Dagur - 22.03.1967, Qupperneq 8
8
SMÁTT OG STÓRT
■ —"T
ÞUNNUR ÞRETTANDI
Starfsmenn Stáliðnar h.f. við stóran vörubíl, sem verið er að smíða hús á. Lengst til liægri er Guð-
mundur Magnússon. (Ljósm.: N. II.)
Hásgögn frá Stáliðn li.f. til sýnis
í Kaupvangsstræti 3
Á SÍÐASTA ÁRI var nýtt fyrir
tæki stofnað hér á Akureyri,
Stáliðn h.f., og hefur það starf-
semi sína í Norðurgötu 55,
nýrri og rúmgóðri byggingu.
Starfsemin er tvíþætt. Yfir-
byggingar bifreiða og annað,
sem þeim tilheyrir og í öðru
lagi framleiðsla stálhúsgagna
með sérstakri nylonhúðun. En
nylonhúðun þessi virðist nær
óslítanleg og af henni er mjög
góð reynsla erlendis, en Stál-
iðn h.f. á Akureyri er eina fyr-
irtækið hér á landi sem notar
húðunaraðferð þessa og hefur
til þess vönduð tæki.
Nýju stálhúsgögnin fiá Stál-
iðn h.f. eru nú til sýnis í Kaup-
vangsstræti 3. Þau munu henta
vel skólum, samkomuhúsum,
sjúkrahúsum og öðrum þeim
stöðum og stofnunum 'er þurfa
á traustum húsgögnum að
SAMKVÆMT umsögn lögregl-
unnar á Akureyri líða fáir dag-
ar án árekstra ökutækja í um-
Innanfélagsmót Þórs
fyrir börn
Á SKÍRDAG kl. 2 e. h. heldur
Þór innanfélagsmót í svigi fyrir
börn við Skíðahótelið og verður
keppt í aldursfl. 10 ára og yngri,
11 og 12 ára og 13 og 14 ára.
Eru börn á þessum aldri hvött
til að mæta. Verðlaun verða
veitt í öllum flokkum. Q
halda. Akureyrarbær hefur þeg
ar keypt slík húsgögn í nýju
ráðhúsbygginguna, elliheimilið
og fleiri staði. Húsgögn af þess-
ari gerð henta einnig vel í
íbúðum og eru smekkleg. Á síð
ustu tímum hafa erlendar skipa
smíðastöðvar aukið mjög við-
skipti sín við þau fyrirtæki,
sem nylonhúða stál.
Það má benda á, að Stáliðn
h.f. nylonhúðar einnig hvers-
konar stálhúsgögn eftir pöntun
um og aðra þá hluti úr stáli sem
þola 400 stiga hita.
Verðlag hinna nýju húsgagna
virðist vera hagstætt, miðað við
gæði.
Hinni tvíþættu starfsemi fyr-
irtækisins Stáliðn h.f. stjórna:
Guðmundur Magnússon yfir-
byggingum bifreiða, en hús-
gagnaframleiðslunni stjórnar
Níels Erlingsson. Starfsmenn
eru 9 og þar af vinna 6 af eig-
endunum.
Sjálfsagt er fyrir bæjarbúa,
að kynna sér þá nýjung, sem
hér um ræðir, eins og aðra þá
norðlenzku framleiðslu, sem að
öðru jöfnu ber að styðja. □
í lokahófi flokksþings Fram-
sóknarmanna á Hótel Sögu,
sagði málhress maður við þann
er þetta ritar, að sér fyndist
þunnur þrelíándinn að drekka
bara vatn með matnum í slíkri
veizlu. Flciri kosta var vissu-
lega völ á þessurn stað og ekki
hið sama við allra hæfi.
VATNIÐ
í þessu sambandi varð mér
hugsað til atviks daginn áður.
Víðförull Norðurlandabúi hélt
fullu vatnsglasi móti birtunni,
teigaði í botn mælandi eitthvað
á þessa leið: Þvílík auðlegð að
eiga svona vatn. Mánuð eftir
mánuð á nánar tilteknum
stöðum) þráði ég heilnæmt
vatn sem hvergi fékkst hvað
sem í boði var, aðeins öl og vín.
Hversu ógrynni fjár myndu
ekki milljóna þjóðir þessara
landa gefa fyrir uppsprettur
slíks vatns.
MJÓLKIN
Að töluðum þessum orðum
mælti kona þessa manns: Og
þessar vikur og mánuði þráði
ég mjólk, en hana drakk ég
ekki samkvæmt læknisráði,
vegna óhollustu mjólkurinnar
og fyrri reynslu manns míns í
þessu efni. Bragðaði ég ekki
rnjólk frá því að ég fór að hehn
an og þar til ég kom til íslands.
Já vatn og mjólk eru góðar vör
ur á íslandi, sennilega ættum
við að meta þær meira en við
gerurn.
FRUMVARP UM VERÐ-
LAGSMÁL BÆNDA
Formaður Alþýðusambandsins,
Hannibal Valdemarsson, hefir
flutt á Alþingi frumvarp um
afurðasölumál bænda, er hann
ætlast til að koma skuli í stað
aðalákvæða núgildandi laga imi
framleiðsluráfð landbúnaðarins
o. fl. Tekin hefir verið upp í
þetta frumvarp tillaga sem
margir bændur liafa verið fylgj
andi í seinni tíð, þess efnis að í
stað 6 mannanefndar fyrirkomu
LOÐNA hefur veiðzt á Akur-
eyrarpolli og virðist þorskur
einnig genginn inn. Nokkrir
hafa fangið sæmilegan afla. Q
Níels Erlingsson og nokkrar tegundir húsgagna frá Stáliðn h.f. —
(Ljósm.: N. H.)
