Dagur - 15.06.1966, Síða 1
HOTEL
Herbcrgis-
pantanir.
FerSa-
skriístoían
Túngölu 1.
Akureyri,
Sími 11475
XLIX. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 15. júní 1966 — 46. íbl,
FerSaskrifsíofans'tliVs’
Skipuleggjum
ieiðir skauta
á milli.
Farseðlar með
Flugfél. ísl. og
Loítleiðum.
MOKAFLI 4 FÆRI
Grímsey 13. júní. Hér er góð
sprettutíð, skiptist á sólskin og
gróðrarskúrir. Góður sauðgróð
ur er því kominn á eynni.
í meira en viku hefur verið
mokafli á færi rétt austan við
eyjuna og veður góð. Margir
aðkomubátar, svo sem frá Ól-
afsfirði og Húsavík, hafa verið
hér líka og notið aflans með
okkur.
Björgin voru full af fuglum
°g eggjum í vor, en lítill timi
vannst til að vinna að eggjatöku
og fuglaveiði var engin, enda
búið að banna flekaveiði hér.
Ymsir skruppu þó í björgin til
að tína egg til heimila sinna.
Hér vildi það til nýlega í
róðri, að trilla Sæmundar
Traustasonar sökk. Kom að
henni óstöðvandi leki. Veður
var gott og næsti trillubátur
bjargaði manninum, sem var
einn á. S. S.
Fréllabréf af Langanesi
Langanesi 11. júní. Sauðburði
er enn ekki lokið hér á nesinu
og kemur það sér vel, því að
vorbatinn var mjög hægfara að
þessu sinni og gréri seint, en
vetur harður og snjóþungur.
Um síðustu helgi brá til sunn-
anáttar og hefur þessi vika ver-
ið hlý, hiti 10—14 stig á daginn
á mið- og innnesinu, en heldur
kaldara á veðurathugunarstöð-
inni á Skoruvík. Sauðburður
hefur yfirleitt gengið vel, en þó
ÞEIR STÓÐU SIG VEL
ÚT AF fréttum frá dansleik á
Laugum, sem nýlega var frá
sagt, ræddi Helgi Baldursson,
einn af nýútskrifuðum gagn-
fræðingum þaðan við blaðið og
óskaði að taka fram eftirfar-
andi:
Enginn gagnfræðingur frá
Laugum í vor hafði áfengi um
hönd á umræddum dansleik.
Þessa viðbótarfrétt er blað-
inu ánægja að birta. □
eitthvað borið á lambaláti á
sumum bæjum, en mikið hefur
verið gefið af kjarnfóðri, og
talsvert af heyi var flutt hing-
að að sunnan, enda var sumar-
ið 1965 mjög erfitt heyskapar-
sumar og sumt hey hirtist ekki
fyrr en um veturnætur.
Grásleppuveiði á Þórshöfn
og Heiðarhöfn var mun minni
en í fyrra, miðað við netafjölda.
Tveir aðkomubátar stunduðu
þessa veiði í Heiðarhöfn, auk
innansveitarmanna, báðir að
sunnan. -
Sigið hefur verið í Skoruvík-
urbjörg og stóð Guðmundur á
Kvíslarhóli á Tjörnesi fyrir
þeirri framkvæmd, en sigmað-
ur var Óskar Jónsson frá Lækn
isstöðum, sem nú er búsettur á
Þórshöfn. Fjöldi er af fugli í
björgunum og mikið kríuvarp
í Skoruvík, eitt hið mesta á
landinu. Æðarvarp mun vera í
minna lagi, en trjáreki viða
meiri en undanfarna vetur.
Grenjavinnsla stendur yfir, en
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Námskeið á vegum Almannavarna ríkisins stendur yfir á Akureyri þessa dagana. Kennd er
slysa- og sjúkrahjálp, slökkvitækni o. m. fl. Ilér eru nemendur á æfingu við að slökkva eld.
Iðnaður samvinnumanna dregsf saman
eða slöðvasl el verðbólgan heldur álram
segir framkvæmdastj. SIS, Erlendur Einarsson
AÐALFUNDUR Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga var
haldinn í Bifröst í Borgarfirði
sl. föstudag og laugardag.
Formaður Sambandsstjórn-
ar, Jakob Frímannsson, kaupfé
lagsstjóri, setti fundinn og bauð
fundarmenn velkomna. Minnt-
ist hann nokkurra forystu-
manna samvinnuhreyfingarinn
ar, sem látizt höfðu frá því að
síðasti aðalfundur var haldinn.
Síðan var gengið til dagskrár.
Fundarstjórar voru kosnir
Karl Kristjánsson og Ragnar
StLDARSKIPIN ERU VIÐ JAN MAYE!
Ovenju mikil fiskganga fyrir Norðurlandi
ENN ER fremur dauft yfir sild
veiðunum, aflinn sl. viku varð
12.476 lestir, sem veiddist mest
á fjarlægum miðum, nú síðustu
dagana suður og suðaustur af
Jan Mayen.
