Dagur - 21.09.1966, Blaðsíða 7
7
- Verðlagsgrundvöllurinn
(Framhald af blaðsíðu 1)
Þessar hliðarráðstafanir eru
íólgnar í fjórum atriðum:
1. Gert er ráð fyrir að Veð-
deild. Búnaðarbankans fái 20
milljónir króna til ráðstöfunar á
næsta ári til jarðakaupa. Og
jarðakaupalán verði hækkuð úr
100 þús. kr. hámarki sem gilt
hefur til þessa í 200 þús. kr.
hámark.
Að okkar -viti er þetta veru
.leg úíbót," isagði Gunnar, því
þarna hefúr kreppt mjög að á
-undanförnum árum, og oft ekki
bægt að selja jarðir, vegna þess
:að menn hafa ekki getað fengið
nægilegt lánsfé til jarðakaupa,
og hefur það tafið fyrir eðlileg-
um eignaskiptum milli yngri og
eldri bænda.
2. Gert er ráð fyrir því að
Stofnlánadeild landbúnaðarins
láni nú í haust minnst 30 millj-
ónir kr. til vinnslustöðva land-
búnaðarins.
f þessu er líka mikil úrbót,
þar sem margar þessar vinnslu
stöðvar, sérstaklega mjólkur-
búin og sláturhúsin, hafa alls
ekkert lánsfé fengið til sinna
framkvæmda, svo sem nauðsyn
legra breytinga í sambandi við
húsakost og vélakost. Hafa þess
ar stofnanir orðið að binda af-
urðaverð bænda í þeim fram-
kvæmdum, sem nauðsynlegar
reyndust. Með því að tryggja
þetta lánsfé ætti að losna um
samsvarandi upphæð og því auð
veldara að greiða bændum út
afurðaverðið.
3. Ákveðið hefur verið að rík
ið stofni jarðakaupasjóð, til þess
að kaupa upp býli, sem ekki
verða talin ábuðarhæf sam-
kvæmt jarðræktarlögum og
ekki nytu styrks, og þeir sem
seldir eru undir þá kvöð að fá
ekki framlög til bóta á sínum
jörðum, geti losnað við þær með
eðlilegum hætti. Ríkinu er ætl-
að að kaupa jarðirnar. Stofnfé
sjóðsins á að verða sex milljón-
ir króna, og gert er ráð fyrir
áframhaldandi framlögum, eftir
því sem þurfa þykir.
4. Stofnaður verði hagræðing
arsjóður landbúnaðarins og hon
um sett sérstök löggjöf á Al-
þingi í vetur. í því skyni verði
varið 30 milljónum króna úr rík
issjóði. 10 milljónir verði stofn-
fé sjóðsins en 20 milljónir króna
verði greiddar í haust til
vinnslustöðva landbúnaðarins,
og þá fyrst og fremst mjólkur-
búanna, sem framlag til þeirra
RÚSÍNUR
með steinum.
NÁTTÚRULÆKNINGAVARA
Við bjóðnm 20 GERÐIR af Skútugami
í huntlmðum glæsilegra lita.
BHYNJÓLFUR SVEINSSON H.F.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekn-
ingu við andlát og jarðarför
JÚNÍÖNU HELGADÓTTUR,
Norðurgötu 2.
Sérstakar þakkir flytjum við Bjarna Rafnar, lækni, J
fyrir ómetanlega hjálp í langvarandi veikindum henn-
ar. Einnig þökkum við læknum og hjúkrunarliði á B-
deild Fjórðungssjúkrahússins fyrir góða hjúkrun.
Guð launi ykkur öllum.
Guðbjörg Helgadóttir, Hanna Guðmundsdóttir,
Helga Guðmundsdóttir, Björn Jónsson,
barnabörn og aðrir vandamenn.
til viðbótar því lánsfé sem þau
fá, og auðvelda þeim þannig að
greiða út afurðaverðið til bænda
við uppgjör í ár. Þessu fé verð-
ur skipt á milli mjólkurbúanna
eftir ákvörðun Framleiðsluráðs.
