Dagur - 21.09.1966, Side 8
8
l
i
' í
ii
SMÁTT OG STÓRT
PÓSTUR OG PÓSTHÓLF
Blaðinu er <jáð, að það gangi
frémur erfiðlega að fá pósíburð
armenn til starfa á Akureyri,
og svo mun víðar vera. Margir
kjósa, að liafa sín eigin póst-
hólf til afnota, en alls munu
um 600 slík vera í pósthúsinu.
Hin minni, almennu pósthólf
kosta 75 krónur yfir árið, og
munu mörg þeirra óleigð. Þeir
bœjarbúar, sem kynnu að hafa
áhuga á óleigðum pósthólfum,
geta hugsað sitt ráð í því efni.
LANGT SÆKJA ÞEIR
VATNIÐ
Vestmanneyingar hafa lengi
þjáðst af vatnsskorti, sem er því
tilfinnanlegri sem eyjabúum
fjölgar meira og vatnsnotkun
eykst — einnig í sambandi við
fiskvinnslu —. Nú er hafin
vinna við mikla vatnsleiðslu frá
Stóru-Mörk unclir Eyjafjöllum,
en þaðan á hún að Iiggja til
sjávar. Vinnur þar tuttugu
manna flokkur að framkvæmd-
inni. En leiðsla þessi er yfir 20
km. löng frá Stóru-Mörk að
sjó, og síðan á hún að liggja á
hafsbotni út til Eyja.
SEMENTIÐ
Um helgina var skipað upp
sementi hér á Akureyri og lá
sementsskipið við Torfunefs-
bryggju. Bæjarbúi hefur beðið
blaðið að koma þeirri umkvört
un á framfæri, að í hvassViðr-
inu hafi sementsflutningar frá
skipshlið valdið mörgum veg-
farendum verulegra óþæginda.
Togarabryggjan var laus og
allra hluta vegna sýndist heppi
legra að hafa skipið þar. Er
þessu hér með komið á fram-
færí.
PRESTLEG VfGSLA
ER EFTIR
Marga furðar á því, að þegar
hinn margþráði Múlavegur var
opnaður, fór ekki fram nein
vígsluaíhöfn utan samsæti í
Ólafsfirði, sem bæjarstjórnin
þar efndi til, að viðstöddum
(Framhald á blaðsíðu 7)
í GÆRMORGUN var bifreið
ekið á ljósastaur á gatnamótum
Norðurgötu og Eyrarvegar. Var
með því forðað öðrum árekstri.
Bíllinn skemmdist töluvert.
Páll Halldórsson ávarpar viðstadda við fyrirliugaðan golfvöll.
(Ljósm.: G. P. K.)
STJÓRNARMENN
STJÓRN Kjördæmissambands
Framsóknarmanna í Norður-
landskjördæmi eystra er þannig
skipuð: Eggert Ólafsson Laxár-
dal formaður, Magnús J. Krist-
insson Akureyri ritari, Sigurð-
ur Jóhannesson Akureyri gjald
keri, Sveinn Jóhannsson Dalvík,
Hlöðver Hlöðvesson Björgum,
Stefán Valgeirsson Auðbrekku
og Guðmundur Sigurðsson
Fagranesi. □
Framkvæmdir að hefjasl við Goifvöllinn
Ok
a
UM SÍÐUSTU HELGI hófust
framkvæmdir við gerð nýs golf
vallar á Akureyri, en eins og
fyrr hefur verið frá sagt, fékk
Golfklúbburinn ágætt land við
býlið Jaðar ofanvert við bæinn
og hyggst þar gera 18 holu völl,
væntanlega þann fullkomnasta
á landinu.
GEYSILEG UMFERÐ
UM MÚLAVEG
ITNS og fyrr sagði hér í blað-
inu, var Múlavegur opnaður til
almennrar umferðar um síðustu
helgi. Umferð um þennan nýja
veg var geysimikil og munu
aldrei hafa komið jafn margir
gestir til Ólafsfjarðar og á
sunnudaginn. Veður var hlýtt
en byljótt vestanátt, svo mörg-
trni þótti nóg um.
Múlavegur er ein erfiðasta
vegaframkvæmd, sem gerð hef
ur verið hér á landi, en jafn-
fiamt ein sú nauðsynlegasta.
Um leið og þessum áfanga er
fegnað, er sérstök ástæða til að
óska Ólafsfirðingum til ham-
ingju með hinar bættu sam-
göngur. □
STAFNSRÉTT í DAG
OG Á MORGUN
Blönduósi 19. sept. Á miðviku-
daginn, 21. sept. verða hross rek
in til Stafnsréttar en féð á
fjmmtudaginn. En þar er jafnan
margt fé og hross og mann-
margt mjög einkum er líða tek-
ur að kveldi fyrri réttardags.
Hér er réttað í dag bæði í Vatns
dalsrétt og Auðkúlurétt, en
hrossaréttir eru hér 1. október.
Gangnamenn fengu vont veð
ur að þessu sinni, bæði rok og
•rigningu. Undanreiðarmenn eru
6 daga á ferð og fara þeir alla
leið í Fljótsdrög, en þar rennur
vatn vestur til Borgarfjarðar.
