Dagur - 08.02.1967, Síða 8
8
Hlífarkonur. (Ljósm.: P. A. P.)
Kvenfélagið Hlíf a Akureyri sextíu ára
SMÁTT OG STÓRT
HINN 4. febrúat' varð Kven-
félagið Hlíf á Akureyri 60 ára.
Var afmælisins minnzt á verð-
ugan hátt. Við það tækifæri
rifjaði formaður félagsins, frú
Jónína Steinþórsdóttir, upp
sogu þess í stórum dráttum. Er
stuðst við þær upplýsingar úr
þeirri ræðu hér á eftir.
Frumkvöðull að félagsstofn-
uninni var Hólmfríður Þor-
steinsdóttir. Stofnendur auk
hennar voru, Anna Magnús-
dóttir, Guðfinna Antonsdóttir,
Lára Ólafsdóttir, Magðalena
Þorgrímsdóttir og Pálína Þor-
steinsdóttir, en sjöunda konan
sennilega Filippía Hjálmarsen.
Tilgangur félagsins var að
hjúkra sjúklingum í Akureyrar
kaupstað einkum fátækum,
einnig að hjálpa örvasa gamal-
mennum. Þessi hjúkrunai-störf
vann félagið í 25 ár og sýndu
konurnar mikla fórnfýsi, en á
þeim tímum voru margir hjálp-
arþurfi. Á þessum tíma hafði
félagið að jafnaði eina til tvær
hjúkrunarkonur til starfa í bæn
um. Fjármuna öfluðu Hlífar-
konur með eigin framlögum og
ágóðaskemmtunum af ýmsu
tagi.
Þegar Rauðakrossdeildin var
stofnuð hér á Akureyri tók hún
að nokkru að sér hlutverk Hlíf-
EINS OG kunnugt er af frétt-
um vantaði bændur í Fnjóska-
dal fjölda fjár af Flateyjardals-
heiði á síðasta hausti, jafnvel á
annað hundrað fjár. Er margt
um þetta talað og þykja van-
höld þessi með eindæmum ill
Þak fauk af hlöðu
Frostastöðum 6. febrúar. Hinn
27. janúar sl. gerði mikið austan
rok í Skagafirði. Þann dag fauk
þak af hlöðu á Úlfsstöðum í
Blönduhlíð og austurveggur
hlöðunnar sem var úr steini
brotnaði og féll inn og rúður
brotnuðu á austurhlið íbúðar-
hússins. Roskin hjón, sem búin
eru að vera á Úlfsstöðum síðan
fyrir 1920, Ingibjörg Gunnlaugs
dóttir og Jóhann Sigurðsson,
telja þetta mesta austanveður á
því tímabili. Sama dag fauk
eitthvað af heyi á Höskulds-
stöðum í sömu sveit. M. G.
ar. Á þessum tímamótum í sögu
félagsins, eftir 25 ára hjúkrun-
ar og líknarstörf, urðu þáttaskil
og hofst félagið enn af nýjum
verkefnum, sem í því voru fólg
in að hjálpa fátækum börnum
til sumardvalar í sveit. Þessi
félagsstarfsemi var með ýmsu
móti og fjöldi barna naut þess
að dvelja í sveit á vegum kven-
félagsins. Er sá þáttur hinn
merkasti þó hér verði ekki nán
ar rakinn.
Laugum 7. febrúar. Gott tíðar-
far og færi á vegum síðan um
áramót sér fyrir því að félags-
starfsemi er með sæmilegum
blóma í Reykjadal síðustu vik-
ur. Karlakór Reykdæla hefur
æft síðan í október undir stjóm
Þórodds Jónassonar læknis og
hélt samsöng að Breiðumýri 26.
janúar sl. fyrir fullu húsi og við
ágætar undirtektir áheyrenda.
Sl. sunnudagskvöld söng kórinn
fyrir nemendur og heimafólk
Laugaskóla og aðkomufólk, sem
var þó færra en hefði orðið í
góðu veðurútliti.
Ungmennafélagið Efling hélt
aðalfund sinn 22. janúar sl. og
og lítt skiljanleg.
Á föstudaginn fór Jón Lút-
hersson bóndi á Sólvangi í
Fnjóskadal og Helgi Pálsson
lögregluþjónn á Húsavík á
trillu hins síðarnefnda vestur
að Kinnarfjöllum til að huga að
kindum, sáu sex en náðu engri.
Ókyrrt var í sjó, björgin svell-
bólgin og lítið skyggni. Snéru
þeir aftur við svo búið.
Þar sem talið er líklegt að
kindur þessar séu úr Fnjóska-
dal er undirbúinn leiðangur
þaðan og beðið eftir góðu veðri.
