Dagur - 21.06.1967, Page 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
VEGAMÁL
HVAÐ vegamál snertir erum við Is-
lendingar í hópi hinna frumstæð-
ustu þjóða. Hinsvegar á fimmti hver
maður hér á landi bifreið. En vega-
kerfi landsins ber ekki hina miklu
umferð og margir trúa því statt og
stöðugt, að þjóðin ráði ekki við það
verkefni, að leggja sterka og ryklausa
aðalvegi um landið. En þegar á það
er litið, að vegakerfið eru lífæðar
byggða og borga er til mikils að
vinna að koma vegamálunum til
betri vegar. Tugum eða jafnvel
hundruðum millj. kr. er varið til
vegaviðhalds, sem segja má að fari
að nokkru leyti í súginn. Efni veg-
anna er slíkt og slitlagið þar með
talið, að regn, vindur og hitabreyt-
ingarnar, auk umferðarinnar sjálfr-
ar, ónýta vegina á skömmum tíma og
einnig allar viðgerðir. Og á meðan
vegum er svo háttað, sem nú er, end-
ast bílar lítið og viðgerðarkostnaður
þeirra er margfalt meiri en þar, sem
vegir eru sæmilegir. Þessu til viðbót-
ar eru svo hinar liryggilegu yfirlýs-
ingar, jafnvel sjálfs vegamálastjóra,
að viðhald hinna hálfónýtu vega hér
á landi væri orðið óviðráðanlegt
verkefni, og er þá auðvitað átt við
malar- og moldarvegina. Vegamálin
eru komin í sjálfheldu og hindra
eðlilega þróun í mörgum byggðum.
Vantrúnni á getu þjóðarinnar til úr-
bóta þarf að varpa fyrir borð. Snúa
verður við á þeirri óheillabraut, að
minnka vegaféð hlutfallslega, eins
og gert hefur verið. Stjórnmálaflokk-
ar hafa úrbætur í þessu efni á stefnu-
skrá sinni. En samt renna ekki tekj-
umar af innflutningi bifreiða og
rekstrarvara þeirra nema að takmörk
uðum hluta til vegamálanna. Auð-
vitað eiga allar tekjur ríkissjóðs af
umferðinni að renna til endurbygg-
ingu veganna og meira til. Ráðstefna
F. í. B. á Akureyri rökstuddi þá
ályktun sína, að það þyrfti 300 til
350 millj. kr. meira fé til veganna á
ári en nú er veitt, og myndu þá vega-
málin komast í það horf, að batna
verulega í stað þess að drabbast nið-
ur. Rætt hefur verið um hringseg
um landið af betri gerð en nú tíðk-
ast, enn fremur um að endurbyggja
veg milli Reykjavíkur og Akureyrar
með varanlegu slitlagi, o. s. frv. Til
stórátaka í vegamáliun þarf til að
koma erlent lánsfé og væri það þá að
sjálfsögðu miðað við byggingu vand-
aðra aðalvega um landið. En öll vega
málin þarf að taka til gagngerðrar
endurskoðunar eins fljótt og við
verður komið og með það tvennt í
huga, að núverandi ástand er gjör-
samlega óþolandi og vegaviðhaldið
óframkvæmanlegt, eins og vegum er
nú háttað, og með það einnig í huga
að vinna að vegamálum af stórhug og
með framtíðarhag fyrir augum.
Á að sleppa Crimdarveikinni út um land?
AÐ GEFNU TILEFNI finn ég
mig knúðan til að skvifa nokkur
orð um hringormssýkina, sem
kom upp á Grund í Eyjafirði,
svo og meðferð þess máls frá
upphafi, orðróm manna á meðal,
sögur, sannar og ósannar, og
láta fram koma álit mitt á sjúk-
dómi þessum, eftir nær 8 mán-
aða reynslu. Sú reynsla hefur
orðið mér dýr og frómt frá sagt
erfið og ógeðfelld.
