Dagur - 06.07.1966, Síða 4
4
5
ÉttajjH | “MÉ
Útfluttar 42 tegundir sjávarafurða
Skriístofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Simar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
lu
Prentverk Odds Bjömssonar h.L
FORYSTULEYSIÐ
FORSÆTISRÁDHERRA íslands
fluttí þjóðhátíðarræðu 17. júní sl.
Til þess ætti að mega ætlast, þegar
landsfaðir stígur í stóíinn á slíkum
degi og mælir til alþjóðar, að þá sé
ræða hans forystumannleg. En því
var ekki að heilsa að þessu sintti.
Ræðan var eintómur tvistígandi.
Það var eins og manninn langaði til
að biðja afsökunar á einhverju en
kæmi sér ekki að því. Leiðsögn var
engin í ræðu þessari og hvatning
engin til. Morgunblaðið birti ræð-
una og gerði að fyrirsögn henttar
þessi orð ræðumanns: „ÞEIR, SEM
KVARTA UNDAN FORYSTU-
LEYSI, MUNDU OFT SÍZT
SÆTTA SIG VFÐ AÐ RÁÐIN
VÆRU AF ÞEIM TEKIN“. Það er
ekki oft, sem Morgunblaðið hittir
nagla á höfuðið, enda naglar hatts
venjulega fýrirfram bognir. En
þarna lánaðist honum það. Vafalaust
er það íorystuleysið hjá ríkisstjórn-
inni, setn liggur forsætisráðherran-
um þyngst á hjarta. Meðvitundin
um forystuleysið heftir drepið ræðu-
þróttinn og gert ræðuna að þeim
hversdagslega, niðurstöðulausa mal-
ánda, Sem hún er.
Sú lélega afsökun þess, að forystu
er ekki beitt af stjórnarvöldunum,
sent felst í orðum þeim, er Morgun-
blaðið gerir að fyrirsögn, er kjarni
málsins. Þeir, sent skipa stjórnarsess-
inn, eru greindir menn og vita vel —
ekki sízt forsætisráðherrann — að
þeir beita ekki þeirri forystu sem
ríkisstjórn er skylt. En þeir þora
ekki að beita henni, af því að þeim
er ljóst, að til eru menn, sem ekki
„sætta sig við að ráðin væru af þeim
tekin“ — a. m. k. sætta sig ekki vel
við það. Af ótta við þessa ntenn þorir
stjórnin ekki að taka af skarið og
veita þjóðinni þá forystu, sem þjóðin
þarf og lofað var í upphafi þessa
stjómartímabils.
Verðbólgueldurinn vex, en ríkis-
st jórnin veltir bara vöngum og tekur
ekki í taumana af því það hlyti að
koma illa við suma, sem ráðin þyrfti
að taka af. Hagur bændanna er lát-
inn brenna, af því neytendur hafa
fleiri atkvæði til stjórnarstuðnings.
Kjaramál verkalýðsins eru látitt
óleyst með málamyndafresti til 1.
okt. vegna þess að þau verða ekki
léyst þrautalaust. Þannig er forystu-
liðið, og allt er látið reka á reiðan-
um. Ætti að velja ríkisstjórninni
kjörorð, yrði varla sannara futidið
en: Flýtur á meðan ekki sekkur. Það
er sízt að undra þótt forsætisráðherr-
ann hefði ekki tiltækt forystulegt
umræðuefni 17. júní. Q
í 7. HEFTI ÆGIS þessa árs er
stórfróðlegt yfirlit um sjávar-
vöruútflutning íslendinga á síð
asta ári, santið í skýrsluvéluni.
Samtals nant útflutningur sjáv-
arafurðanna á því ári nálega
5257 millj. kr. en 4384 núllj. kr.
árið 1964.
Talnaskýrslur sem þessi er í
margra augum ekki árennileg-
ar til lesturs a. m. k. við. fyrstu
sýn. En sé efni skýrslunnar sagt
í mæltu máli, segir það mikla
sögu um unnin störf á árinu og
er þar mikinn f róðleik að finna.
