Dagur - 08.02.1967, Page 7

Dagur - 08.02.1967, Page 7
7 - Raiiðikrossiim I (Framhald af blaðsíðu 1) Solferino hafði þá staðið hin blóðuga orusta, þar sem barist hafði 300.000 manna lið og 40.000 þeirra lágu dauðir eða deyjandi í valnum og blóðið flaut til allra átta. Svona var þá stríð. Dunant varð skelfingu lostinn og í fyrstu algerlega ráð villtur. Allar götur og straeti borgarinnar voru full af særð- um, veinandi hermönnum svo hvergi varð þverfótað. En svo hófst hann handa, steig út úr hinum þægilega vagni sínum, setti á laggimar skyndihjálpar- stöð og tók að hjúkra og hjálpa hinum særðu mönnum, jafnt úr báðum herjum. Upp frá þessu helgaði hann þessu málefni alla krafta sína og vann hugsjón sinni fljótt fylgi margra helztu þjóðhöfð- ingja Evrópu og frægra rithöf- unda svo sem Victors Hugo og Charles Dickens. Og brátt var Rauðikrossinn stofnaður eins og áður getur og óx fljótt og breiddist út til þess að verða hin volduga alþjóðafélagsskap- ur, sem allir þekkja. Upphaf- lega var markmiðið að hjúkra og hjálpa særðum og sjúkum hermönnum en starfssviðið víkkaði fljótt og vinnur nú Rauðikrossinn að hinum marg- brotnustu mannúðar- og hjálp- arstörfum ætíð tilbúinn þegar neyðin kallar, spyr aldrei um hver í hlut á, spyr ekki um þjóðerni, litarhátt, trú, þjóðfé- lagslega stöðu eða pólitíska skoðun. Rauðikrossinn gætir jafnan hins ítrasta hlutleysis og tekur aldrei neina afstöðu til deilu- mála en leitast jafnan við að bera friðarorð milli stríðandi aðila, en er sjálfur hátt hafinn yfir allar deildur og flokka- drætti. Hann stendur opinn öll- um frjálsum og heiðarlegum mönnum og félagasamtökum allra landa og allir hafa þar hafa rétt, en einnig hina sömu skyldu, að hjálpa hver öðrum. Rauðikrossinn hefir einnig náð nokkurri útbreiðslu hér á norðurhjara veraldar. Rauða- krossdeild var stofnuð hér á Akureyri að frumkvæði Stein- gríms heitins Matthíassonar þann 29. janúar 1925 en litlu fyrr hafði verið stofnaður í Reykjavík Rauðikross íslands. Stofnendur hér voru 106 manns. Rauðakrossdeildin hér hefir, eins og aðrar Rauðakrossdeild- ir, reynt að starfa að ýmsum líknar- og heilbrigðismálum. Um skeið hafði deildin í sinni þjónustu hjúkrunarkonu, sem hjúkraði í heimahúsum í bæn- um, rak hjálparstöð, hefur rek- ið sjúkrabifreið síðan 1931, tók þátt í kaupum á sjúkraflugvél 1958, ljósastofu síðan 1948. Þá hefur deildin ýmist gengizt fyrir eða tekið þátt í mörgum fjáröflunum til styrktar nauð- stöddum bæði innlendum og útlendum. Og enn eru verkefnin næg, en aðalmál Rauðakross íslends nú, er rekstur hins nýja blóð- söfnunarbíls og er það bæði mikið og verðugt verkefni og munu allar Rauðakross deildir landsins leggja því máli lið eftir beztu getu en jafnframt heita á allan almenning til samstarfs, því að frá honum verður blóð- ið að renna, því að hinar fá- mennu liðssveitir Rauðakross- ins hrökkva skammt