Dagur - 15.06.1966, Síða 5
4
Skriístofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla: _r
JÓN SAMÚELSSON x /
Prenfverk Odds Bjömssonar h.f.
Skipt iim
forystnsæti
AÐALEINKENNIÐ á úrslitum bæj
arstjórnarkosninganna er fylgistap
Sjálfstæðisflokksins og fylgisaukning
Framsóknarflokksins í kosningunum
1962 hélt áfram í þessum kosning-
um. í aðalvígi sínu, Reykjavík, er
Sjálfstæðisílokkurinn nú í minni-
hluta meðal kjósenda, tapaði sæti og
hefði misst meirihlutann í bæjar-
stjórn, ef 386 kjósendur, sem höfðu
það að aðaláhugamáli að fella íhald-
ið, hefðu kosið lista Framsóknar-
flokksins í stað þess að eyða atkvæð-
um sínum á Alþýðubandalagið að
óþörfu, sem sé, reiknað líkurnar rétt.
Einkennilega margir kjósendur D-
listans strikuðu út nafn forsætisráð-
herrans, sem var í 30. sæti! Þykir það
að vonum bera vott um ótrausta for-
ystu. í Vestmannaeyjum missti Sjálf-
stæðisflokkurinn meirihlutann og er
það ekkert smáræðis áfall, því að bæj
arstjórinn var einn af alþingismöntir
um flokksins í Suðurlandskjördæmi.
Þeir stórtöpuðu líka fylgi í Keflavík
og í stað þess að Sjálfstæðismenn
voru þar f jölmennastir, urðu þeir nti
400 fámennari en Framsóknarflokks
ntenn. Á Sauðárkróki töpuðu þeir
hvorki meira né minna en tveim
bæjarfulltrúum af fjórum og misstu
þar með meirihlutann. Og her á Ak-
ureyri töpuðu þeir allri hlutdeild
sinni í kjósendafjölguninni, nálega
70 atkvæðum til viðbótar og einum
bæjarfulltrúa — og eru ekki lengur
fjölmennastir meðal kjósenda Akur-
evrarkaupstaðar.
Áframhaldandi sókn Framsóknar-
flokksins í mörgum kaupstöðum sam
tímis er atliyglisverð. Flokkurinn
bætti við sig 2000 atkvæðum í
Reykjavík og 400 atkvæðum eða ná-
lega 66% í Keflavík og nærri lá, að
hann fengi þar meirihluta í bæjar-
stjórn. Hann vann verulega á í Vest-
mannaeyjum, ísafirði, Siglufirði,
Sauðárkróki og víðar og bætti við
sig fulltrúum, svo sem áður hefur
verið sagt. Og meðal kjósenda hér í
höfuðstað Norðurlands tók hann
forystusætið af Sjálfstæðisflokknum
og varð I jöhnennastur í bæjarstjórn-
inni.
Alþýðúflokkurinn fékk talsverða
atkvæðaaukningu, en þó ekki meiri
en svo, að bæjarfulltrúar hans í kaup
stöðum landsins í heiltl eru nú jafn
margir og fyrir kosningar. Alþýðu-
bandalagið fékk í heild heldur færri
aikvæði en 1962 í kaupstöðum lands
ins og sömu fulltrúatölu. □
Felagar í Sjálfsbjörg nær álfa huodryð
Áttunda þingið haldið í Skíðahótelinu í Hlíðar-
fjalli dagana 4. og 5. júní síðastliðinn
ÁTTUNDA þing Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra, var
háð í Skíðahótelinu, Hlíðar-
fjalli, Akureyri, dagana 4.—6.
júní sl., og var sett laugardag-
inn 4. júní kl. 10 f. h. af for-
manni landssambandsins Theo-
dóri A. Jónssyni.
Þingforsetar voru kjörin, Sig
ursveinn D. Kristinsson,
Reykjavík og Heiðrún Stein-
grímsdóttir, Akureyri. Ritarar
voru kjörin, Árni Sveinsson,
Reykjavík, Þórður Jóhannsson,
Hveragerði, Þorgerður Þórðar-
dóttir, Húsavík og Sveinn Þor-
steinsson, Akureyri.
