Dagur - 21.12.1966, Blaðsíða 8
8
BÓKFELLSÚTGÁFAN REYKJAVÍK
SMÁTT OG STÓRT
DEGI hafa borizt nokkrar bæk
ur frá Bókfellsútgáfunni í
Reykjavík.
SKAMMDEGI er ný skáldsaga
eftir Kristmann Guðmundsson
og gerist hún í haust. Um hana
segir höf. m. a.: „Ég hef hugsað
mér að saga þessi gerðist nú í
haust. En tími er afstætt hug-
ták, og það sem hún fjallar um
tilheyrir jafnt fortíð sem fram-
tíð. Lifandi fyrirmyndir eru
ekki notaðar. En ef einhver
þykist þekkja sjálfan sig eða
aðra í persónunum, er honum
það velkomið“. Þessi saga Krist
manns fjallar um skáld, vín,
ástir og fleira.
GEIR BISKUP GÓÐI í VINAR
BRÉFUM 1790—1823. Finnur
Sigmundsson bjó bók þessa til
prentunar og er hún VII. bindi
íslenzkra sendibréfa í þessum
bókaflokki. Geir Vídalín var
Eyfirðingur fæddur í Laufási
1761, varð merkur klerkur og
síðar biskup yfir öllu landinu.
Bréf hans eru í senn fóðleg og
skemmtileg. í formála segir
Finnur Sigmundsson, að þetta
muni verða síðasta bindið í rit-
röðinni íslenzk sendibréf, sem
hófust fyrir nær ái'atug 'með
Skrifaranum á Stapa. Prent-
smiðjan Oddi sá um pi'entun.
MERKIR ÍSLENDINGAR, nýr
flokkur kemui' nú í fimmta sinn
fyrir sjónir lesenda og flytur að
venju 12 ævisögur, sem skipað
er í tímaröð, segir séra Jón
Guðnason í foi-mála, en hann
hefur búið bók þessa til prent-
unai'. Þetta bindi Merkra Is-
lendinga fjallar um Ai-a Þor-
gilsson fróða, -Gísla Magnússon
sýslumann (Vísi-Gísla), Guð-
VÍSNAKVER KRAKK-
ANNA. Margrét Jónsdóttir
valdi efnið.
í ÞESSARI bók eru algengar
stökur og barnagælur, sem lif-
að hafa á vörum kynslóðanna.
Vinna þarf að því að svo verði
einnig framvegis. Þax-na eru
einnig nokkrar gamlar gátur.
Auk þessa eru nokkur barna-
kvæði og eru sum þeiiTa vel
fallin til að syngja þau í skól-
um og á heimilum. Má af þeim
nefna „Bjallan hringir — búin
stundin“ og „Blessuð litla brúð
an mín“ bæði eftir Mai’gréti
Jónsdóttur. Þá er þax-na fallega
barnakvæðið um hana Völu
litlu eftir Magnús Pétursson,
Lífið tunnuefni
KOMIÐ er nú til Akureyrar
efni í 28 þús. tunnur og er
ákveðið að Tunnuverksmiðjan
smíði úr því. Það er 8—10
vikna vinna fyrir rúmlega 40
manns. □
mund Bergþórsson skáld, Gísla
Konráðsson sagnritara, Magnús
Gx'ímsson prest, Jón Jónsson
landritara, Sveinbjörn Svein-
bjöi’nsson tónskáld, Björn Sig-
fússon Koi-nsá, Magnús Helga-
son skólastjói-a, Guðmund Finn
bogason landsbókavörð, Hall-
dór Hermannsson prófessor og
Pálma Hannesson rektor. Um
þessa 12 mei'ku íslendinga rita
12 kunnir höfundar.
POLLÝANNA, saga af telpunni
sem kom öllum í gott skap er
eftir Elenor H. Porter en þýdd
af' Fi'eysteini Gunnarssyni. —
Þetta er skemmtileg unglinga-
bók, smekklega útgefin og mjög
góð jólagjöf.
