Dagur - 15.06.1966, Qupperneq 2
2
Frá aðalfundi SÍS
(Framhald af blaðsíðu 1).
Á árinu 1965 hélt rekstrar-
kostnaður látlaust áfram að •
hækka sagði forstjórinn. Heild
arlaunagreiðslur á reksturs-
reikningi Sambandsins urðu kr.
168,5 millj. á móti 136,6 millj.
árið áður. Hækkunin nemur kr.
31,9 millj. eða 13,3%. Fjöldi
starfsmanna er þó næstum
alveg óbreyttur frá árinu áður.
Tekjuafgangur á rekstrar-
reikningi Sambandsins 1965
varð kr. 784.000.00 og hafði þá
verið greitt til Sambandskaup-
félaganna vextir af stofnsjóði
kr. 6.663.516.00 og afslættir af
viðskiptum við Birgðastöðina
kr. 2.733.243.00.
Afskriftir fasteigna, skipa,
véla og bifreiða voru kr. 23,1
millj.
Opinber gjöld hækkuðu úr
kr. 10,6 millj. árið 1964 í 12,8
millj. árið 1965.
__ Byggingarframkvæmdir Sam
bandsins voru mjög litlar á ár-
inu og ekki byrjað á neinni
nýrri meiriháttar framkvæmd.
í>að er augljóst, sagði Erlend-
ur Einarsson, hve rekstur skip-
anna og iðnaðurinn eiga nú
mjög í vök að verjast og yfir-
leitt allur sá rekstur, sem þarf
að keppa beint og óbeint við
útlönd. Ullar-, og skinnaiðnað-'
urinn fyrir útlendan markað
stenzt ekki lengur hinar gífur-
legu hækkánir framleiðslukostn
aðar, innanjands. Framundan er
stöðvun í þessum iðngreinum,
ef frekari hækkun rekstrar-
kostnaðar á sér stað.
Rekstur kaupfélaganna í
heild varð mun lakari en árið
áður. Umsetning þeirra á árinu
1965 er þá ekki talin með upp-
setningu sjálfstæðra fyrirtækja
félaganna eins og t. d. fisk-
vinnslustöðva varð 3.540 millj.
kr. og hafði vaxið um 329 millj.
eða nálega 10%. Reksturskostn
aður þeirra hefur hins vegar
vaxið mun meira hlutfallslega
en tekjur þeirra af verzlun og
smásöluverzlunin stendur mjög
höllum fæti. Eigin fjármyndun
samvinnufélaganna er alltof
lítil.
Forstjórinn sagði, að aðal-
ástæða þess alls væri sívaxandi
verðbólga, sem látlaust grefur
undan öllum atvinnuvegum
þjóðarinnar. í skýrslu sinni
lagði hann höfuðáherzlu á, að
stöðva yrði verðbólguna með
öllum tiltækum ráðstöfunum,
draga úr fjárfestingu og
minnka eftir mætti hina miklu
spennu, sem nú ríkir í efnahags
h'finu.
Þá ræddi Erlendur Einarsson
um hina sívaxandi rekstrarfjár
þörf landbúnaðarins vegna
breyttra búskaparhátta undan-
farin ár. Væri þetta mjög stórt
vandamál og óleyst, sagði hann.
Yrðu bankar og peningastofn-
anir að taka til alvarlegrar at-
hugunar hvernig helzt væri að
leysa það. Samvinnufélögin
hafa ekkert bolmagn til þess,
sagði forstjórinn.
Þá ræddi hann um vinnslu-
stöðvar Samvinnufélaganna,
hversu mikla þjóðhagslega þýð
ingu þær hafa.
Á árinu hefur átt sér stað
mikil fjárfesting í endurbótum
á vélum þeirra og tækni, en
hún þarf að verða miklu meiri,
og fjármagnsþörf til uppbygg-
ingar vinnslustöðvanna verður
að leysa. En fyrst og fremst er
það verðbólgan, sem er höfuð-
mein allra þessara hluta. Gegn
henni verður að beita öllum
tiltækum ráðum, sagði forstjór-
inn.
Að lokinni skýrslu forstjór-
ans fluttu framkvæmdastjórar
hinna ýmsu deilda skýrslur
sínar.
Síðan voru iagðir fi-am reikn
ingar Sambandsins, og umræð-
ur hófust um skýrslurnar og
reikningana. □
- FRETTABREF AF LANGANESÍ
(Framhald af blaðsíðu 1.)
grenjaskytta hér er Ásgrímur
Hólm Kristjánsson í Þórshöfn.
Helgi Jónasson frá Hlíð, lög-
regluþjónn í Reykjavík, dvaldi
hér nokkra daga með veiði-
hunda og vann 14 minka og
fann tvö minkagreni. Þykir
hann hafa unnið þarft verk.
