Dagur - 27.08.1966, Side 4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167 '
Bitstjóri og óbyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar hJ.
Sfrandferðirnar
ÞAU ÓTÍÐINDI berast að sunnan,
að ríkisstjórnin haíi ákveðið, að taka
strandferðaskipin Esju og Skjald-
breið úr umferð nú á næstunni,
hætta þar með rekstri þeirra og bjóða
þau til sölu. og að ekki sé til þess
vitað að gerð liafi verið viðunandi
ráðstöfun til að fá önnur skip í þeirra
stað. Er því ekki annað sjáanlegt en
að stórkostlega verði dregið úr strand
ferðaþjónustunni fyrir landsbvggð-
ina, og það einmitt á þeim tíma árs,
þegar yfir vofir, að vegir gerist
ógreiðfærir, en þörfin fyrir sjóflutn-
inga þá brýnni.
Esja mun nú vera 27 ára gömul
eða þar sem næst, en Hekla og
„Breiðarnar" nál. 20 ára, það er því
kominn tími til að endurnýja strand-
ferðaflotann, og æskilegt að reyna að
koma gömlu skipunum í vexð, en
auðvitað ekki fyrr en búið er að fá
önur ný í þeirra stað. Talsveit hefur
verið um þetta rætt, og ýmsar tillög-
ur urn ný strandferðaskip og fyrir-
komulag strandferðanna lagðar fiam
á Alþingi. Forstjóii skipaútgerðar-
innar hefur einnig ritað um þessi
mál og sjálfsagt gert um þau tillögui'
til hlutaðeigandi ráðherra. I»á minn-
ast menn jxess, að stjórnin kvaddi sér
til ráðuneytis á sínum tíma útlenda
menn, sem taldir voru sérfróðir á
þessu sviði, en hljótt hefur verið um
skýrslur þeirra og íáð. Svo kemur
skipafiéttin eins og reiðarslag nú
undir haustið, og möigum bregður í
brún.
í fyrxa voru framlög til nýbygg-
inga á þjóðvegum lækkuð til muna
með stjórnarráðstöfun og sömuleiðis
til hafna. Með samdi-ætti strand-
ferðanna er enn vegið í sama kné-
runn. Það er verið að íeyna að draga
úr kröggum ríkissjóðs með sparnaði
á kostnað landsbyggðarinnar, sem
veist í vök. Slátra skal sem fyrium
„lambi hins fátæka manns“. Hér er
allt á sömu bókina lært. Sunnan
fjalla skal koma stóriðjuver með til-
heyrandi stórvirkjun fyrir fjóra
milljarða. Þar og hið næsta höfuð-
borginni, skulu þjóðvegir stein-
steyptir fyrir lánsfé. En „úti á landi“
ber að spara.
Af hálfu stjórnarvaldanna er nú
mjög um það rætt öðru hverju, hvað
strandferðakostnaðurinn sé orðinn
mikill, og er sxi upphæð há í við-
reisnarkrónum talin. En miðað við
heildar lilgjöld fjáilaganna er hún
lægii nú en áður. Auðvitað er þó
sjálfsagt, og góðia gjalda vert, að
unnið sé að þyí, að veita sem bezta
strandferðaþjónustu á sem hagkvæm
asta hátt fyrir ríkið að því er kostn-
aðinn varðar.
(Framhald á blaðsíðu 7).
Námsmeyjar og starfsmenn á garðyrkjunámskeiði í Gróðrarstöðinni á Akureyri vorið 1921. Þessi
Jiekkjast með vissu: Ingimar A. Óskarsson starfsmaður, grasafræðingur, nú í Reykjavík. Guðlaug
Hjörleifsdóttir Kvaran, kona Sigurðar Kristinssonar forstjóra, nýlega látin í Reykjavík. Guðrún Þ.