FRASAGNIR UM ÍSLAND eft
ir Niels Hori-ebow í þýðingu
Steindói-s Steindórssonar er
BLAÐIÐ snéri sér til Sigurðar
Helgasonar /eftiilitsmanns á
Akureyri og bað hann að minna
á þau atriði í meðfei'ð rafmagns,
er helzt þyi'fti að hafa í huga
nú um jól og nýár. Hann sagði:
Ég vil þá fyrst nefna snerti-
hættu af raflögnum og búnaði
fyrir ljósaskreytingar utanhúss.
Undanfarin jól hefur nokkuð
box-ið á „ljósadræsum" með 220
volta spennu hangandi á hús-
veggjum og tröppuhandriðum.
Það er mjög misjafnlega frá
þeim gengið. Stundum eru þær
gerðar af lélegu efni og með
mjög varhugaverðum samsetn-
ingum. Sama má segja um lítt
vai'ðar víralagnir í húsagörð-
um, fyrh' skreytingar á trjám.
Slíkar.lagnir geta verið hættu-
legar nema því aðeins að þær
séu spennufelldar, ofan í hættu
laixsá spennu. Algengt er að sjá
kennara, og munu ýmsir hér
kannast við það, enda orðið til
héfá Akui'eyi'i.
Halldór Pétursson hefur
myndskreytt bókina af sinni
alkunnu snilld.
TODDA KVEÐUR ÍSLAND
eftir Margréti Jónsdóttur.
Útgefandi Leiftur li.f.
ÞETTA er þriðja Toddubókin,
sem kemur út í annarri útgáfu.
Todda dvelst hjá ömmu sinni í
Sunnuhlíð öll stríðsárin og
gx'éinir bókin einkum frá því
sem á daga hennar drífur síð-
asta sumarið. En um haustið
fer hún aftur til Kaupmanna-
hafnar.
Ekki þarf að mæla með
barnabókum Margrétar Jóns-
dóttur, skáldkonu, svo er hún
þekkt fyrir það, sem hún hefur
ritað fyrir börn. Yfir bókum
hennar er fegurð og heiðríkja,
liollt umhverfi liverri barnssál.
Enginn, sem á hinar Toddu-
bækurnar, mun vilja láta þessa
vanta í bókasafn sitt.
E. S.
komin út. Hér er um að ræða
rit það, sem höf. samdi eftir
dvöl á íslandi á 18. öld, bezta og
yfii'gripsmesta rit, sem skrifað
var um ísland á 18. öld, áður
en Eggert Ólafsson kom til sög
unnar, segir Þorvaldur Thor-
oddsen á einum stað. Bókin er
um margt hin fróðlegasta og
þar eru hraktar margar mis-
sagnir, áður og af öðrum skráð
ar af landi okkar og þjóð.
PERCIVAL KEENE eftir capt.
Marryat, er hér í nýri'i þýðingu.
Höfundur er enskur, en einnig
kunnur hér á landi af bókum
sínum, er þýddar hafa vei’ið.
Jakob Ærlegur og Pétur Simple
eru sögur sama höfundar. En
Percival Keene hefur verið vin
sælasta bókin hér á landi og er
þetta fjórða útgáfa, sem nú er
komin í bókabúðii'. Bókin er
viðburðai’ík og spennandi frá
upphafi til enda. □
innanhúss bráðabirgðalagnir
fyrir jólati'é og annað skraut,
framlengdar snúrur með klóm
og milli-tengjum, sem geta ver-
ið vai'asöm, sérstaklega börn-
um, sem kannski rjála við sam-
tengingai'nar og geta e. t. v.
losað þær í sundur og potað'
litlu fingrunum inn á straum-
hafa tindana.
Hvað eldhættu snertir vil ég
vara við bráðábii’gða víralögn-
um, sem víða hafa verið hengd-
ar á þakskeggin og utan á veggi
timburhúsa. Og sömu lagnirnar
hanga þar oft ár eftir ár. Þótt
þessar lagnir séu með straum
aðeins yfir jólin, þá eyðileggj-
ast þær þar engu að síður og
eru vitanlega hættulegri en
nýjar eða vel geymdar lagnir.