Það er upphaf þessa máls, að
seint í október á síðastliðnu
hausti hófst slátrun á nautgrip-
um í sláturhúsi KEA. Þegar
Gísli bóndi Björnsson á Grund
kom með gripi sína til slátrun-
ar, var útlit þeirra þannig, að
það þótti rannsóknarefni, og því
var brugðið á það ráð, að senda
eftir dýralækni, Guðmundi
Knutsen, og tók hann sýnishom
af sjúkdómnum og var hann
þegar sendur suður til Keldna
og var þar greindur. Hófst dýra
læknir þá handa að rannsaka
með hverju eða hverjum „hring
ormurinn" hefði borizt og hvað
útbreiddur hann væri þegar
orðinn. Þannig hagar til, að grip
ir Gísla — bæði mjólkurkýr og
geldneyti — hafa ekki gengið
saman með gripum okkar hér í
Grundarplássinu um nokkurra
ára skeið. Mjólkurkýrnar hafði
hann á eyðijörð (Holti), sem er
afgirt land. Kýr mínar svo og
kýr frá Holtsseli, Finnastöðum
og Árbæ náðu hins vegar að
Holtsgirðingunni. Við fyrstu
rannsókn kom í ljós, að það sá
á nokkrum kúm á framangreind
um bæjum. Einnig kom í Ijós,
að sýnt þótti, að danskur maður,
sem vann í fjósinu hjá Gísla,
hefði borið veikina, enda bar
hann það glögglega með sér, frá
upphafi, að hann var ekki heill
heilsu, hafði húðsjúkdóm, sem
mikið bar á. Hófust nú lækn-
ingar og var farið að fala meðol,
sem helzt þóttu við eiga, en þau
reyndust ófáanleg — voru ekki
til í landinu. Var þá farið að
panta lyfin utanlands frá. Var
hinn mesti seinagangur á að fá
þau og var sýnt, að þar var
illa á málum haldið — bæði var
alltaf pantað svo lítið, að varla
var til skiptanna milli sýktu
býlanna — en þó var hitt enn-
þá furðulegra, að Gísli fékk
miklu meira af þeim, en við
hinir, og álít ég, að þar hafi ver-
ið öfugt að farið, því að veikin
var þegar komin á hæsta stig
hjá honum, enda búin að vara
óáreitt um nokkurra mánaða
skeið, en hún var þó í byrjun
hjá okkur hinum.
Þegar kom fram í desember,
hættu að koma meðöl til okkar
og gekk svo í rúman mánuð.
Um áramótin báru hjá mér
nokkrar kýr og var þá veikin
komin á hátt stig, og var þá svo
komið, að margar af kúnum
voru mikið veikar, og trúi ég
tæplega öðru en Guðmundur
dýralæknir viðurkenni, að svo
hafi verið, því hann kom þá
næstum daglega í fjósið til
mín, þó sjálfur væri oft illa
haldinn af sjúkdómi þessum.
Minnkaði þá tilfinnanlega nyt í
kúnum svo ég leitaði þá til
samlagsstjórans — Vernharðs
Sveinssonar — og bað hann að
rannsaka fitumagnið daglega og
varð hann góðfúslega við beiðni
minni. Kom þá í ljós, að fitan
í mjólkinni fór allt ofan í 2,6%
— áður hafði ég haft meðal-
fitu yfir árið rúm 4%. — En
svo fóru meðölin að berast aft-
ur, og eftir það var enginn
skortur á þeim og þau notuð á
kýmar án þess að spara nokk-
uð, enda fór þeim að líða betur
og fitan í mjólkinni jókst smátt
og smátt, þótt hægt færi. Með-
ölin gerðu mikið gagn, en eru
á engan hátt þess umkomin að
lækna til fulls. Halda má sýk-
inni nokkuð niðri með þeim og
gripirnir verða álitlegir ásýnd-
um.