Björnsdóttir, forstöðukonan, nú í Reykjavík. Sólveig Rögnvaldsdóttir í Fífilgerði, síðar húsfreyja á
Leifsstöðum í Kaupangssveit. Dagbjört Gísladóttir frá Hofi í Svarfaðardal, kona Áskels Sigurjóns-
sonar í Laugáfelli í Reykjadal. Einar Reynis framkvæmdastjóri Ræktunarfélagsins til 1923, síðar á
Húsavík, nú búsettur í Reykjavík. Sigurlína frá Skógum í Fnjóskadal, ráðskona mötuneytisins, og
Kristbjörg Kristjánsdóttir, send af séra Sigtryggi á Núpi, og lijálpaði hún honum síðar til að koma
þar upp skrúðgarði. Nú látin.
NORÐLENZKUR GARÐYRKJUSKÚLI
Fyrsta garðyrkjukonan, Guðrún Þ. Björnsdótt-
ir svarar nokkrum spurningum blaðsins
UM þessar mundir fer fram at-
hugun á stofnun garðyrkju-
skóla á Akureyri eða nágrsnni
hennar. Þingmenn Norðui'lands
kjördæmis eystra fengu sam-
þykkta á síðasta Alþingi þings-
ályktunartillögu um athugun
þessa máls, er lokið skyldi fyr-
ir næsta þing. Framsögumaður
var Karl Kristjánsson.
Opinberri nefnd, undir for-
ystu Péturs Gunnarssonar,: var
af ríkisins hálfu falin athugun
og undirbúningur. Má ætla, að
væntanlegur norðlenzkur garð
yrkjuskóli sé því á dagskrá og
gleymist ekki.
Vor- og sumargarðyrkju-
námskeiðin í Gróðrarstöðinni á
Akureyri voru hin þörfustu og
sér þeirra enn víða merki. Síð-
an þau lögðust niður hefur
garðyrkjumenningu hrakað hér
um slóðir, að því er margir
telja. Þótt skógrækt og kart-
öflurækt hafi aukizt og svo
grasræktin, — undirstaða alls
landbúnaðar á íslandi.
Með því nú, að þessi mál
þurfa að verða rædd á opin-
berum vettvangi meðal Norð-
lendinga, sneri blaðið sér fyrst
til þeirrar konu, sem telja má
fyrstu lærðu garðyrkj ukonu á
íslandi, frú Guðrúnar Þ. Bjöx-ns
dóttur frá Veðramóti, lconu
Sveinbjarnar Jónssonar for-
stjóra. — Hún annaðist áður-
nefnda garðyrkjufræðslu á Ak-
ureyri um skeið, hóf þar störf
1915 og stýrðj garðyrkjunni í
Gróðrarstöðinni til 1923, einn-
ig garðyrkjutilraunum og nám-
skeiðum.
Er það rétt, að þér séuð fyrsta
x lærða garðyrkjukona landsins?
i Ég veit ekki betur en að svo
Í sé.
Hvar stunduðuð þér nám, frú
Guðrún?
í Noregi. Fór þangað vorið
1913 að tilhlutan Halldóru
Bjarnadóttur og Stefáns skóla-
meistara, móðurbróður míris,
sem kunnugt var um áhuga
minn á plöntum og grasafræði.
Skólinn hét Statens Hayebruks
skole for kvinder, á Rejstad í
Lierdalnum við Drammen. For
stöðumaður skólans var Olav
Skard, síðar prófessor í garð-
yrkju við Landbúnaðarháskól-
ann á Ási. Þau hjón bæði voru
framúrskarandi kennarar og
stjórnendur. Frúin kenndi jurta
matreiðslu, sultun, saftgerð og
margt fleira nytsamt. Ég tók
próf frá skólanum haustið 1913.
Vann hjá þekktum blómarækt-
armánni í Oslo, Karl Larsen,
við gróðurhúsaræktun nokkurn
tíma. Sumarið 1914 var ég við
framhaldsnám hjá Pettersen,
amtsgartner í Oslo. Tók svo
þátt í fyrirlestranámi á Land-
búnaðarskólanum á Ási fyrstu
þrjá mánuði ársins 1915. En það
vor hóf ég störf í Gróðrarstöð-
inni.