Sú saga er minna en hálfsögð
með því, að íslendingar hafi
flutt úr þorsk og síld, þó að
þetta séu aðalfiskitegundirnar
hér við land og mest veiddar,
því að úr fisktegundum þessum
og úr öðrum fisktegundum og
sjávardýrum, eru nú á tímum
framleiddar fjöldi vara með mis
munandi framleiðsluaðferðum
til sölu á erlendum mörkuðum
hér og þar í öllum fimm heims
álfunum. ísrael virðist þó vera
eina landið í Asíu, sem kaupir
íslenzkar sjávarafurðir, og til
Ástralíu var útflutningurinn
rétt aðeins teljandi. Ýmsir
hefðu sjálfsagt haldið, ef ekki
væri þessi skýrsla, að hann
myndi engin vera.
En samtals voru hinar út-
fluttu sjávarvörutegundir 42
talsins á árinu 1965 og gætu
sjálfsagt verið fleiri. Röð út-
flutningsvara í skýrslunni og
hér á eftir fer að verulegu leyti
eftir uppruna og er það, svo
sem tiltækilegt er, byrjað á
afurðum þorskfiskanna, sem
lengst af voru drýgst búsílag úr
sjó hér á landi.
Verkaður saltfiskur.
Af hinni gamalkunnu .vöru-
tegund voru flutt úr 2555 tonn
fyrir 52 millj. kr. til 9 lahda.
Aðal-viðskiptalandið var
Brazilía í Suður-Ameríku, sem
keypti fyrir 34 millj. kr.
Óverkaður saltfiskur.
Af honum var flutt úr 25.758
tonn fyrir 483 millj. kr. til 10
landa. Aðalviðskiptalönd ftalía,
Spánn og Portúgal, nú sem
fyrr, en næst Bretland og Grikk
land — sem sérstök vöruteg-
und eru talin um 2000 tonn af
óverkuðum saltfiski „seldum Úr
skipi“ til ítalíu.
Saltfiskflök.
Af þeim voru flutt út 1774
tonn fyrir 32,5 tnillj. kr. til
fimm landa, aðallega til Vestur
Þýzkalands.
Saltfiskafskurður til manneld-
is.
Af þessari vörutegund voru
flutt 109 tonn fyrir 731 þús. kr.
til Bandaríkjanna.
Söltuð þunnildi.
Af þeim voru flutt út 1486
tonn fyrir nálega 20 millj. kr.
til ítalíu.
Skreið.
Af henni voru fiutt út 12.243
tonn til 11 landa fyrir 376 millj.
kr., langmest til Nígeríu, eða
rúmlega tveir þriðju hlutar, en
einnig mikið til ítalíu, en að-
eins lítið eitt til hinna landanna.
ísfiskur.
Af ísvörðum fiski voru flutt
út til Bretlands og Vgstur-
Þýzkalands rúmlega; 30 þús.
tonn fyrir 188 millj. kr.
ísvarin síld.
Af henni voru flutt út til
Vestur-Þýzkalands 1294 tonn
fyrir rúmlega 8 millj. kr.
Frosiu síld.
Af henni voru flutt út 24.362
tonn til 16 landa fyrir 154 millj.
kr. Mest var flutt til Tékkó-
slovakíu og Sovétríkjanna, en
einnig mikið til Austur-Þýzka
lands og Póllands og talsvert
til Frakklands, Vestur-Þýzka-
lands, Rúmeníu og Færeyja.
Frosin síldarflök.
Af frosnum síldarflökum var
flutt út 1262 tonn fyrir rúmlega
10 millj. kr., einkum til Austur
Þýzkalands, en þó nokkuð til
Tékkóslóvakíu og Hollands.
Heilfrystur fiskur (smár?)
Af honum voru flutt út 7555
tonn til 12 landa fyrir nálega
97 millj. kr., mestmegnis til
Bretlands, en þó um 500 tonn
til Sovétríkjanna .
Fryst fiskflök.
