Dagur - 15.06.1966, Síða 7
- FOKDREIFAR
(Framhald af blaðsíðu 5.)
þeir eru búnir að fá sér meira.
Einn þessara manna, búsettur
í öðrum landshluta var búinn
með vínið á vitlausa stiginu og
var þá nærri búinn að drepa
elskuna sína með gömlu klukku
lóði, sem hann snaraði í haus-
inn á henni, svo hún lá lengi
steinrotuð. Æðið rann ekki af
manninum, fyrr en hann var
búinn að drepa hundinn. Þá
komu góðir menn og gáfu hon-
um að drekka og björguðu
þannig öllu nema hundinum,
því elskan rétti við. Uti í horni
voru tveir búnaðarþingsfulltrú-
ar og drukku hljóðlega og kaup
félagsstjóri utan af landi, sem
hefði átt að vera búinn að
leggja sig og farinn að sofa. —
Svo voru þarna blaðamenn og
heiidsalar, sem ég þekkti suma
en suma ekki. — Hvernig ætli
morgundagurinn verði nú hjá
þessu fólki? hugsaði ég með
gamla laginu.
Og rekst ég ekki þarna á
stúikuna, sem ég sagði frá áð-
an og mér sýndist allra kvenna
fríðust og hvarf inn í anddyri
hótelsins með sínum kalli eða
manni. En mér fannst eitthvert
laumuspil hjá þeim. En svo fjar
fríð sem konan var, var hún
enn fríðari í nærsýn, svo ég
kastaði ellibelgnum í snatri og
gaf mig á tal við hana. Það
hefði ég ekki átt að gera, því
hún var frátekin og átti ekker.t
vantalað við mig. Hún var svo
falleg, að fæðingarblettur á
kinninni, auðvitað hálfgerð
helvítis varta, var þar enn til
yndisauka. Ég fór aftur í elli-
belginn, fékk mér glas og svo
í svanginn. Það tók mig jafn-
langan tíma að fá söðningu á
Hótel Sögu og að mjólka 25 kýr
heima og eru þó sumar seig-
mjólka. Ég gleymdi víst að
segja frá mannkertinu, sem
fallega stúlkan var með. Hann
hefur sjálfsagt verið ættaður
sunnan með sjó, fremur hárrot-
inn. Hann var að'bjóða fegurð-
ardísinni með sér til Noregs.
Hún hló að honum og honum
gramdist og kallaði hana skeili
nöðru. Þá hló hún enn meira.
6> r
$
I
£
I
I
1
I
I
I
Hjartanlega þökkinn við öllum þeim, sem glöddu
okkur með heimsóknum, gjöfum og skeytum i tilefni
af 50 ára hjúskaparafmœli okkar.
Guð blessi ykkur öll.
JÓFRÍÐUR ÞORVALDSDÓTTIR,
ÞORS TEINN ÞORS TEINSSON,
Hálsi í Svarfaðardal.
Innilcgar þakkir lil þeirra, sem heimsóttu mig,
fcerð'u mér gjafir, sendu mér skeyli og livœði og á ann-
an hátt gerðu mér áttræðis afmœlisdaginn ógteyman-
legan. — Guð b.lessi ykkur öll.
HRÓLEUR ÞORSTEINSSON, Slekkjarflötum.
%
©
I
•3
T
&
©
i
I
f
f
!
I
F
?
f
t
* S
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SVAVA MAGNÚSDÓTTIR,
Hrafnagilsstræti 12,
andaðist 13. júní sl. Jarðarförin fer fram frá Akureyr-
arkirkju laugardaginn 18. júní kl. 10.30 f. h.
Börn, tengdaböm og barnaböra.
Hjartkær eiginmaður minn, sonur okkar, bróðir og
tengdasonur,
SNÆBJÖRN HAUKUR HELGASON
frá Grund,
sem lézt 9. ]>. m. verður jarðsettur frá Laufáskirkju
fimmtudaginn 16. júní kl. 14.00.
Ragnhildur Hallgrímsdóttir.
Marsibil Sigurðardóttir, Helgi Snæbjarnarson,
Hjördís Helgadóttir, Guðrún Helgadóttir,
Sigurður Helgason, Baldur Helgason,
Þóra Jónsdóttir, Hallgrímur Sigurðsson.
Þökkum innilega sýnda samúð og vinarhug við and-
lát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
JAKOBÍNU SVEINBJÖRNSDÓTTUR,
Gásum.
Hjartfólgnar þakkir sendum við ylirlækni Guðmundi
Karli Péturssyni og öðrum læknum, hjúkrunarkonum
og staijsfólki Fjórðungssjúkrahússins á Akuréyri íyrjr
frábæra umönnun í langvinnum veikindum hénnar.
Börn, tengdábörn og barndbörn.
Það er ekkert gamanspaug, að
fást við svoleiðis kvenfólk. En
það er nú hans höfuðverkur,
hvernig sem það hefur farið.
Að hinum torsótta snæðingi
loknum, á efstu hæðinni í
Bændahöll, svonefndu Grilli,
þaðan sem sér svo ósköp vítt
og breitt, labbaði ég niður á
mitt herbergi og lagðist fyrir.
Lét ég nú hugann reika heim
til konu og barna, ánægður yf-
ir því að hafa sloppið við næt-
urvökur og eftirköst, dálítið
hissa á því, hvað mér var samt
búið að detta í hug. Það kostaði
nú ekkert að láta sér detta í
hug, og ég hef nú aldrei lagt
mikið upp úr hugrenningar-
syndunum, enda lentum við þá
velflestir á verri staðnum, ef
þær væru líka skráðar gjalda-
megin. Svo fór ég að hugsa um
kýr mínar og hross fyrir norð-
an, lítillega um hin ýmsu and-
lit við barinn, signdi mig og fór
að sofa.“ □
BIFREIÐ TIL SÖLU
Taunus 17 M Super,
árgerð 1961, í góðu lagi.