Haustið 1918 fór ég til Kaup-
mannahafnar að nema jurta-
matreiðslu, en seinni hluta vetr
arins sótti ég fyrirlestra í garð-
yrkju við Landbúnaðarháskól-
ann í Kaupmannahöfn. Um
vorið fór ég til Noregs og dvaldi
í trjáræktarstöð á Söftaland við
Bergen. Þar var mikil uppeld-
isstöð á ti'jáplöntum frá ýms-
um löndum, suðrænum og nor-
rænum.
Þér önnuðust garðyrkjunám-
skeiðin á Akureyri um árabil?
Jú, garðyrkja, trjá- og blóma
rækt var sjálfstæð deild í starf-
semi Ræktunarfélags Norður-
lands. Við höfðum bæði vor-
námskeið fyrir pilta og stúlkur,
og framhaldsnámskeið á sumr-
in fyrir úrval stúlknanna. Trjá-
garðurinn við kirkjuna (síðar
Ryelsgarður) var einnig í okk-
ar umsjá, og þar höfðum við
sáðréiti fyrir trjáplöntur og
runna. Ég starfaði í Gróðrar-
stöðinni í 9 ár, frá vorinu 1915
til haustsins 1923.
Hvað álítið þér um árangur
námskeiðanna?
Ég tel að þessi námskeið, þó
stutt væru og ófullkomin um
margt, hafi glætt áhuga á alls
konar ræktun trjáa, blóma og
matjurta, enda stóðu þekktir
hugsjóna- og áhugamenn, Stef-
án skólameistari og Sigurður
skólastjóri á Hólum — síðar
búnaðarmálastjóri, — að nám-
skeiðunum, og voru þá í stjórn
Ræktunarfélagsins, sem þá átti
Gróðrarstöðina.
Vilduð þér segja eittlivað um
nýjan norðlenzkan garðyrkju-
skóla?
Ég tel það tvímælalaust að-
kallandi þörf að Norðlendingar
komi upp garðyrkjuskóla í
Gróðrarstöðinni, auðvitað í
nýju og fullkomnara formi en
áður, en tel mig ekki færa ,að
gera tillögur þar um. Gróðrar-
stöðin var mikil bæjarprýði, og
gæti orðið það aftur, ef ungt
fólk væri kallað þar til starfa
og náms á ný. Sjá sjálfsagt
margir Norðlendingar nauðsyn
þess að hefjast handa sem fyrst.
Blaðið þakkar svör frú Guð-
rúnar og vill um leið minna á,
að hún stóð fýrir blóma- og
grænmetissýningu á Akureyri
1919 og er það talin fyrsta
garðyrkj usýning á íslandi. Sýn
ingin var haldin í tveim kennslu
stofun Gagnfræðaskólans og
kostaði aðgangur 25 aura. Vakti
þetta áhuga og jók mönnum trú
á ræktunarmöguleikana. □
5
Garðyrkjunniþarf að
sýna meiri sóma
Jón Rögnvaldsson garðyrkjumaður svarar
spurningum blaðsins um væntanlegan garð-
yrkjuskóla á Norðurlandi og segir:
MÉR er vissulega ljúft að verða
við tilmælum ritstjóra Dags og
svara nokkrum spurningum við
víkjandi fyrirhuguðum garð-
yrkjuskóla í Gróðrastöðinni á
Akureyri. En fyrst vil ég þakka
frú Guðrúnu Þ. Björnsdóttur
fyrir viðtalið við blaðið Dag,
sem ritstjórinn leyfði mér að
lesa í prentun. Ég vissi raunar
áður að Guðrún var prýðilega
menntuð kona á sviði garð-
yrkju. En hún var líka ágætur
kennari með brennandi áhuga
fyrir aukinni alhliða garðyrkju
í landinu.
