Dagur - 21.09.1966, Síða 2
Sáum í fyrsfa sinn gegnum Sfrákafjail Fiórðunssþing
Sielufirði 20. seut. Á eanena- bó nokkuð fiársterkir. Þetta er Árni Ásbiarnarson, Guðmund- « u Cú JL Cú
Siglufirði 20. sept. Á gangna-
dag, í gær, var hlý suðvestan
gola með sólfari. Sem sagt, gott
gangnaveður. í dag er norð-
vestan þræsingur með rigningu
í byggðum og slyddu á fjöllum
og gránar niður í miðjar hlíðar.
Smábátum hefur aldrei gefið
á sjó, það sem af er september-
mánuði. Ekki-. hefur séðzt hér
síld síðan 25. ágúst utan einn
bátur kom með 100 tonn að
austan. Búið er að flytja til
Siglufjarðar um 18 þús. tonn og
salta í 19 þús. tunnur á 10 sölt-
unarstöðvum.
Slátrun sauðfjár hjá Kf. Sigl-
firðinga hefst á morgun. Gert
er ráð fyrir að lóga 1600 fjár og
er það eingöngu fé Siglfirðinga.
Sést á því, að Siglfirðingar eru
Orlofsferð til Dan-
merkur og Spánar
FULLTRÚARÁÐ verkalýðsfé-
laganna á Akureyri efnir um
þessar mundir til orlofsferðar -
til Danmerkur og Spánar. Er
hér um 10 daga ferð að ræða og
er þátttökugjald um 8000 kf.>á
mann og er í því gjaldi inni-
falin öll fargjöld, gisting með
morgunverði í Kaupmannahöfn
og gisting með fullu fæði á
Mallorca.
Ferðin hefst frá Akureyri 29.
þ. m. og verður flogið þaðan
beint til Kaupmannahafnar.
Allt að 80 manns geta komizt
að í orlofsferð þessa en allmörg
um sætum er enn óráðstafað.
Fólk ætti að nota þetta einstæða
tækifæri. Þeir sem hafa áhugá
ættu ekki að láta dragast leng-
ur að hafa samband við skrif-
stofu verkalýðsfélaganna
Strandgötu 7 og skrifstofu Iðju
Pyggðavegi 154. Q
Tugþrautarkeppni
á Laugum í Suður-
Þingeyjarsýslu
þó nokkuð fjársterkir. Þetta er
í fyrsta sinn, sem Kaupfélag
Siglfirðinga slátrar hér. Áður
önnuðust sauðfjárslátrun Kaup
félögin á Hofsós og Haganesvík,
sem hafa starfrækt hér kjötbúð,
mörg ár. Kaupfélag Siglfirð-
inga hefur nú keypt þessa kjöt
búð og annast hin ágæta kjör-
búð félagsins nú sölu allrar
kjötvöru ,sem kjötbúðin hafði
áður.
Sauðfé í Siglufirði er afburða
vænt, enda fer saman mjög góð
fóðrun og sauðland gott.
Nú hefur Hólsbúið, sem slíkt,
verið lagt niður. Siglfirðingur,
^Ólafur Jóhannsson lögreglu-
' þjónn7 báfur tekið það á leigu
til 5 ára þ. e. hús og jörð og
hefur í hyggju að hafa þar eink
um sauðfjárrækt. Siglufjarðar-
bær hefur rekið Hólsbúið í 38
ár. Til þess var það í upphafi
stofnað, að tryggja börnum og
vanhéilum mjólk, sem oft vildi
vanta jafnvel um lengri tíma á
vetrum. Nú er enginn grund-
völlur fyrir rekstri búsins og
bættar samgöngur tryggja fólki
hér næga mjólk að jafnaði. Til-
koma Drangs og bætt aðstaða
rfil:geymslu mjólkur hér eiga
sinn góða þátt í þessu.
Fyrir nokkrum árum voru 80
nautgripir á Hólsbúinu þar af
60 mjólkandi kýr. Bússtjórar
hafa verið þessir: Jóhannes Þor
steinssön, Snorri Arnfinnsson,
Árni Ásbjarnarson, Guðmund-
ur Jónasson og nú síðustu árin
Árni Árnason.
Sl. laugardag opnuðust göng
in i gegnum Strákafjallið að
nokkru. Síðasti áfanginn reynd
ist mjög seinunninn, bergið
sundurlaust og illt til vinnslu.
En sprengingum er að mestu
lokið og engin stór slys hafa að
höndum borið og má það teljast
gott. Gert er ráð fyrir að steypa
þurfi og styrkja allmikið í báð-
um endum gangnanna og víðar.
Svo skemmtilega vildi til, að
sama daginn og Múlavegur var
vígður til umferðar, sáum við
gegnum Strákafjallið í fyrsta
sinn. Merkisdagur fyrir Ólafs-
firðinga og Siglfirðinga, Með
Strákagöngum og Múlavegi er
lokið aldagamalli einangrun og
samgöngutregðu á landi fyrir
þessa tvo norðlenzku kaup-
staði. J. Þ.