Annað grenið var sunnan við
Sauðaneslón, hitt við Bæjar-
vatnslæk skammt frá Hlíð.
Nýja síldarverksmiðjan (1500
—2000 mála) í Þórshöfn getur
væntanlega tekið til starfa í
þessum mánuði, ef síld fæst.
Mjólkurstöð Kaupfélags Lang-
nesinga tekur einnig til starfa
í sumar, en á meðan beðið er
eftir henni verður eitthvað af
mjólk flutt til Vopnafjarðar.
Fyrst um sinn verður aðallega
um gerilsneyðingu að ræða
vegna heimaneyzlu á Þórshöfn.
Séra Marinó Kristinsson í
Vallanesi hefur verið settur
prestur á Sauðanesi, og er hans
von, og fjölskyldu hans, hingað
norður innan skamms.
ALÞJÓÐASJÓSTANGVEIÐIMÓT
(Framhald af blaðsíðu 8).
um gull- og silfurverðlaun sem
Evrópusamband Sjóstangveiði-
manna gaf þeim einstaklingum,
er hefðu þyngstan afla og hlutu
þau hjónin Eiríkur Stefánsson,
Akureyri, sem veiddi 185.700
kg og Hólmfríður Þorláksdótt-
ir, sem veiddi 148.500 kg.
Allgóð þátttaka í 17. júní mótinu
SL. LAUGARDAG fór fram
fyrri hluti 17 júní mótsins á
Akureyri. Þátttakendur voru
allmargir frá ÍMA, KA, Þór og
UMSE. — Úrslit urðu þessi:
400 metra hlaup. m.
1. Kjartan Guðjónsson ÍMA 53,6
2. Sigurður Sigmundss. UMSE 54,4
3 Kári Árnason KA 55,3
800 metra hlaup. m.
1. Ásgcir Guðmundsson KA 2.10,4
2. Viihjálmuf Björnss. UMSE 2.14,1
Stangarstökk. m.
1. Valgarður Sigurðsson KA 3,40
2. Kári Árnason KA 3,40
Langstökk. m.
1. Gestur Þorsteinsson UMSS 6,46
2. Sigurður Sigmundss. UMSE 6,22
3. Kjartan Guðjónsson ÍMA 5,81
Kúluvarp. m.
1. Kjartan Guðjónsson ÍMA 14,28
2. Þóroddur Jóhannss. UMSE 13.24
3. Sigurður Sigmundss. UMSE 11,58
Kringlukast. m.
1. Kjartan Guðjónsson ÍMA 38,56
2. Sigurður Sigmundss. UMSE 36,82
3. Þóroddur Jóhannss. UMSE 36,79
17. júní fer fram síðari hluti
mótsins, og verður þá keppt í
eftirtöldum greinum:
100 m. hlaupi, 1000 m. boð-
hlaupi, spjótkasti, hástökki og
1500 m. hlaupi. □
AKUREYRINGAR
LÉKU I EYJUM
í GÆRKVÖLD (þriðjudags-
kvöld) léku Akureyringar í
Vestmannaeyjum. Þangað var
þeim boðið eins og sagt hefur
verið frá í blöðum. Ekki var
vitað hvernig leiknum lauk, er
blaðið fór í prentun.
Næsti leikur ÍBA í I. deildar-
keppninni er 19. júní í Reykja-
vík, en þá leika Akureyringar
við Val. □
FRÁSÖGN af sundmóti á
Laugalandi á Þelamörk bíður
birtingar eins og fleira vegna
þrengsla.
Stærstu fiskana veiddu eft-
irtaldir menn:
Þorsk, 17 kg. Konráð Árna-
son, Akureyri.
Ýsu, 2,910 kg. Hólmfríður-
Þorláksdóttir, Akureyri.
Steinbít, 5,00 kg. Ómar Kon-
ráðsson, Reykjavík.
Lúðu, 2,33 kg. Magnús Odds-
son, Akureyri.
Ufsa, 2,10 kg. Guðmundur
Gíslason, Reykjavík.
Karfa, 0,98 kg. Magnús Valdi
marsson, Reykjavík.
Keilu, 10,40 kg. Lárus Árna-
son, Akranesi.
Með hæstan meðalafla á
mann voru eftirtaldir bátar:
1. Eyrún, Hrísey. Skipstjóri
Jóhann Jónasson. 2. Auðunn,
Hrísey. Skipstjóri Kristinn Jak
obsson. 3. Björn, Hrísey. Skip-
stjóri Tryggvi Ingimarsson, og
hlutu þeir allir fagra verðlauna
gripi til eignar.