Auk þess eru þær til mikillar
óprýði á húsunum og ber að
taka þær niður strax eftir hvér
jól.
Einnig vil ég benda á þá eld-
hættu sem stafar af innanhúss
ljósaski'eytingum, einkanlega af
perunum, sem oft eru vafðar
eða huldar í pappír. Pei-umar
geta hitnað það mikað að þær
kveikja í pappír og jafnvel þilj —
um, sem þær liggja við.
Ég vil biðja rafvirkjana að
gæta allrar varúðar við upp-
setningu bráðabx'igðalagna fyr-
ir ljósaski-eytingar utanhúss og
innan og ennfremur að leið-
beina notendum í meðfei'ð og
gæzlu þéssara lagna og síðast
en ekki sízt bið ég notendur
sjálfa að gæta allrar varúðar
vegna þeirrar snertingar- og
brunahættu, sem ég hefi bent á.
Og þar sem óvenjulega mikið
rafmagn er notað á heimilun-
um þessa dagana vil ég minna
á að gæta þess að réttir var-
tappar séu í hvei-ju vari hús-
veitunnar, slíkt er öryggi fyrir
hús og fólk. Of stór vartappi er
minna eða jafnvel ekkert
öryggi. □
Hugrún skáldkona
ÞEGAR nýlega var getið ný-
útkominnar bókar Hugrúnar,
var það fram tekið, að hún hefði
skrifað 6 bækur. Þær eru 6
unglingabækurnar hennai', en
nú vinnur hún við 20. bók sína.
MEÐFERÐ JÓLATRJÁA
Til þess að „jólatrén“ endist
sem lengst í húsum inni skal
bent á eftirfarandi: I fyrsta lagi
á tréð að geymast úti eða í
kulda þar til á jólum. Gott er
að láta þau standa í vatni, eftir
að þau eru sett upp í stofunni
og skrúfa fyrir miðstöðvarofna
um nætur. Þetta gildir fyrst og
fremst um rauðgreni, sem eink-
um er flutt inn, en gildir yfir-
leitt um sígræn tré og greinar,
sem keypt er um jól til innan-
hússskrauts. Jólatrén, sem flutt
eru inn um þessar mundir, eru
frá Danmörku.
ILLA BÚNAR KONUR
Blaðinu hefur borizt sú frétt,
sem er þó ekki staðfest, að ný-
lega hafi verið í langferð rúm-
lega 30 námsmeyjar í stórum
farþegaflutningabíl, svo illa
búnar til vetrarferðalaga, að
undrun sætti. í þessum hópi
voru aðeins þrjár í vetrarferða
fötum, þ. e. í peysum, síðbux-
um og gönguskóm, segir sagan.
Minnast menn þá þess, er þeir
sáu ungar konur tipla á há-
hæluðuin skóm og í gegnsæ-
um sokkurn austur við Öskju
hérna um árið, þegar flest fólk
flykktist þangað að vetri til.
Geta menn gert sér í hugar-
lund hvernig færi ef eitthvað
bæri útaf með veður og færi í
slíkum ferðalögum um hávetur.
KERTALJÓSIN
Hér í blaðinu eru ábendingar
um meðferð rafmagns, einkum
í sambandi við Ijósaskreytingar.
En ekki er síður þörf á að
benda á hættu af kertaljósum.
Þau eru einkum notuð á jólum
og þau eru miklu hættulegri
en áður, a. m. k. ef þau eru í
barnahöndum, af því að bömin
eru óvön þeim og kunna þess
vegna lítt með þau að fara.
BÆKURNAR
Hinar nýju bækur, sem streymt
hafa á jólamarkaðinn í þessum
mánuði setja sinn svip á jóla-
xmdirbúninginn bæði í blöðum,
útvarpi og hjá þeim fjölda
manna sem kaupa jólagjafir.