Þannig stóð á, að ég átti um
40 ungviði — kálfa, sem voru
sumir sex mánaða og eldri, og
aðrir innan við sex mánaða. —
Hafði ég aldrei fengið neinn
dropa af lyfjum til að lina þján-
Snæbjörn Sigurðsson.
ingar þeirra, vegna skorts á
lyfjum. En þegar úr rættist með
lyfin, gerði ég kröfu um lækn-
ingu á ungviðunum, enda var
mér farið að líða illa að horfa
upp á þá alla útataða og kaun-
um hlaðna — með hárlausum
skellum, sem voru mjög áber-
andi. Dýralæknir hóf verkið
með aðstoð okkar heimamanna,
en uppgafst þegar. Sagðist ekki
ráða við þetta, hann mundi
gera kröfu um, að þeim yrði
lógað. Fellst ég á, að svo yrði að
vera, að undangengnum samn-
ingi við landbúnaðarráðuneytið.
Nú liðu dagar og vikur og fékk
ég engin meðul í geldneytin, en
hins vegar fengu allir aðrir
kálfaeigendur á hinu sýkta
svæði meðul í sín ungviði. Ég
galt þess, að þeir þóttu vera of
margir.
Um miðgóu var sendur af
ráðuneytinu Sæmundur Frið-
riksson forstjóri til að gera við
mig samning, sem ég tel mig
knúðan til að birta úr vegna
sagna, sem gengið hafa. Þær
eru á þá leið, að ég hafi ekki
átt hús yfir geldneytin og að
þau hafi verið vanfóðruð, og
ekki hafi verið hægt að bera á
kálfana, vegna þess að þeir
hafi þurft að vera í þurru húsi.
Og fyrir öllum þessum sögum
er Guðmundur Knútsen borinn.
En það sanna í málinu er
þetta:
Ég hafði 8 kálfa í fjósinu og
held ég, að það sé talið sæmi-
lega gott hús, hefði því ekkert
átt að vera því til fyrirstöðu,
að borið væri á þá. Tæpa 20
hafði ég í fjárhúsi, þar sem 100
fjár var fyrir. Það hús er mjög
gott — tvöfaldir veggir, stopp-
að þak, með grindagólfi, svo að
kálfamir voru þurrir og hrein-
ir. Sextán elztu kálfana hafði
ég í trekklausu húsi, sem var
opið nætur og daga — nema
þegar aftakaveður voru. Hey
gaf ég þeim úti — oftast nær
— en matinn gaf ég inni.
í samningi þeim, er Sæmund
ur Friðriksson gerði f. h. land-
búnaðarráðuneytisins við Snæ-
björn á Grund, stendur m. a.:
„Það skal fram tekið, að grip-
irnir virðast vel fóðraðir og í
góðum holdum og hirðing og
annar aðbúnaður í góðu lagi.“
Nú spyr ég Guðmund Knút-
sen að því hvort hann hafi sagt
það, sem eftir honum var haft,
og skora á hann að svara af-
dráttarlaust, hvort hann telji
mig hafa skort hús yfir hinn
umrædda búpening, og hvoi't
hann telji, að þeir hafi verið
vanfóðraðir. Ég fullyrði, að ég
og hann hafi séð ljótari gripi
nú fyrir skömmu hér í nágrenn
inu, sem Guðmrmdur hefur
verið að reyna að lækna fram
að þessu. Annars vísa ég til
sláturhússstjórans. Hann hefur
látið miður vinsamleg orð falla
í minn garð, en ég afsaka hann,
því ég tel hann ekki hafa borið
skyn á þær aðstæður, sem
þarna var búið við. En kjötið
af gripum þessum fór í fyrsta
og annað flokk, en þó líklega
meira í annan flokk.
I tlag standa málin þannig, að
hvergi hefur tekizt að lækna
sjúkdóm þennan og liann liefur
einnig horizt í sauðfé. Engin
dæmi eru fyrir því, að hægt
hafi verið að ráða niðurlögum
sjúkdómsins með lyfjum. Skinn
og húðir ósöluhæf vara og lík-
legt má telja, að eins muni fara
með gærur. Þá má og benda á,
að ef reynt verður að búa við
hinn sýkta búpening, verður
ekki hjá því komizt, að kaupa
mikið af lyfjum til að draga úr
veikinni og þau mun kosta
mikla peninga og aukið erfiði.