(Uppl. frá Stéttarsamb. bænda)
Útkoma fyrstu skýrslu
Efnahagsstofnunarinnar
til Hagráðs
SAMKVÆMT lögum um Fram
kvæmdasjóð, Efnahagsstofnun
og Hagráð, sem sett voru á síð-
asta Alþingi (nr. 66, 13. maí
1966), skal Efnahagsstofnunin
leggja fyrir Hagráð skýrslu um
ástand og horfur í efnahags-
málum tvisvar á ári.
Fyrsta skýrslan af þessu tagi
var lögð fram á fyrsta fundi
Hagráðs 3. ágúst sl. Efni skýrsl-
unnar var síð'an rætt á fjórum
fundum ráðsins í ágústmánuði.
Skýrslan hefur nú verið gef-
in út og verður til sölu í bóka-
verzlunum.
yður eintak af skýrslunni.
(Orðsending til blaða og út-
varps).
HOOVER þvottavél
til sölu á kr. 1.500.00
Uppl. í síma 2-10-66.
H E Y
25—30 hestar af útheyi
til sölu.
Guðmundur Sigurgeirss.,
Klauf.
UTSALA
Mikið úrval af
PEYSUM,
PRJÓNAKJÓLUM,
DÖMUBLÚSSUM
o. íl. o. fl.
YERZLUNIN DRÍFA
(BAKHÚSIÐ)
SKÓLAPEYSUR
NÝKOMNAR
í mjög fallegu úrvali.
VERZLUNIN DRÍFA
Sími 11521
MESSAÐ í Akureyrarkirkju n.
k. sunnudag kl. 10.30 árdegis.
Sálmar: 579 — 353 — 366 —
207 — 663. P. S.
MÖÐRUVALLAKLAUSTURS-
PRESTAKALL. Messað verð
ur að Möðruvöllum í Hörgár-
dal n.k. sunnudag, 25. sept.,
kl. 2 e. h.
Birgir Snæbjörnsson.
ÁHEIT á Akureyrarkirkju kr.
500 frá Margréti Gísladóttur
EJIiheimilinu Skjaldarýík.
Beztu þakkir. *
Birgir Snæbjörnsson.
BARNAVERNDARFÉLAG AK
UREYRAR hefur hlutaveltu
í Alþýðuhúsinu n.k. sunnudag
kl. 4 e. h. Margt góðra muna.
Nefndin.
MINNINGARSPJÖLD Sjálfs-
bjargar fást á þessum stöðum:
Járn- og glexvörúdéild KEA,
Véla- og raftækjasölunni og
Bókabúð Jónasar Jóhanns-
sonar.
SÖLUBÖRN óskast-tib að-selja
merki og blöð fyrir -Sjálfs-
björg á sunnudaginn kemur.
Æskilegt er að börnin séu
ekki yngri en 10 ára, nema þá
í félagi með eldri . börnum.
Börnin mæti í Bjargi á sunnu
daginn kl. 10 árdegis. Sölu-
Jaun. Sjáífsbjörg.
AKUREYRINGAR!
Fjáröflunardagur- "
Sjálfsbjargar er á
sunnudaginn kemur. —
Styrkið gott málefni
með því að kaupa me-rki þg
blað samtakanna., Með fyrir-
fram þakklæti. Sjálfsbjörg.
LYSTIGARÐURINN verður
opinn frá kl. 9 f. h. til 7 á
kvöldin frá 1. september að
telja. : • j
. '• ý
NONNAHÚS verður í septem-
ber aðeins opið á laugardög-
um og sunnudogum kl. 2—4
eftir hádegi.
MUNIÐ minningarspjöld EIli-
heimilis Akureyrar. Fást í
Skemmunni.
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
samgöngiimálaráðherra. Menn
höfðu vonað, að sjálfur vegur-
inn yrði vígður prestlegri vígslu
að gömlum og góðum kristnum
sið. Já, hvers vegna var liann
ekki vígður og sameiginlega
beðið fyrir vegfarendum fram-
tíðarinnar á þessum tröllavegi?
Eða þurfum við nú ekki á jarð-
ýtuöld, lengur að biðja vegfar-
endum guðs blessunar?
