Dagur - 10.09.1966, Blaðsíða 7
7
Grasafræðingur heiðraður
Á SÍÐASTLIÐNU sumri (1966)
ákvað aðalfundur Náttúrufræði
félagsins að kjósa Helga Jónas-
son, bónda á Gvendarstöðum í
Kinn, S.-Þing., kjörféiaga
Náttúrufræðifélagsins.
Eins og flestum Norðlending-
um mun kunnugt hefur Helgi
ailt frá barnæsku fengist við
plöntusöfnun jafnframt bú-
skapnum, og farið víða til fanga,
m. a. ferðast um flestar byggðir
Vestfjarða. Helgi átti stórt
plöntusafn,.sem hann hefur ný-
lega selt Náttúrugripasafni ís-
lands. Helgi er ennþá hress
þrátt fyrir háan aldur, og við-
ræðugóður um allt sem lýtur
að grösum, og sögur um drauga
og önriur svokölluð ónáttúruleg
fyrirbæri forsmáir hann ekki,
standi þær til boðá. Hann mun
og hafa hug á að koma sér upp
öðru plöntusafni.
Helgi er því vel að þessum
heiðri . kominn, og þakklátir
mega Þingeyingar vera, að hafa
fóstrað slíkan fræðimann. □
Helgi Jónasson.
- SMATT OG STORT
(Framhald af blaðsíðu 8).
un liggur fyrir, mun komi í ljós
hvaða fylgi liún hlýtur lijá bæj
arstjórn og hvort hún treystir
sér til að vinna eftir henni að
lausn aðkallandi mála. Um
liana getur myndast sá „ábyrgi
bæjarstjórnarmeirihluti“, sem
vill leggja áætlunina á borðið
og segja: Þetta ætlum við að
gera og í þessari röð. Þetta mun
geta Ieitt til mun skynsamlegri
framkvæmda hjá bæjarfélagi
okkar en skyndigerðir, pólitísk
ir málefnasamningar milli
flokka í bæjarstjórn um kosn-
ingar.
N Á T T Ú R U GRIPASAFNIÐ
verður fyrst um sinn aðeins
opið á sunnudögum kl. 2—4.
RÉTT ER að taka fram, að boðs
kort að málverkasýningu
Garðars Loftssonar á Dalvík,
sem opnuð verður í dag, laug
ardaginn 10. sept., gilda ekki
aðeins þann dag, heldur
livaða daga aðra sem vera
skal á meðan sýningin stend-
ur. Þá mispreníaðist liér í
blaðinu, að málverk væri frá
Þórsliöfn, en átti að vera Þórs
mörk.
BRÚÐIIJÓN. Hinn 8. septem-
ber voru gefin saman í hjóna
band í Akureyrarkirkju ung-
frú Rebekka Gústavsdóttir og
Birgir Karlsson stud. oecon.
Heimili þeirra verður að
Ægissíðu 92 Reykjavík. |
KYLFINGAR Akureyri! Val-
bjarkarkeppni fer fram á
Golfvellinum í dag, laugar-
dag, kl. 1.30. — Fjölmennið!
Kappleikanefnd.
NONNAHÚS verður opið í
sumar alla daga vikunnar kl.
2—4 e.h. Uppl. í símum
1-13-96, 1-15-74 og 1-27-77.
MINJASAFNIÐ er opið dag-
lega kl. 1.30—4 e.h. Á öðrum
tímum verður þó tekið á móti
ferðafólki ef óskað er. Sími
safnsins er 1-11-62, en safn-
varðar 1-12-72.
Séra Ágúst Sigurðsson á næsfa !eik
Höfðar mál á hendur þeim, er kærðu hann áður
- Nýjar leiðir í landbúnaði
(Framhald af blaðsíðu 4)
mjöls sé minna en síldarmjöls,
eins og látið hefur verið af gæð
um þess og mundi ég þá áætla
fob-verð þess kr. 6000.00 til kr.