Það, sem ber að gera, er að
fara þá leið, sem líklegust er
talin að beri árangur, að ákveðn
um dómi yfirdýralæknis og hún
er niðurskurður ásamt friðun
og einangrun hinna sýktu
svæða. Ef það er ekki gert, er
málið vonlaust. Þá er bara sú
leiðin eftir að Iáta þennan
ófögnuð flæða yfir Iandið.
Það er sagt, að þegar strútur-
inn er að forða lífi sínu undan
ágangi mannanna, grípi hann til
þess örþrifaráðs, að stinga höfð
inu í sandinn svo að hann sjái
ekki frá sér, heldur, að þá muni
ekki aðrir sjá hann. Eins fór
fyrir Gísla bónda. Hann taldi,
að með því að slátra þeim grip-
um, sem verst litu út, mundi
ekkert á þessu bera. En það fór
á annan veg. Þeir, sem unnu að
lógun gripanna töldu að hér
væri ekki allt eins og ætti að
vera, og þá blasti við sú stað-
reynd, að hér væri kominn áður
óþekktur sjúkdómur og hann
mjög alvarlegur, þar sem naut-
gripir, sauðfé, hestar, svín og
síðast en ekki sízt menn tækju
hann, og hefur hann það fram
yfir alla aðra búfjársjúkdóma,
sem hér hafa herjað. En þessi
mikla leynd olli því, að kýr
voru seldar út í Höfðahverfi og
á jjví ferðalagi barst smitun á
annanbæ.
Eins og að framan greinir er
það staðreynd, að ég hefi orðið
fyrir miklu afurðatjóni, en þeir
hinir telja sig ekki hafa orðið
fyrir því, jafnvel hafi afurðir
aukizt við að fá veiki þessa.
Einn sagðist aldrei hafa haft
betri fitu, og annar sagði, að
aldrei hefði mjólkað betur hjá
sér, en síðan veikin barzt í grip
ina. Sá þriðji, sem að veikin
herjaði hjá nokkru seinna,
sagði, á meðan ekki var vitað
að veikin væri til hans komin,
að sjálfsagt væri að lóga þessum
gripum strax, sem sýktir væru.
En eftir að veikin hafði borizt
til hans, vár hann á annarri
skoðun, sagði að Danir hlægju
að þessu, en ég held, að Danir
hlæi ekki og það er grunur
minn, að nú sé hann farinn að
átta sig á, að sendingin sé ekki
eins meinlaus og hann vill vera
láta.
Meinið er, að þeir menn, sem
að hafa orðið fyrir barðinu á
veiki þessari, skilja ekki, að hér
er mikill voði á ferð fyrir land-
búnaðinn, ef ekki verður mikið
á sig lagt, og til þess að reyna
að koma í veg fyrir að gerðar
verði róttækar aðgerðir, sem
nægja til að útrýma bölvaldi
jressum, eru jreir að ófrægja
mig. Þeir vita, að mér er Ijós
hættan og að ég geri allt, sem
hægt er til að vara aðra við,
enda er mikill voði á ferðinni.
Þeir eru að reyna að læða inn,
að afurðatjón mitt stafi af jrví,
að ég fóðri illa mínar skepnur.
Þetta eru ógeðsleg ósannindi.
Afurðir eftir hvern einstakling
segja nokkuð um aðbúðina, og
ég fullyrði, að mitt bú hafi ekki
sýnt lakari útkomu en þeirra.
Að lokum vil ég benda á, að
þeir bændur, sem sýkin hefur
borizt til, hafa sýnt mikið
ábyrgðarleysi, og jafnvel geng-
ið svo langt, að telja fólki trú
um að búið væri að útrýma
henni að fullu. Þetta er furðu-
legt. Nú í dag stöndum við sízt
nær því niarki en í upphafi að
lækna veikina.