til blóð- gjafanna. Sjúkrabifreið Rauðakrossins fór á síðasta ári 466 sjúkraferð ir, sumar alllangar og í sumar var hún búin vandaðri talstöð til öryggis. Bæjarfélagið styrkir nú starfsemi Rauðakrossins með 100 þús. kr. framlagi í stað 25 þús. kr. áður, og sýslan styrk ir starfsemina með 18 þús. kr. framlagi í stað 2 þús. kr. áður, og léttir þetta mjög róðurinn. Fjáröflunardagur Rauðakross ins er á Oskudaginn og eru þá seld merki til ágóða fyrir starf- semina. Þessi merkjasala hefur jafnan borið mikinn árangur hér á Akureyri og sýnir það skilning fólks á líknarmálum. í stjórn Rauðakross deildar Akureyrar eru: Guðmundur Karl Pétursson yfirlæknis for- maður, Jakob Frímannsson framkvæmdastjóri ritari, Guð- mundur Blöndal gjaldkeri, Jó- hann Þorkelsson, Þórður Gunn arsson, Gísli Olafsson, séra Pétur Sigurgeirsson. □ & 2 X Innilegt þakklœti vottii ég öllum þeim, sem sýndu V wi zm’ i n -ki siarPt t / rr ■vn £> zV /í /> i <rn c/i /> -» » l> i 11 /i rl> s>r\ \ i i i /i/r n-X A f 1 mér vinarhng með heimsólin, heillaskeytum og góð- um gjöfum d 70 ára afmceli minu þann 1. februar sið- astliðinn. Sérstaklega þakka ég börnum minum, tengdabörnum og venzlafólki, fallegar og dýrar gjafir. Heill sé ykkur öllum góðu vinir. GUÐMUNDUR BALDVINSSON, Fjólugötu 15. JÓN JÓNSSON frá Skjaldarstöðum, sem lézt fimmtudaginn 2. þ. m. verður jarðsunginn að Bakka í Öxnadal föstudaginn 10. febrúar kl. 2 e. h. Bílferð verður frá Sendibílastöðinni á Akureyri kl. 1 sama dag. Vandamenn. - SMÁTT OG STÓRT (Framhald af blaðsíðu 8). víðar. Á öðruin stað í blaðinu er nánar að þessu vikið. ENGIN GLÆPAHNEIGÐ f ÍSLENDINGUM Óskar Clausen forstöðumaður Fangahjálparinnar í Reykjavík sagði í endurfluttum samtals- þætti í Ríkisútvarpinu sl. sunnu dag, að 90% afbrota væru fram in undir áfengisáhrifum eða vegna drykkjuskapar. Hann sagði ennfremur að það væri engin glæpahneigð í íslending- um, en kæruleysið yrði of ríkt þegar áfengið væri annars veg- ar. Glæpamenn í öðrum lönd- um undirbyggju áform sín vandlega, en hinir ógæfusömu íslendingar, sem gengju inn á vegu afbrotanna gerðu það flest ir viti firrtir vegna Bakkusar, sem hafður væri með í för. TÓK ÁKVÖRÐUN 12 ÁRA „Ég ákvað það að verða bindind ismaður þegar ég var 12 ára gamall“, sagði Óskar, og e. t. v. væri það þess vegna, sem hann hefði náð háum aldri með lítt eða ekki skerta starfskrafta og hefði getað lijálpað mörgum, sem höfðu rekið sig illa á afleið ingar áfengisnotkunar. HRÆDDUR EÐA HUGRAKKUR Einn af fáum bindindissömum ráðherrum flutti nýlega erindi á Akureyri, um bindindismál. Ut af því hafa spunnizt umræð- ur um það, hvort það væri fremur af liræðslu eða hug- rekki, sem sumir höfnuðu þó víni þegar boðið væri. Eflaust hafna menn oft víni af ótta við afleiðingamar, og má líka kalla það forsjálni eða jafnvel hræðslu, á sama hátt og menn hafna hættulegri leið og velja þá leiðina, sem ekki er hættu- leg. En stundum verða menn þá að vera í fámennum hópi og suma brestur hugrekki 'Hl-.