Sími 1-26-50 kl. 7—8 e. h.
WILLY’S JEPPI,
’53 model, er til sýnis og
sölu á verkstæði Jóhann-
esar Kristjánssonar h.f.
BÍLL TIL SÖLU
6 manna Pontiac, árg ’41
Verð aðeins kr. 10.000.00
Upplýsingar gelur
Guðmundur Þorsteinsson,
sínri 1-13-32 og 1-23-61.
TIL SÖLU:
Jeppi og Farmal dráttar-
vél, hvort tveggja í góðu
lagi.
Eiríkur Geirsson,
Veigastöðum.
BIFREIÐ TIL SÖLU
Bifreiðin A-1902
Opel Caravan, árg. 1955.
Uppl. í síma 1-26-77.
HÚSBYGGJENDUR!
Húsgrunnur eða lóð
óskast keypt.
BÆNDUR!
Til sölu 6 kw. diesel-
rafstöð.
Uppl. í síma 1-12-79
kl. 12-1 og 7-8.
HESTUR í ÓSKILUM
Á Akureyri er í óskilum
rauður, fullorðinn hestur,
ójárnaður, tví stjörnóttur.
Mark: Sýlt í tvístýft fram-
an hægra og tvístýft fram-
an vinstra. — Réttur cig-
andi vitji hcstsins sem
fyrst til kvikl járvörzlu-
manns bæjarins, Jóns
Kjartanssonar, og greiði
áíállinn kostnað.
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl.
10.30 f.h. Sálmar: 530, 24, 137,
351, 411. B. S.
MESSAÐ verður í Lögmanns-
hlíðarkirkju n. k. sunnudag
kl. 2 e.h. Sálmar: 572, 25, 137,
351, 411. Bílferð verður úr
Glerárhverfi kl. 1.30 e.h. B. S.
I. O. G. T. — Isafoldarfélagar
athugið! Farið verður í ferða
lag um nágrenni Akureyrar
fimmtudaginn 16. júní. Mæt-
um við Alþýðuhúsið kl. 8.30.
Æ. T.
GJOF til Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri frá gamalli
konu í Hrísey kr. 5000.00. —
Með þökkum móttekið. Guð-
mundur Karl Pétursson.
AKUREYRARKIRKJA er opin
til sýnis alla virka daga kl.
10—12 f.h. og 2—4 e.h. Á
sunnudögum kl. 2—4 e.h.
GOLFFÉLAGAR, AKUREYRL
Munið Gunnarskeppnina á
miðvikudaginn 15. þ. m. kl.
7 e. h. Allir mæti stundar-
fjórðungi fyrin keppnistíma.
— Kappleikjanefndin.
FERÐAFÉLAG AKUREYRAR.
23. til 26. júní. Ferð á Snæ-
fellsnes og um Borgarfjörð.
DAVÍÐSHÚS á Akureyri verð
ur opnað almenningi til sýn-
is á morgun, 16. júní. Það
verður opið í sumar, sem hér
segir: Virka daga kl. 6,30 til
7 og sunnudaga kl. 2 til 5. —
Gæzlumaður er Kristján
Rögnvaldsson.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚS-
INU á Akureyri hefur borizt
að gjöf kr. 5000.00 frá Ólaíi
Rósinantssyni. Lætur hann
fylgja þakklæti fyrir mikla
læknishjálp og góða hjúkrun.
Beztu þakkir. — Torfi Guð-
laugsson.
MINJASAFNIÐ er opið dag-
lega kl. 1.30—4 e.h. Á öðrum
tímum verður þó tekið á móti
ferðafólki ef óskað er. Sími
safnsins er 1-11-62, en safn-
varðar 1-12-72.
NONNAHÚS verður opið í
sumar alla daga vikunnar kl.
2—4 e.h. Uppl. í símum
1-13-96, 1-15-74 og 1-27-77.
- SÍLDARSKIPIN . . .
(Framhald af blaðsíðu 1).
virðist fiskigengd vera með
meira móti á stóru svæði. Einn
ig hafa borizt fréttir af ágætum
afla á handfæi’i frá vei'Stöðvum
á Vestfjörðum.
Afli hjá togurum var góður í
síðustu veiðiferð. Sléttbakur
landaði 6. júní 169 lestum. Kald
bakur landaði 9. júní 167 lest-
um. Harðbakur landaði 14. júní
180 lestum. Svalbakur er vænt
anlegur heim frá Bretlandi (úr
klössun) n. k. föstudag.
Hvalveiðar.
Hvalveiðar hófust frá hval-
veiðistöðinni í Hvalfirði 25.
maí sl. og hafa þegar veiðzt 72
hvalir, eða 5 hvölum fleira en
á sama tíma í fyrra. Fjögur
skip stunda þessar veiðar. □
AÐAL-
FUNDUR
Leikfélags
Akureyrar
verður í leikhúskjallaran-
um miðvikudaginn 15. þ.
m. kl. 8.30 e. h.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar fjölmennið.
Stjómin.
Neðri hæðiri í
GLERÁRGÖTU 14
er til sölu.
Til sýnis kl. 7-9
á kvölcfin.
H E RBERGI
til leigu í Vanabyggð 17,
niðri.
Uppl. í síma 1-22-95.
EINBÝLISHÚ S
TIL SÖLU.
Uppl. í síma 1-19-69.
DAMASK,
mislitt, kr. 81.00 pr. m.
DAMASK,
hvítt, kr. 59.00 pr. m.
LAKALÉREFT,
mislitt, kr. 70.00 pr. m.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Vef riaðarvörudeild