Mættir voru 41 fulltrúi frá
öllum félagsdeildunum 10,
Reykjavík, Árnessýslu, Bolung
arvík, ísafirði, Siglufirði, Sauð
árkróki, Akureyri, Húsavík,
Vestmannaeyjum og Keflavík.
Að lokinni kosningu starfs-
manna þingsins, flutti formaður
sambandsins sameiginlega
skýrslu stjórnar og fram-
kvæmdastjóra.
Innan sambandsins eru nú 10
félög, með um 790 félaga og um
610 styrktarfélaga.
Skrifstofan að Bræðraborgar
stíg 9, var rekin með sama sniði
og áður. Til hennar leituðu á
síðastliðnu starfsári 1189 ein-
staklingar, sem fengu marghátt
aða fyrirgreiðslu. Auk þess
fengu félagsdeildirnar marg-
háttaða fyrirgreiðslu í félags-
og atvinnumálum. Fram-
kvæmdastjóri sambandsins er
Trausti Sigurlaugsson.
Á árinu var unnið áfram að
undirbúningi að byggingu sam
takanna í Reykjavík, við Hátún
austan Laugarnesvegar. Byggt
verður í áföngum og er í fyrsta
áfanga ráðgert vistheimili fyrir
45 manns, æfingarstöð, vinnu-
stofur, fundarsalur, skrifstofur
og fleira. Fyrsti áfangi er 16.800
rúmmetrar og munu fram-
kvæmdir hefjast á þessu ári, en
öll er byggingin samtals 25.000
rúmmetrar. Byggingin er teikn
uð af Teiknistofunni s.f., Ár-
múla 6, en einnig var haft sam-
ráð við danska arkitekta sem
mikla reynslu hafa í að teikna
byggingar, sem sérstaklega eru
skipulagðar fyrir mikið fatlað
fólk.
Mun þetta verða stórt átak
hjá samtökunum að koma þess
ari byggingu upp, en nú eru í
Styrktarsjóði fatlaðra um 4,2
milljónir króna.
Á árinu var einnig unnið að
því, að fá Húsnæðismálastofnun
ríkisins til að viðurkenna sér-
stöðu öryrkja og þeir nytu betri
lána en almennt, til að eignast
eigin íbúðir. Að ósk Sjálfsbjarg
ar, landssambands fatlaðra
skrifaði félagsmálaráðherra, for
manni Húsnæðismálastofnunar
innar og mælti með því, að
þetta yrði tekið til athugunar í
sambandi við heildar endur-
skoðun á löggjöfinni um hús-
næðismál.
Þá var Arkitektafélagi ís-
lands send áskorun, þess efnis,
að tekið yrði tillit til fatlaðra,
við skipulag og teikningu opin-
berra bygginga.
Gjaldkeri sambandsins, Eirík
ur Einarsson, las og skýrði
reikninga sambandsins. Tekjur
voru kr. 1.051.000.00, tekjuaf-
gangur um kr. 565.000.00. Skuld
laus eign í árslok var um kr.
1.811.000.00.
Skýrslur félaganna.
Starfsemi félagsdeildanna var
hjá flestum mjög góð. Nú eru
reknar vinnustofur á vegum
deildanna í Reykjavík, á Siglu-
firði og Sauðárkróki. Á ísafirði
rekur deildin vinnustofu í sam
vinnu við Berklavörn þar á
staðnum og félagið á Húsavík
hefur nýlega eignast húsnæði
undir starfsemi sína. Á Akur-
eyri er í undirbúningi rekstur
vinnustofu, sem taka á til starfa
á þessu ári. Verður þar hafin
framleiðsla í annarri mvnd en
hjá þeim vinnustofum, sem nú
eru reknar á vegum deildanna
og verður það fyrsti áfangi í
samræmingu á rekstri vinnu-
stofa á vegum Sjálfsbjargar. A1
mennt félagsstarf er mikið hjá
deildunum. Fyrir utan almenna
fundi, eru föndurkvöld,
skemmtifundir, spilakvöld, far-
ið í sameiginleg ferðalög og
fleira. Auk þess sjá deildirnar
um merkja- og blaðasölu og
sölu happdrættismiða.