Hér er um að ræða eina að-
algre'in sjávarafurðanna, sem
venjulega er kallað „hraðfryst-
ur fiskur“ eða „freðfiskur“. Af
hraðfrystum fiskflökum voru
flutt út á árinu 54.094 tonn til
12 landa fyrir 1096 millj. kr. Af
þessu freðfiskmagni keyptu
Bandaríkin eða kaupendur þar
nál. 28 þús. tonn, Sovétríkin
nál. 10 þús. tonn og Bretland
um 8500 tonn. Þetta er sú út-
flutningsvörutegund, sem mest
verðmæti fæst fyrir í krónum
talið.
Fryst rækja.
A£ þessu lostæti voru flutt út
142 tonn til 11 landa fyrir nær
16 millj. kr. Fast að tveim
þriðju hlutum var flutt til Bret
lands, en að öðru leyti mest til
Danmerkur og Svíþjóðar og
nokkuð til Noregs, Sviss og
Hollands.
Frystur humar.
Af þessum veizlumat voru
flutt út 857 tonn til 8 landa
fyrir 114 millj. kr., þar af lang-
mest til Bandaríkjanna, en
einnig allmikið til Bretlands,
ítalíu og Sviss og nokkuð til
Vestur-Þýzkalands og Frakk-
lands.
Fryst hrogn.
Af þeim voru flutt út 2256
tonn til 6 landa fyrir 34,5 millj.
kr., mest til Danmerkur, Nor-
egs og Bretlands.
Niðursuðuvörur.
Af niðursuðu og niðurlögðu
fiskmeti voru flutt út 681 tonn
til 12 landa fyrir 32,5 millj. kr.,
einkum til Sovétríkjanna og
Bretlands.
Kaldhreinsað lýsi.
Af því voru flutt út 2438 tonn
til 9 landa fyrir 27 millj. kr.,
mest til Noregs, en einnig nokk
uð til Bandaríkjanna.
Ókaldhreinsað lýsi.
Af þvx voru flutt út 3608 tonn
til 10 landa fyrir 38 millj. kr.,
mest til Bretlands og Danmerk
ur.
Iðnaðarlýsi.
Af því voru flutt út 353 tonn,
aðallega til Bretlands og Rú-
meníu fyrir rúmlega 3 millj. kr.
Grásleppuhrogn.
Af þeim voru fiutt út 867
tonn fyrir 46 millj. kr., einlcum
til Vestur-Þýzkalands og Dan-
merkur, en einnig til Banda-
ríkjanna.
Söltuð þorskhrogn.
Af þeim voru flutt út 2147
tonn fyrir 35 millj. kr. aðallega
til Svíþjóðar, en einnig nokkuð
til Grikklands, Noregs og lítils—
háttar til Finnlands.
Söltuð beituhrogn.
Af þeim voru flutt út 1590
tonn fyrir nálega 15 millj. kr.
til Frakklands og Gxúkklands,
en einnig til Spánar og Vestur-
Þýzkalands.
Hausskorin saltsíld.
Af henni voru flutt út 11.616
tonn til 12 landa fyrir 130 millj.
kr., mest til Rúmeníu, Svíþjóð-
ar, Bandaríkjanna og Sovétríkj
anna, en allmikið til Vestur-
Þýzkalands, Póllands og Nor-
egs.
Krydd- og sykursöltuð síld.
Af henni voru flutt út 27.306
tonn til 9 landa fyrir 358 millj.
kr., þar af meira en helmingur
til Svíþjóðar og rúmlega fjórði
hlutinn til Finnlands.
Ediksöltuð síld.
Af henni voru flutt út 140
tonn fyrir rúmlega 1,5 millj. kr.
til Vestur-Þýzkalands.
Saltsíldarflök.
Af þeim voru flutt út 66 tonq
til Bandaríkjanna.
Síldarlýsi.