Er þörf á garðyrkjuskóla á
Norðurlandi?
Þessári spurningu svara ég
hiklaust játandi. Nokkur garð-
yrkjukunnátta er lykillinn að
aukinni garðrækt, svo sem mat
jurta- og berjarækt og gerð
skrúðgarða. Er hörmulegt að
við skulum ekki hafa ennþá
komizt upp á að rækta að
nokkru ráði jarðarber, rauðber,
sólber, hindber o. fl. sem nú er
auðvelt að rækta víða hér á
landi, með þeim hjálpargögn-
um, sem nú er völ á, svo sem
plastdúk í sólreiti og tilbúnum
áburði.' Þá er mikil vöntun á
fólki til þess að leiðbeina og
vinna við byggingu skrúðgarða
bæði til sveita og við sjávar-
síðuna. Hefir hið opinbera, því
miður, vanrækt að hlynna að
garðræktinni í landinu. Borið
saman við landbúnaðinn sem
mun hafa yfir 40 ráðunauta en
garðyrkjan 1 ráðunaut.
Bækur sem fólk getur sótt í
margskonar fróðleik um garð-
yrkju?
Vissulega, en ef vel á að vera
þarf að kenna fólkinu að nota
bækurnar. Til er ágæt bók um
matjurtarækt, gefin út af Garð
yrkjufélagi íslands. Þá er Garða
gróður einskonar handbók í al-
mennri skrúðgarðarækt, og
ætti að vera til á hevrju heim-
ili. Ennfremur mætti nefna bók
ina „Skrúðgarðar“ um skipulag
og gerð skrúðgarða með mörg-
um myndum og teikningum af
blóm- og trjágörðum. En sízt
má gleyma Garðyrkjuritinu,
sem kemur út árlega, og vana-
lega fullt af margskonar fróð-
leik varðandi garðyrkju.
Hvað viltu segja uin almenna
garðyrkjukunnáttu og ræktun-
armenningu?
Því miður, er kunnátfta fólks
almennt hér á Norðurlandi í
garðrækt harla lítil, og rækt-
unarmenning okkar íslendinga
mjög ábótavant, t. d. borið sam
an við nágrannalöndin og utan-
húss umgengni á sveitaheimil-
um er víða slæm og sumsstaðar
hræðileg. Ættu búnaðai'félögin
eða búnaðarsamböndin út um
landið að táka þetta mál til með
ferðar, og verðlauna fyrirmynd
ar umgengni við sveitabæi.
Hefur þú hugleitt hverskonar
skóli lientaði hér bezt?
Ég held að einsársskóli eða ef
til vill þriggja missera hentaði
okkur vel. Hæfilegt væri að
gera ráð fyrir tíu nemendum og
einum föstum kennara — skóla
stjóra, sem ef til vill gæti jafn-
framt sinnt nokkurri leiðbein-
ingaþjónustu á Norðurlandi.
Hvað um skólastaðinn og jarð
hitann?
Ég tel spursmálalaust að skól
anum yrði valinn staður í
Gróðrarstöðinni á Akureyri.
Þar munu vera nægar bygging-
ar fyrir lítinn skóla. Ekki sízt
ef hætt verður við kúabúið á
staðnum. Fyrir almenna garð-
yrkju er jarðhiti alls ekki nauð
synlegur. Getur orðið vai'asam-
ur, og vitanlega þýðingalaus
fyrir skrúðgarðarækt, og raun-
ar einnig almenna matjurta-
rækt. Sólreitir henta vel.
Á það hefur verið minnzt hér
að ýraman, en því má bæta við
að sjálfsagt er að hafa með
höndum plöntuuppeldi við skól
ann, og eins fjölbreyttan gróður
og henta þykir. Mundi gras-
garðurinn á Akureyri geta veitt
dýrmæta aðstoð og leiðbein-
ingar x þessu máli, en í gi-as-
garðinum á Akureyii eru nú
ræktaðar um 2400 tegundir
plantna, og að heita má allar
íslenzkar tegundir.