Á sunnudaginn var haldinn
útbreiðslu- og kynningarfund-
ur í „Bjargi“, félags- og vinnu-
heimili Sjálfsbjargar.
Formaður félagsins á Akur-
eyri, frú Heiðrún Steingríms-
dóttir, setti fundinn og stýrði
honum. Sigursveinn D. Krist-
insson flutti fróðlegt erindi um
málefni samtakanna og öryrkja
almennt. Eftir að hafa rakið
helztu málin, sem nú eru á
dagskrá hjá samtökunum, svo
sem tryggingamál, atvinnumál,
samgöngumál og síðast en ekki
sízt nauðsyn heildarlöggjafar
um endurhæfingu öryrkja, —
sagði hann:
MIÐSKÓLA Ólafsfjarðar var
slitið hinn 30. maí s.l. í skólan-
um voru í vetur yfir 70 nem-
endur og voru nú fleiri óskóla-
skyldir nemendur en skóla-
skyldir þar við nám. Aukin að-
sókn utanbæjarnemenda er að
skólanum og hefur skólinn
milligöngu um útvegun hús-
næðis fyrir þá.
Kristinn Jóhannsson, skóla-
stjóri, sleit skólanum og voru
nú útskrifaðir gagnfræðingar,
bæði með bóknáms- og verk-
námsdeildarpróf. Hæst á gagn-
fræðaprófi urðu þau Álfheiður
Árnadóttir í bóknámsdeild og
Gunnar Sigurbjörnsson í verk-
námsdeild. Unglingapróf tóku
„Megin takmarlc Sjálfsbjarg-
ar, er að stuðla að því að starfs
kraftar okkar komi þjóðfélag-
inu að sem beztum notum og
að við getum, hvert fyrir sig,
lifað sem sjálfstæðustu lífi. Við
lítum svo á, að það sé jafnt hag
ur þjóðfélagsins og persónuleg-
ur hagur okkar að veitt sé nauð
synleg hjálp og fyrirgreiðsla,
að hálfu hins opinbera, til þess
að því marki verði náð. Þess
vegna höldum við ótrauð áfram
að styrkja samtök okkar og
halda fram réttindamálum okk
ar.“
Á fundinum voru einnig til
sýnir ýmis konar hjálpartæki
fyi’ir fatlað fólk, svo sem fyrir
eirrhentar húsmæður, fólk sem
hefur stíf liðamót eða skertar
hreyfingar af ýmsum ástæðum.
Er þetta í fyrsta skipti, sem slík
hjálpartæki eru kynnt hérlend-
is og mun sýnishornum af þeim
verða komið fyrir á skrifstofu
samtakanna.
Á sunnudagskvöld sátu þing-
fulltrúar kvöldverðarboð bæjar
stjórnar Akureyrar í Skíðahót-
elinu í Hlíðarfjalli. Bæjarstjór-
inn, Magnús E. Guðjónsson,
bauð fulltrúa velkomna með
ávarpi. Theodór A. Jónsson
þakkaði fyrir hönd þingsins.
Á mánudag voru tekin fyrir
og rædd nefndarálit og kosið í
stjórn sambandsins og voru
eftirtalin kjörin:
Framkvæmdaráð: Theodór
A. Jónsson formaður, Reykja-
vík, Eiríkur Einarsson gjald-
keri, Ólöf Ríkharðsdóttir rit-
ari. Varaformaður: Zophanias
Benediktsson, Reykjavík. Með-
stjórnendur: Jón Þór Buch,
Húsavík, Ingibjörg Magnúsdótt
ir, ísafirði, Heiðrún Steingríms
dóttir, Akureyri, Sigurður Guð
mundsson, Reykjavík, Eggert
Theodórsson, Siglufirði.
(F réttatilkynning.
16 nemendur og hlaut Ermenga
Bjöi-nsdóttir hæstu einkunn. —
Landspróf þreyttu 9 og stóðust
6 prófið.
