Dagur - 06.07.1966, Síða 8
SMÁTT OG STÓRT
FYRSTA ÞYRLA IEIGU ISLENDINGA
ÞYRILVÆNGJAN TF-EIR er
íyista þyrilvængjan, sem íslend
ipgar eignuðust og tóku til nota
í þágu slysavarna og landhelg-
isgæzlu. Með þyrlukaupunum
urðu einnig þáttaskil í sögu ís-
lenzkra skipa, því að þyrlunni
var búinn staður á þilfari varð-
skipsins Óðins, þegar það skip
var smíðað. Óðinn kom til lands
ins 1960, en þyrlan 1965. Þyrl-
an hefur sannað notagildi sitt
bæði við landhelgisgæzluna og
björgunarstörfin, ennfremur til
flutninga og jafnvel fjárleita.
* Þyrla sú, sem hér er gerð að
umtalsefni, var nýlega hér á
Akureyri, og áttu menn m. a.
ikost á að kynnast henni 17.
júní, er hún sýndi björgunar-
æfingar hátíðagestum bæjarins
á íþróttasvæðinu.
- < Skammt er síðan þyrlur voru
notaðar um borð í skipum. Ár-
ið 1942 kom fram hugmynd um
að nota mætti þyrlu um borð
í'-skipum, er sigldu í skipalest-
run, til að finna og granda óvina
kaíbátum og var fyrsta tilraun
gerð með það ári síðar. Nú eru
þyrilvængjurnar eða þyrlur
mjög mikið notaðar á skipum
víða um heim.
Landhelgisgæzlan er 40 ára
um þessar mundir, þ. e. fjórir
áratugir síðan fslendingar sjálf
ir hófu landhelgisgæzlustörf
með eigin skipum.
Bráðlega mun hefjast smíði
á nýju skipi landhelgisgæzlunn
ar og gert ráð fyrir, að það bæt
ist í íslenzka flotann um ára-
mótin 1967—1968. □
Sölusýning málverka á Akureyri
KRISTJÁN GUÐMUNDSSON
mun vera einn hérlendra
manna, sem kynnir á sýning-
um úti um land málverk ann-
arra manna og selur þau.
Hann hefur nú opnað slíka
sýningu í Rotarysal Hótel KEA
á Akureyri og lýkur henni nk.
sunnudagskvöld.
Málverk á sýningu þessari,
sem jafnframt er sölusýning,
eru 30 að tölu eftir 12 lista-
menn: Nínu Sæmundsson, Kjar
val, Gunnlaug Blöndal, Þor-
vald Skúlason, Kristján Sigurðs
son, Magnús Á. Árnason, Helga
M. S. Bergmann, Halldór Pét-
ursson, Eggert Guðmundsson,
Hrein Elíasson, Grím M. Stein-
dórsson og Þorlák Halldórsson.
Sýningin er fjölbreytt og
bæjarbúar þurfa að njóta þeirr
ar listar, sem á fjörurnar rek-
ur, svo sjaldan rekur hér nokk
uð listrænt.
Kristján Guðmundsson hefur
Málverkasöluna á Týsgötu 3,
Reykjavík. Q
VIÐ VEGINN
Dauðar kindur við þjóðveg-
inn vitna um slysahættuna í
Iiinni miklu umferð á vondurn
vegum. Þær vitna einnig um
þau vandkvæði, sem á því eru
að láta búpening ganga lausan
hvar sem er — ennfremur ó-
gætni sumra ökumanna og síð-
ast en ekki sízt þann sóðaskap
að urða ekki hræin. Stundum
bera hinar dauðu kindur líka
vitni gegn þeim ökumönnum,
sem hlaupa frá verknaði sín-
um eins og aumingjar.
ÞAÐ LJÓTASTA
Það Ijótasta af þessu tagi bar
fyrir augu ferðamanna nýlega
við fjölfarinn veg. En þar
sleiktu stórgripir blóðugan
strjúpa ungviðis, sem lagt hafði
verið á brúsapall, eftir að haus-
inn var af því skorinn. Slík
sjón vekur viðbjóð og gremju.
Sennilegt er, að hér hafi slys
ált sér stáð og ber að harma
það. Hins vegar var slík sviðs-
setrting, sem þarna gaf að líta,
hin ósmekkJegasta.
ÆÐARFUGL MEÐ UNGA
Bæjarbúar virða daglega fyr
ir sér fjölda af æðarfugli með-
fram fjörum og uppi í fjöru og
er hann mjög spakur, enda
verður hann ekki fyrir styggð.
ÆðarkoIIur með unga sína eru
hreint augnayndi, og sýnir vax
andi varp þessara skemmtilegu
fugla hér í næsta nágrenni
bæjarins.
OLÍA í SJÓNUM
Fyrir skömmu vildi það slys
til við notkun vinnuvélar, að í
sundur fór olíuleiðsla með þeim
afleiðingum, að nokkurt magn
af olíu rann til sjávar. Eigendur
fyrirtækis þess, er hér um ræð
ir, sýndu lofsverðan áhuga á
því, að hreinsa olíubrákina af
Séra Ágúst sækir m Vallanes
SÉRA ÁGÚST SIGURÐSSON,
prestur á Möðruvöllum, sótti
fyiir sl. mánaðamót um Valla-
nessprestakall á Fljótsdalshér-
aði. En það prestakall losnaði,
er séra Marinó Kristinsson fór
þaðan fyrir skömmu og var
settur prestur á Sauðanesi á
Langanesi.
NÝJA FLUGSKÝLÍÐ
EFNI er komið á Akureyrar-
flugvöll í 50x25 m stálgrinda-
hús ,hið nýja flugskýli, sem K.