þess. VÍN FYRIR 500 MILIJÍÖNIR Á síðasta ári seldi íslenzka rikið þegnum sínum áfengi fyrir rúm ar 500 millj. króna. Að sjálf- sögðu hefur mikið af þessu víni verið vel notað og liófsamlega svo sem siðuðum sæmir. En hvað skyldu þeir vera margir vinnudagamir sem þjóðinni glatazt vegna allrar þessarar drykkju og hve mörg slysin? í landi þar sem áfengisnotkun er orðin jafn mikið þjóðarböl og á íslandi er það e. t. v. stærsta verkefni æskunnar, að berjast fyrir breyttri stefnu. Til þess þarf hugrekki og þrek, en hver aumingi getur látið berast með straumnum. FÉLAGSVIST og DANS í Alþýðuhúsinu föstudag- inn 10. febrúar kl. 8.30. Húsið opnað kl. 8. Geislar leika. Skemmtiatriði. Allir velkomnir án áfengis. S. K. T. G. □ RÚN 5967287 ^ 2 I.O.O.F. Rb. 2 — 11628814 — 0 I.O.O.F. — 148210814 — 0 FÖSTU GUÐSÞJÓNUSTA í Ak ureyrarkirkju kl. 8.30 í kvöld, miðvikudagskvöld. — Sungið úr Passíusálmunum, 1. sálmur vers 1—8, 2. sálm- ur vers 7—11, 3. sálmur vers 1—3 og 22—24. Fólk er vin- samlega beðið að hafa með sér Passíusálmana. P. S. ÆSKULÝÐSMESSA verður í Akureyrarkirkju n.k. sunnu- dag kl. 2 e. h. Ungmenni lesa pistil og guðspjall. Sálmar: 372 — 337 — 370 — 420 — 424. Þess er sérstaklega óskað að væntanleg fermingarböm og foreldrar þeirra mæti: Allir aðrir eldri og yngri velkomn- ir. Sóknarprestar. SUNNUDAGASKÓLI Akur- eyrarkirkju er á sunnudag- inn kemur í kirkjunni og kapellunni fyrir eldri og yngri bömin kl. 10.30 f. h. — Sóknarprestar. AKUREYRINGAR. — Innilega þökkum við glæsilega þátt- töku ykkar við fjáröflun deildarinnar sl. sunudag. Sér staklega viljum við nefna ómetanlega aðstoð fram- kvæmdastjóra KEA, hótel- stjóra og starfsliði Brauð- gerðarinnar. Hjartans þakkir. Slysavarnadeild kvenna Ak- ureyri. LIONSBLUBBUR AK- UREYRAR. Fundur í Sjálfstæðishúsinu fimmtudaginn 9. febr. FUNDARBOÐ. Stúdentafélagið á Akureyri heldur fund í Sjálfstæðishúsinu fimmtudag inn 9. febrúar kl. 20.30. Rætt verður um bókmenntir. Fram sögu hefir Árni Bergmann, blaðamaður. Stjómin. I.O.G.T. stúkan Brynja nr. 99 heldur fund í Bjargi fimmtu- daginn 9. febrúar kl. 8.30 e. h. Bamastúkuni Samúð er boð- ið á fundinn. Leikþættir, veit ingar, ýmis skemmti atriði. — Æ. T. FUNDUR verður hald inn í kapellunni bmmtudaginn 9- febr. kl. 8.30 e. h. Skipti- nemandinn Sigríður Gutt- ormsdóttir sýnir þar lit- skuggamyndir og segir frá dvöl sinni í Bandaríkjunum síðastliðið ár. Fjölmennið. — Stjórnin. FtLADELFÍA Lundargötu 12. Almenn samkoma hvern sunnudag kl. 8.30 e. h. — Sunnudagaskóli hvern sunnu dag kl. 1.30 e. h. Saumafundir fyrir stúlkur hvern miðviku- dag kl. 5.30 e. h. Verið vel- komin. Ui Æ.F.A.K. Félagar munið mess- una á sunnudaginn kl. 2 e. h. Mætum öll. Stjórnin. KRISTILEGAR S AMKOMUR í Landsbankasalnum. Boðun fagnaðarerindisins (Það sem vár fí’á' upphafi) I. Jóh. 1, hvert föstudagskvöld kl. 2.30 í febrúarmánuði. Allir eru velkomnir. — John Holm. Calvin Casselman. RÍKI GUÐS stjómar mitt á meðal óvina hans. Hvað er ríki Guðs? Hvernig fer það fram gegn óvinum hans? — Opinber fyrirlestur fluttur af Leif Sandström fulltrúa Varð turnsfélagsins sunnudaginn 12. febrúar kl. 16 að Bjargi Hvannavöllum 10. Allir vel- komnir. Vottar Jehóva. LEIÐRÉTTING. 