Afhent voru mörg verðlaun
fyrir námsárangur og félags-
störf, og stóðu ýmsir aðilar að
þeim verðlaunum. Mikið fjöl-
menni var við skólaslit. Handa-
vinnusýning og sýning á ýmissi
vinnu nemenda var haldin 1.
maí og var mjög fjölsótt.
Við Miðskóla Ólafsfjarðar
störfuðu 3 fastir kennarar og 7
stundakennarar s.l. vetur.
Þess má geta, að enn getur
skólinn bætt við nemendum
næsta skólaár.
(Fréttatilkynning).
INNBROT í SUMARBÚSTAÐ
í GÆR, 9. júní 1966 er ég vfir-
gaf skýli mitt á Moldhaugahálsi
kl. 16 var allt með eðlilegum
hætti. Svo kom ég þar í dag, 10.
júní kl. 15.30, hafði verið brot-
izt inn með þeim hætti að
sprengja upp láshespu og virð-
ist það hafa verið gert með járn
stöng, er þar var úti hjá kola-
kassanum. Þetta járn lá svo
inná bekk, sem er við vestur-
gaflinn og þar var lika skip er
var í húsinu. Á skipinu eru
fingraför. Það hefur verið rusl
að til í skápum og í rúmfata-
kassa. Sykurmolar voru á gólf-
inu og kex var þar í plastpoka.
Spor voru sýnileg að því er virt
ist eftir 2 menn og hefur annar
verið á stígvélaskóm með
mjórri tá 32 cm. spor, og hinn á
gúmmískóm 28 cm. spor,
ómunstraða á sólum? Þessi
spor lágu svo í vestur frá hús-
inu og sáust vel í leirnum.
Fyrir nokkrum árum frömdu
tveir unglingspiltar frá' Akur-
eyri innbrot þarna og stálu
ýmsu verðmætu, er aðstand-
endur þeirra greiddu mér eftir
að upp komst hverjir það
voru.
Ekki þykir mér líklegt að
þarna hafi þeir sömu verið að
verki? Hef þó ekki eftir neinu
að fara að svo stöddu.
Akureyri, 10. júní 1966.
Ebenliarð Jónsson.
NAFNLAUS BRÉF
FOKDREIFUM hafa borizt
nokkur bréf um bæjarmál,
flest nafnlaus. Fjalla þau um
ávirðingar manna og eru sum
Ijót. Öll hafa þessi bréf hafnað
í ruslakörfunni, því þau bréf-
in, sem óundirrituð eru, fara
ætíð þangað beina leið, en hin
eru ekki ætluð til birtingar.
f nokkrum þeirra kennir von
brigða út af því, að ekki var
myndaður „vinstri meirihluti í
bæjarstjórn" eða eins og segir
í einu bréfanna „ábyrg vinstri
stjórn á breiðum grundvelli".
Bréfriturum og öðrum til
fróðleiks er rétt að taka fram:
Alþýðuflokkurinn taldi sam-
stjórn með Alþýðubandalagi og
Framsókn útilokaða. Alþýðu-
bandalagið taldi bindandi sam-
vinnu ( þ. e. myndun ábyrgs
meirihluta með Alþýðuflokkn-
um og Framsókn) einnig útilok
aða. Þessir tveir flokkar Al-
þýðuflokkurinn og Alþýðu-
bandalagið útilokuðu því al-
gerlega „vinstri stjórn á breið-
um grundvelli“. Hins má einn-
ig geta, að viðræður við hvorn
þessara stjórnmálaflokka um
sig juku ekki áhuga Framsókn-
ar á tveggja flokka meirihluta,
enda mun Alþýðuflokkurinn
a, m. k. naumas't hafa haft
nokkurn áhuga á því, og við-
ræður við Alþýðubandalagið
báru ekki jákvæðan árangur.
Svo sem sjá má af þessu, var
það ekki á valdi Framsóknar
að mynda vinstri meirihluta á
breiðum grundvelli, hvort sem
mönnum líkar það betur eða
verr. Hinsvegar gæti ábyrgur
meirihluti e. t. v. myndast um
framkvæmdaáætlun þá, sem
væntanlega verður gerð fyrir
kaupstaðinn. □
Svo kemur „Sveitamaður“
ÞAÐ hefur dregizt lengur en
ætlað var, að birta síðari hluta
frásagnar ,Sveitamanns að norð
an‘, enda kosningar og hvers-
Nokkrir munir pilta á handavinnusýningu skólans. (Ljósm.: B. S.)