Hér er um að ræða þriðju
stærstu útflutningsupphæðina,
næst á eftir freðfiski og síldar-
mjöli. Af síldarlýsi voru flutt
út 82.174 tonn fyrir 677,5 millj.
kr. til 13 landa. Mest var flutt
út til Danmerkur, Bretlands,
Hollands og Vestur-Þýzka-
lands.
Karfalýsi.
Af því voru flutt út á árinu
1964 um 28 tonn til Vestur-
Þýzkalands fyrir 188 þús. kr.
en ekkert á árinu 1965.
Hvallýsi.
AE því voru flutt út 3.066
tonn fyrir 28 millj. kr. til Hol-
lands, Frakklands og Spánar.
Fiskimjöl.
Af því voru flutt út 19.532
tonn til 10 landa fyrir 133,5
millj. kr., þar af þriðjungur til
Vestur-Þýzkalands, allmikið til
Svíþjóðar, ennfremur til ír-
lands, Póllands og Danmerkur.
Síldar- og loðnumjöl.
Hér er um að ræða stærstu
útflutningsupphæðina, næst eft
ir freðfiski. Af síldar- og loðnu
mjöli voru flutt út 124.373 tonn
til 16 landa fyrir 943 millj. kr.,
þar af fast að helmingur til
Bretlands en allmikið til Vest-
ur-Þýzkalands, Danmerkur,
Póllands, Belgíu, Hollands,
Finnlands og Austur-Þýzka-
lands.
Karfamjöl.
Af því voru flutt út 3259 tonn
fyrir 24 millj. kr. tii Vestur-
Þýzkalands, Danmerkur og
Grikklands.
Frystur fiskúrgangur.
Af honum voru flutt út 9070
tonn fyrir 32,5 millj. kr. til Finn
lands, Svíþjóðar og Danmerk-
ur, og lítiisháttar til Bretlands.
Lifrarmjöl.
Út voru flutt af því 607 tonn
fyrir rúmlega 1,4 millj. kr. til
Vestur-Þýzkalands, Bandaríkj-
anna og Hollands.
Humar- og rækjumjöl.
A£ því voru flutt út 50 tonn
til Vestur-Þýzkalands fyrir 231
þús. kr.
Hvalmjöl.
Af því voru flutt út 1365 tonn
til írlands, Vestur-Þýzkalands,
BYRJAÐ Á GRONNI
SÍLDARBRÆÐSLU
Á DALVÍK
Dalvík 5. júlí. Byrjað er að
vinna í grunni væntanlegrar
síldarbræðslu hér á Dalvík.
Vei-ður hún byggð norðcm við
hafnargarðinn, austan við fisk-
hús Egils Júlíussonar. Ufsaveið
ar eru hafnar og kom Dröfn
með 30 tonn í tveim löndunum.
Sæmilegur afli hefur fengizt á
handfæri. Heyskapur er byrj-
aður á tveim bæjum, XJrðum og
Hóli.
J, H.
Finnlands og Bretlands fyrir 8,5
millj. kr.
Fryst livalkjöt.
Af því voru flutt út 2660 tonn,
einkum til Bretlands en einnig
til Bandaiákjanna fyrir 24
millj. kr. samtals.
Ný síld.
Af henni voru flutt út 1712
tonn til Noregs fyrir 2,8 millj.
kr.
Reyktur fiskur.
Af hönum vat' flutt út eitt-
hvað lítilsháttar til Bretlands
fyrir 13 þús. kr.
Þangmjöl.
Af því voru flutt út 5 tonn
fyrir 18 þús. kr. til Vestur-
Þýzkalands.
Hvaltennur. (falskar)
Hvaltennur voru fluttar til
Bandaríkjanna fyrir 6 þús. kr.
Fiskinnyfli.
Til Bretlands og Danmerkur
var flutt af þeirri vöru 5 tonn
fyrir 55 þús. kr.
Fylgi.
Af þeirri vöru, sem mun vera
úrgangsefni, sem fram kemur
við lýsishreinsun, var flutt út
fyrir 26 þús. kr.
