Dagur - 08.02.1967, Blaðsíða 2
2
Efsta liðið í Handknattleiksmóti íslands, II. deild, leikur á Akureyri
KR - ÍBA á laugard. og suiinud.
Á LAUGARDAGINN kemur,
11. febrúar, kl. 4 e. h. mæta
KR-ingar til leiks hér á Akur-
Á SAFNAÐARFUNDI Sauðár-
krókssafnaðar var á árinu 1965
samþykkt að kaupa gamla
sjúkrahúsið fyrir starfsemi
safnaðarins og til að halda uppi
ýmiskonar félagsstarfsemi og
námskeiðum fyrir eldri og
yngri. Þetta er fyrsta safnaðar-
heimilið utan Reykjavíkur. Síð
astliðinn vetur hafði Æskulýðs
félags Sauðárkrókskirkju starf
semi sína í húsinu og auk þess
var þar „opið hús“ af og til og
ýmis önnur starfsemi fór þar
fram.
Á liðnu hausti voru haldin
námskeið í ýmiskonar handa-
vinnu og föndri kvenna, og var
frk. Helga Vilhjálmsdóttir kenn
ari á þessum námskeiðum, en
sýning var nú nýlega haldin á
nokkrum þeirra muna, er þar
voru unnir..
F-yrir stuttu hófust svo á ný
námskeið í handavinnu og
föndri. Þá eru einnig yfirstand-
andi námskeið í bridge, með-
ferð ljósmyndavéla, skák og
myntsöfnun og eru þátttakend
ur á þessum námskeiðum um
eitt hundrað.
Frá þessu skýrði sr. Þórir
Stephensen, sem er formaður
stjórnar safnaðarheimilisins, er
hann fyrir stuttu kynnti starf-
eyri. Leikið verður í íþrótta-
skemmunni á Oddeyri. KR-ing
ar eru nú efstir í 2. deild, hafa
á Sauðárkróki
semi heimilisins. Þá sagði hann
einnig frá því, að safnaðar-
heimilinu hefðu borizt margar
góðar gjafir frá einstaklingum
og félögum, bæði peningagjafir
og fleira. Nýlega hefði heimil-
inu t. d. borizt að gjöf fyrsta
orgel Sauðárkrókskirkju. Kvað
hann stjórn heimilisins vera
ákaflega þakkláta fyrir þær og
allan hlýhug til þessarar stofn-
unar.
Ymsar leiðir hafa verið farn-
ar til fjáröflunar, en fjárþörf er
mikil. Hafnar eru og fyrirhug-
aðar margskonar breytingar og
endurbætur á húsinu til þess að
það þjóni betur verkefni því,
sem því er ætlað og hafa þegar
verið gerðar teikningar og áætl
anir í þessu efni. Safnaðar-
heimilið hefur notið fjárstuðn-
ings frá Sauðárkróksbæ og
Áfengisvarnaráði. Það hefur og
einnig nokkrar tekjur af sölu
skeyta og korta, auk þess sem
áður getur.
Auk sr. Þóris eru í stjórn
safnaðarheimilisins þau Valur
Ingólfsson, lögregluþjónn, Ólaf
ur Stefánsson, póstmeistari, frú
Sigriður Árnadóttir og frú Sól-
borg Valdimarsdóttir, og bíða
stjórnarinnar mörg verkefni til
úrlausnar vegna reksturs og
endurbóta heimilisins. G. I.
ekki tapað leik, en gerðu jafn-
tefli við Keflvíkinga. Vonandi
verður um jafna og skemmti-
lega viðureign að ræða milli
ÍBA og KR og eru handknatt-
leiksunendur hvattir til að
mæta tímanlega til að tryggja
sér miða.
Samkvæmt mótaskrá verður
dómari Björn Kristjánsson úr
Rvík, en markdómarar Óskar
Einarsson Rvík og Árni Sverris
son Akureyri.
Á sunnudag kl. 2 e. h. leika
KR-ingar aft-ur í íþróttaskemm
unni og verður þá e. t. v. hrað-
keppni fjögurra liða.