En það er annað, sem vert er
að geta um. Við höfum enn
menn, sem hafa félagslegan
þroska, hugsjónir og halda vöku
sinni. Héðan úr sveitinni fór
piltur að Hvanneyri. Systkini
þessa pilts höfðu sýkzt af sjúk-
dómi þessum. Pilturinn fór
heim í jólaleyfi, en þegar það
var liðið, fór hann aftur til
Hvanneyrar til að setjast í skól-
ann. Skólastjórinn sendi hann
þegar heim aftur — vildi ekki
eiga á hættu, að hann bæri veik
ina. Pilturinn og aðstandendur
hans voru engan veginn ánægð
yfir, en þessu varð ekki breytt.
Nokkru seinna vitnaðist, að
hann hafði tekið veikina. Ef
skólastjórinn hefði ekki tekið
svo drengilega og skynsamlega
á málinu, má telja fullvíst, að
illa hefði farið á hinu mikla
Hvanneyrarbúi.
Mér hefur verið sagt af einum
sýslunefndarmanni, að lagt hafi
verið bréf inn á sýslufund Ey-
firðinga frá þeim mönnum, sem
veikin hefur herjað hjá, og að
tilgangur með bréfinu hafi ver-
ið sá, að slæva aðgerðir sýslu-
nefndar til að taka jákvæða af-
stöðu til þessa máls, og muni
það hafa tekizt. Tvö nöfn eru
nefnd í sambandi við þetta bréf.
Þeirra Gísla Björnssonar hrepp
stjóra á Grund og Ketils Guð-
jónssonar á Finnastöðum, sem
var fulltrúi Eyfirðinga á bún-
aðarþingi, greiddi hann þar at-
kvæði með ályktun þeirri, sem
samþykkt var þar í máli þessu,
sem kunnugt er. Gísli Magnús-
son, Eyhildarholti, formaður bú
fjárræktarnpfndar Búnaðar-
þings, gétur þess í blaðagrein,
að Ketill hafi haldið þar ágæta
ræðu og talið nauðsynlegt, að
gerðar væru þær ráðstafanir, er
telja mætti til almennrar nauð-
synjar. Þessi var afstaða hans á
Búnaðarþingi, en hún er nú orð
in önnur heima í héraði.
Skrifað á Grund 18. júní
Snæbjörn Sigurðsson.
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
lítt til sunds í straumvatni falln
ir. Lanibið gerði eina tilraun til
að stökkva upp á bakkann en
liún mistókst, stóð það svo um
stund á steininum og litaðist
um. Lagðist það svo til sunds
niður með bakkanum, þar til
það fann skarð í hann og upp-
gönguleið. I\Iun það hafa orðið
frelsinu fegið og einnig glöddust
veiðimenn.
S
Magnús Gunnlaugsson
KVEÐJUORÐ
Reynir Hjariarson, KA, hlaut fles! stig
Frá 17. júní-mótinu á Akureyri 1967
15. JÚNÍ (fyrri dagur).
800 ni hlaup. mín.
1. Ásgeii Guðmundsson KA 2:09,0
2. Þórir Snorrason UMSE 2:10,5
3. Bergur Höskuldsson UMSE 2:13,6
4. Halldór Guðlaugss. UMSE 2:13,9
Langstökk. m
1. Sig. V. Sigmundsson UMSE 6,13
2. Sigurður Friðriksson HSÞ 6,03
3. Lárus Æ. Guðmundsson ÍMA 5,92
4. Jón Benónýsson FISÞ 5,80
200 nt hlaup. sek.
1. Rcynir Hjartarson KA 23,9
2. Lárus Guðmundsson ÍMA 24,4
3. Jón Benónýsson HSÞ 24,7
4. Jón Friðgeirsson UMSE 25,2
4x100 m boðhlaup. sek.
1. Sveit UMSE 47,2
2. Sveit KA 47,3
Kúluvarp. m
1. Þóroddur Jóhannss. UMSE 12,80
2. Sig. V. Sigmundsson UMSE 12,41
3. Oddur Sigurðssou KA 11,72
2. Oddur Sigurðsson KA 2,96
3. Reynir Hjartarson KA 2,85
1500 m lilaup. mín.