Víða er hér að framan sléppt
þúsundum eða hækkað upp í
hálfa eða heila milljón. Útflutn
ingsverðmætið er reiknað fob
(frítt um borð) hér við land Q
Hermann Stefánsson,
Kambhóli
NOKKUR KVEÐJUORÐ
HERMANN STEFÁN SSON,
bóndi á Kambhóli í Arnarness-
hi-eppi, varð bráðkvaddur á
heimili sínu 16. júní og var
jarðsunginn á Möðruvöllum í
sömu sveit hinn 25. júní að við
stöddu fjölmenni.
Hermann átti heima á Syðra-
Kambhóli alla ævi, fæddist þar
9. október 1896. Foreldrar hans
voru Stefán Baldvinsson frá
Bjarnai'gili í Fljótum og Sól-
veig Gunnlaugsdóttir frá Mið-
hvammi í Reykjadal. Hún dó
árið 1935 en Stefán 1938.
Kona Hei-manns Stefánsson-
ar var Guðrún Björg Baldvins-
A ■tk' 1 r A r Jkf1
Gengio mn i Groorarstoo
á haustmorgni
Hvar er fegurra en á Akureyri í septemþer?
Lauf trjánna hafa þá oftast tekið að skipta litum:
veðrið milt um miðjan dag þótt svalt sé á morgnum.
Meðan ég bjó á Akureyri, var það vani iriinn
að ganga inn í Gróðrarstöð
á björtum og ferskum septembermorgnum.
Þar hlustaði ég á fuglakvakið,
á niðinn í lækjunum þar í garðinum.
Ég ráfaði milli trjánna;
sunnan til í garðinum stóðu hin tigulegu lauftré
með glóandi eða rauðar krónur,
en inn á milli, í svalanum, gréru dökkgræh grenitré,
og efst í skógarbrekkunni uxu runnar af öllum gerðum og
tegundum.
Þaðan horfði ég svo yfir spegilsléttan Eyjafjörðinn,
yfir á Vaðlaheiðina marglita, þar sem mátti líta hin snotru býli
■ í hlíðunum.
Á þessum stað tók ég marga fagra litmyndina,
: pg pr ætíð jafn mikið yndi að horfa á þær á myndatjaldinu.
Ég horfi á lítið kúft hagamúsarkríli bisa við að draga
dásamlega fagurlituð lauf upp úr smá lækjarsprænu.
Mýsla brún, en blöðin græn og gul, rauð og dröfnótt.
Loks leit hún upp og tók eftir mér og starði.á mig stundarkorn;
skauzt svo inn í holu, sem hún átti sér þar við lækjarbakkann.
Brosandi hélt ég heim á leið;
meðfram fjörunni; framhjá Nonnahúsinu; upp Gilið;
framhjá lystigarðinum og inn í mitt aldna hús á lioi'ninu.
■ Reykjavík, í júní.
Sjra Hákon Loftsson
dóttir, fædd á Stóru-Hámund-
arstöðum 1902 og andaðist 1948.
Eitt sinn benti Davíð skáld
frá Fagraskógi mér á Hermann
á Kambhóli sem sérstæðan við
mælanda, vegna þroskaðrar
frásagnargáfu og næms mál-
smekks. Eftir þeirri ábendingu
fór ég og bii'tist viðtalið hér í
blaðinu. Þurfti naumast að hag
ræða orði í frásögn hans, svo
vel fór hún bæði í framsögn og
ritmáli og er slíkt fátítt og eftir
tektarvert. Hermann var einlæg
ur og áhugasamur ungmenna-
félagi alla ævi. Ungmennafélag
sveitar hans stendur í þakkar-
skuld við slíka menn sem Her-
mann var. Það minntist þess á
sínum tíma með því að kjósa
hann heiðursfélaga. í áratugi
vann Hermann að ýmiskonar
dýralækningum í sveit sinni og
víðar, oftast fyrir lítið gjald eða
ekkei't og þótti hafa frábærar
læknishendur, þótt ólærður
væri.