Útskrifaðir 19 gagnfræðingar
5
lconar annað gaman á dagskrá
um lengri tíma. En hér heldur
„Sveitamaður“ áfram frásögn
sinni af því, sem hann sá á
Hótel Sögu á sínum tíma.
„Ég átti eftir að segja ykkur
frá Neskirkju, sem blasti við
frá glugganum mínum, með
turninn utan á sér, líka Há-
skólabíó, sem er eins og harm-
onikubelgur. Ég horfði lengi
á þessa steinsteyptu menning-
arvita. En ekki kom ég því í
verk, að fara í bíó og engan
prest sá ég á hlaupum, a. m. k.
ekki í hempunni, enda víst
engin prestkosning. En alltaf
hefi ég gaman að prestkosning-
um og þykir þær skemmtana
beztar, enda sanna þær jafnan
ágæti sitt og auðga skemmtana
lífið, ef ekki trúarhitann líka,
sem kominn er víða niður í
moðvelgju.
Mér fór eins og öðrum dauð-
legum mönnum, sem vanir eru
að borða reglulega og helzt
mikið, að mig tók að svengja
og þyrsta. Ég vissi um Grillið
og góðmetið allt á þeirri hæð-
inni, líka barinn og að þar
mátti slökkva þorstann. Ég tví-
læsti herbergi mínu, stakk
lyklinum, með áfestu þjófa-
kybbinu í vasa minn, fór fram
á gang og studdi á lyftuhnapp-
inn. Nú var lyftuskömmin í
lagi, opnaðist eins og skot og
gleypti mig. Æ, þessar lyftur,
sem loka mann innan í sér og
þjóta svo upp eða niður með
mann, en það eru þau ferðalög,
sem mér er verst við. Það er
annað að fara eitthvað áfram,
já, jafnvel hart í bak er betra.
Svo fær maður svoddan inni-
lokunarkennd í lyftu, líkt og
í jarðgöngum. Þess utan hafa
hvorki lyftur eða jarðgöng fært
mér þau tækifæri, sem ýmsir
bókahöfundar hafa dálæti á að
láta mann upplifa með sögu-
persónum sínum. Þetta er allt
orðið glansandi bjart og ekkert
spennandi, nema lyftan bili eða
ljósið fari í jarðgöngunum.
Guð forði slíku, því þá er alls
ills von en ekki ævintýra.
Jæja, áfram með smjörið. —
Sem ég stend þarna eins og
glópur í lyftunni, gjóaði ég
auga ■ á samfei'ðafólkið, einn
mann og tvær konur. Manninn
þekkti ég strax af myndum og
gat ekki annað en dáðst að
myndasmiðnum, sem myndir
þær hefur tekið. Mannskrattinn
var svo ótútlegur, á þó að heita
einn af forystumönnum þjóð-
arinnar. Mér sýndist hann bók-
staflega eitthvað bilaður. Hend
urnar voru á taugaveiklunariði
og augun eins og í fjögurra
nátta fiski fyrir verðhækkun,
en þá var fiskurinn ekki mun-
aðarvara, jafnvel ekki þessa
heims synd að míga á hann.
Ég sá, að lyftan bar hann ekki
nægilega hratt. Maðurinn var
að flýta sér undir drep. Ég
held, hann hefði haft gott af
því að hlaupa upp stigana.
Hvort hann hefur gripið gæf-
una á loftskörinni er mér alls
ókunnugt, líklega, raunar, að
hann hafi þar einhvers misst.
Svona ólmir menn eru alltaf að
tapa einhverju.