Norðlendinga
10. FJÓRÐUNGSÞING Norðlendinga var háð á Siglufirði
dagana 17. og 18. þ. m. ^ -
W‘ r'
Fráfarandi formaður Fjórðungssambaifdg Norðurlands var
Magnús E. Guðjónsson, bæjarstjóri á Ákúreyri, en núver-
andi fjórðungsráð, kjörið til 2ja ára, er skipað eftirfarandi
aðilum:
Formaður: Stefán Friðbjarnarson, bæjarstjóri á Siglufirði,
varaformaður: Jóhann Salberg Guðmundsson, sýslumaður á
Sauðárkróki, gjaldkeri: Hákon Torfason, bæjarstjóri á
Sauðárkróki, varagjaldkeri: Björn Friðfinnsson, bæjarstjóri
á Húsavík, ritari: Ásgrímur Hartmannsson, bæjarstjóri í
Ólafsfirði, vararitari: Magnús E. Guðjónsson, bæjarstjóri á
Akureyri, meðstjórnandi: Jóhann Skaftason, sýslumaður á
Húsavík.
Þingið samþykkti allmargar ályktanir, varðandi hagsmuna
mál byggðanna í Norðlendingafjórðungi, m. a. varðandi
Framkvæmdaáætlun Norðurlands, atvinnujöfnunarsjóð, stað
setningu atvinnufyrirtækja og samgöngumál og verða þær
ályktanir sendar blöðum og útvarpi innan skamms.
(Fréttatilkynning)
Vinnuðflsskorfurinn er nú óvenjulep mikill
Egilsstöðum 20. sept. Vinnuafls
skortur er hér meiri en nokkru
sinni áður. Atvinnurekendur
síma út og suður og biðja um
fólk til starfa en oftast án árang
urs. Síðan síldin seinkaði á sér
og veiðist fram eftir öllu hausti,
bætist enn við haustannir, sem
nógar voru fyrir. Síldarbræðsl-
1032 milljón kr. lán
unar
DAGANA 3. og 4. sept. sl. var
keppt í tugþraut og fimmtar-
þraut kvenna að Laugum. Veð-
ur var ekki sem bezt, kalt og
drungalegt. Árangur var góð-
ur, sett voru HSÞ-met í báðum
greinum.
Úrslit urðu þessi:
Tugþraut. stig.
Sigurður Friðriksson E 5451
Páll Dagbjartsson M 4913
Haukur Ingibergsson GA 4600
Jón Benónýsson E 4024
Ágúst Óskarsson E 3466
Gestir:
Sig. V. Sigmundss. UMSE 5374
Jóhann Friðriksson UMSE 4497
Fimmtarþraut. stig.
Lilja Sigurðardóttir E 3301
Guðrún Benónýsdóttir E 2698
Sigríður Baldursdóttir Ma 2609
Gestur:
Þorgerður Guðm.d. UMSE 2499
Fréttaritari HSÞ.
•MÁNUDEAGINN 19. þ. m. voru
undirritaðir samningar í New
York vegna lántöku Landsvirkj
unar þar, með skuldabréfaút-
gáfu í þágu Búrfellsvirkjunar,
að fjárhæð alls 6 milljónir
Bandaríkjadollara eða 258 millj
ónir kr. Lánið er með 7 prósent
vöxtum á ári og endurgreiðist á
tímabilinu 1974—1984.
Lánsamningar þessi rvoru
gerðir fyrir milligöngu First
Boston Corporation, New York,
og voru þeir undirritaðir fyrir
hönd Landsvirkjunar af dr. Jó-
hannesi Nordal, formanni stjórn
ar Landsvirkjunar. Ríkissjóður
veitir sjálfsskuldarábyrgð fyrir
láninu, og undirritaði Pétur
Thorsteinsson, sendiherra, rikis
ábyrgðina fyrir hönd ríkissjóðs.
Er lán þetta tekið til viðbótar
HSÞ og UMSE
leika í kvöld
í KVÖLD, miðvikud., kl. 18 fer
fram á Laugalandsvelli í Eyja-
firði leikur milli HSÞ og UMSE
í Knattspyrnumóti Norðurlands
II. deild.
UMF Mývetningur hefur þeg
ar tryggt sér sigur í II. deild,
þó 3 leikjum sé enn ólokið og
hefur hlotið 13 stig. □
Alþjóðabankaláni því, að fjár-
hæð 18 milljónir króna, sem tek
ið var hinn 14. þ. m. vegna Búr
fellsvirkjunar. Með lántökum
þessum hafa verið tryggð nægi
leg erlend lán til langs tíma
vegna 105 MW Búrfellsvirkjun
ar, samtals að fjárhæð 24 millj-
ónir dollara eða 1032 milljónir
króna. □
ur eru í fullum gangi, einnig
síldarsöltun og bindur þetta
margt fólk.