Hermann á Kambhóli var far
sæll bóndi, þótt aðrir hefðu
meh'i umsvif, unni mjög sveit
sinni og naut hinnar lifandi
náttúru af djúpri tilfinningu
og meiri lotningu en flestir aðr
ir, enda nágranni og náinn vin-
ur náttúruunnandans ágæta
Davíðs Stefánssonar og líklegt,
að þess hafi báðir notið.
Hermann Stefánsson á Kamb
hóli var svipmikill, fríður og
karlmannlegur, hæglátur mað-
ur í framkomu en heitgeðja.
Með honum er traustur maður
genginn, góður drengur og sér-
stæður burt kallaður.
E. D.
AFMÆLISFARGJOLD
FLUGFÉLAGSINS
TIL ÍSAFJARÐAR
UM MIÐJAN júlímánuð verð-
ur ísafjarðarkaupstaður eitt
hundrað ára og í tilefni af af-
mælinu fara fram hátíðahöld á
ísafirði dagana 15.—17. júlí.
Vegna þessa hefir Flugfélag
íslands ákveðið að vikuna fyrir
afmælið verði í gildi sérstök
ódýr fargjöld til ísafjarðar, um
tuttugu af hundraði ódýrari en
venjuleg fargjöld á þessari flug
leið, sé farmiði keyptur og not
aður báðar leiðir.
Afmælisfargjöldin ganga í
gildi 11. júlí og gildir farmið-
inn í átta daga frá því ferð er
hafin.
Friendship skrúfuþotur Flug
félagsins fljúga til ísafjarðar
alla virka daga, en á sunnudög
um er flogið með Dakota flug-
vél.
Vegna mikilla flutninga á
þessari flugleið, var nýlega bætt
við Friendship-ferð síðdegis á
laugardögum, og er brottför frá
Reykjavík kl. 19.00.
(Fréttatilkynning)
Jón Krislinsson fimmlugur
JÓN KRISTINSSON rakara-
meistari á Akureyri varð fimm
tugur laugardaginn 2. júlí.
Hann er kunnur í heimabæ sín-
um fyrir störf sín í þágu I. O.
G. T. og leiklistarinnar, auk iðn
aðarstarfs síns, sem hann hefur
nú lagt á hilluna. Dugnaður og
reglusemi einkenna Jón Krist-
insson og eru þeir mannkostir
' of lítils metnir um sinn.
Jón veitir nú,- ásamt konu
sinni, frú Arnþrúði Ingimai's-
dóttur, barnaheimili templara
á Böggvisstöðum í Svarfáðai’-
dal forstöðu, og er þar talinn
myndarbragur á. í vetur vann
Jón m. a. að undirbúningi kosn
inganna og stjórnaði aðaískrif-
stofu Fi'amsóknarmanna á Ak-
ureyi-i í nokkra mánuði.
Dagur sendir afmælisbarninu
hlýjar og hugheilar árnaðarósk
ir og þakkar samvinnuna í vét-
ur og vor.
E. D.
Fimmfa útgáfa Ferðahandbókar
FIMMTA útgáfa Ferðahandbók
arinnar er komin út og er í
henni að finna fjölda nýmæla,
sem fólki má að gagni koma,
hvort heldur það er á ferðalagi
eða undii'býr ferðalag. í for-
mála bókarinnar segja útgef-
endur Orlygur Hálfdánarson og
Orn Maríusson m. a.:
„Ferðamál á íslandi hafa tek
ið miklum stakkaskiptum á liðn
um árum. Farartækin verða æ
fullkomnari og vegirnir teygja
sig lengx-a um landið. Fólk tel-
ur það orðið sjálfsagt að taka
sér nokkra hvíld frá störfum og
skoða sig um hérlendis og er-
lendis. Útgáfa Ferðahandbókar
innar hefur frá upphafi verið
við það miðuð að létta fólki und
ii-búning og framkvæmd fei-ða-
laga; vera gagnlegur og fróður
förunautur. Þróunai-saga bókar
innar er svipuð og annarra
þátta íslenzkra ferðamála. Við
fyrstu útgáfu var lítil reynsla
fyrir hendi og lítið við að styðj
ast til fyrirmyndai'. Með árun-
um hefur hins vegar unnizt dýr
mæt reynsla og þekking á því,
hvaða efni á erindi inn í bók-
ina, og leitazt hefur verið við
að auka það og bæta ár af ári.