Svo fór ég að taka eftir veika
kyninu, stúlkunum tveim, af-
sakið ókurteisina, því ég átti
að segja frá þeim fyrst. Önnur
var útlend, alveg í blómanum
og hin tæplega í honum enn-
þá, svona eins og þrevett trippi
og syndsamlega stuttklædd, eft
ir mínum smekk. Af því ég
kreisti ekki aftur augun, en það
er nú líka ókurteisi, komst ég
ekki hjá því að sjá hvar manns
nafnið Pétur, stóð skrifað á
læri stúlkunnar, rétt við kjól-
faldinn. Já, þar stóð Pétur kall-
inn á haus, skráður á lifandi
hold síns herra með bírópenna,
kippkorn ofan við hné. Þótt
mér sýndist bæði skriftin og
bókfellið betur eiga heima í
skjóli klæðnaðar, var ekki um
að tala. Tízkan hefur æfinlega
verið skrítin skepna og gert
marga skrítna. Og nú ku það
vera að komast í tízku að skrifa
eitt og annað á svona skinn, t.
d. mannanöfn og stefnumót.
Það er nú orðið mikið af þeim
í seinni tíð. Það held ég að for-
feður okkar, frægir fyrir orð-
snilld og sögukunnáttu, hefðu
verið ánægðir að pára á svona
skinn. Og svo var þessi útlenda
væn kona að því er virtist og
mjög fríð sýnum, og ekki var
neitt skrifað á hana. Það er
líka gaman fyrir ungar stúlk-
ur að vera óskrifað blað. Ég gat
ekki að því gert, að ég hafði á
tilfinningunni, að sú væri
leggjaprúðari og meiri yndis-
þokka gædd til fótanna, er pils-
um var hulið niður fyrir hné,
en sú stuttklædda og Pétri
merkta. Það mega svei mér
vera fallegir fætur á konu, sem
eru fallegri en sú mynd, sem
maður lætur eigin huga gera
af ganglimum fullklæddrar
konu.
Og er þá lyftan ekki strax
komin upp á Grillhæðina, opn-
andi sinn víða munn, spúandi
okkur út á gang, svo að segja
rétt fyrir framan barinn. Hann
blasti nú við mér, gullroðinn
allur og hinn ski-autlegasti. Er
þar Mammoni þjónað og Bakk-
usi og fer gullsliturinn vel.
Ekki get ég neitað því, að
heldur víkkaði sjóndeildar-
hringurinn, þegar lyftan laukst
að baki, en við mér brostu
andlit mörg og glöð, sum meira
að segja orðin löðursveitt af
gleði. Þarna var nú sannköll-
uð smáskammtaverzlun og ekki
hagstæð kaupin. Mér ofbauð
fólksmergðin þarna í kring um
barinn. Menn stóðu og tróðust,
eða sátu á stólum. Og þeir eru
hafðir fáir til að sem flestir
komist að en hver tefji ekki
lengi. Góðvildin flæddi af mönn
um og konum og þetta fólk
vildi v'íst öllum gott gera, og
svo er verið að bölva víninu!
Þetta fólk hafði engar áhyggjur
af morgundeginum, — þessari
plágu íslendinga, — sem löng-
um hefur verið að sliga þá og
drepa. Þessi morgundagskvíði
hefur að vísu gert margan
manninn meiri og meiri, satt
er það. En stundum verður
hann manni of þungur.
Stóð þarna ekki stórathafna-
maður að norðan? Jú, sem ég
er lifandi maður og hófsmaður
kallaður þar, en átti hér a. m. k.
allt ísland, eftir útliti hans og
tilburðum öllum að dæma. Já,
landið allt með kviku og daúðu
og fannst ekki mikið. Eitthvað
var nú gefandi fyrir það, og
fai'inn að halda framhjá kellu
sinni, eða bara að látast. Mér
var heldur illa við að sjá þetta.
Kynið að honum er nefnlega
þannig, að á vissu stigi ölvun-
ar verða mennirnir vitlausir og
vilja helzt drepa einhvern, en
verða svo góðir aftur þegar
(Framhald á blaðsíðu 7)
aiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
ÁRNI G. EYLANDS:
11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
HVAÐ ER STÖRT! BÚSKAPNUM?
OFT HEYRAST raddir um að
flest sé stærra og betra í öðrum
löndum, ekki hvað sízt á sviði
landbúnaðarins. Og þegar sagt
er frá stórum hlutum erlendis
hættir oss til að halda að það
sé hið verulega þar, og smæð
íslenzkra bænda vex í hugum
manna.