1. Bergur Höskuldsson UMSE 4:40,6
2. Þórir Snorrason UMSE 4:41.2
3. Halldór Guðlaugss. UMSE 4:43,7
Hástökk. m
1. Halldór Matthíasson KA 1,77
(Jafnt Akureyrarmeti).
2. Reynir Hjartarson KA 1,74
3. Jóhann Jónsson UMSE 1,64
Spjótkast. m
1. Villij. Ingi Árnason KA 45,77
2. Halldór Matthiasson KA 45,05
3. Oddur Sigurðsson KA 43,11
1000 m boðlilaup. mín.
1. Sveit UMSE 2:09,3
(Hreinn, Jóh. J., Jóh. Fr. og
Sig V.)
2. Sveit KA 2:10,8
(Ingi, Kári, Haildór J. og
Ásg.)
17. júní bikarinn er gefinn
árlega af Olíusöludeild KEA og
er veittur þeim keppanda frá
Akureyri eða Eyjafirði, sem
beztum árangri nær samkvæmt
gildandi stigatöflu.
Keppni var að þessu sinni
mjög tvísýn og var í fyrstu
álitið, að Halldór Matthíasson
(1,77 m í hástökki) og Þórodd-
ur Jóhannsson (12,80 í kúlu-
varpi) hefðu orðið hlutskarp-
astir með 652 stig. En við end-
urskoðun á stigaútreikningi
kom í ljós að Reynir Hjartar-
son hafði gert enn betur og
hlotið 653 stig fyrir 200 m hlaup
á 23,9 sek. En þessir þrír voru
lang stigahæstir keppenda. □
MAGNIIS OG HAFLIÐI SIGIJRVEGARAR
Kringlukast. m
1. Þóroddur Jóhannss. UMSE 34,00
2. Sig. V. Sigmundsson UMSE 33,17
3. Oddur Sigurðsson KA 29,39
4. Halldór Jónsson KA 26,34
17. JÚNÍ (seinni dagur).
100 m lilaup (mótvindur). sek.
1. Reynir Hjartarson KA 12,0
2. Höskuldur Þráinsson HSÞ 12,0
3.-4. Jóhann Friðgeirsson UMSE 12,2
3.-4. Sig. V. Sigmundsson UMSE 12,2
Stangarslökk. m
1. Kári Árnason KA 2,96
Kalf og erfitt
Kasthvammi 11. júní. Það var
stöðug norðanátt til 29. maí, og
hrímaði öðru hverju, frost flest
ar ’nætur — allt að 10 stig —,
marga daga var einnig frost.
Góðir dagar voru frá 29. maí til
4. júní og þá var von allra að
vorið væri komið, o gveitti ekki
af, en svo var aftur kaldara í
nokkra daga o gsnjóaði hér
niður að Laxá þann 6. júní en
gott veður nú í 4 daga.
KEPPNISTÍMABIL kylfinga
hófst um síðastliðinn mánaða-
mót og fór þá fram Flaggkeppni.
Sigurvegari í þeirri keppni varð
Magnús Guðmundsson. í þessari
keppni náði Magnús að leika
hringinn í 35 höggum, sem er
bezti árangur á vellinum í vor.
Þá léku þeir Ragnar Steinbergs
son og Gunnar Sólnes í 38 högg
um. Virðist sem kylfingar séu
komnir í sæmilega æfingu.
Urslit urðu þessi:
1. Magnús Guðmundsson.
2. Ólafur Stefánsson.
vor í Lðxárdal
•
Ekki hefur verið hægt að
bera á tún fyrir bleytu, og sum
litu út eins og mýrarflói eftir
rigninguna á fimmtudaginn.
Annríki er nú mikið, því allur
tíminn fram að þessu hefur far-
ið í sauðburðinn, sem er há
lengsti og erfiðasti síðan 1949.
Kjörsókn var ágæt hér í dag.
G. Tr. G.
3. Ragnar Steinbergsson.
4. Sigurður Stefánsson.
Fyrsta bikarkeppnin fór fram
á Golfvelli félagsins um fyrri
helgi. Þá var keppt um Micky’s
Cup bikarinn. Keppnin er • 18
holu höggleikur með % forgjöf.