E. A., Slippstöðin og Möl og
sandur hafa tekið að sér að
reisa. Hurðarhæð er 11 metr-
ar. Hér er um að ræða hálfa
stærð flugskýlisins, sem á að
verða 50x50 metrar. Q
Séra Ágúst hefur þjónað
Möðruvöllum rúmlega eitt ár
og var hinn 8. maí sl. kosinn
þar lögmætri kosningu.
En kosnmgar þær þóttu á
þann veg, að styðja munu mál-
stað þeirra manna, sem afnema
vilja prestskosningar í núver-
andi mynd.
Þessi kosning var kærð af 48
sóknarböfnúm og um leið einn-
ig séra Ágúst, hinn nýkjörni
sóknarprestur, og faðir hans,
séra Sigurður Stefánsson vígslu
biskup.
Saksóknari ríkisins, Valdi-
mar Stefánsson, vísaði kæru
þessari frá sér, og var hún þá
send bæjarfógetanum á Akur-
eyri til rannsóknar. En hann og
(Framhald á blaðsíðu 7).
Danska unglingalandsliðið
leikur á Akureyri í kvöld
Sigraði íslenzka unglingalandsliðið með 3:0
á Laugardalsvellinum sl. mánudagskvöld
ÞAÐ ER í kvöld, miðviku-
daginn 6. júlí, kl. 8.30, sem
danska unglingalandsliðið
leikur við Í.B.A. á íþrótta-
vellinum hér í bæ.
Lúðrasveit Akureyrar leik
ur á vellinum frá kl. 8.
Þetta er tvímælalaust
mesti knattspymuviðburður
ársins hér nyrðra, og ánægju
legt er, að K.R.A. skuli hafa
tekizt að fá Danina hingað til
keppni.
Sennilega er þetta bezta
knattspyrnulið, sem leikið
hefur á Akureyri og ekki
þarf að livetja bæjarbúa og
nærsveitamenn til að fjöl-
menn á völlinn, þar verður
eflaust hvert sæti skipað,
enda ekki á hverju ári að
landslið sæki okkur heim.
Það hefur aðeins gerzt einu
sinni áður, en það voru Ber-
mundamcnn, sem þá léku
Iiér, og ber mönnum sam-
an um, að það hafi verið
skemmtilegasti leikur, sem
sézt hefur hér á íþróttavell-
inum. Vonandi verður liægt
að segja það sama um leik-
inn við Danina.
fBA-Iiðið verður sennilega
h'tið eða ekkert breytt frá
síðustu leikjum. — Dómari
verður Rafn Hjaltalín og
línuverðir Frímann Gunn-
laugsson og Páll Magnússon.
Forsala aðgöngumiða hefst
kl. 2 í dag á Ráðhústorgi.
sjónum og er það góðra gjalda
vert. Hins vegar tókst það ekki
með öllu og æðarfuglinum er
hætta búin. í fyrradag voru
voru tveir vinnandi menn ná-
lægt höfninni að stugga við
tveim æðarkollum með 12
unga, sem ætluðu að synda inn
á hættusvæðið. Annar þeirra
sagði: „Það liggur sekt við því
að skjóta æðarkollu. En að
drepa fugl í olíu er þó hálfu
verra.“ Og nú er spurningin:
Er ekki hægt að hreinsa oliuna
betur?
EKKI VON AÐ VEL FARI
Jónas Jónsson kennari segir
svo um undirbúning þjóðhátíð-
arinnar 17. júní sl.:
„Þjóðhátiðarnefnd Akureyr-
ar 1966 barðist fyrir því ein-
huga og ákveðið að koma í veg
fyrir ölvun hér 17. júní, m. a.
með því að sækja það fast cg
víða að vínveitingastaðir yrðu
lokaðir þann dag. Talað var
við bæjarfógeta (margsinnis),
bæjarstjóra, skrifað til bæjar-
stjórnar, liringt „suður“ í við-
komandi ráðuneyti á degi og
nóttu! Vísaði oít liver frá sér.
En allt árangurslaust. Reynt
var og að komast að samkomu-
lagi við ráðamenn þessara
tvcggja vínveitingahúsa hér.
Öðru skyldi fúslega lokað, ef
hitt gerði eins, en það tókst
ekki.“
Má um þau mál segja, að
ekki er von að vel fari, þegar
ráðamenn bregðast svo, sem
hér er að vikið.
KAPPAKSTUR f BÆNUM
Nokkrir menn eru haldnir
þeirri ástríðu, að stunda kapp-
akstur í bænum. Stafar mikil
liætta af slíkum mönnum og má
raunar furðulegt teljast,, að
ekki skuli mörg og alvarleg
slys hafa orðið af hinum æðis-
lega akstri um götur bæjarins.
Taka verður í taumana og
kveða þennan háskaleik niður
hið fyrsta.
SLYS OG UMFERÐABROT
Á laugardagskvöldið varð það
slys á Þingvallastræti á Akur-
eyri að 10 ára drengur, Óskar
Vignir Ingimarsson varð fyrir
(Framhald á blaðsíðu 7)
„Öruggur akstur“
stofnfundur á Ak.
STOFNFUNDUR klúbbsins
„Öruggur akstur“ verður hald-
inn á Akureyri á föstudaginn.
Samvinnutryggingar gangast
fyrir stofnun slíkra klúbba víðs
vegar á landinu. En markmið
klúbbanna er, eins og nafnið
bendir til, að vinna að örugg-
ari akstri, auka umferðarmenn
ingu, fækka slysum og tjónum.
Baldvin Þ. Kristjánsson er-
indreki Samvinnutrygginga,
mun á stofnfundi þessum flytja
erindi og kvikmynd verður
sýnd.
Sjá auglýsingu um stofnfund
inn á öðrum stað hér í blaðinu.