Dagur - 06.07.1966, Síða 1
Herfccrgis-
pantanir.
FerSa-
skriístoían
TúngÖtu 1.
Akureyri,
Sími 11475
Ferðaskrifstofan
Túngötu 1.
Sími 11475
Skipuleggjum
íeröir skauta
á roilii.
Fo.rseðlar með
FlugíéJ. ísl. og
Loítleiðum.
SÍLDARAFLINN MERINÚ ENIFYRRA
SÍLDARAFLINN sl. viku varð
28.049 lestir, sem veiddist mest
100 til 130 sjóm. ASA frá Dala
tanga. Ágætt veður var á mið-
unum alla vikuna. Síldin sem
veiðist er öll fremur smá en á-
gætlega feit, 20 til 23%. Síldin
hefur mestöll farið í bræðslu.
Heildaraflinn á þessari ver-
tíð var orðinn sl. laugardags-
kvöld 123.641 lest. Á sama tíma
í fyrra um 90 þús. lestir.
Síðan um helgi hafa 106 skip
tilkynnt afla, samtals 6.234 lest
ir. Hefur þessi afli fengizt á
svipuðum slóðum og í vikunni
á undan. Síðustu dagana hefur
flotinn dreifzt mikið og hafa 6
skip haldið suður að Shetlands-
eyjum, en önnur norður undir
Jan Mayen. Lítið hefur frétzt
af afla frá þessum slóðum, en
einhver afli var við Shetlands-
eyjar sl. nótt, og vitað var um
eitt skip, 50—60 sjóm. suður af
Jan Mayen, sem fékk nokkur
tonn af stórri og fallegri síld.
Þrjú aflahæstu skipin eru
Barði, Neskaupstað, með 2.545
lestir, Jón Kjartansson, Eski-
firði, 2.511 lestir og Þórður Jón
asson Akureyri 2.414 lestir.
Síðastliðna nótt fann Ægir
alimargar smátorfur í Seyðis-
fjarðardýpi um 25 sjómílur frá
Árdegis á sunnudaginn safnaðist fólk saman í Lystigarði Akureyrar til að fagna gestum vinabæj-
anna Álasunds, Randers, Lahti og Vesturáss, sem hingað komu til að halda æskulýðsleiðtogamót,
er nú stendur yfir. Við þetta tækifæri fluttu ávörp Magnús E. Guðjónsson, Hermann Sigtryggsson,
séra Birgir Snæbjörnsson og fulltrúi Álasunds. Lúðrasveit Akureyrar lék undir stjóm Sigurðar Jó-
liannessonar. Fánar Norðurlandanna voru dregnir að hún. Hér á myndinni eru gestirnir og nokkrir
bæjarbúar. Flugvél Dananna seinkaði og vantaði þá við setningu þessa móts. Á hinni myndinni
eru þrjár norskar stúlkur, klæddar þjóðbúningi. (Ljósm. E. D.)
Dalatanga. Torfurnar voru ekki
á kastfæru dýpi og því ekki víst
að hér sé um síldartorfur að
ræða.
Ufsaveiði hefur verið ágæt
með köflum síðastliðna viku og
hefur mest af ufsanum veiðzt
út af Raufarhöfn. Mikið magn
af ufsa barst til Húsavíkur í
vikunni og voru fluttar um 60
lestir á bílum til vinnslu í frysti
húsi Ú. A. Nokkrir bátar hafa
kcroið með ufsa til Hríseyjar
og Dalvíkur. Einnig hefur
nokkru magni af ufsa verið
landað á Raufarhöfn og hefur
hann verið saltaður.
Veiðar með dragnót byrjuðu
um miðjan júní og hefur veiði
verið mjög lítil og nær ein-
göngu koli. Ýsan virðist ekki
gengin ennþá, en fer vonandi
að koma. Margir bátar, sem
voru að veiðum með dragnót
hafa hætt og veiða nú með
handfærum, en góður afli hef-
ur verið á handfæri frá sumum
verstöðvum að undanförnu.
FLUGVÖLLURINN MALBIKAÐUR
Á miðnætti sl. laugardagskvöld var þessi 17 ára Reykjavíkur-
stúlka, Kolbrún Einarsdóttir, kjörin fegurðardrottning íslands '66.
En 18 ára stúlka að nafni Guðfinna Jóhannsdóttir var kjörin feg-
urðardrottning Reykjavíkur við sama tækifæri. Fegurðarsam-
keppni kvenna er árleg skemmtun Reykvíkinga. En hugmyndir
manna um kvenlega fegurð eru óJikar og skemmtun þessi af mörg-
um litin óhýru auga.
MÓIIÐNKEMA í YAGLASKÓGI
SAMKVÆMT upplýsingum frá
skrifstofu flugmálastjómar,
munu malbikunarframkvæmd-
ir hefjast á Akureyrarflugvelli
fyrir lok þessa mánaðar. En
það er Akureyrarbær sem um
framkvæmdina sér. Flugmála-
stjóm pantaði efni til malbikun
arinnar og er það komið, og út-
vegaði bænum grjótmulnings-
vél til að framleiða mulninginn.
Að þessu sinni verða malbikað-
ir um 600 metrar af flugbraut-
inni sunnan frá og svo flugvéla
stæðin hjá flugstöðinni. Breidd
flugbrautarinnar verður 30 m.
En ÖII er flugbrautin á Akur-
eyrarflugvelli 1565 m. Malbik-
unin verður í tveim lögum, 7
sm undirlag og og 4 sm yfirlag.
ALVARLEGT ÁSTAND
í KINN
Ófeigsstöðum 5. júlí. Ljóst er
nú orðið hið alvarlega ástand,
sem bændum stafar af mjög
miklu kali í túnum hér í sveit.
Túnskemmdirnar eru svo mikl
ar, að töðufengur verður víða
miklum mun minni en verið
hefur. Þar við bætist að fé
þurfti að hafa lengur á túnum
en venja er.
Sláttur er aðeins byrjaður í
Aðaldal, en hvergi í Kinn og
hefst hér naumast fyrr en upp
úr miðjum júlímánuði. Lax
gengur ekki í ár svo heitið geti
enn sem komið er. B. B.
LANDSMÓT iðnnema hefst í
Vaglaskógi á föstudaginn kl. 8
síðdegis. Akureyringar sjá að
mestu um undirbúning móts
þessa, en Ragnar Snæfells er
framkvæmdastjóri mótsins. Bú
izt er við 5—600 marins á þetta
iðnnemamót. Hér er um að
ræða kynningar- og skemmti-
mót, hið fyrsta í þessu stóra
foimi hjá iðnnemum. En í sam
bandi við mótið verður for-
mannaráðstefna.
Dansleikur verður í Brúar-
lundi á laugardagskvöldið fyrir
iðnnema og gesti þeirra. Tjald-
stæði eru merkt, veitingasölu
komið upp og margs konar ann
ar undirbúningur fyrirhugaður.
Aðgöngumiðasala er í Útvegs-
bankahúsinu þriðjudags- og
miðvikudagskvöld. □