En hvað ber nú að gera í
þessu máli?
Mér skilst að málinu hafi ver
ið vísað til Rannsóknarráðs land
búnaðarins til umsagnar. En því
mátti ekki skipa nefnd færustu
garðyrkjumanna og áhugafólks
hér nyrðra. Hefði að sjálfsögðu
átt að hafa þennan eina gai'ð-
yrkjuráðunaut landsins í nefnd
inni. En að óreyndu máli treyst
um við því að Rannsóknarráðið
skili jákvæðri greinargerð sti-ax
og þing kemur saman í haust.
Ella verðum við Norðlending
ar að kjósa okkur nefnd til þess
að fylgja málinu eftir. Mætti ef
til vill koma því þannig fyrir að
samband noi’ðlenzkra kvenna
útnefndi einn, bæjarstjórn Ak-
ureyrar einn og þriðji maður
yrði garðyi-kjuráðunautur lands
ins, segir Jón að lokum. N
Blaðið þakkar svör Jóns
Rögnvaldssonar garðyrkju-
manns. □
KÆRI DAGUR. Mig langar til
að biðja þig fyrir nokkur oi'ð
viðvíkjandi götum hér í bæ.
Fyrst vil ég minnast á Helga-
magrasti'ætið. Mér finnst það
vægast sagt ófært þegar eitt-
hvað rignir, að minnstakosti á
pörtum. Það eru nokkur ár síð
an að kantsteinar voru lagðir
vestan götunnar og var þar með
talin komin gangstétt. Ég hef
alltaf lagt þann skilning í það
að þar með væri komin braut
fyrir gangandi fólk en það er
nú síður en svo í þessu tilfelli,
svo mikil drulla er á þessai'i svo
kallaði’i gangstétt sumsstaðar
að skárra er að fara akbraut-
ina, sem þó er svotil ófær gang
andi fólki vegna umferðar og
óhreininda.
í vor bilaði rafstrengur í göt-
unni sem auðvitað þurfti að
gei-a við. Gatan var rifin upp á
200 meti'a kafla. Það verk tók
sex vikui’. Nú hefur verið mok-
að ofaní aftur en verkið svo illa
unnið að furðulegt má heita að
ganga þannig frá götunni. Raf-
veitustjóri ætti að skoða þessar
framkvæmdir.
Sem sagt: Til hvers er verið
að leggja kantsteina og búa til
gangstétt, sem ekki er fær gang
andi fólki? Er ekki eitthvað bog
ið við þvílíkar framkvæmdir?
Fyrir kosningar í vor var mik
ið talað um stórátak í gatna-
gei’ð. Það væri óskandi að eitt-
hvað færi að koma í ljós, þó
ekki væri nema í smáum stíl.
Það er dálítið síðan að Eyrar-
landsvegur var lagfærður og
lögð gangstétt beggja vegna allt
að Menntaskólanum svo og með
fram Lystigarðinum, en endarn
ir ná bara ekki saman. Framan
við Menntaskólalóðina er mold
arkantux'. Eftir honum gengur
fólkið og það er margt, sem fer
í Lystigarðinn og á Sjúkrahús-
ið. Þessi spotti er um 70 meti'ar.
Hvei-nig stendur á því að þetta
er ékki lagað? Sjá ekki í'áða-
menn bæjarins hvei’su mikil
þörf er fyrir gangstétt þarna?
Eða fara þeir alltaf í bíl þarna
um og taka Jxá ekki eftir svona
smávegis fai'artálma þeirra sem
gangandi eru? Mér finnst þetta
furðulegt framtaksleysi að ekki
skuli vera búið að laga þetta fyr
ir löngu.