Þá standa yfir göngur, réttir
og slátrun og er erfitt að manna
sláturhúsið.
Þá er þess að geta, að hér í
Egilsstaðakauptúni eru 40 íbúð-
arhús í smíðum. Má af þessu sjá
vinnuaflsþörfina. Fólki í sveit-
um hefur ekki fjölgað og er þar
af litlu að taka fram yfir þau
störf, sem búskapurinn heimtar.
Skólafólkið hefur verið uppi-
staðan í vinnuafli við ýmiskon-
'ar framkvæmdir. Það er nú að
hætta vinnu til þess að setjast
á skólabekk.
Sauðfjárslátrun hófst í gær
og verður lógað 40—50 þús. fjár,
ef að vanda lætur. Garðávextir
eru með lélegra móti og korn-
uppskera misjöfn og einnig
víða fremur léleg.
Hin öra stækkun Egilsstaða-
kauptúns er miklu meiri en bú-
Vinnuaflsskorturinn mikill
izt var við og hið skipulagða
HÉRAÐSSÝNIHG í EYJAFSRDI
í EYJ AFJ ARÐ ARSÝSLU
standa nú yfir hrútasýningar í
hverjum hreppi og er þeim að
ljúka. En á þriðjudaginn verð-
ur héraðssýning í tvennu lagi.
Þar verða sýndir beztu hrútarn
ir úr hverjum hreppi, u. þ. bl.
einn hrútur fyrir hverjar þús-
und veturfóðraðar kindur. Verð
ur því um verulegt úrval að
ræða og eflaust eru þar margar
ágætar kynbótaskepnur. Sýn-
ingarstaðirnir eru Ásláksstaðir
í Arnarneshreppi og Hjarðar-
hagi í Öngulsstaðahreppi. Dóm-
ar fara að mestu fram á mánu-
daginn, en gert er ráð fyrir, að
sýningargripirnir verði komnir
á sýningarstaði fyrir kl. 6 á
mánudagskvöld. Dóma annast
Árni G. Pétursson sauðfjár-
ræktunarráðunautur Búnaðar-
félags Islands og héraðsráðu-
nautarnir, Grímur Jónsson,
Ævar Hjartarson og Jón T.
Steingrímsson.
Sauðfjárræktunarmenn munu
fylgjast vel með þessari héraðs
sýningu. □
FALLEG OG FRÓÐ-
LEG BÓK
BÓKAÚTGÁFAN ÞJÓÐSAGA
í Reykjavík hefur gefið út bók
eina mikla og litmyndum
skreytta, sem heitir Árið 1965,
stórviðburðir þess í myndum og
máli, og er hún á íslenzku, en
kemur annars út samtímis á níu
tungumálum. Ráðgert er, að
nýtt hefti komi út árlega. Þetta
er fróðleg og falleg bók. Árni
Bjarnason bókaútgefandi á Ak-
ureyri annast sölu bókarinnar á
Norðurlandi. □
svæði senn fullbyggt. í undir-
búningi er að skipuleggja nú
allt að 5 þús. manna bæ á Egils-
stöðum og er unnið að þeirri
skipulagningu.
I Vallanes er nú kominn hinn
nýi prestur, séra Ágúst Sigurðs
son og kona hans. Aðkoman var
ekki góð því að prestsetrið er
niðurnítt eins og svo margar
prestsetursjarðir í landinu. Á
mörgum þeim jörðum er allt
látið drabb'ast hiður þar til allt
er komið í slíkt óefni, að byggja
verður upp. Snýst þá allt við
og á sumum stöðum eru byggð-
ar hallir yfir sálusorgarana.
Símamál eru furðuleg í Valla
nesprestakalli. Hefur þurft mik
ið hugvit til að gera presti
óhægra _ að hafa símasamband
við sóknarbörn. sín. Verður
prestur að sætta sig við að „fara
í gegnum“ fjórar stöðvar til að
ná til sumra sóknarbarnanna í
Vallaneshreppi einum og eru
þær þessar: Egilsstaðir, Geir-
ólfsstaðir, Strönd og Hallorms-
staður.
Góð tíð hefur verið undan-
farið en þó frost sumar nætur.
V. S.
FARA Á BÍLUM
í GÖNGUR
Nesi, Fnjóskadal 19. sept. Laka-
staðarétt er 20. sept. Göngum
var frestað á Flateyjardalsheiði.
Réttað var á Illugastaðarétt 14.
sept. og nú eru menn í öðrum
göngum í Suðurdölum, þ. e.
Timburvalladal, Bleiksmýrar-
dal og Hjaltadal.
í sumar var ruddur vegur
fram Hjaltadal og Bleiksmýrar
dal og fara gangnamenn í jeppa
bifreiðum mikinn hluta leiðar-
innar fram dalinn. Flýtir það og
léttir göngur, auk þess eru veg-
irnir til öryggis, ef eitthvað
óvænt ber að höndum.
Flestir eru hættir heyskap,
en á stöku stað erurþ’ó hey enn-
þá úti. V. K.