Þá veitti bsejarstjóri Akur-
eyrar, Magnús E. Guðjónsson,
hæsta einstaklingi úr hverju
byggðariagi minjagrip, sem var
áritaður fáni úr silki með
skjaldarmerki Akureyrarbæj-
ar. Q
Vormót í knattspyrnu
VORMÓTIÐ hélt áfram um sl.
helgi og léku 4 fl. KA og Þór,
og lauk leiknum með jafntefli
0:0. Þá lék einnig 5. fl. Þór og
KA og lauk þeim leik einnig
með jafntefli 1:1. □
DANSKA UNGLINGALANDSLIÐIÐ
LEIKUR Á AKUREYRI 6. JÚLÍ N. K.
ÁKVEÐIÐ er að danska ungl
ingalandsliðið, en í því eru
leikmenn 23 ára og yngri, leiki
á Akureyri 6. júlí n. k. Liðið
leikur landsleik við íslenzka
unglingalandsliðið á Laugar-
dalsvellinum í Reykjavík og
kemur svo hingað og leikur
einn leik á Akureyrí.
Ekki er blaðinu kunnugt
um hvoát liðið leikur fleiri
leiki hér á landi.
Þéss má geta til gamans, að
ÍBA-Iiðið, sem lék gegn
Þrótti á dögunum, var allt
skipað leikmönnum 23 ára og
yngri.
Mjög ánægjulegt er að KRA
skuli hafa tekizt að fá þetta
Jið til keppni á Akureýri, því
sennilega er 'þetta bezta liö
sem leikið hefur hér nyrðra.
Ekki er að efa að Norðlend-
ingar munu fjölmenna á völl-
inn þegar þar að kemur.
Nánar verður sagt frá komu
danska unglingalandsliðsins
hingað, í blaðinu síðar. □
Maríus J'ósafatsson bóndi á
Hallgilsstöðum I er að hætta
þar búskap og flytjast til Þórs-
hafnar, en Lárus Jóhannsson
bifreiðastjóri á Þórshöfn hefur
keypt jörðina og flytzt þangað
með fjölskyldu sína.
Von er á slíurðgröfu frá Land
námi ríkisins, sem grafið hefur
hér undanfarin tvö sumur, en
var send suður til viðgerðar.
Hreppsnefndarkosning fór
fram á Þórshöfn 22. maí sl. og
var hlutbundin, en ekki kosið
um flokka. í hreppsnefndinni
eru: Pálmi Ólason skólastjóri
(oddviti), Sigurður Sigurjóns-
son útgerðarmaður og Jóhann
Jónasson útgerðarmaður (af
I-lista), en Vilhjálmur Sig-
tryggsson útgei-ðarmaður og
Sigurður Tryggvason sparisjóðs
stjóri (af H-lista). Sýslunefnd-
armaður er Angantýr Einars-
son kennari. □
Komin 8700 tn. síldar
Raufarhöfn 13. júní. í dag eru
hér 4 skip að landa síld og von
á fleiri skipum. Komin munu
um 8700 tonn síldar. Verk-
smiðjan er komin í gang og
vænta menn brátt af henni
fullra afkasta. En hún á að
bræða 5 þús. mál á sólarhring,
eftir gagngerða breytingu og
endumýjun vélakosts.
Alltaf veiðist hér sæmilega-
vel á færi og línu. En margt
annað kallar nú einnig að.
Komið er verkafólk til að vinna
í verksmiðjunni, en ekki mikið
fleira ennþá.
Nú hefur fundizt síld niiklu
nær landi en áður og bíða
menn spenntir eftir veiðifrétt-
um aí því svæði. H. H.
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
in og dökkleit. Þangað kom
fjöldi íólks til að horfa á iðu-
kast og fossaföll. Glerá ógnaði
eignum manna á flatlendinu á
Gleráreyrum. En jarðýtur vcru
náttlangt að verki og hömluðu
á móti.
Eyjafjarðará jókst mjög svo
sauðfé og hestum varð hætt á
flatlendinu skammt frá árósun-
um. Sjórinn var moldarlitaður
á stórum svæðum norður fyrir
Laufásgrunn. 1
VONSVIKNIR FUGLA-
VINIR
Húsmóðir í Langholti 7 í Gler-
árhverfi sagði blaðinu eftirfar-
andi í gær:
„Þröstur gerði sér hreiður í
háum skjólvegg við hús okkar.
Heimilisfólkið fylgdist mcð
þessu og fögnuðu þrastarhjón-
unum. En eftir nokkra daga
var eggjunum, fjórum að tölu,
rænt, og ekki var þar köftum
um að kenna. Fuglarnir v)eita
okkur mikla gleði og eru vin-
ir okkar. Það eru okkur því
mikil vonbrigði, þcgar fólk
leggst á eitt með grimmum dýr
um.“
ilfeiL't
.. , - - , . ... .... Nrí-.-'í'-Á' --'
Fruin hefur lög að mæla.
> ’F H - «
•f In