1 blaðinu laug ardaginn 28. jan. sl. var sagt frá opnun nýrrar snyrtistofu á Akureyri. í greininni er rangt farið með föðurnafn Önnu Lilju snyrtifræðings. Hún er Gestsdóttir, ekki Gísladóttir. HLÍFARKONUR. Aðalfundur verður haldinn þriðjudaginn 14. febrúar kl. 8.30 síðd. í Amarohúsinu (uppi). Venju- leg aðalfundarstörf. Takið með ykkur kaffi. Mætið vel og stundvíslega. Stjómin. KONUR! Alþjóðabænadagur kvenna er n.k. föstudag 10. febrúar. í því tilefni verður samkoma kl. 8.30 e. h. að Sjón arhæð, sem konur úr kristi- legum félögum hér í bæ halda. Allar konur hjartan- lega velkomnar. NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ. — Sýningarsalur safnsins verð- ur framvegis í vetur opinn almenningi á sunnudögum kl. 2—4 síðd. Skrifstofa safnsins verður opin alla virka daga, nema laugardaga, kl. 4—7 síðd. Sími safnsins er 1-29-83. Áhugamenn og aðrir sem er- indi hafa við safnið eða safn- vörðinn eru jafnan velkomnir á skrifstofutímanum. Varúð á vegum AKSTUR f MYRKRI Næstum allt, sem við gerum í umferðinni, er háð því, sem við sjáum. Ljósin, sem við not- um, þótt þau séu það bezta, sem völ er á, eru þúsimd sinnum daufari en dagsljósið. Þess vegna er miklu vandasamara að ÁTTA SIG á umferðarskilyrð- um í myrkri, og möguleikarnir á því að árekstri verði forðað með því að HEMLA eða STÝRA FRAMHJA HÆTT- UNNI, verða æ minni eftir því sem birtuskilyrðin verða verri. Sá ökumaður, sem vill aka með sem mestu öryggi og hefur áhuga á að tileinka sér þá sér- stöku tækni, sem akstur i myrkri krefst, verður þess vegna tafarlaust, að breyta akst ursvenjum sínum og láta af þeim ávana að aka eins að nóttu sem degi. Það er góð regla að aka ekki hraðar en svo, að ökumaður hafði stöðvunarvegalengdina innan þess svæðis, sem ljósið lýsir upp fyrir framan hann. Þó er ekki hægt að reikna með, að ökumaður geti séð eins langt og Ijóskerin lýsa. Rannsóknir hafa leitt í ljós, að því hraðar sem ekið er, því styttra sér maður frá sér. Á 30 km. hraða er venjulega hægt að koma auga á ýmsa hluti á akbrautinni imi það bil 25 metra framundan, en hvað þá ef ekið er á 60—70 km. hraða eða ennþá hraðar? Verði eitt- hvað óvænt á leið okkar, kom- um við auga á það helmingi seinna, en ef við vissum af því fyrirfram. Til dæmis slæm hola, sem’ maður hefur farið framhjá dag eftir dag og man eftir, kemur manni ekki eins á óvart og hola í vegi, sem maður ekur sjaldan.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.