Eftir fyrri hluta keppninnar (9
holur) hafði Þói’ai'inn Jónsson
tekið forustuna með 36 högg
nettó, en fast á eftir komu Ólaf-
ur Stefánsson og Haukur
Jakobsson með 37 högg, og Haf
liði Guðmundsson með 38 högg.
En í seinni hring tók Hafliði
fljótt forustuna en Þórarinn
fylgdi fast á eftir. Eftir 17 holur
hafði Hafliði örugga forustu og
lék hringinn í 32 höggum nettó
(36 högg brúttó), sem er prýðis
árangur og annar bezti sem
náðzt hefur á einum hring í
keppni í vor. Hafliði, sem kom-
inn er yfir fimmtugt, hefur ver-
ið með beztu kylfingum klúbbs
ins sl. 20 ár og virðist enn í góðu
formi.
Urslit urðu þessi: högg
1. Hafliði Guðmundsson 70
2. Þórarinn Jónsson 74%
3. Ólafur Stefánsson 78
4. Haukur Jakobsson 79
5. Frímann Gunnlaugsson 81
MAGNÚS GUNNLAUGSSON,
iðnverkamaður á Akureyri, var
til moldar borinn á Tjöi-n í
Svarfaðardal 10. júni sl. að við-
stöddu miklu fjölmenni Séra
Stefán V. Snævarr jarðsöng.
Konur önnuðust veitingar
handa kirkjugestum í Húsa-
bakkaskóla að jarðarför lokmni.
Magnús var fæddur á Ytri-
Reistará í Amarneshreppi 10.
júlí árið 1899 en fluttist nokk-
urra daga gamall að Hreiðar-
staðarkoti í Svarfaðardal og
var tekinn í fóstur af hjónunum
þar, Þorbjörgu Þórðardóttur og
Aðalsteini Sigurðssyni. Ellefu
ára gamall fór hann á ný til
foreldra sinna og var hjá þeim
um skeið en þaðan fór hann
vestur í Fljót og var þar á
ýmsum bæjum, meðal annars
var hann smali á Hraunum. Þá
var fremur hart í ári, víðast
fátækt og verður víst ekki sagt,
að hinn ungi sveinn hafi alizt
upp við neitt dekur a. m. k. ekki
þegar foreldrahúsum og Hreið-
arstaðakoti sleppti. Átján ára
kom hann aftur í Svarfaðardal
og dvaldi þar á ýmsum stöðum,
þar til hann fluttist til Akur-
eyrar fyrir tvehn áratugrun og
gerðist þar verkamaður og iðn-
verkamaður en síðast blaðburð
armaður, eftir að starfsþreki tók
að hnigna.
Magnús Gunnlaugsson var
mikill Svarfdælingur og unni
þeirri sveit til dauðadags af
allri sinni meðfæddu tryggð og
ræktarsemi. Hann gaf, af litlum
efnum, öllum kirkjum Svarfað-
ardals peningagjafir og Húsa-
bakkaskóla ágætai' bókagjafir.
Hann var lengi fram eftir ævi
eldheitur ungmennafélagi ög
Gróður er frekar lítill enn,
sem vonlegt er, þó er viður að
springa út og mjög hefur gróið
þessa síðustu daga, því nógar
hafa úrkomur verið, og ef hlýn-
ar að ráði ætti að spretta ört,
og veitir ekki af því, bráðum
fer dagurinn að styttast.
Sauðburði er allsstaðar lokið
— eða svo til — og gekk hann
vel, lambahöld ágæt hjá flestum
og víðast mikið tvílembt. En
það kostar mikið bæði í fóðri og
vinnu að vera með lambær í
húsi í 4—5 vikur. Elztu lömbin
eru 5 vikna gömul um þessa
helgi. Flestir eru búnir að
sleppa einlembum, og við hér í
Kasthvammi slepptum tvílemb-
um á föstudagsmorgun, þann 9.,
og eru það fyrstu tvílembur
sem sleppt er hér í dal. Aðrir
eru með tvílembur heima á tún
um og gefa auk þess hey og
fóðurbætir. Flestir létu hey sín
duga, en fóðurbætiskaup eru
orðin mikil.