Ur bréfi frá dr
í SKEMMTILEGU BRÉFI frá
dr. Richard Beck prófessor seg
ir m. a.:
Góði vinur!
Nú gerist skammt á milli
bæja „efri leiðina“, því að núna
á mánudaginn, þann 23. jan.,
barst mér Dagur frá 18. jan.
með greininni minni um Skáld-
ið frá Fagraskógi, ásamt með
blaðinu frá 14. jan. Þakka þér
bæði fyrir birtinguna og ágæta
meðferð á greininni og fyrir þá
miklu hugulsemi að senda mér
hana í flugpósti. Og skemmti-
legt var það, að hún kom í blað
inu rétt fyrir afmælisdag
Davíðs. Við vorum, eins og þér
mun kunnugt, skólabræður í
Menntaskólanum skólaárið 1918
—1919, og góðvinír ávallt, og
sendi hann mér í pósti eða gaf
mér í heimferðum mínum flést-
ar eða allar bækur sínar árit-
aðar. Þær eru mér dýrmætar
þess og annars vegna. Konan
mín, sem er mjög listræn, er
mér sammála um það, að ljós-
myndirnar þínar séu prýðileg-
ar. Davíðshús naut sín vel á
Æfingatafla handknattleiksfólks KA
ÆFINGAR K. A. í handknattleik í íþróttaskemmunni í vetur
verða sem hér segir:
Klukkan 4.30—5.30 5.30—6.30 6.30—7.30 7.30—8.30
Þriðjud. 4. fl. karla 2. fl. kvenna 3. fl. karla 2. og m.fl. karla
Föstud. 4. fl. karla 2. fl. kvenna 3. fl. karla 2. og m.fl. karla
Nýir félagar hvattir til að mæta. K. A.
Hiigur og liönd
NÝTT tímarit, er Heimilisiðn-
aðarfélag íslands hefur hafið
göngu sína og er fyrsta hefti
fyrsta árgangs nýlega komið út.
Það heitir Hugur og hönd og
er því ætlað að koma út einu
sinni á áfi, er það 18 blaðsíður
en hefði þurft að vera nokkrum
sinnum stærra. Heimilisiðnað-
arfélag íslands, sem er meira
en hálfrar aldar gamalt, hefur
unnið að því að efla og vernda
íslenzkar heimilisiðnað. Hlut-
verk ritsins er hið sama.
í ritinu eru fjöldi mynda, þar
á meðai fjórar litmyndir úr riti
Halldóru Bjarnadóttur um vefn
að á íslenzkum heimilum, grein
er um Heimilisiðnaðarfélag ís-
lands og viðtal við Sigrúnu Stef
ánsdóttur sem veitir forstöðu
verzlun félagsins að Laufásvegi
2, sagt ér frá samkeppni félags-
ins um hagnýta og listræna
muni til sölu og notkunar inn-
anlonds og handa ferðamönn-
um og gefnar ýmsar leiðbein-
ingar um handavinnu, prjón,
vefnað, útsaum og fleira, m. a.
birtar prjónauppskriftir af
kápu og peysu úr íslenzka lop-
anum. — Helga Kristjánsdóttir
ritar greinina Um Heimilisiðn-
aðarfélag íslands.
Þá segir Arnheiður Jónsdótt-
ir frá Heimilisiðnaðarsambandi
Norðui-landa. Kristján Eldjárn
þjóðminjavörður ritar um
þvottaklapp og Matthildur Hall
dórsdóttir um jurtalitun.
Ritnefnd skipa Gerður Hjör-
leifsdóttir, Solveig Búadóttir,
Sigríður Halldórsdóttir og Vig-
dís Pálsdóttir. Gísli Gestsson
hefur gert myndir og um útlit
hefur Hafsteinn Guðmundsson
séð.