Stækkun bókarinnar talar þar
skýru máli. Fyrsta útgáfan var
112 blaðsíður, en þessi útgáfa,
sem er hin fimmta í röðinni, er
rúmlega 300 blaðsíður. Sumir
kynnu að ætla, að stækkunin
væri fólgin í fleiri auglýsingum.
Svo er þó ekki. Auglýsingafjöld
inn er sá sami og áður. Sjálf-
sagt er einnig að geta þess, að
auglýsingar í bókinni munu í
flestum eða öllum tilfellum
vera ferðafólki gagnlegar og
auðvelda því ferðalög".
Svo sem áður segir er Ferða-
handbókin 304 bls. og er það
88 bls. meira en síðasta útgáfa.
Við athugun bókarihnar kemur
í ljós, að hún hefir tekið mikl-
um bi-eytingum og margt er þar
af nýju og nytsömu efni.
í bókinni er að finna ei'indi
Eysteins Jónssonar, alþingis-
manns, sem hann nefnir göngu
leiðir í nágrenni Reykjavíkur.
í sinn ítarlega og nákvæma
kafla, Bifreiðaslóðir á Miðhá-
lendinu, hefir Sigurjón Rist
bætt leiðinni um Kaldadal.
Fylgir nýtt kort í tveimur lit-
um af Kaldadalsleið. Einnig hef
ir hann bætt við kort af Hófs-
vaði á Tungná ásamt ljósmynd.
Gísli Guðmundsson, leiðsögu
maður, veldur þó mestu um
stækkun bókarinnar með kafl-
anum Leiðir um fsland. Þar
bætir hann við frá síðustu úí-
gáfu lýsingum á Þjóðleiðirthi
Reykjavík — Akui'eyri — Mý-
vatn, leiðum um Borgarfjörð,
Strandir, Húnaþing, Skaga-
fjöi'ð og nokkurn hluta Eyýa-
fjarðar.
Að venju fylgir Ferðaharíd-
bókinni fullkomið vegakort ég
hún er sem fyrr í handhægxlm
plastumbúðum.
Ferðahandbókin er í alla
staði mjög vel úr garði gerð,
bæði að efni og útliti. Q
Góð heimsókn
UM næstsíðustu helgi voru 47
slysavarnakonur frá ísafirði
hér í heimsókn og viljum við
í deildinni hér senda þeim
beztu kveðjur með þökk fyrir
ánægjulega heimsókn og góðar
gjafir, en það var borðfáni Og
5000.00 krónur, sem varið
skyldi í radar í sjúkraflugvél-
ina þegar að því kæmi að þau
kaup yi'ðu gjörð. Ég get ekki
látið hjá líða að nota þetta tæki
færi, er mér barst í hendur, til
að minna á að brátt er sjúkra-
flugvélin hér 10 ára. Eftir þá
reynslu, sem fengin er af sjúkra
flugi Tryggva Helgasonar, er ég
ekki í vafa um að óteljaiidi
fjöldi manna stendur í þakkar-
skuld við sjúkraflugið og yrði
það bezt goldið með því áð
leggja nokkurt lóð í næstu vél,
sem hlýtur að koma innan tíð-
ar og þá eins fullkomin sém
tæknin krefst á hverjum tútia,
Ég skora því á félög og ein-
staklinga að sinna þessum mál-
um. Því fyrr því betra.
Fyrir hönd SlysavarnadeildAr'
kvertna, Akureyri.
Sesselja.
INNHiEGT þakklæti til alUrai
þeirra manna, er á einn eða
annan hátt aðstoðuðu ég
veittu hjálp vegna hrunans'á
Laugalandi aðfararnétt 39.
júní s. 1. Einar G. Jónassa*.