í Iok maí og byrjun júní ár hvert kemur fjöldi af nýju starfsfólki til að vinna hjá Kaupfélagi
Eyfirðinga, mest til þess að leysa eldra starfsfólkið af í fríum þess, sem nú eru 21—27 dagar
virkir. Kaupfélagið reynir að kynna nokkuð starfsháttu samvinnufélaga fyrir þessu nýja fólki,
skýrir fyrir því hvers það njóti og hvers af því sé krafist í starfi. — Á myndinni er ViIIielm
Ágústsson, búðareftirlitsmaður Nýlenduvörudeildar, að sýna nýju starfsfólki deildarinnar hvern
ig síimpla skuli vörurnar inn á peningakassann. (Ljósni.: G. P. K.)
ósérhlífinn að starfa fyrir mál-
efni þeirra félaga, mælskumað-
ur á málþingum, mikill sam-
ræðumaður, fróðleiksfús og
minnugur. Hann fékkst ofur-
lítið við vísnagerð, ritaði eitt og
annað í blöð og tímarit og var
áhugamaður um félags- og
menningarmál. Hann var alla
ævina að afla sér margvíslegrar
þekkingar og bætti sér á þann
hátt mjög vel upp þá menntun,
sem honum auðnaðist ekki að
hljóta á skólabekk.
Samvizkusamur var Magnús
í starfi, ti-yggur vinur vina
sinna og hugsjónum sínum trúr.
Ymislegt skemmtilegt datt hon
um í hug og lengi fékkst hann
jafnvel við að búa til nýtt tungu
mál. Kvað hann vísur við raust
á því máli í vinahópi. Daglegur
gestur var hann síðustu misseri
á skrifstofum Dags, spurði þá
margs og setti heldur ekki ljós
sitt undir mæliker. Og þótt okk
ur fyndist mælska hans stöku
sinnum úr hófi og þróttmikill
málrómur e. t. v. truflandi á
stundum, var hann þó ætíð vel-
kominn gestur og tómlegra þeg
ar hann var að fullu horfinn
okkur. Heilsa hans var mjög
tæp síðustu mánuðina og varð
ég þess þá oft var hve Svarf-
aðardalur átti djúp ítök í hon-
um og líkast því að heimasveit-
in hans, sem hann unni svo
fölskvalaust, seiddi hann til sín.
Magnús fékk þá ósk sína upp
fyllta að hvíla í svarfdælskri
mold. Löngu eftir að grænn
gi'óður þekur leiði hans, munu
sveitungar hans og vinir meta
átthagatryggð hans, sem var
einstök bæði í orði og verki.
E. D.
Karlðkórinn j
kominn heim
KARLAKÓR AKUREYRAR
kom úr söngför sinni til Norður
landa að morgni hins 17. júní,
eftir 15 daga ánægjulega ferð.
Hvarvetna mætti hann hinum
ágætustu viðtökum og söngur
inn fékk góða dóma. — I för
þessari voru rúmlega 80 manns,
þar af 41 söngmaður. Farar-
stjóri var Jónas Jónsson frá
Brekknakoti en fyrir hönd
Ferðaskrifstofunnar Jón Egils-
son forstjóri.
Síðustu 2 daga ferðarinnar
var dvalið í Kaupmannahöfn,
en þar stóðu þá yfir mikil há-
tíðahöld vegna 800 ára afmælis
borgarinnar. □
Studdir á kjörstað
Ófeigssíöðum 12. júní. Sauðgróð
ur er að verða saemilegur.
Allir fóru að kjósa, sem vetl-
ingi gátu valdið, og tvo þurfti
að styðja, en áhugi þeirra var
nógur þótt fætur væru orðnir
þreyttir.
Vegir eru orðnir sæmilegir.
Geysilegur vöxtui' er í fljótinu
en það hefur ekkret gert af sér
ennþá. Hætt var að hýsa það
síðasta af fénu þann 10. júní her
á Ófeigsstöðum. B. B,