Einn götuspotta enn langar
mig til að minnast á og þó býr
enginn við hann. Það er gatan
vestan við Sláturhús KEA. Mér
finnst vægast sagt furðulegt að
sú gata skuli vera höfð í slíku
ástandi ár eftir ár. Ég hefi í
nærri 30 ár á hverju hausti sótt
slátur í Sláturhúsið. Flest ár
Bréf sunnan yfir sand
til Dagsmanna
- SALTAÐ í 22 ÞÚSUND
(Framhald af blaðsíðu 1).
Bræðslan er nú orðin rúm-
lega 40 þús. tonn. Bræla er á
miðum hér út af. Flest skipin
eru nú á syðra veiðisvæðinu,
þar sem veður fer batnandi.
H. H.
MARGIR voldugir flokksleið-
togar skemmta Jxjóðinni um
þessar mundir með dansi,
skemmtiki-öftum höfuðboi’gar-
innar og loftkenndum umræð-
um. Dagur hefur nýverið birt
örstuttan kafla úr ræðu af
bændafundi norðanlands. Efnið
í þessari litlu ræðu bóndans get
ur oi'ðið viðfangsefni margra
boi'gax-afunda án skemmti-
ki’afta.
Fyrsta atriði: Bújarðir í sveit
eru lítt seljanlegar á fasteigna-
markaði, nema fyrir kjallara-
holu eða þakloft í kaupstaðar-
húsi.
Annað atriði: Kjax-amunur
starfsmanna í sveit og þéttbýli
er fui-ðu mikill. Bóndinn og
hans fólk er bundið framleiðslu
stöi’fum heimilisins alla daga
ársins. Bæjarmaðui’inn hefur
fengið trýggðan langan hvíldar
tíma einu sinni á ári, með full-
um tekjum. Ennfremur hafa
þéttbýlismenn tryggt sér tvo
sunnudaga mikinn hluta ársins
og bróðui-partinn af laugardeg-
inum þar sem ekki var alveg
heill dagur fenginn. Á mörgum
heimilum í sveit eru allir dag-
ar vígðir framleiðslustörfunum,
ár út og ár inn.
Þriðja atriði: Útvegsmenn
héldu fyrir nokkrum misserum
skyndifund og tilkynntu lands-
stjórninni að ef ríkið ekki
gi-eiddi þeim 300 millj. króna í
aukauppbætur á sjávarvörur
yrði öllum skipum útvegsins
haldið í höfn árlangt. Ríkið lét
undan. En bændur héldu engan
fund og fengu enga aukaupp-
bót.
Bóndinn sem Dagur minntist
á í sambandi við áhalla atvinnu
veganna hefir gefið bændum og
öðrum stéttum fundarefni til
langs tíma. Þegar þjóðskörung-
ana vantar áhugamál á fundi,
sem byrja með dansi og
skemmtikröftuifi, getur jafn-
vægi byggða og bæja orðið
mannfélagsbætandi rannsóknar
efni.
Jónas Jónsson
frá Hriflu.
Héraðsfimdur Eyj‘a-
fjarðarprófastsdæmis
HÉRAÐSFUNDUR Eyjafjarðar
prófastsdæmis verður haldinn
á Akureyri sunnudaginn 4.
september næstkomandi og
hefst með almennri guðsþjón-
ustu í Akureyrarkirkju kl. 2
eftir hádegi. Sr. Ingþór Indriða-
son prédikar en í lok mess-
unnar setur prófasturinn, séi’a
Benjamín Kristjánsson fund-
inn og flytur yfirlitserindi um
kirkjumál í héraðinu á sl. ári.
Fundinum verður svo haldið
áfram í kapellu kirkjunnar að
loknu kaffihléi. Auk venjulegra
héi’aðsfundarstai’fa mun séx-a
Pétur Sigui-geirsson flytja er-
indi á fundinum um alþjóðleg
nemandaskipti á vegum kirkj-
unnai’.
Prófastur biður þá reiknings-
haldara kirkna og kirkjugarða,
sem enn hafa ekki skilað reikn-
ingum fyrir árið 1965 að senda
sér þá hið allra fyrsta og helzt
ekki seinna en á fundinum.