ÍÞað sagði mér Bjarni Jónsson
bóndi í Haga, að þeir undan-
xeiðarmenn hefðu þurft að fara
eftir kompás á Stórasandi svo
mikið var dimmviðrið þar.
Veður hefur verið skaplegt í
byggð og féð lítur sæmilega út,
b.vemig sem það reynist á blóð-
yelli. Ó. S.
LÚÐRASVEIT AKUREYRAR
hefir ráðið til sín tékkneskan
hljómlistarmann, Jan Kisa, og
mun hann annast stjórn og þjálf
un Lúðrasveitarinnar næsta
starfstímabil, einnig mun hann
kenna og stjórna Lúðrasveit
Barnaskólanna. Jan Kisa, sem
er nýkominn til bæjarins ásamt
konu sinni og dóttur, er ungur
maður fæddur í Ostrava 1935.
Hann stundaði nám í músik-
skólanum í Cesky Tesin í
fimm ár og síðan í Tónlistar-
skólanum í Ostrava 1957—1963,
hann var fagottleikari í Sinfóníu
hljómsveit íslands eitt ár.
Lúðrasveit Akureyrar hygg-
ljósastaur
Einnig valt jeppabifreið í vest-
anverðri Vaðlaheiði, og á sunnu
daginn valt bíll í Mývatnssveit.
Allt voru þetta Akureyrarbílar.
Ekki urðu slys á mönnum.
í fyrrakvöld féll kona í opinn
og ómerktan skurð við Skarðs-
hlíð í Glerárhverfi. Þar var ljós
laust. Konan var flutt heim til
sín og kom þangað læknir, er
taldi hana óbrotna en eitthvað
marða.
Ölvun var allmikil um helg-
ina og nokkrir kufantar teknir.
Páil Halldórsson skrifstofu-
maðui’, formaður Golfklúbbs
Akureyrar flutti við þetta tæki
færi. ávarp, þar sem hann rakti
nokkur meginatriði þeirrar
framkvæmdar, sem þama á
fram að fara og minntist um
leið 30 ára afmælis Golíklúbbs
Akureyrar.
Gert er ráð fyrir, að völlur-
inn verði gerður í tveim áföng-
ym. og hægt að taka annan í
nptkun þótt hinn verði síðbún-
ari. ,En kostnaðaráætlanir sýna,
að þetta mannvirki muni kosta
4—5 ipjJIjj. kr.. En hluti af svæði
því, "Sem' Akureyrarkaupstaður
var svo rausnarlegur að láta af
hendi við klúbbinn, er hugsað
sem lystigarður. Formaðurinn
bað síðan Helga Skúlason, einn
elzta og virkasta félagann, að
taka fyrstu skóflustunguna, en
síðan hófu vélar þeirra bræðra,
Baldurs og Gísla Sigurðssona
starf, samkvæmt samningum
þar um.
í stjórn Golfklúbbs Akureyr-
ar eru þessir: Páll Halldórsson
formaður, Sævar Gunnarsson
ritari, Ólafur Stefánsson gjald-
keri og meðstjórnendur Jón
Guðmundsson og Hafliði Guð-
mundsson. □
Jan Kisá.
ur gott til samstarfsins við hinn
nýja stjórnanda sinn enda .eru
stórátök framundan því á næsta
ári verður sveitin 25 ára og
ætlunin er að minnast þeirra
tímamóta með tónleikum síðari
hluta næsta vetrar. □
Gamla liúsið í Réttar-
holti brann til ösku
Skagastiönd 20. sept. Á ellefta
tímanum í fyrrakvöld brann
gamla íbúðarhúsið í Réttarholti
til kaldra kola. En Réttarholt er
innan marka Höfðakaupstaðar.
Bóndinn þar er Már Sveinsson.
Úm eldsupptök er ókunnugt.
Þarna var fyrrum skilarétt, sem
var fyrir 20 árum eða svo, flutt
að Spákonufelli. Búið var að
byggja nýtt íbúðarhús í Réttar-
holti en gamla húsið notað til
geymslu og að því leyti verð-
mæt bygging.
Ástandið í mjólkurmálum á
Skagaströnd, þ. e. Höfðakaup-
stað, er verra en skyldi. Fram
að þessu hafa bændur selt
mjólk í kauptúnið og flutt hana
þangað sjálfir. Nú eru þeir að
hætta þessu en flytja mjólk sína
til samlagsins á Blönduósi. Frá
mjólkurbúinu á Blönduósi fáum
við svo gerilsneydda mjólk
þrisvar í viku. Sú mjólk er flutt
í mjólkurbrúsum og afgreidd á
staðnum í lausu máli. Nægilega
góð aðstaða til slíkrar af-
greiðslu eru ekki fyrir hendi
ennþá. □
Stórutjarnir í Ljósavatnsskarði er framtíðarskólastaður fleiri hreppa og hefjast byggingafram-
kvæmdir þar væntanlega innan skamms. Heitt vatn er á staðnum. (Ljósm.: E. D.)
Nýr sfjórnandi Lúðrasveifarinnar