Degi hafa verið sendar margar
Á SÝNINGU ÞEIRRI, sem ís-
lenzk-ameríska félagið á Akur-
eyri efndi til og var vel sótt,
varð Akureyringum á í mess-
unni. Sýningai'gripinir voru
handunnir af Indíánum og hin-
ir mei-kilegustu. Og sýning
þessi hefur víða fai'ið, nú síðast
í Þýzkalandi, en hér á landi
hefur sýningin verið höfð í
Reykjavík og á ísafirði, áður
en hún kom hér.
Á þessari merkilegu sýningu
á Akureyri var m. a. einn sýn-
ingargripurinn silfurarmband,
allbreitt og handgrafið, og er
talið, að því hafi verið stolið og
er það mikil skömm.
Stjórn íslenzk-ameríska fé-
langsins kallaði blaðamenn á
sinn fund á mánudagsmox-gun-
bækur til umsagnar og hefur
þeirra allra verið getið. Hins
vegar hafa ekki nema tiltölu-
lega fáar bækur verið ritdæmd
ar. Séra Benjamín Kristjánsson
hefur þó skrifað allmarga rit-
dóma, sem hér hafa verið birt-
ir, en stærra blað þarf til, ef
gera ætti öllum bókum við-
hlýtandi skil. Hins vegar eru
ritdómar séra Benjamins hinir
athyglisverðustu og ætti bóka-
fólk að lesa þá.
SÓKN OG SIGRAR
I tilefni af 50 ára afmæli Fram-
sóknarflokksins, er saga flokks
ins frá 1916—1937 komin út í
bókaformi og ixeitir Sókn og
sigrar. Þórarinn Þórarinsson
ristjóri hefur tekið bókina sam-
an. Hér er um að ræða annað
bindi af tveimur, er koma eiga.
Eru þar raktir stjómmálavið-
burðir á fyrri hluta þess tíma-
bils, er Framsóknarflokkurinn
tók þátt í. Sókn og sigrar er
stórfróðlegt heimildarrit, sem
ekki aðeins er saga Framsóknar
flokksins, heldur einnig saga
þjóðarinnar á mesta framfarar-
skeiði hennar.
EKKI VIÐ SAMA BORÐ
Geir Hallgrímsson borgarstjóri
upplýsti það á borgarstjómar-
fundi fyrir nokkru síðan, að við
skiptamálaráðuneytið liefði fall
izt á, að ríkissjóður greiddi kr.
1.75 á hvert kg. þorsks og ýsu
er færi til neyzlu í höfuðborg-
inni. Þetta var gert á þeim for-
sendum, að þessar vörutegund-
ir vantaði og örva þyrfti út-
gerðarmenn til fiskveiðanna.
Útsöluverð hélzt óbreytt. Þetta
var styrkur til útgerðarmanna,
að því er sagt var.
Hér á Akureyri er vöntun á
neyzlufiski svipuð og í höfuð-
borginni. Fiskur er jafnvel flutt
ur allt vestan af Snæfellsnesi.
Fiskseljendur hér í bæ hafa far
ið fram á sömu fyrirgreiðslu og
syðra var veitt, en án árangurs.
Hefur þeíta valdið mikilli
óánægju bæði hér og annars-
staðar á landinu. Hvers vegna
sitja ekki allir við sama borð í
þessu efni?
in og sagði þessa raunalegu tíð-
indi. Þess er nú vænzt, að arm-
bandinu verði skilað hið fyrsta
og verður þá málai'ekstur lát-
inn niður falla. Þeir sem vita
um ai-mbandið, en það hvarf
fyrir kl. 7 á laugardagskvöldið,
eru beðnir að láta vita. Póst-
hólf íslenzk-ameríska félagsins
er 286. Það er illt til afspuxmar
fyrir Akureyri’ að merkum
safngrip skuli stolið á sýningu.
Leggjumst því á eitt, að finna
hann og koma honum til skila.
"DaguiT
SÍÐASTA blað Dags fyrir jól
kemur út á Þorláksdag 23. des.
Auglýsingaliandrit berist vin-
samlega tímanlega. □
TVÆR CÓÐAR BARNABÆKUR
Um meðferð ralmagnsins
Einhver fók ófrjálsri hendi