Dagur - 10.09.1966, Blaðsíða 2
2
Unga fólkið hefur orðið
íl'í'>íJ-7*'>$^*s-c'J.'í-v,'í'>©'í-S:-'>@'í-i;'r'J'©'>i^>©'>ii^>S>'>i;S>e">*s-3^*').Gi'>í:s>9'í-í''->©'i-SS>©'>irr->í;''>*^£í^i“í'>©'>*'i'©'>i¥'->ííi^S'^>®'í'v^®^*^S^;»©'>vÆ'>©'i-í!
lisþing ungra Framsókn-
armanna sl. sunnudag aS Laugum
íngólfur Sverrisson kjörinn form. Sambands
ungra Framsóknarmanna á Norðausturlandi
SUNNUDAGINN 4. september
sl. hélt Samband ungra Fram-
séknarmanna á Norðurlandi sitt
árlega þing að Laugum í
Reykjadal. Þangað voru mættir
fulitrúar frá hinum ýmsu félög-
um á svæðinu.
Þingforsetar voru kjörnir
Björn Teitsson og Ingólfur
Sverrisson, og þingritarar Jó-
hann Halldórsson og Rafn
Sveinsson. Eftir að kjörbréfa-
nefnd hafði lokið störfum, flutti
formaður sambandsins, Aðal-
steinn Karlsson skýrslu um störf
stjórnar síðasta starfsár. Kom
þar margt athyglisvert fram, og
þar á meðal, að starfandi eru 7
félög innan samtakanna. Hvatti
formaður þau til dáða, því fram
undan væru mörg og stór verk-
efni. Því næst las gjaldkeri sam
bandsins, Einar Njálsson, upp
reikninga og skýrði þá. Eftir
matarhlé störfuðu nefndir og
tóku fyrir margskonar málefni
og gerðu þar ályktanir, sem síð
ar voru lagðar fyrir þingið, til
úmræðu og afgreiðslu.
Að loknum nefndarstörf um
flutti gestur þingsins, Ingvar
Gíslason alþingismaður, ræðu.
Gerði hann þar á snjallan hátt
grein fyrir stefnu Framsóknar-
flokksins. Benti hann m. a. á þá
staðreynd, að æ fleiri meðal
ungu kynslóðarinnar væru and
vígir öfgastefnum, hvort heldur
þær væru til hægri eða vinstri,
og væri það ótvíræð þroska-
merki. Hvatti hann ungt fólk til
að kynna sér hina framfara-
sinnuðu stefnu Framsóknar-
flokksins, sem tryggði hverjum
einstaklingi öryggi og velmeg-
un. Gerðu þingfulltrúar góðan
róm að ræðu Ingvars.
Þessu næst gerðu oddamenn
nefnda grein fyrir störfum
þeirra og mæltu fyrir viðkom-
andi tillögum. Hófust nú um-
ræðui' um tillögurnar og komu
þar ýmis sjónarmið í Ijós. Höfðu
fulltrúar þar margt til málanna
að leggja og koma þar meðal
annars fram, að almenn og
sterk samstaða var með full-
trúum um að vinna sem bezt
fyrir 'næstu kosningar. Eggjuðu
menn þar hver annan lögeggjan
áð duga nú vél og láta sér ekk-
ert nægja nema vinna þingsæti
í kjördæminu. Stefna núver-
andi stjórnarflokka — ef stefnu
skyldi kalla — skyldi fá verð-
uga hirtingu. Ungt fólk væri
andvígt því braskaraþjóðfélagi,
sem hér hefði þróazt undir
handarjaðri núverandi ríkis-
stjórnar. Sú ringulreið og
óstjórn hlyti að verða bæði þess
ari svo og komandi kynslóðum
til ills og vansæmdar. Einnig
kom fram í umræðunum mikill
áhugi fyrir því, að stórátak yrði
gert til að bæta aðstöðu Norður
lands í hinni ójöfnu aðstöðu
gagnvart Suðurlandi hvað við-
kemur uppbygginga- og menn-
ingarmálum. Samþykkti þingið
síðan margar athyglisverðar
ályktanir, sem síðan verður get
ið á þessum vettvangi.
í lok þingsins fór fram stjórn
arkjör og er stjórn sambandsins
nú þannig skipuð:
Ingólfur Sverrisson, Akur-
eyri, formaður, Jóhann Hall-
dórsson, Kristnesi, ritari, Aðal-
steinn Karlsson, Húsavík, gjald
keri.
Varamenn: Karl Steingríms-
son, Akureyri, Sigurgeir ísaks-
son, Kelduhverfi, Guðmundur
Hallgrímsson.
Þetta þing Sambands ungra
Framsóknarmanna á Norðaust-
urlandi tókst með afbrigðum
vel. Samstaðan, sem þar kom
fram ásamt með þeim eldmóði,
sem flutt getur fjöll, var mjög
einkennandi fyrir þingið. Þarna
voru mættir glæsilegir fulltrú-
ar hinna uppvaxandi kynslóðar,
fulltrúar, sem kynnt hafa sér
málefni þjóðarinnar af gaum-
gæfni og komist að þeirri sam-
eiginlegu niðurstöðu að stefna
Framsóknarflokksins komi bezt
til móts við hugmyndir þær,
sem þeir hafa um réttlátt og
þroskavænlegt þjóðfélag. Þarna
skópust kynni milli fulltrúanna,
sem munu hafa ómetanleg
áhrif á þá sókn ungra Fram-
sóknarmanna í kjördæminu,
sem nú stendur fyrir dyrum.