Samt er það raun og sann-
leikur, að meðalinnlegg bænda
af mjólk í Mjólkursamlag KEA
og Mjólkurbú Flóamanna er
mun meira en í nokkru almenn
ings-mjólkurbúi á Norðurlönd-
um, handan íslandsála.
Og hér er rætt um 500 kúa
fjós til þess að frelsa kúabænd-
ur frá þrældómnum. Samt er
upplýst á alþjóðaþingi bænda
að jafnvel í Bandaríkjunum,
þar sem flest er talið stórt,
reynist ekki hægt að framleiða
mjólk ódýrari heldur en gert er
á 30—35 kúa búum.
Vafalaust má bjarga mörgum
kotkarli frá þrældómi með því
að ríkið kaupi kotin og mjólkin
verði framleidd á verksmiðju-
búum, slíkar „framfarir“ á ekki
að banna. Fjöldi neytenda hygg
ur gott til slíkra framleiðslu-
hátta. Vita ekki né skilja það
sem augljóst er og erlend
reynsla hefir sýnt og sannað, að
það fæst ekki ódýrari mjólk frá
fleiri liundruð kúa verksmiðju-
fjósum, mjólkin þaðan verður
dýrari heldur en frá bændum.
Ég segi með vilja: heldur en frá
bændum, því að vitanlega verða
það ekki bændur, sem búa 500
kúa búunum. Það verða, og
verða að vera fjársterk hluta-
félög og fjárplógsmenn sem
reka slík fyrirtæki. Hið nýja
fyrirkomulag þýðir að bændur
hverfa sem búandi bændur —
nema eitthvað af fjárbændum.
— Allt í lagi, þeir lenda í
Straumsvík, en neytendum kem
ur til að blæða, við hærra verð
lag á mjólk og mjólkurvörum,
nema að ríkissjóður borgi brús-
ann.
Auðvitað á ekki að banna
„framfarir", jafnvel ekki þótt
þær séu engar framfarir, og
vonandi fást danskir fjósamenn
— kunnáttumenn — til að
vinna í stórfjósunum, engin
hætta á að íslenzkir menn með
kunnáttu fáist til slíkra starfa,
jafpvel ekki þótt starfið væri
yfirborgað og það verulega.
Kemur þar til hvort tveggja,
hve mönnum er á móti skapi að
vinna fjósaverk, leigðir og laun
aðir menn fást ekki til þess, og
að örfátt er um kunnáttumenn
til fjósverka, íslenzkra, er séu
færir um að annast stórbúskap,
enda hefir ekkert verið gert til
þess að mennta menn til fjós-
verka síðustu áratugina. En ef
til vill er það talið íhaldssemi
að segja sannleikann um þessa
hluti og horfast í augu við veru
leikann.
Svíar taka fledtum þjóðum
fastar á búnaðarmálum nú um
stundir, fækka búum og smala
kotalýðnum í verksmiðjur. Mað
ur skyldi nú halda að þeir
gengju rösklega að því að koma
upp stórbúum. Ég hefi hér fyr-
ir framan mig nýjustu upplýs-
ingar um hvernig er ástatt þar
í landi um þá hluti.
Svo er komið, að á 50% af
öllum þeim býlum í Svíþjóð
sem hafa meira en 100 ha. rækt
að land (akurland), hefir mjólk
urframleiðsla verið lögð niður
með öllu.
Reynsla og rannsóknir,
sænskar, miðaðar við 5 daga
vinnuviku, gera ráð fyrir að
hver fjósamaður geti annað
sem nemur að hirða 35 mjólkur
kýr að viðbættu ungviði og
geldneyti í eðlilegu hlutfalli við
tölu mjólkurkúa. Og sam-
kvæmt þessu henti bezt að kúa
búin séu svo stór að full vinna
verði á búi fyrir 7 menn, sem
skiptast á við verkin og 5 daga
vinnuviku. Slíkt bú þarf þá að
vera með 250 mjólkurkýr, að
viðbættum geldneytum og
ungviði. Onnur heppileg stærð,
og sú minnsta sem ætti að vera,
samkvæmt þessum rannsókn-
um, er bú með 105 mjólkurkýr
og ungviði og geldneyti þar við
hæfi. Þrír menn eiga að geta
annað slíku búi með því að
vinna ekki nema 5 daga í viku
til skiptis.