7000.00 pr. tonn og útflutnings-
verðmæti þess éða brúttóverð
álls kr. 1.2000.000.000.00 til kr.
1.400.000.000.00. Miðað við ca.
5000 bændur yrði þetta kr.
240.000.00 til 280.000.00 á hvern
bónda brúttó af ca. 20 ha. land-
aukningu til jafnaðar á hvern.
aðurinn? Því er 'erfitt að svara.
Hver yrði svo rekstrarkostn-
Mætti ef til vill álykta sem svo,
að ca. tveggja ára framleiðslu-
verðmæti af-100.000 ha. fram-
leiðslu þyrfti til að fullrækta
landið og setja upp heymjöls-
verksmiðjur. Vextir og afborg-
anir af þeirri upphæð yrðu í
hæsta lagi 300 til 400 milljónir
króna árlega. Eftir yrðu þá 900
til 1100 milljónir króna árlega
til að mæta áburðarkostnaði,
heyvinnslukostnaði, sköttum og
vinnulaunum. Hlytu bændur að
fá þarna verulega tekjuaukn-
ingu við þau laun, er þeir nú
hafa, og koma til með að hafa,
af hinum venjulega búskap. Ég
tel hæpið, að þessar tölur mínar
séu of háar. Miklu líklegra að
þær séu of lágar, og þá sér-
staklega framleiðslumagnið og
útflutningsverðið pr. tonn. Sé
svo, verður útkoman betri en
hér hefur verið áætlað.
Eins og ég gat um áður,
myndi þessi framleiðsluaukn-
ing verða viðbót við þær kjöt-
og mjólkurvörur, sem framleidd
ár eru og framleiða þarf fram-
vegis til innanlandsneyzlu og
Sá hlýtur viðskiptin,
sem athygli vekur
á þeim.
auka þannig brúttótekjur
bænda almennt um meifa en
þriðjung. Munar þá vissulega
um minna. En hvernig ætti þá
að fá fjármagn til svona al-
mennra og umsvifamikilla fram
kvæmda?
Svo vitnað sé aftur í grein
viðskiptamáiaráðherra, þá
munu útflutningsuppbæturnar í
ár — bæði frá ríki og bændum
sjálfum — nema um kr. 290
milljónir og verða að fimm ár-
um liðnum, með núverandi þró
un, komast í kr. 475 milljónir.
Þetta er nokkurn veginn svip-
uð upphæð og ég tel, að þurfi
árlega til aS standa straum af
vöxtum og afborgunum af rækt
unar og heyrHjölsverksmiðju-
kostnaðinum. Hvernig væri að
bændasamtökin og ríkisvaldið
semdu um það sín á milli, að
gegn því, að bændur héldu fram
leiðslu sinni á kjöt- og mjólkur
vörum innan þeirra takmarka,
sem innanlandsframleiðslan
þarfnast, þá fengju þeir útflutn
ingsuppbæturnar næstu fimm
árin sem stofnlán til þessarar
nýju búgreinar. Bændu myndu
svo geta sett eitthvað af fjár-
munum í þetta sjálfir eins og
sjá má af því, að fjármunamynd
unin var í fyrra 560 milljónir
króna. Og þó eitthvað af því
færi framvegis í það, að við-
halda bústærðinni til innan-
landsneyzlu, myndi þó svipuð
fjármunamyndun duga árlega
til að standa undir stofnkostn-
aði hinnar nýju búgreinar. Hver
reksturskostnaðurinn svo yrði
og hvort hann reyndist of hár
fyrir markaðsverðið, er erfitt
að segja um, en eins og ég kem
að seinna, tel ég að ísl. heymjöl
ið muni sjálft sanna gæði sín
með háu útflutningsverði og
geng ég þá út frá, að þessi bú-
grein gæfi þeim, sem hana
stunduðu ekki lakari afkomu en
þeim, sem nú vinna við síldina.