TYRKLANDSSOFNUN. Unn-
ur og Kristín Jakobsdætur
Hólum í Reykjadal kr. 2000.
FUNDUR verður haldinn í
Menningar- og friðarsamtök-
um íslenzkra kvenna, Akur-
eyrardeild, miðvikudaginn 21.
sept. að Hótel KEA, Rotary-
sal, kl. 8.30 e. h. Nánar til-
kynnt með bréfi. Stjómin.
FRÁ Bridgefélagi Akureyrar!
Félagar, sjáið auglýsingu. í
blaðinu í dag um aðalfund
n. k. þriðjudag. Stjórn B. A.
ORLOFSKONUR AKUREYRI.
Samkvæmt orðsendingu í 62.
tbl. Dags (7. sept. sl.) verður
lagt af stað í heimboðið að
Löngumýri laugardaginn 24.
sept. n.k. kl. 13.45 e. h. Farið
verður frá Ferðaskrifstofunni
Sögu.
Söfnunin til Brekkuhjóna
VILHELM Vigfússon kr. 2000,
Björn Gestsson 1000, Mæðgurn
ar frá Auðnum 1000, Jóhannes
Kristjánsson 1000, Kristján
Jakobsson 1000, Páll Helgason
1000, Halldóra Gunnlaugsdóttir
500, Jóhann Daníelsson 500, G.
J. 500, Halldór Arason 500, Val-
garður Stefánsson 500, Reynir
Vilhjálmsson 500, Á. R. 500, Sig
urbjörg Sigurðardóttir 400,
Brjánn Guðjónsson 300, S. J.
300, So. T. 200, Árdís Sigurðar-
dóttir 200, Ósk J. Árnadóttir
100, Einar Björnsson 100, Ey-
firðingur 100. Samt. kr. 12.200.
Söfnunarnefndin.
Fréttatilkynning
frá stjórn Félags stöðvarstjóra
pósts og síma á 2. í.l stöðvum^
ÞRÁTT fyrir ítrekanir hefur
gengið erfiðlega að fá leiðrétt-
ingu á launum stöðvarstjóranna
til samræmis við aðra, svo erfið
lega að það tók nærri tvö ár að
fá það viðurkennt að þeim bæri
orlofsfé á launin.
Stjórnin hefur því með bréfi
dags. 9. ágúst sl. til Póst- og
símamálastjórnarinnar krafizt
þess enn á ný, að hún daufheyr
ist ekki lengur við kröfum stöðv
arstjóranna og sniðgangi ekki
félagið sem samningsaðila um
kaup og kjör. Jafnframt var á
það bent, að uppbót sú, frá 1.
júlí 1963, sem stöðvarstjórarnir
fengu á sínum tíma, var svo
handahófskennd, að við það
væri ekki unandi og leiðrétting
við athugasemdir, sem strax
voru gerðar af formanni félags-
ins hafi ekki borizt enn.
Ennfremur hefur stjórnin
skrifað Póst- og símamálaráð-
herra og beðið hann að hlutast
til um skjóta lausn þessa máls,
þar sem Póst- og símamála-
stjórnin var eþki búin að svara
fyrir ágústlok.
Loks má geta þess, að einn
stöðvarstjóranna hefur fengið
lögfræðing sér til aðstoðar til að
fá úr því skorið hvaða réttindi
honum raunverulega beri og
verður sá úrskurður um leið
grundvöllur handa hinum til að
byggja á.
Stjómin.
ARIÐ 1965, STORVIÐBURÐIR ÞESS
í MYNDUM OG MÁLI
Ein glæsilegasta bók, sem komið hefir út á íslenzku er
komin á bókamarkaðinn, og mun áreiðanlega vekja
meiri athygli en ílest sem kemur út á þessu ári.
í bókinni eru myndir af öllu því markverðasta, sem
gerðist í heiminum á sl. ári, þar af fjöldi litmynda.
Allir sem fylgjast vilja með licimsviðburðunum þurfa
að eignast þessa merku og fallegu bók.
BÓKAVERZLUNIN EDÐA
SKIPAGÖTU 2 - AKUREYRI
SÍMI 1-13-34
É