Þetta eru fræðin og tölurnar,
en svo er lífið og staðreyndim-
ar. Það er ekki nema eitt bú í
Svíþjóð, sem er svo stórt að það
nálgist hin fræðilegu takmörk
þess sem bezt ætti að henta, 7
fjósamanna bú, á því búi eru
215 mjólkurkýr.
Annars er tala „stórbúa" í
Svíþjóð, sem framleiða mjólk,
sem hér segir, árið 1965:
Bú með
100—110 mjólkurkýr eru 19
111—120 mjólkurkýr eru 5
121—140 mjólkurkýr eru 12
141— mjólkurkýr eru 9
Bú með fleiri en 100 kýr alLs
45 í Svíþjóð.
Lengra eru þeir ekki komnir
Svíarnir á þessu sviði þrátt fyr
ir skipulegt afnám smábúskap-
ar. Það virðast vera einhverjar
staðreyndir lifs og veruleika —•
og verðlags (framleiðslukostn-
aðar), sem togast á við teórí-
urnar.
Það virðist vera margt að at-
huga í þessum málum, þótt
ekki ætli ég mér þá dul að mót
mæla „framförunum“.
26. maí 1966. I
Árni G. Eylands.
Gullbrúðkaup sæmdarhjóna
HJÓNIN á Hálsi í Svarfaðar-
dal, frú Jófríður Þorvaldsdótt-
ir og Þorsteinn Þorsteinsson
bóndi og smiður, áttu gull-
brúðkaup 27. maí og var þess
minnzt nokkru síðar í góðum.
fagnaði.
Þorsteinn og Jófríður hafa
búið hálfa öld á Hálsi, góðu
búi að nytsemd og framkvæmd
um og eignast 9 börn, af þeim
eru 8 'á lífi, hinir mætustu
þj óðf élagsþegnar.
Þorsteinn er dverghagur mað
ur og eftirsóttur báta- og húsa
smiður og vann mikið utan
heimilisins. Frú Jófríður stjórn
aði þá heimili og búi af sínu
ljúfa og glaða geði, sem fyrr og
síðar einkenndi hið myndarlega
rausnarheimili á Hálsi.
Dagur sendir hjónunum á
Hálsi í Svarfaðardal hinar
beztu árnaðaróskir í tilefni af
gullbrúðkaupi þeirra. □
Þjóðhátíðardagurinn
17. JÚNÍ-NEFND beinir þeim
tilmælum til bæjarbúa allra, að
hver og einn þeirra leggi fús-
lega fram sinn skerf, til þess að
væntanleg hátíðahöld þjóðhá-
tíðardagsins geti nú heppnast
vel og orðið sem glæsilegust.
Og enn sem fyrr, þá varðar það
langmestu, að þátttaka almenn-
ings sé bæði mikil og góð.
Sérstaklega vill nefndin leggja
ríka áherzlu á mikilvægi þess,
að bæjarbúar almennt, ásamt
með börnum sínum, séu virkir
þátttakendur í skrúðgöngunni.
En því miður, þá hefur það far-
ið í vöxt undanfarin ár, að fólk
flykkist út á íþróttasvæðið, á
undan skrúðgöngunni eða héldi
sig til hliðar við hana.
Nú má helzt enginn skerast
úr leik, þannig að þátttakan í
sjálfri skrúðgöngunni geti orð-
ið sem almennust.
Loks vill nefndin beina þeim
óskum til þeirra félaga og fé-
lagasamtaka í bænum, sem fé-
lagsfána eiga, að þau mæti með
þá til skrúðgöngunnar og hvetji
ennfremur félaga sína til þátt-
töku.
Bæjarbúar! Allir eitt 17. júní.
(Fréttatilkynning frá 17. júní
nefnd).