(Frá lxéraðsprófasti)
fleiri en eina fei’ð og alltaf hef-
ur mér fundist að nú komi ekki
annað til greina en að gatan
verði löguð fyrir næsta haust
en ennþá er þar sama svaðið og
óþverrinn. Ætli maður mætti.
láta sér detta í hug að á Jxessu
yrði breyting ef ti'l dæmis Kaup
félag Svalbarðseyi-ax', eða ein-
hver annar,.setti upp slátui-sölu
á þi'ifalegum stað, J>ó -maður
fengi nú ekki eitt kíló af mör
innifalið í sláturvei'ðinu. Ég veit
að það er ljótt að vera með
svona hugrénnirigar, en érfitt er
að foi’ðast þvllíkar hugsanir. í
áframhaldi af því að ég minnist
á slátui’, vil ég minnast á þá ráð
stöfun Kaupfélags Eyfirðinga
að hætta að selja kjotd" heilum
og hálfum skrokkum nema á
sláturhúsinu. Það er áreiðan-
lega spor afturábak. Ég skora á
í’áðamenn KEA að breyta þessu
aftur hið bráðastá og reýna að
auglýsa það rétt. Það er að sjálf
sögðu ekki nauðsynlegt að af-
greiða þannig kjöt í búðunum á
föstudögum, því að þá er mest
að gei’a, en aði’a daga vikunnar
á skilyrðislaust að láta viðskipta
vini fá kjötið í umræddu foimi
eins og áður. Við vitum vel
hvei’S vegna þetta er gert. En
það erum við sem eigum þessar
búðir og viljum gjarna fá þar
góða þjónustu.
Ég vildi mega stinga upp á
því að J>eir menn, sem vilja
draga úr góðri Jjjónustu við
fólkið, eins og t. d. með kjötið,
verði settir til hliðar.
Þó ég hafi gert þessar götur
að umtalsefni er mér Ijóst að
ótal fleiri götum og gangstétt-
um er ábótavant og fólk ætti að
koma kvörtunum sínum á fram
færi, þó það sé ef til vill álíka
tilgangslaust og að mála stein-
girðingu við Helgamagrastræti
hvíta, eins og einn húseigandin
gerði. J.
- NÝR HELLISHEIÐ-
ARVEGUR
(Framhald af blaðsíðu 8).
erfitt að leggja þar góðan veg.
En sennilega er snjólétt á þess-
um slóðum. Miðað við vegamót
in hjá Jökulsárbrú, styttir veg-
ur þessi leiðina um 60—70 km.
milli Héx-aðs og Vopnafjarðai’.
Fyi’ir nokkrum dögum fór lækn
irinn á Eskifirði þessa leið á
fólksbíl sínum og var að vanda
fLjótur, en ólíklegt telur hann,
að hann leggi í slíkt ævintýri
öðru sinni ótilneyddur, a. m. k.
ekki fyrr en vegagerðin er
lengra á veg komin.
Síðasta síldarhrotan fór að
mestu fram hjá Vopnafirði. Þar
stóð’ síldarverksmiðjan hráefnis
laus á meðan síldarflutninga-
skip fóru með hvern farminn af
öðrum til Reykjavíkui’. Þykir
okkur þetta léleg ráðsmennska.
Verksmiðjan hefur annars tek-
ið á móti 140 þús. málum í
bi'æðslu og búið er að salta í
nálægt 6 þús. tunnur.
Nýlega voru útsvör lögð á
hér í Vopnafirði, eftir lögboðn-
um stiga, 2,8 millj. kr. á 255
gjaldendui’. Aðstöðugjöld námu
560 þús. kr. Þau voru nú í
fyrsta sinn lögð á a\Ja bændur.