Forystunienn ungra Fram-
sóknarmanna hafa orðið áþreif
Ingólfur Sverrisson skrifstofu-
niaður á Akureyri, nýkosinn
formaður í Sambandi ungra
Framsóknarmanna á Norður-
landi, mun skrifa nokkra þætti
um málefni unga fólksins hér í
blaðinu og birtist sá fyrsti í dag.
anlega varir við þann vaxandi
áhuga alls þorra ungs fólks á
málefnum cg stefnu Framsókn-
arflokksins. Þeim vex við það
ásmegin og munu ekki láta sitt
eftir liggja til að gera kosninga
sigur flokksins sem glæsileg-
astan næsta vor. Ungu fólki
verður það æ ljósara, að hið
eina, sem getur veikt íhald-
ið er þróttmikil og vaxandi
áhrif Framsóknarflokksins. Það
gerir sér einnig grein fyrir því,
að aðrir svonefndir vinstri flokk
ar hafa ekki til að bera hina
jákvæðu málefnabaráttu Fram-
sóknarflokksins, sem byggist á
þjóðlegum grunni, en ekki ann
arlegum erlendum hugmynda-
fræðum, scm cít eru blóði lit-
aðar. Þegar þetta allt er haft í
liuga, skal engan undra þótt Iiin
uppvaxandi kynslóð skipi sér í
æ ríkara mæli undir merki
Framsóknarflokksins.
L
ÞÁTTURINN mun leitast við að flytja efni við hæfi
ungs fólks; liitta ungt fólk að máli og ræða við það um
áhugamál þess og atvinnu.
Einnig verður rætt um starf ungra Framsóknar-
manna í kjördæininu og skoðanir þeirra á landsins
gagni og nauðsynjum.
Þess er vænzt, að þessi nýi þáttur megi stuðla að já-
kvæðum afskiptum ungs fólks af þjóðmálum.
Hlauf hálsmen
í verðlaun
Þessi unga kona, Jófríður
Traustadóttir frá Akureyri,
mun nú bera liálsmen það hið
fagra, sem fryst var í miklum
ísklump við íþrótta- og sýning-
arhöllina í Laugardal. Verð-
launagetraun fór fram um það,
hvenær ísinn hráðnaði utan af
hálsmeninu. Jófríður og maður
hennar, Þórður Gunnarsson,
unnu þá getraun og hlutu háls-
menið í verðlaun.
(Ljósm.: E. D.)
Sæmileg síldveiði var
í fyrrinótt eystra
Mikið saltað á Austf jörðum í gær
í FYRRINÓTT öfluðust rúm-
lega 8 þús. smálestir síldar eftir
4—5 daga veiðihlé, sem óhag-
stætt veður olli. Um 80 skip
fengu þessa veiði 30—60 mílur
út, í Reyðarfjarðardýpi.
Þessi síld var töluvert blönd-
uð en að þvi leyti góð söltunar-
síld hve ný hún kom að landi.
Mikið var saltað á flestum Aust
fjörðum í gær, sem að líkum
lætur.
Síldarbræðslurnar eru tilbún
ar að taka á móti miklum afla
eftir nokkurra daga hlé, og síld
arflutningaskipin bíða þess
MIKIÐ AF RJIJPUM
ÞÓTT mikil vanhöld hafi orðið
á ungum rjúpunnar á Norður-
landi í júlíofviðrinu í sumar, er
talið líklegt að rjúpnastofninn
sé sterkur — sennilega í há-
marki. Munu rjúpnaskyttur
hugsa gott til glóðarinnar þegar
sá tími kemur að leyfilegt er að
ganga til rjúpna.
glorsoltin að flytja Austurlands
síldina til annarra hafna, jafn-
vel til Reykjavíkur.
Síðdegis í gær var versnandi
veðurspá á síldarmiðunum en
ennþá gott veður. □
- Fjögurra bandalaga-
keppni á sunnudag
(Framhald af blaðsíðu 8.)
ári. Bezti árangur Þorsteins í
kringlukasti er 54,28 m.
Á þessu móti verða margir af
beztu frjálsíþróttamönnum
landsins og má búast við spenn
andi og skemmtilegri keppni í
mörgum greinum. Síðast þegar
mótið var haldið urðu ÍBA og
UMSK efst og jöfn að stigum.
Á sunnudag verður keppt í
eftirtöldum greinum: 100, 400
og 1500 m. hlaupum, langstökki,
hástökki, þrístökki, kúluvarpi,
kringlukasti, spjótkasti og
4x100 m. boðhlaupi. Keppnin á
sunnudag hefst kl. 14.00. □
Valdimar Traustason hefur fengið margar vænar lúður á haukalóð
við Grímsey í surnar. í næstsíðasta róðri fékk hann tvær, sem hvor
vóg 150 pund og eina litlu minni. Hann veiddi líka lúðu þá, er
myndin sýnir og var hún á fjórða hundrað pund. (Ljósm.: G. J.)