Hugur og hönd er til sölu í
verzluninni íslenzkum heimil-
isiðnaði, Laufásvegi 2, Reykja-
vík, og í Verzlun Ragnheiðar
O. Björnsson á Akureyri. Q
Fréttabréf Irá Siglufirði
Siglufirði 6. febrúar. Það sem
af er Þorra hefur verið góð tíð,
frostleysur með hreinviðri dag
og dag. í gær var þó stórhríð en
bjart og stillt í dag og ókyrrð
til hafsins.
Afli línubáta er sáratregur,
enda munu þeir vera að hætta
veiðum. Orri og Tjaldur fara
til Breiðafjarðar. Togarinn Haf
liði seldi í Bretlandi fyrir nokkr
um dögum 160 tonn fyrir 9.200
pund. Afli Hafliða var á síðasta
ári tæp 2.300 tonn. Hann var
gerður út allt árið og fór 22
veiðiferðir, 3 til útlanda en öðr
um afla landaði hann í Siglu-
firði. Siglfirðingur er að hefja
togveiðar fyrir Norðurlandi. Er
Richard Beck
myndinni þinni, og góð var
myndin af blessuðum íslenzku
hestunum. Þá var myndin af
snarrótarpuntinum alveg prýði
leg, og í rauninni táknræn, því
að um hann mætti segja með
skáldinu: „Mér fannst hann
vera ímynd þeirrar þjóðar,“
o. s. frv.
Og nú þegar ég var að festa
á blað þessi þakkarorð til þín,
komu mér í hug eftirfarandi vís
ur, sem kallast mega „Kveðja
heim um haf“, og máttu birta
þær í Degi, ef þú telur þær hús
hæfar þar. Annað fara þær
ekki:
Flug er létt að feðraströnd,
fornar slóðir seiða.
Kveðju rétti ég, hlýja hönd,
hafið yfir breiða.
Heim um loftin heið og blá
hjartans ósk ég sendi:
Ættarjörð með bjarta brá
blessi Alvalds hendi.
Innilegar kveðjur. Þinn einl.
Richard Beck.
hann leigður Síldarverksmiðj-
um ríkisins til aprílloka.
Séra Ragnar Fjalar Lárusson
gifti á síðasta ári 25 siglfirzk
hjón, 52 börn fæddust, 28 meyj
ar og 24 sveinar. 24 Siglfirð-
ingar létust, 13 karlar og 11
konur.
Landsmót skíðamanna verð-
ur háð á Siglufirði um páskana
samkvæmt ákvörðun skíðaráðs.
Skíðafélag Siglufjarðar, Skíða-
borg, sér um framkvæmd móts-
ins og er undirbúningur þegar
hafinn. Mikill áhugi er á skíða-
íþróttinni. Eru ýmiskonar skíða
mót um hverja helgi. Þátttak-
endur í þessum mótum eru allt
frá 6 ára aldri til fertugs.
Sólskinsdagur.
Árið 1917 orti eyfirzki sigl-
firðingurinn Hannes Jónasson
kvæði, sem hann nefndi Til sól-
arinnar. Upphaf þess er svona:
Kom blessuð sól með birtu og yl
til barnanna í landinu kalda.
Síðan hafa Siglfirðingar sung
ið þetta kvæði 28. janúar ár
hvert. En þann dag sér fyrst til
sólar á Siglufirði eftir 9 vikna
sólarleysi skammdegisins.
Hinn 1. febrúar minntust Sigl
firðingar bindindisdagsins og
hefur áfengisvarnaráð staðar-
ins staðið fyrir því. Nemendur
12 ára bekkja bamaskólans og
1. og 2. bekkjar gagnfræðaskól-
ans skrifuðu stíl um áfengi og
tóbak. Beztu ritgerðirnar voru
birtar í Reginn, blaði templara
á Siglufirði, sem kom út fyrsta
febrúar og er hið myndarleg-
asta blað. Að þessu sinni voru
það 12 börn sem viðurkenningu
hlutu fyrir ritgerðir sínar og
birtar voru í blaðinu, 6 úr
barnaskólanum og 6 úr gagn-
fræðaskólanum. J. Þ.