Ölviin og árekstrar
ferðinni, og eru venjulega
nokkrir á dag. Síðan snjórinn
jókst verður það æ tíðara að
ekið sé á kyrrstæða bíla. Og
fyrir skömmu bar það við að
veghefill bæjarins stórskemmdi
lítinn bíl sem lítið eða ekki sást
móta fyrir í snjóskafli á einni
af götum bæjarins.
Olvunartilfelli, þar sem lög-
reglan þarf til að koma, eru oft
mörg á degi hverjum.
Brotizt var inn í peningshús
á Oddeyri, ennfremur í lúgar
báts er uppi stendur á Odd-
eyrartanga. Q
Framkvæmdastjórn
og blaðstjórn
FRAMKVÆMDASTJÓRN Framsóknarflokksins og blað-
stjórn Tímans var kosin á sunnudaginn af .miðstjóm flokks-
ins. Eysteinn Jónsson var kosinn formaður flokksins, Ólafur
Jóhannesson varaforma/ður, Helgi Bergs ritari flokksins,
Jóhannes Elíasson vararitari, Sigurjón Guðmundsson var
kosinn gjaldkeri flokksins og Kristján Benediktsson vara-
gjáldkeri. Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og for-
maður Samhands ungra Framsóknarmanna, Baldur Óskars-
son, eru sjálfkjörnir í framkvæmdastjórn flokksins. Auk
þess voru þessir kjömir í framkvæmdastjórn: Einar Ágústs-
son, Erlendur Einarsson, Hermann Jónasson, Jóhannes Elías
son, Sveinn Tryggvason, Tómas Árnason og Þórarinn Þór-
arinsson. Til vara: Sigríður Thorlacius og Steingrímur Her-
mannsson.
í blaðstjórn vom kjörin: Erlendur Einarsson, Eysteinn
Jónsson, Jóhannes Elíasson, Jón Kjartansson, Óðinn Rögn-
valdsson, Ólafur R. Grímsson, Sigríður Thorlacius og Sigur-
jón Guðmundsson. Q
lagsins komi samningar milli
Stéttarsambandsins og ríkis-
stjórnarinnar, en á þessa breyt
ingu hefir meirihluti fulltrúa á
Stéttarsambandsfundum raun-
ar enn ekki viljað fallast, hvað
sem verða kann síðar. Að öðru
leyti kennir í frumvarpi H. V.
margra grasa og misjafnra.
FJÓRAR STOFNANIR
Gert er ráð fyrir að settar verði
á stofn fjórar opinberar stofn-
anir eða nefndir til að fjalla um
þau mál, sem hér er um að
ræða:
1. Kjararannsóknarstofnun
bænda, cr sé sjálfstæð ríkis-
stofnun og heyri undir við-
skiptamálaráðherra.
2. Rannsóknar- og eftirlits-
nefnd með dreifingarkerfi og
dreifingarkosnaði landbúnaðar-
vara sem eigi er gert ráð fyrir,
að heyri undir viðskiptamála-
ráðherra.
3. Útflutningsráð landbúnað-
arins, sem á að heyra undir
landbúnaðarráðherra.
4. Samninganefnd um verð-
lag, skipuð fulltrúum frá Stétt
arsambandinu og ríkisstjórnar-
inni.
VIÐMIÐUNIN
Ákvæði 4. gr. núgildandi fram-
leiðslurúðslaga um að afurða-
verðið skuli við það miðað, að
„heildartekjur þeirra, er land-
búnað stunda verði í sem nán-
ustu samræmi við tekjur ann-
arra stétta“, eru ekki í þessu
frumvarpi. En í því eru ný og
breytt ákvæði run útflutnings-
bæturnar. Samkvæmt gildandi
lögum er ríkissjóði skylt að
greiða útflutningsuppbætur til
verðjöfnunar allt að 10% af
lieildarverðmæti landbúnaðar-
framleiðslunnar. Samkvæmt
frumvarpinu er þetta ekki skylt
heldur aðeins heimilt „fyrst um
sinn“, og ber að lækka bætum-
ar (húmarkið) um 50 millj. kr.
á næstu 5 árum. Lagt er til, að
fé sem sparast á útflutningsupp
bótunum, verði varið til að
„jafna og bæta aðstöðu bænda“
og auka framleiðni. Gert er ráð
fyrir innflutningi erlendra land
búnaðarvara „til samanburðar
við verð og gæði innlendrar
frmleiðslu“, og á þessi innflutn
ingur að lieyra undir viðskipta-
málaráðherra.
RANNSÓKNARRÉTTUR
Máli þcssu liefur verið vísað til
landbúnaðarnefndar neðri dcild
ar. Ilefir Dagur frétt, að þaðan
muni það hafa verið sent bænda
samtökunum til umsagnar. 1
umræðum í þingi kom það m. a.
fram lijú Ágústi Þorvaldssyni,
að honum þótti nóg um þann
„rannsóknaiTétt“ sem í frv. er
gert ráð fyrir að setja yfir
bændur og sölufélög þeirra, en
þessi „rannsóknarréttur“ á m.
a. að hafa „aðgang að öllum
framtalsskýrslum bænda til
skatts ár hvert og afitur í tím-
ann“. Þá kemur ýmsuin spanskt
fyrir að gera ráð fyrir innflutn-
ingi landbúnaðarvara eins og
(Framhald á blaðsíðu 2.)