ustu áramót 910 vélknúin fiski-
skip stór og smá og rúmlesta-
talan var 158.053. Meðalstærð
skipa er því nálega 174 rúm-
lestir. Þessi 910 skip skiptast
þannig eftir skipategundum,
samkvæmt skipaskrá, sem mið-
að er við 1. janúar 1966:
Fiskibátar með þilfari 792
Togarar 38
Hvalveiðiskip 7
Vöruflutninga- og farþegas. 40
Varðskip 5
Björgunarskip 4
Olíuskip 7
Olíubátar 4
Dráttarskip 3
Dýpkunar- og sanddæluskip 2
Hafnsögu- og tollbátar 7
NÝTT ÍÞRÓTTAHÚS
Akureyrarkaupstað vantar til-
finnanlega nýtt íþróttahús og
hefur svo lengi verið. íþrótta-
félögin Þór og KA hafa fundið
sárt hvar skórinn kreppir í
þessu efni og hugleitt að leysa
málið hvort fyrir sig, en vantar
fé. Nú er útlit fyrir að bæjar-
stjóm hefji undirbúning að
íþróttahúsbyggingu ef málinu
er fylgt fast eftir. Það er mjög
æskilegt, að íþróttafélög, skólar
o. fl. aðilar sameini átak sitt und
ir forystu bæjarins um fyrstu
og brýnustu Iausn á þessum
vanda: Byggingu nýs íþrótta-
húss.
BÆKURNAR VORU SKÓLI
Upp er að rísa á Akureyri ný
bókhlaða — bygging fyrir Amts
bókasafnið, mikið hús og veg-
legt, og við hæfi hinu mikla
safni bóka, sem lengi hefur bú-
ið við þröngan húsakost. Bygg-
ingaframkvæmdum miöar áleið
is, liægt en örugglega. Amts-
bókavörðurinn, Árni Jónsson,
sagði frá safninu hér í blaðinu
nýlega, sögu þess, daglegum
störfum, bókaútlánum og síðast
en ekki sízt ýmsum mjög athygl
isverðum hugmyndum sínum
um framtíð safnsins, sem vakið
hafa eftirtekt og umræður með-
al bókaunnenda og ýmissa
menntaðra manna. Bækurnar
voru lengi vel hinn eini al-
menni skóli fslendinga og hlut-
verk þeirra er enn mikið.
ÓDÝRAR BÆKUR
Bókamarkaður var opinn í Lista
mannaskálanum í Reykjavík
um vikutíma eða rúmlega það
um síðustu mánðamót. Mann-
margt var þar og mikið keypt.
Gömlu bækurnar, sem horfnar
eru úr bókabúðum voru þarna
td sölu á mjög lágu verði, miðað
við það, sem nú tíðkast, því
bókaverð er nú ört hækkandi
eins og allt annað.
TÆKIFÆRI, SEM VERT ER
AÐ NOTA
Svona bókamarkaður er opinn
ár hvert nú orðið. Hin minni
bókasöfn og lestrarfélög, víðs-
vegar um land, sem lítil fjárráð
Annað 1
Auk þess eru á skipaskrá
rúmlega 1300 opnir vélbátar.
Margir þeirra eru notaðir til
fiskiveiða meiri eða minni hluta
úr árinu, aðrir ekki.
Þau sjást ei oftar á sjó.
Á árinu 1965 voru 54 skip
strikuð út af skipaskrá, þau er
áður höfðu verið skráð þar, sam
tals 5090 rúmlestir.
Fróðlegt er að athuga hvað
orðið hefur þeim 54 skipum að
aldurtila. Af þeim voru 32 strik-
uð út með þeim eftirmælum, að
þau voru „talin ónýt“, þar af 6
„vegna fúa“ og 1 „vegna þurra-
fúa“. Þrjú skip voru „brennd" á
árinu og var eitt þeirra 60 rúm-
hafa, ættu að gefa þessu gaum
og hafa þar umboðsmenn. Einn-
ig gætu þau sennilega fengið
bókaskrá hjá Bóksalafélaginu
eða útgefendum til liægðarauka.
Ekki má gleyma því, að hér á
Akureyri er talsvert gefið út af
bókum, og sumar þeirra seldar
á lága verðinu. Og bók, sem
kom út fyrir tíu eða tuttugu ár-
um gétur verið eins góð eða
betri en ný bók, þótt hún kosti
minna.
KONUR f HRfSEY
Konur í Hrísey hafa á fundi
kvenfélagsins mótmælt harðlega
fram komnu bjórfrumvarpi.
Sendu þær Alþingi mótmæli
sín, ásamt áskorun um að fella
það. Konur í Hrísey skilja það
réttilega, að vandi áfengisnotk-
unar á fslandi verður ekki Ieyst
ur með því að bæta bjórdrykkj-
unni við. Við slíkt skapast að-
eins annað og nýtt vandamál,
sem að sumu leyti er verra böl
hinu fyrra.
HÁSKALEIKUR
Daglega horfa vegfarendur á
þann háskaleik barna og ungl-
inga, að hanga aftan í bílum.
Mest ber á þessu í nágrenni
skólanna og er furðulegt, að
slíkt skuli ekki upprætt þar.
SÆLUVIKU FRESTAÐ
Sauðárkróki 24. marz. Engin
mjólk barst til samlagsins í
fyrradag. Þá var enn allt lokað
vegna snjóa og hörku stórhríð,
ein hin mesta, sem hér hefur
komið. Fannkoman var geysi-
leg og hvassviðrið svo, að kaila
mátti aftakaveður.
Víða er fannfergi, einkum að
austanverðu í Skagafirði. Snjó-
léttara er inn til héraðsins. Far-
ið mun að sneyðast um beitiland
fyrir útigönguhrossin, en þau
munu þó enn í sæmilegum hold-
um.
Ekkert er farið á sjó að heita
má. Maður fær naumast rauð-
maga í soðið.
Sæluvikunni varð að fresta
vegna illviðranna. S. V.
lesta bátur í Reykjavík, notaður
í áramótabrennu. Fjórir bátar
brunnu á sjó og sukku, 6, 12, 13
og 33 rúmlestir. Tvo rak á land,
tveir togarar og eitt vöruflutn-
ingaskip voru seld til Grikk-
lands. Einn bátur sökk á sjó
eftir ásiglingu (27 rúml.), tveir
strönduðu (43 og 45 rúml.).
Strákur (59 rúml.) fórst við
Hópsnes. Sex bátar sukku á mið
um úti eða á leið af miðum og
voru þeir þessir: Björn Jónsson
Reykjavík 105 rúml. Sökk 29.
júlí við Hrollaugseyjar. Hilmir
frá Keflavík, 18 rúml. Sökk í
róðri 17. ágúst. Rifsnes frá
Reykjavík, 158 rúml. Sökk út
af Bjarnarey 12. september. Haf
(Framhald á blaðsíðu 7.)
L0FTNET5HÚS BRANN A EIÐUM
SKIPASTÓLL ÍSLENDING A