Er ætlunin að fara á snjóbíl
norður yfir héiðar og verða fjór
ir til-fimm menn í þeirri ferð.
Jöklajárn, nælonkaðlar, hakar
og ísaxir verða með í för og
mun ekki af veita því að senni-
lega verður mjög torsótt að ná
útigöngufénu vegna svella og
harðfennis. Líklegt er talið að
fleira fé geti verið á þessum
slóðum en það sem sjómenn-
irnir sáu um daginn. □
Árið 1946 urðu enn tímamót í
sögu Hlífar. Þá eignaðist félag-
ið fjögurra dagsláttu land ásamt
hlöðu. Skipt var á þessu landi
og öðru og byggt þar barna-
heimilið Pálmholt, sem var vígt
11. júní 1950. Það rúmaði 50
börn en varð brátt of lítið. Tíu
árum síðar hafði heimilið verið
stækkað og rúmaði nú 100—110
börn og er eftirsótt. Heimilið
starfar þrjá og hálfan mánuð
(Framhald á blaðsíðu 4)
þorrablót var haldið á laugar-
dagskvöldið 28. janúar, og síð-
astliðið laugardagskvöld hélt
Kvenfélag Reykdæla fjáröflun-
arsamkomu á Breiðumýri til
ágóða fyrir starfsemi sína.
Ef einhverjum skyldi ekki
hafa nægt það sem á seyði er
heimafyrir, þá hefur verið völ
á fleiru, svo sem ýmsum sam-
komum í nágrannasveitum,
þon-ablótum, hjónaböllum og
jafnvel álfadansi.
Að lokum má geta þess að
nokkur skýjadrög eru á annars
heiðum himni stjórnmálanna
hér í sveit. Er það fyrsti fyrir-
boði þeirrar kosningahríðar,
sem væntanlega geisar harðast
fyrir síðustu helgi í júní.
Miðvikudagskvöldið 1. febrú-
ar hélt Framsóknarfélag Reyk-
dæla aðalfund sinn að Breiðu-
mýri. Var þar kjörin stjórn
fyrir félagið og skipa hana: Ingi
Tryggvason Kárhóli foimaður,
og meðstjóx-nendur þeir Teitur
Björnsson Brún og Sigurður
Haraldsson Ingjaldsstöðum. —
Átta nýir félagar gengu í félag-
ið. G. G.
MYND SEM EKKI
GLEYMIST
Bjarni Benediktsson forsætis-
ráðherra sagði í ræðu í vetur,
að þjóðin væri nú stödd á „vega
mótum velmegunnar og vand-
ræða“. Nokkuð verður þess
vart, að sumum flokksmönnum
forsætisráðherra þyki hann
þama hafa komizt óhyggilega
að orði. Þeir segja sem svo, að
stundum megi „satt kyrrt
liggja“ og nú séu kosningar
framundan. Ekki mun það hafa
verið ætlun Bjama að skaða
sjálfan sig eða flokk sinn í kosn
ingum. En viljandi eða óvilj-
andi dró hann upp mynd, sem
ekki gleymist. Góðæri til sjáv-
arins og góðæri í markaðsmál-
um erlendis stuðlaði að velmeg
un í landinu. En í stað velnieg-
unnar hefir nú skapazt vand-
ræðaástand af því að ríkisstjórn
in, sem átti að vera verkstjóri
á þjóðarbúinu, er ekki þeim
vanda vaxin. Góðæri skapaði
velmegunina, en stjórnleysið
vandræðin.
„TRÚIN Á LANDIГ
í áramótaboðskap sínum minnt
ist forsætisráðherrann á „Trúna
á landið“. Það fannst honum, að
því er virtist, hláleg trú, því að
í sömu andránni sagði hann, að
fyrr á tímum hefðu menn trúað
á „stokka og steina“. Þetta var
það orðalag, sem kristnir menn
liöfðu lun skurðgoðadýrkun á
sínum tima. Það er leiðinlegt,
að Bjami Benediktsson skuli
ekki átta sig á því, að ef menn
hefðu ekki „trúað á landið“
væri enginn forsætisráðherra á
fslandi.
TEKJUR HÚSVÍKINGA
í Árbók Þingeyinga er birt
skýrsla um tekjur Húsvíkinga
árið 1965 samkvæmt skattskrá.
Á þeirri skrá vom á árinu 744
einstaklingar og höfðu samtals
nólega 118 millj. kr. í tekjur.