(Framhald í næsta blaði)
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
PÁLÍNA MAGNÚSDÖTTIR,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 7. sept-
ember sk — Jarðsett verður frá Akureyrarkirkju mið-
vikudaginn 14. sept. kl. 2 e. h.
Börn, tengdabörn og bamaböm.
OPINBER fréttatilkynning frá
saksóknara ríkisins fyrr í vik-
unni hljóðar svo:
„Að aflokinni dómsrannsókn
vegna kæru 48 sóknarmanna í
Möðruvallaprestakalli í Eyja-
fjarðarprófastsdæmi út af at-
vikum í sambandi við prestkosn
ingu í fyrrgreindu prestakalli
hinn 8. maí sl. hefur skipaður
saksóknari af þessu tilefni Hall
varður Einvarðsson, eigi krafizt
frekari aðgerða vegna máls
þessa. Er málið þar með niður
fallið af ákæruvaldsins hálfu“.
Séra Ágúst hefur hlotið lög-
mæta prestskosningu í Vallanes
prestakalli á Héraði og er á för
um þangað. Yfirvöldin lögðu
blessun sína yfir þá kosningu
og hafa þegar veitt honum
prestakallið. En ekki virðist
þeim málaferlum, sem upphóf-
ust með „sérkennilegri" kæru
hinna 48 sóknarbarna hans í
sumar enn lokið, þótt sú kæra
hafi hlotið þá „náð“ ákæruvalds
ins að vera lögð til hliðar.
Séra Ágúst Sigurðsson á
næsta leik og hyggst nú höfða
mál gegn hinum 48 fyrrverandi
sóknarbörnum, sem taka vildu
af honum kall og kjól. Mun enn
margt í Ijós koma við rannsókn
hins nýja máls,
8«
□
- Unglingaskóli f jög-
urra hreppa
(Framhald af blaðsíðu 1).
nefndar 15. júlí í sumar lagði
kvenfélagið Iðunn í Hrafnagils-
hreppi fram 50 þús. kr. gjöf og
skyldi hún leggjast í sameigin-
legan byggingarsjóð allra hrepp
anna.
Síðasta Alþingi samþykkti
200 þús. kr. fjárveitingu til und
irbúningsframkvæmda, en hið
opinbera greiðir þrjá fjórðu
hluta byggingarkostnaðar. ,
(Fréttatilkynning)
plast
stólar
höfum hafið framleiðslu á fjariægðarstólum fyrir steypustyrktar-
járn, bæði í loft, veggi og súlur.
með tilkomu plaststólanna vinnst eftirfarandi:
B við spörum peningá. B við aukum öryggið. H járn kemur
aldrei út úr steypu og viðgerðarkostnaður af þeim sökum fellur
niður. ■ styrkur járnsins heldur sér því aðeins, að járnið sé á
þeim stað, sem það á að vera.-plaststólarnir tryggja það. ■
notkun plaststólanna er einföld, (sbr. skýringarmyndir) ogtryggir
að járn séu rétt í steypu, þegar steypt er.
heldur járni í fjarlægð 1,4 cm frá gólfi.
fiarlægðarstólar fyrir steypustyrktarjárn í
loftplötur: áætlað er að tvo stóla þurfi á
hvern rrr, en allir sverleikar ganga í stóla
þessa, allt frá 8 til 25 mm.
hcldur járni í fjarlægð 2,2 cm frá vegg.
fjarlægðarklossar fyrir steypustyrktarjárn I
veggi: áætlað er að einn til tvo stóla þurfi
á hvern m'-. einnig gert fyrir alla sverleika.
iðhplast
BOLHOLT 4 REYKJAVÍK SÍMI 338 1 0
ATHUGIÐ!
Umboðsniaður okkur á Akureyri er Ingvi R. Jóhannsson, rafvirkjam.
C/o RAFTÆKNI, Geislagötu 1, símar 1-20-72 og 1-12-23
Iðnplast bf.