Heildarsildaraflinn á þessari
vertíð var sl. laugardagskvöld
56.286 lestir eða um 417 þús-
und mál. Á sama tíma í fyrra
var síldaraflinn um 319 þúsund
mál en þá byrjuðu veiðarnar
nokkru seinna en nú.
Aflinn síðasta sólarhring var
4.158 lestir af 24 skipum, mest
frá Jan Mayen-svæðinu. Eitt
skip var að veiðum 110—120 sjó
mílur AAN frá Norðfjarðar-
horni sl. nótt og fann þar nokk
uð af síld og hafði fengið 90
lestir í tveimur köstum í morg-
un af góðri síld.
Þcrskveiðar.
Óvenju góður þorskafli hefur
verið í mörgum verstöðvum hér
norðanlands sl. viku. Hefur
veiðzt á h'nu og handfæri og
(Framhald á blaðsíðu 7.)
Byrjað á síldarbræðslu á Dalvík
Dalvik 13. júní. Hér er nú byrj-
að á byggingu 500 mála síldar-
verksmiðju, sem ætlunin er að
komist undir þak í sumar og
verði búin vélakosti næsta
vetur. Það er Dalvikurhreppur,
Utibú Kaupfélags Eyfirðinga,
Netagerðin og margir einstakl-
ingar, sem mynduðu hlutafélag
um þessa framkvæmd, sem nú
er verið að hrinda af stað.
í gær tók að flæða yfir veg-
inn hjá Hrísum, svo sem oft
vill verða í miklum vatnavöxt-
um. En um tjón var ekki kunn-
ugt.
Smærri bátar hér eru að
reita ofurlítið á færi. J. H.
Ólafsson, og fundarritarar Stef-
án Halldórsson, Óskar Jónsson
og Skúli Ólafsson. Rétt til fund
arsetu áttu að þessu sinni 105
fulltrúar frá 56 kaupfélögum
méð samtals 31 þúsund félags-
menn. Voru flestallir fulltrúar
mættir, er fundur var settur.
Auk þess sitja fundinn stjórn
Sambandsins, forstjóri og fram
kvæmdastjórar, endurskoðend-
ur og allmargir starfsmenn Sam
bandsins.
Að lokinni fundarsetningu
flutti formaður Sambandsins,
Jakob Frímannsson, skýrslu
stjórnarinnar og förstjóri Sam-
bandsins, Erlendur Einarsson,
skýrslu um reksturinn á árinu
1965. í ræðu sinni kom forstjóri
víða við.
Umsetning Sambandsins að
krónutölu var meiri en nokkru
sinni fyrr, einkum vegna stór-
aukins útflutnings. Mest var
aukningin í Sjávarafurðadeild,
kr. 307,4 millj. Innflutnings-
deild hafði aukið umsetningu
um kr. 160,0 millj. og Véladeild
um kr. 45,0 millj. í Búvöru-
deild hafði umsetning hins veg-
ar minnkað um kr. 28,9 millj.
Heildarumsetning í öllum
aðaldeildum og smærri starfs-
greinum Sambandsins á árinu
1965 varð samanlagt kr. 2.540,2
millj. og hafði aukizt um kr.
518,4 millj. frá árinu áður eða
um 25,64%.
Rúmlega helmingur af heild-
arumsetningunni árið 1965 er
sala á búvörum og sjávarafurð-
um eða samtals kr. 1.300 millj.
Vörur þessar selur Sambandið
gegn umboðslaunum, sem eru
frá 1 til 3%.
Umsetning í aðaldeildum
Sambandsins árið 1965 var sem
hér segir í millj. kr.
Búvörudeild 518,2 og hafði
minnkað um 28,9. Sjávarafurða
deild 808,1 og hafði vaxið um
307,4. Innflutningsdeild 477,4 og
hafði vaxið um 160,6. Véladeiid
240,9 og vaxið um 45,0. Skipa-
deild 110,1 og hafði vaxið um
12,5. Iðnaðardeild 224,2 og hafði
vaxið um 6,4.
(Framhald á blaðsíðu 2.)
B-LISTA SKEMMTUN-
IN HEPPNAÐIST VEL
FRAMSÓKN ARMENN efndu
til kvöldskemmtunar fyrir
stuðningsfólk B-listans í bæj-
arsíjórnarkosningunum. Kvöld
skennntun þessi, sem var mjög
vel sótt, var haldin á Hótel
KEA.
Ingvar Gíslason alþingismað-
ur setti samkomuna og stjórn-
aði henni, en Sigurður ÓIi
Brynjólfsson bæjarfulltr. flutti
ávarp. Karl Guðmundsson leik
ari fór með tvo gamanþætti og
síðan var stiginn dans af miklu
fjöri.
B-listaskcmmtunin fór öll
hið bezta fram, var þeim til
sóma, sem hana undirbjuggu,
og samkomugestum til hinnar
mestu ánægju. □