(Samkvæmt viðtali við Þor-
stein Þoi-geirsson og Kx-istján
Víum). □
Sumarmóf ÆSK
ÞRIÐJA sumarmót Æskulýðs-
sambands kirkjunnar í Hóla-
stifti fór fram um síðustu helgi
í blíðskai’par verðri. Mótið var
í sumarbúðunum við Vest-
mannsvatn eins og hin fyrrL
Þátttakendur voru á annað
hundrað unglingar.
Reistar voru tjaldbúðir
skammt sunnan við sumarbúð-
irnar og var unga fólkið víðs-
vegar að, t. d. frá Sauðárkróki,
Akureyri, Grenivík, Höfða-
hverfi, Húsavík og úr Grenjað-
arstaðarprestakalli.
Mótinu stjói'nuðu séra Sig-
urður Guðmundsson prófastur
á Grenjaðarstað og Gylfi Jóns-
son stud. theol. sumarbúða-
stjóri og var það sett af prófasti
laust eftir kvöldmat á laugar-
dagskvöldið og síðan var kvöld
vaka, sem Sigurður Sigurðsson,
Gunnar Rafn Jónsson og Björn
Mikaelsson önnuðust. Þá af-
henti fararstjóri Sauðai'króks-
búa, Sveinn Bjarman tvö þús-
und króna gjöf frá Æskulýðs-
félagi Sauðárkrókskirkju til
sumai’búðanna.
Síðar um kvöldið var varð-
eldur hjá vatninu og flugeld-
um var skotið á loft. Dagur-
inn endaði með kvöldbænum,
sem prófastur flutti.
Sunnudagsmoi-guninn voru ís
leniki fáninn og æskulýðsfán-
inn dregnir að hún, sem jafnan
blakta við sumarbúðirnar með-
an þær starfa. Moi’gunbæn ann
aðist séra Björn Jónsson, sem
þessa dagana er Gylfa til að-
stoðar, en í sumarbúðunum er
nú drengjaflokkur.
Fyrir hádegi var knattspyrnu
kappleikur og margir voru við
vatnið að leik eða úti á vatn-
inu, sem var spegilslétt í glarnp
andi sólskini. Eftir hádegið var
guðsþjónusta í Grenjaðarstaðar
kirkju. Séra Pétur Sigui’geirs-
son prédikaði, en fyrir altax-i
undan og eftir prédikun þjónaði
séra Sigurður prófastur og sleit
síðan mótinu. Séra Bjöm á
Húsavík flutti honum þakkir
fyrir ágæt störf og farsæla
stjórn sumarbúðanna allt frá
upphafi. Organisti var Friðrik
Jónsson en kirkjukórinn söng.
Séra Sigurður Guðmundsson
er formaður þeiri-ar nefndai’,
sem hefir haft með höndum
byggingu sumarbúðanna og á
hann mestar þakkir fyrir hve
þeim málum er vel á veg komið.
Seinasta námskeiðið í sumar er
fyrir eldri telpur og stendur það
yfir í 10 daga. Það hefst 28.
ágúst. Mikil nauðsyn er á að
hægt vei’ði að byggja svefn-
skála við búðii’nar en til þess
þarf stuðning velunnai’a þess-
arx’a samtaka. Þeim fer stöðugt
fjölgandi.
Æskulýðsmótið varð öllum til
ánægju sem það sóttu og er það
mikilvægur þáttur í sumarstarf
inu.
(Fr éttatilkynning)
Hæsta söltunarstöðÍR
(Framhald af blaðsíðu 1).
á landleið með afla sinn af mið-
unum í fyrradag vegna krappr-i
ar kviku og storms.
Valtýr Þorsteinsson útgerðar
maður er nú í þann vegin að
hefja byggingu fiskvinnslu-
stöðvar á Akureyri, og verður
hún noi’ðan við Hraðfrystihús
U. A. á Oddeyri. Þá er í smíð-
um hjá Valtý bygging' ein á
Seyðisfirði, sem einnig mun
eiga að vera fiskverkunarhús.
(Samkvæmt viðtali við Hreið
ar Valtýsson). Q