Þessar tekjur fengu þeir frá
eftirtöldum atvinnugreinum og
öðrum aðilum, sem hér segir í
hundraðshlutum:
Atvinnugreinar: %
Sjósókn 22.23
Húsbyggingariðnaður 12.85
Fiskiðnaður 10.59
Verzlun o. fl. 10.36
Opinber störf o. fl. 9.53
Bifreiðastjórn o. fl. 4.10
Mjólkuriðnaður o. fl. 3.64
Vélaiðnaður 3.54
Heilbrigðisþjónusta 2.86
Fataiðnaður 1.89
Landbúnaður 1.35
Utanbæjarvinna 6.81
Bætur 8.74
Ýmislegt 1.51
Skýrsla þessi er gerð af Jó-
hanni Hermannssyni að tilhlut-
an iðnaðarmálanefndar, sem
bæjarstjóm Húsavíkurkaupstað
ar skipaði á sínum tíma. Er
skýrslan fróðleg og umhugsun-
arverð.
VARÚÐÁVEGUM
Svo nefnast samtök um um-
ferðarslysavamir og vinna
þarft verk, sem öllum ber að
styðja. I bréfi til blaðsins segir
Varúð á vegum m. a.:
„f mjög ágætu blaði yðar, dag
inn 10. des. 1966, er rætt um
blindun af ljósum í „Smáu og
stóru“. í greininni er slegið
fram sem staðreynd, „að ekki
sé aðeins þarflaust að aka bif-
reiðum með fullum ljósum, held
ur óæskilegt, þar sem götur eru
vel upplýstar“. Vér viljum
benda á, að þessi rökfærsla nær
aðeins til ökumanna sjálfra, og
þá aðeins í því eina tilfelli að
hætta sé á glýju. Samkvæmt
lögum ber að aka með ökuljós-
um — ekki stöðuljósum (park-
ljósum). Heimild er í 53. gr. um
ferðarlaga, til að ákveða í lög-
reglusamþykkt, að veita undan
þágu um að nota skuli eingöngu
stöðuljós við akstur á tilgreind-
um vel lýstum vegum“.
ÁKA BER MEÐ ÖKU-
LJÓSUM
Síðan segir: „Hversu góð sem
götulýsing er, er langt í land
að hún komi í stað dagsbirtunn
ar. Almennt eru stöðuljós öku-
tækja of lítil til auðkenningar
tækis á ferð. Einstöku bifreiða-
fyrirtæki hafa sett á bifreiðir
sínar svokölluð þéttbýlisljós
(city lights) Benz — Volvo, og
þau ganga vel. Um allan heim
er rekinn mjög sterkur áróður
fyrir því, að ökumenn aki ekki
með stöðuljósum heldur með
ökuljósum og meginatriði er, að
þau séu rétt stillt“.
HOLL RÁÐ GEFIN
Blaðið vill vekja athygli á ný-
útkomnum bæklingi, sem Var-
úð á vegum hefur sent út um
land og er þar m. a. fjallað um
notkun ökuljósa. Bæklingurinn
fæst hjá lögreglunni, tryggingar
félögunum, benzinstöðvum og
(Framhald á blaðsíðu 7)
HESTUR F ELDIST
Á FIMMTUDAGINN bar þa5
við á Húsavík er tveir knapar
voru að liðka gæðinga sína að
þeir mættu skuggalegum full-
ti-úa tækninnar í líki jarðýtu.
Fældist þá annar hesturinn og
hljóp útundan sér. Á vegi hans
var fjögurra ára drengur og sló
hesturinn til hans fæti með
þeim afleiðingum, að drengur-
inn liggur nú á sjúkrahúsi
meiddur á höfði og viðbeins-
bi'otinn. Q
SAMKVÆMT fréttatilkynningu frá Áfengisvarnaráði nam
heildaráfengissala Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins síð-
asta ár 502.3 milljónir króna. Áfengisneyzla fslendinga hefur
ekki verið meiri síðan 1881—1885 eða 2.32 lítrar á mann. —
I krónum jókst salan frá árinu 1965 um rúmlega 100 millj.
kr. eða um 12%. Þetta áfengismagn skiptist þannig á út-
sölustaði: í Reykjavík 412 millj. kr., Akureyri 48 millj. kr„
ísafjörður 14 millj. kr„ Siglufjörður 8 millj. kr. og Seyðis-
fjörður 20 millj. kr. (Hér látið stan'da á heiium millj. kr.).
Til fróðleiks fyrir Akureyrínga má benda á, að árið 1963
var sala áfengis í bænum 28 millj. kr„ en var á síðasta ári
48 millj. kr. eða 20 millj. kr. meiri. Þetta er sú þróun, sem
við blasir, og afleiðingamar ekki síður. □
Leitað að útigöngufé
Mikil félagsstarísemi í Reykjadal